Esseline skrifaði:
"INFORMATIE VOOR HET HAKEN: Elke toer van halve stokjes begint met 2 lossen (deze vervangen niet het eerste halve stokje) en eindigt met 1 halve vaste in de 2e losse op het begin van de toer. Elke toer van stokjes begint met 3 lossen (deze vervangen niet het eerste stokje) en eindigt met 1 halve vaste in de 3e losse op het begin van de toer." Hoezo vervangen de lossen niet het eerste (halve) stokje? Wat is dan wel de bedoeling? Bij voorbaat dank voor uw antwoord.
25.05.2022 - 00:54DROPS Design svaraði:
Dag Esseline,
Nadat je aan het begin van een toer van stokjes 3 lossen hebt gehaakt, begin je met het haken van de stokjes in het telpatroon, waarbij je dus ook het eerste stokje haakt. In sommige patronen wordt het eerste stokje vervangen door 3 lossen, maar in dit patroon wordt deze dus aanvullend gehaakt. (Hetzelfde geldt voor de halve sokjes / 2 lossen.)
27.05.2022 - 09:03
Monika skrifaði:
Sweter wychodzi dosyć luźny. Lepiej wybrać mniejszy rozmiar.
08.04.2022 - 23:11
François skrifaði:
Bonjour j’aimerais faire ce modèle Mes voila je trouve que l’on voie ou on commence les 2 ou 3 ml ce voie Merci de votre reponse
07.03.2022 - 11:53DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme François, vous parlez des 3 ml du début des tours? Ces mailles en l'air se font pour arriver à la bonne hauteur pour les brides, elles sont indispensables pour crocheter le tour suivant. Essayez de les faire aussi haute qu'une bride pour qu'elles puissent être le plus discret possible. Bon crochet!
07.03.2022 - 20:05
Be Studman skrifaði:
Hi That's a lovely pattern but the graphics are not loading. Many thanks
01.03.2022 - 11:28DROPS Design svaraði:
Dear Be, sometimes, due to high Internet traffic, some graphics take some time to load; you can check the webpage later on and see them without issues.
11.03.2022 - 18:36
Таццяна skrifaði:
Вельмі чакаю! Гэта чароўная мадэль!
15.02.2022 - 22:58
Ellie skrifaði:
Spring diamonds 🥰 Looking forward to the pattern! Thank you 💜
01.02.2022 - 15:34
Carol skrifaði:
Spring stroll
19.01.2022 - 06:09
Jennifer Chung skrifaði:
Kristen! After my daughter.
18.01.2022 - 21:59
Nina skrifaði:
Lækker bluse SOLVEIG🌞
17.01.2022 - 16:56
Annie Charland skrifaði:
Cherry Blossom
15.01.2022 - 05:36
Sommarfin#sommarfinsweater |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Air. Stykkið er heklað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og gatamynstri. Stærð XS - XXL.
DROPS 232-49 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8. ÚTAUKNING: Aukið er út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í sama stuðul. LOFTLYKKJUR: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli. HEKLLEIÐBEININGAR: Allar umferðir með hálfum stuðlum byrja með 2 loftlykkjum (þær koma ekki í stað fyrsta hálfa stuðulinn og umferðin endar með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju í byrjun á umferð. Allar umferðir með stuðlum byrja með 3 loftlykkjum (þær koma ekki í stað fyrsta stuðuls) og umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar. ÚRTAKA (á við um ermar): Heklið fyrstu 2 stuðlana saman þannig: * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri), heklið mynstur eins og áður þar til 2 stuðlar eru eftir í umferð, heklið 2 næstu stuðla saman eins og útskýrt er að ofan. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsi og berustykkið er heklað í hring, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar og heldur síðan áfram í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Heklið 64-70-72-78-82-84 LOFTLYKKJUR – sjá útskýringu að ofan, með heklunál 5 með DROPS Air og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju – sjá HEKLLEIÐBEININGAR. Heklið 1 hálfan stuðul í hverja loftlykkju = 64-70-72-78-82-84 loftlykkjur. Heklið síðan A.1 yfir allar lykkjur. Þegar A.1 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina, mælist stykkið ca 4 cm. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Heklið 1 umferð með 1 stuðul í hvern stuðul og aukið út 0-2-8-10-14-20 stuðlar jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 64-72-80-88-96-104 stuðlar. Heklið A.2 alls 8-9-10-11-12-13 sinnum hringinn á berustykki. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.2 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 128-144-160-176-192-208 stuðlar í síðustu umferð. Stykkið mælist ca 7 cm frá prjónamerki. Heklið 0-0-0-0-1-1 umferð með 1 stuðul í hvern stuðul. Heklið A.3 alls 16-18-20-22-24-26 sinnum hringinn á berustykki. Heklið 0-0-0-0-1-1 umferð með 1 stuðul í hvern stuðul. Heklið A.4 alls 8-9-10-11-12-13 sinnum hringinn á berustykki. Þegar A.4 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina, eru 176-198-220-242-264-286 stuðlar í síðustu umferð. Heklið 0-0-0-0-1-1 umferðir með 1 stuðul í hvern stuðul. Stykkið mælist ca 19-19-19-19-22-22 cm frá prjónamerki. Heklið A.5 alls 16-18-20-22-24-26 sinnum hringinn á berustykki. Haldið svona áfram. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 21-22-23-24-26-28 cm frá prjónamerki – stillið af að síðasta umferð sé ekki umferð með 3 loftlykkjum / fastalykkjum í mynstri, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Heklið A.5 yfir 22-22-22-33-33-33 lykkjur, A.6 (stillið mynstrið af miðað við umferð sem byrjað er á), 1 stuðull í hverja af næstu 3-0-3-1-0-4 lykkjur, hoppið yfir næstu 34-40-45-49-51-54 lykkjur fyrir ermi, heklið 11 loftlykkjur undir ermi, 1 stuðull í hverja af næstu 3-0-3-1-0-4 lykkjur, A.5 yfir næstu 44-55-55-66-77-77 lykkjur, A.6, 1 stuðull í hverja af næstu 3-0-3-1-0-4 lykkjur, hoppið yfir næstu 34-40-45-49-51-54 lykkjur fyrir ermi, heklið 11 loftlykkjur undir ermi, 1 stuðull í hverja af næstu 3-0-3-1-0-4 lykkjur, A.5 yfir næstu 22-33-33-33-44-44 lykkjur. Fram- og bakstykki og ermar er síðan heklað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 130-140-152-166-184-200 lykkjur. Klippið þráðinn. Nú færist umferðin til þannig að hún byrjar mitt undir ermi. Heklið 1 fastalykkju í miðju loftlykkju undir hægri ermi, 3 loftlykkjur, 1 stuðull í hverja og eina af næstu 9-6-9-7-6-10 lykkjur (þ.e.a.s. fyrsti stuðullinn er heklaður í sömu loftlykkju og fastalykkjan), A.5 yfir næstu 44-55-55-66-77-77 lykkjur, A.6, 1 stuðull í hverja af næstu 17-11-17-13-11-19 lykkjur, A.5 yfir næstu 44-55-55-66-77-77 lykkjur, A.6, 1 stuðull í hverja af síðustu 8-5-8-6-5-9 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur. Í 6. umferð í A.5 er síðasti stuðullinn heklaður undir ermi á undan A.5 sem kúla, þannig að fyrsta endurtekningin af A.5 verður heilt blóm. Þegar stykkið mælist 21-22-23-24-24-24 cm frá skiptingu, stillið af að endað sé fallega tekið mið af mynstri, heklið A.7 yfir allar lykkjur. Endurtakið síðustu umferð í A.7 þar til stykkið mælist 25-26-27-28-28-28 cm frá skiptingu. Klippið þráðinn frá og festið. Stykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. ERMAR: Heklið nú yfir 34-40-45-49-51-54 lykkjur sem hoppað var yfir fyrir ermi í annarri hlið á stykki þannig: Heklið 1 fastalykkju í 6. loftlykkju mitt undir ermi, 3 loftlykkjur, 1 stuðull í hverja og eina af næstu 3-6-3-5-6-2 loftlykkjur undir ermi (þ.e.a.s. fyrsti stuðull er heklaður í sömu loftlykkju og fastalykkjan), A.8 (stillið mynstrið af miðað við umferð sem byrjað er á), A.5 yfir næstu 33-33-44-44-44-55 lykkjur, 1 stuðull í hverja af síðustu 2-5-2-4-5-1 lykkjur = 45-51-56-60-62-65 lykkjur. Í 6. umferð í A.5 er ekki hekluð síðasta kúlan í síðustu endurtekningu á breiddina, einungis eru heklaðar kúlur þar sem pláss er fyrir heilt blóm. Haldið svona áfram með mynstur hringinn. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona með ca 10-6-4-2½-2½-2 cm millibili alls 3-5-7-9-9-10 sinnum = 39-41-42-42-44-45 lykkjur. Haldið áfram með mynstur sem gengur jafnt upp á breiddina, aðrar lykkjur eru heklaðar í stuðlum. Þegar ermin mælist 32-31-31-30-28-27 cm frá skiptingu, stillið af að endað sé fallega tekið mið af mynstri, heklið A.7 yfir allar lykkjur, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 1-1-0-0-0-1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman (þetta er gert til að mynstrið gangi jafnt upp í kringum ermi) = 38-40-42-42-44-44 lykkjur. Endurtakið síðustu umferð í A.7 þar til stykkið mælist 40-39-39-38-36-35 cm frá skiptingu. Klippið þráðinn og festið. Heklið hina ermina alveg eins. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sommarfinsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 12 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 232-49
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.