DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Air yarn
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1474.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8844.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Sommarfin

Hekluð peysa úr DROPS Air. Stykkið er heklað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og gatamynstri. Stærð XS - XXL.

Velja stærð:
DROPS 232-49

#sommarfinsweater

DROPS Design: Mynstur ai-379
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-350-400-400-450-500 g litur 33, bleikur sandur

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 5.

HEKLFESTA:
14 stuðlar á breidd og 8,5 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1474.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8844.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8.

ÚTAUKNING:
Aukið er út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í sama stuðul.

LOFTLYKKJUR:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Allar umferðir með hálfum stuðlum byrja með 2 loftlykkjum (þær koma ekki í stað fyrsta hálfa stuðulinn og umferðin endar með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju í byrjun á umferð.
Allar umferðir með stuðlum byrja með 3 loftlykkjum (þær koma ekki í stað fyrsta stuðuls) og umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Heklið fyrstu 2 stuðlana saman þannig:
* bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri), heklið mynstur eins og áður þar til 2 stuðlar eru eftir í umferð, heklið 2 næstu stuðla saman eins og útskýrt er að ofan.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsi og berustykkið er heklað í hring, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar og heldur síðan áfram í hring.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Heklið 64-70-72-78-82-84 LOFTLYKKJUR – sjá útskýringu að ofan, með heklunál 5 með DROPS Air og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju – sjá HEKLLEIÐBEININGAR. Heklið 1 hálfan stuðul í hverja loftlykkju = 64-70-72-78-82-84 loftlykkjur.
Heklið síðan A.1 yfir allar lykkjur.
Þegar A.1 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina, mælist stykkið ca 4 cm.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Heklið 1 umferð með 1 stuðul í hvern stuðul og aukið út 0-2-8-10-14-20 stuðlar jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 64-72-80-88-96-104 stuðlar.
Heklið A.2 alls 8-9-10-11-12-13 sinnum hringinn á berustykki. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar A.2 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 128-144-160-176-192-208 stuðlar í síðustu umferð.
Stykkið mælist ca 7 cm frá prjónamerki.
Heklið 0-0-0-0-1-1 umferð með 1 stuðul í hvern stuðul.
Heklið A.3 alls 16-18-20-22-24-26 sinnum hringinn á berustykki.
Heklið 0-0-0-0-1-1 umferð með 1 stuðul í hvern stuðul.
Heklið A.4 alls 8-9-10-11-12-13 sinnum hringinn á berustykki.
Þegar A.4 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina, eru 176-198-220-242-264-286 stuðlar í síðustu umferð.
Heklið 0-0-0-0-1-1 umferðir með 1 stuðul í hvern stuðul.
Stykkið mælist ca 19-19-19-19-22-22 cm frá prjónamerki.
Heklið A.5 alls 16-18-20-22-24-26 sinnum hringinn á berustykki.

Haldið svona áfram. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 21-22-23-24-26-28 cm frá prjónamerki – stillið af að síðasta umferð sé ekki umferð með 3 loftlykkjum / fastalykkjum í mynstri, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Heklið A.5 yfir 22-22-22-33-33-33 lykkjur, A.6 (stillið mynstrið af miðað við umferð sem byrjað er á), 1 stuðull í hverja af næstu 3-0-3-1-0-4 lykkjur, hoppið yfir næstu 34-40-45-49-51-54 lykkjur fyrir ermi, heklið 11 loftlykkjur undir ermi, 1 stuðull í hverja af næstu 3-0-3-1-0-4 lykkjur, A.5 yfir næstu 44-55-55-66-77-77 lykkjur, A.6, 1 stuðull í hverja af næstu 3-0-3-1-0-4 lykkjur, hoppið yfir næstu 34-40-45-49-51-54 lykkjur fyrir ermi, heklið 11 loftlykkjur undir ermi, 1 stuðull í hverja af næstu 3-0-3-1-0-4 lykkjur, A.5 yfir næstu 22-33-33-33-44-44 lykkjur. Fram- og bakstykki og ermar er síðan heklað hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 130-140-152-166-184-200 lykkjur. Klippið þráðinn. Nú færist umferðin til þannig að hún byrjar mitt undir ermi.
Heklið 1 fastalykkju í miðju loftlykkju undir hægri ermi, 3 loftlykkjur, 1 stuðull í hverja og eina af næstu 9-6-9-7-6-10 lykkjur (þ.e.a.s. fyrsti stuðullinn er heklaður í sömu loftlykkju og fastalykkjan), A.5 yfir næstu 44-55-55-66-77-77 lykkjur, A.6, 1 stuðull í hverja af næstu 17-11-17-13-11-19 lykkjur, A.5 yfir næstu 44-55-55-66-77-77 lykkjur, A.6, 1 stuðull í hverja af síðustu 8-5-8-6-5-9 lykkjur.
Haldið svona áfram með mynstur. Í 6. umferð í A.5 er síðasti stuðullinn heklaður undir ermi á undan A.5 sem kúla, þannig að fyrsta endurtekningin af A.5 verður heilt blóm.
Þegar stykkið mælist 21-22-23-24-24-24 cm frá skiptingu, stillið af að endað sé fallega tekið mið af mynstri, heklið A.7 yfir allar lykkjur. Endurtakið síðustu umferð í A.7 þar til stykkið mælist 25-26-27-28-28-28 cm frá skiptingu. Klippið þráðinn frá og festið. Stykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður.

ERMAR:
Heklið nú yfir 34-40-45-49-51-54 lykkjur sem hoppað var yfir fyrir ermi í annarri hlið á stykki þannig:
Heklið 1 fastalykkju í 6. loftlykkju mitt undir ermi, 3 loftlykkjur, 1 stuðull í hverja og eina af næstu 3-6-3-5-6-2 loftlykkjur undir ermi (þ.e.a.s. fyrsti stuðull er heklaður í sömu loftlykkju og fastalykkjan), A.8 (stillið mynstrið af miðað við umferð sem byrjað er á), A.5 yfir næstu 33-33-44-44-44-55 lykkjur, 1 stuðull í hverja af síðustu 2-5-2-4-5-1 lykkjur = 45-51-56-60-62-65 lykkjur.
Í 6. umferð í A.5 er ekki hekluð síðasta kúlan í síðustu endurtekningu á breiddina, einungis eru heklaðar kúlur þar sem pláss er fyrir heilt blóm.
Haldið svona áfram með mynstur hringinn.
Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚRTAKA!
Fækkið lykkjum svona með ca 10-6-4-2½-2½-2 cm millibili alls 3-5-7-9-9-10 sinnum = 39-41-42-42-44-45 lykkjur. Haldið áfram með mynstur sem gengur jafnt upp á breiddina, aðrar lykkjur eru heklaðar í stuðlum.
Þegar ermin mælist 32-31-31-30-28-27 cm frá skiptingu, stillið af að endað sé fallega tekið mið af mynstri, heklið A.7 yfir allar lykkjur, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 1-1-0-0-0-1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman (þetta er gert til að mynstrið gangi jafnt upp í kringum ermi) = 38-40-42-42-44-44 lykkjur. Endurtakið síðustu umferð í A.7 þar til stykkið mælist 40-39-39-38-36-35 cm frá skiptingu. Klippið þráðinn og festið.
Heklið hina ermina alveg eins.

Mynstur

hálfur stuðull í lykkjuna fyrir neðan = hálfur stuðull í lykkjuna fyrir neðan
heklið einn stuðlakrók þannig: Heklið 1 hálfan stuðul um lykkjuna fyrir neðan (ekki er heklað í lykkjubogana, heldur í kringum sjálfa lykkjuna) = heklið einn stuðlakrók þannig: Heklið 1 hálfan stuðul um lykkjuna fyrir neðan (ekki er heklað í lykkjubogana, heldur í kringum sjálfa lykkjuna)
stuðull í aftari lykkjubogann í lykkjuna fyrir neðan<br />
<br />
= stuðull í aftari lykkjubogann í lykkjuna fyrir neðan

stuðull í lykkjuna fyrir neðan = stuðull í lykkjuna fyrir neðan
fastalykkja um lykkjuna fyrir neðan = fastalykkja um lykkjuna fyrir neðan
loftlykkja - ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli. = loftlykkja - ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli.
Kúla: Heklið 2 stuðla saman í / um sömu lykkju / loftlykkju fyrir neðan þannig: * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum / um lykkjuna / loftlykkjuna fyrir neðan, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. = Kúla: Heklið 2 stuðla saman í / um sömu lykkju / loftlykkju fyrir neðan þannig: * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum / um lykkjuna / loftlykkjuna fyrir neðan, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni.
þessi umferð hefur nú þegar verið hekluð, þetta sýnir einungis hvernig lykkjurnar eru heklaðar í lykkjur frá umferðinni að neðan = þessi umferð hefur nú þegar verið hekluð, þetta sýnir einungis hvernig lykkjurnar eru heklaðar í lykkjur frá umferðinni að neðan
þessi umferð er hekluð 1-1-1-1-2-2 sinnum (í 2. umferð er kúlan ekki hekluð, henni er skipt út fyrir 1 stuðul) = þessi umferð er hekluð 1-1-1-1-2-2 sinnum (í 2. umferð er kúlan ekki hekluð, henni er skipt út fyrir 1 stuðul)
Diagram for DROPS 232-49
Diagram for DROPS 232-49
Diagram for DROPS 232-49
Diagram for DROPS 232-49
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 232-49

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (41)

country flag Daniela skrifaði:

Hola, estoy confundida con la explicación de la mota. Hay algún video tutorial que se ajuste a la descripcion de esta mota?

05.05.2025 - 04:05

DROPS Design svaraði:

Hola Daniela, es una mota muy simple, por eso no tiene vídeo. Consiste en trabajar 2 puntos altos en el mismo punto. Puedes ver un vídeo similar aquí, pero en vez de puntos altos triples trabajas puntos altos; al igual que en el video, esperas antes de hacer la última lazada en el ganchillo y pasas el hilo por todos los bucles del ganchillo cuando hayas trabajado los 2 puntos altos.

10.05.2025 - 23:09

country flag Iben Bakkestrøm skrifaði:

Hej, jeg skal til at sætter masker fra til ærmer, til dette bruger jeg 4. omgang på A5. Herefter stangmasker hele vejen. Jeg laver str XL og har derfor 184 masker. Jeg forstår simpelthen ikke, hvordan jeg får 6. omgang til at gå op, når den laves i 11 masker. Ligeledes forstår jeg heller ikke, hvad i skriver nederst på s. 3 "På 6. omgang i A5 Hækles......". Pft, Iben

17.04.2025 - 21:23

DROPS Design svaraði:

Hej Iben, alle rækker i A.5 består af 11 masker, så de 11 nye masker under hvert ærme fortsættes bare som en ekstra rapport til dem du har hæklet tidligere :)

30.04.2025 - 10:58

country flag Charlotte skrifaði:

Waarom staan de afmetingen er niet bij? Bij de Nederlandse patronen staan ze niet, maar de Engelse (USA) wel. Nu moet ik telkens van taal switchen...

28.02.2025 - 14:23

country flag Manon St-Jean skrifaði:

Dans le diagramme A2 et la même situation se produit dans d'autres diagrammes. On débute avec 8 mailles, ensuite on va à 10, on revient à 8 et on va à 12. Comment peut-on passer de 8 à 12 avec une augmentation de seulement 2 mailles? Selon ce que je comprends on serait rendu à 10 et non à 12. Merci, Manon

16.01.2025 - 00:13

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme St-Jean, dans le diagramme A.2, vous allez augmenter, par ex au 1er rang de A.2, vous allez crocheter 2 brides dans la 4ème maille et 2 brides dans la dernière maille de A.2 (vous avez augmenté ainsi 2 brides dans ce A.2) - ( Au 2ème tour, les arceaux comptent aussi en largeur, même si ce ne sont pas des brides). Ainsi, il y aura 16 brides dans chaque A.2 quand le diagramme est terminé. Bon crochet!

16.01.2025 - 16:33

country flag Manon St-Jean skrifaði:

Pour la nope dans la légende des diagrammes, vous dites Piquer le crochet Dans/Autour de la maille du tour précédent. Est-ce Dans ou Autour? Qu'est-ce que ça veut dire? Merci, Manon

16.01.2025 - 00:10

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme St-Jean, tout dépend de la maille du rang précédent, si vous avez 1 bride, vous crochèterez la nope dans la maille (= dans la bride), mais si vous avez un arceau, vous crochèterez la bride autour des mailles en l'air (dans l'arceau). Bon crochet!

16.01.2025 - 16:30

country flag Federica skrifaði:

Buonasera, arrivati alla fine dello sprone quando si inizia a dividere con le maglie saltate e le catenelle per le maniche, è corretto avere più maglie per il dietro rispetto a quelle del davanti del lavoro? grazie

08.01.2025 - 23:23

DROPS Design svaraði:

Buongiorno Federica, le maglie dovrebbero combaciare. Buon lavoro!

17.02.2025 - 16:32

country flag Christine skrifaði:

Hallo, ich habe ein Problem mit dem Kragen und dem Bund. Ich häkele 1 halbes Stäbchen und ein halbes Reliefstäbchen abwechselnd, eigentlich kein Problem, aber mein Kragen und auch der Bund rollt sich ein. Hab ich schon oft mit ganzen Stäbchen gemacht, allerdings 1 Reliefstäbchen von vorne, eines von hinten, das ging super. Was mache ich denn jetzt falsch? Würde mich über eine schnelle Antwort freuen! Danke!

27.11.2024 - 19:42

DROPS Design svaraði:

Liebe Christine, vielleicht häkeln Sie lockerer als mit nur Stäbchen? In diesem Video zeigen wir, so ein Rippenmuster mit Stäbchen, mit Halbstäbchen wird man genauso häkeln, die Arbeit soll nicht einrollen. Zeigen Sie vielleicht Ihr Häkelstück Ihr Wollladen - ein Foto per E-Mail senden - so kann man Ihnen am besten helfen. Viel Spaß beim Häkeln!

28.11.2024 - 09:54

country flag Colinda Blaauw skrifaði:

Bij de eerste rij na de pas heb ik een vraag: ik heb A5 gehaakt over 22 steken. Dan moet ik A6 haken. 1 stokje in elk van de volgende 3 steken. Wat wordt daarmee bedoeld? Voor A6 moet ik 4 stokjes haken. Moet ik daarna 3 stokjes haken en daarna 45 steken overslaan?

25.10.2024 - 18:44

DROPS Design svaraði:

Dag Colinda,

In de volgende 3 steken brei je in elke steek 1 stokje, dus per steek 1 stokje. Je haakt eerst A.6 (dus 4 stokjes) dan haak je de 3 stokjes en dan pas sla je 45 steken over.

27.10.2024 - 14:49

country flag Anna skrifaði:

Hur ska jag göra i början på varvet i A4 när det startar med 3 luftmaskor? 3 lm? 6lm? Båda varianterna känns helt fel.

20.10.2024 - 18:25

DROPS Design svaraði:

Hej Anna, du hækler 3 luftmasker, 1 fastmaska, 3 luftmasker, 1 musch osv :)

23.10.2024 - 15:03

country flag Antonella skrifaði:

Non riesco a capire come si fa la nocciolina: le istruzioni non sono come quelle della normale nocciolina

19.10.2024 - 08:50

DROPS Design svaraði:

Buongiorno Antonella, deve seguire le istruzioni riportate nella legenda e lavorare 2 maglie alte insieme. Buon lavoro!

19.10.2024 - 09:31