Susanne Bjørkman skrifaði:
Hvordan kan patentstrikningen rundt i skaftet komme til at fungere, når opskriften starter med et ulige antal masker? Er dette en fejl? Mvh Susanne
14.09.2022 - 20:54DROPS Design svaraði:
Hej Susanne, når du har strikket første omgang har du 28-30-34-34-38-38 masker tilbage, så nu strikkes der rundt ifølge diagrammet :)
16.09.2022 - 07:31
Véronique Fries skrifaði:
Danke, jetzt habe ich es begriffen. Allerdings erscheint mir auf dem Foto im Schaft einfach abwechselnd re und li gestrickt. Warum dieses komplizierte Muster? Danke.
25.04.2022 - 20:36DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Fries, bei diesem Modell wird der Schaft im Patentmuster gestrickt (wenn Sie das Foto genau anschauen, sehen Sie, daß der Abstand zwischen 2 rechten Maschen ist etwas weiter als beim Bündchen). Viel Spaß beim stricken!
26.04.2022 - 09:35
Fries Véronique skrifaði:
Ich habe die 1. Runde von A.1 geschafft und habe nun 34 M (Start mit 51 M). Die 2. Runde heisst 1 Umschlag, 1 M links abheben und dann Umschlag und abgehobene M li zusammenstricken, aber es ist ja kein Umschlag mehr da, der wurde in der 1Runde gestrickt.... Sorry, ich bin Anfängerin. Danke.
23.04.2022 - 18:31DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Fries, über die 51 Maschen stricken Sie die ersten Runde so: * 1 Umschlag arbeiten, 1 Masche wie zum Linksstricken abheben, 2 Maschen links zusammenstricken (= 1 Masche abgenommen) * von *bis * bis die Ende der Runde wiederholen = 34 M sind jetzt übrig; jetzt stricken Sie A.1: *den Umschlag + die abgehobene Maschen zusammen stricken; dann 1 Umschlag arbeiten, und die nächste Masche (= die 2 links zusammen gestrickte Maschen) wie zum linksstricken abheben*, von *-* die ganze Runde wiederholen. Siehe auch das Video. Viel Spaß beim stricken!
25.04.2022 - 07:33
Chocolate Toes#chocolatetoessocks |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónaðar tátiljur fyrir börn úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað í klukkuprjóni og garðaprjóni. Stærð 1 mánaða – 4 ára.
DROPS Baby 42-13 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stroffið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. Fóturinn er prjónaður fram og til baka. STROFF / LEGGUR: Fitjið upp 42-45-51-51 (57-57) lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með DROPS Baby Merino. * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, 2 lykkjur brugðið saman (= 1 lykkja færri) *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjur = 28-30-34-34 (38-38) lykkjur. Prjónið nú mynstur A.1 hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 4-5-5-5 (6-6) cm, prjónið þannig: Prjónið 1 umferð slétt – uppslátturinn er prjónaður slétt saman með lykkjunni sem hann tilheyrir og aukið út 2-4-4-4 (4-4) lykkjur jafnt yfir = 30-34-38-38 (42-42) lykkjur. Í næstu umferð er prjónuð gataumferð þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur slétt saman, 1 uppsláttur *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 lykkju slétt. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið nú stykkið áfram fram og til baka. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Klippið þráðinn. FÓTUR: Setjið nú fyrstu 11-12-13-13 (15-15) lykkjur og síðustu 11-12-13-13 (15-15) lykkjur á þráð = 8-10-12-12 (12-12) lykkjur á prjóni. Prjónið 3½-4-4½-6 (7-9) cm garðaprjón fram og til baka yfir 8-10-12-12 (12-12) lykkjur – stillið af að síðasta umferðin sé prjónuð frá röngu. Klippið þráðinn. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir lykkjur af þræði frá annarri hliðinni, prjónið upp 9-10-11-13 (16-21) lykkjur meðfram hlið á miðjustykki, prjónið sléttar lykkjur yfir 8-10-12-12 (12-12) lykkjur á prjóni (framan), prjónið upp 9-10-11-13 (16-21) lykkjur meðfram hinni hliðinni á miðjustykkinu og prjónið sléttar lykkjur yfir lykkjur af seinni þræði = 48-54-60-64 (74-84) lykkjur í umferð. Prjónið 3-3-4-5 (5-5) cm garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. JAFNFRAMT eftir 1½-1½-2-3 (3-3) cm fækkið lykkjum í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) að loka máli þannig: Fækkið um 1 lykkju í byrjun og í lok umferðar með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman innan við 1 kantlykkju. Að auki eru prjónaðar 2 lykkjur slétt saman hvoru megin við 2 miðju lykkjurnar í umferð (alls 4 lykkjur færri í annarri hverri umferð) = ca 32-38-40-44 (54-64) lykkjur eftir á prjóni. Fellið af, saumið saum undir fæti og upp með fram miðju að aftan – saumið í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði ekki þykkur. Prjónið aðra tátilju á sama hátt. SNÚRA: Heklið snúru þannig: Heklið loftlykkjur með heklunál 2,5 í ca 30-40 cm, snúið og heklið 1 keðjulykkju í hverja loftlykkju til baka. Klippið þráðinn og festið. Þræðið þráðinn út og inn í gegnum gataumferð á tátilju (byrjið og endið mitt framan á tátiljunni). Heklið eina snúru fyrir hvora tátiljuna. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #chocolatetoessocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 42-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.