Amorosino skrifaði:
Bonjour, combien de mètres de fils nécessite ce modèle ? je voudrais en faire plusieurs et donc acheter le nombre exact de pelote pour ne pas qu'il m'en reste (je souhaite faire 7 paires de chaussettes). Merci pour votre réponse !
30.09.2024 - 11:46DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Amorosino, vous trouverez la quantité correspondante, au poids, pour chaque taille, dans l'onglet "Explications" en haut de page; il vous faudra ainsi 2 pelotes DROPS Lima en blé et 1 pelote DROPS Lima en Kaki, mais nous n'avons pas le détail du métrage total en fonction de la taille et n'avons plus ces chaussettes pour vérifier. Bon tricot!
30.09.2024 - 15:55
Gaetane skrifaði:
Bonjour ! J aurais une faveur à vous demander ! Auriez vous par hasard un patron pour faire un coussin avec logos d Harley Davidson? J aimes vos patrons et si explicite alors ? Je tente ma chance de vous demander ça ! Merci 🙏
04.05.2023 - 12:43DROPS Design svaraði:
Bonjour Gaetane et merci, toutefois nous n'avons pas ce type de motifs, regardez sur Ravelry, vous y trouverez peut-être quelque chose. Bon tricot!
04.05.2023 - 13:02
Elise skrifaði:
Tusen takk for kjempefin og lettfattelig oppskrift! Gleder meg til å gi dem bort i julegave :-)
06.12.2022 - 11:30
Mariann skrifaði:
Kan man bruge Fabel garn til disse sokker
15.07.2022 - 10:27DROPS Design svaraði:
Hej Mariann. Det kan du dessvärre inte eftersom DROPS Fabel tillhör garngrupp A så det blir en annan stickfasthet. Du kan byta garn till ett annat garn i garngrupp B. Mvh DROPS Design
15.07.2022 - 12:41
Forest Magic#forestmagicsocks |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónaðir sokkar með norrænu mynstri / jólatrjám úr DROPS Lima. Stærð 35 - 46. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-1558 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 48 lykkjur) og deilið með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 12. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis ca 11. og 12. hverja lykkju og 5. og 6. hverja lykkju slétt saman. ÚRTAKA-2 (á við um tá): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR-1 (á við um hæl): Til að styrkja hælinn er hægt að prjóna allan hælinn og hælúrtökuna með 2 þráðum þannig: Notið þráð bæði innan úr og utan með dokkunni og prjónið 1 lykkju til skiptis með sitt hvorum þræðinum. Með þessu þá færðu aðeins þykkari hæl án þess að prjóna með tvöföldum þræði. LEIÐBEININGAR-2 (á við um marglitt mynstur): Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-8-8-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-8-8-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-7-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-7-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 12-12-14-14 lykkjur eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. SOKKUR: Fitjið upp 48-52-54-56 lykkjur á sokkaprjóna 3 með litnum khaki í DROPS Lima. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3½ cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og litinn hveiti. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 4-4-5-5 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA: Haldið nú eftir fyrstu 12-13-14-14 lykkjum á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 24-26-26-28 lykkjur á þráð án þess að prjóna lykkjurnar (= mitt ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 12-13-14-14 lykkjum á prjóni fyrir hæl. Sjá LEIÐBEININGAR-1 og prjónið sléttprjón fram og til baka yfir 24-26-28-28 hællykkjur með litnum hveiti í 5-5½-6-6½ cm. Setjið 1 prjónamerki mitt í síðustu umferð – prjónamerkið er notað aðeins síðar til að mæla lengd á fæti frá. Prjónið HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Eftir hælúrtöku er næsta umferð prjónuð þannig: Prjónið sléttprjón yfir 12-12-14-14 hællykkjur, prjónið upp 11-12-13-14 lykkjur meðfram hlið á hæl innan við 1 kantlykkju, prjónið sléttprjón yfir 24-26-26-28 lykkjur frá þræði ofan á fæti og prjónið upp 11-12-13-14 lykkjur meðfram hinni hliðinni á hæl innan við 1 kantlykkju = 58-62-66-70 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 24-26-26-28 lykkjur ofan á fæti. Prjónið 6-6-7-7 lykkjur sléttprjón – setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju. Umferðin byrjar nú við prjónamerki (= mitt undir fæti). Prjónið sléttprjón hringinn með litnum hveiti og fækkið lykkjum hvoru megin við 24-26-26-28 lykkjur ofan á fæti þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á UNDAN fyrra prjónamerki ofan á fæti slétt saman og prjónið 2 fyrstu lykkjur á EFTIR seinna prjónamerki ofan á fæti snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 5-7-5-7 sinnum = 48-48-56-56 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 7-9-9-12 cm frá prjónamerki á hæl – mælt undir fæti. Sjá LEIÐBEININGAR-2 og prjónið A.1 hringinn (= 6-6-7-7 mynstureiningar með 8 lykkjum – A.1 byrjar mismunandi í tveimur minnstu og tveimur stærstu stærðunum af því að það á að vera jólatré mitt ofan á fæti). Í síðustu umferð í A.1 er fækkað um 4-0-4-0 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 44-48-52-56 lykkjur. Stykkið mælist nú ca 18-20-22-25 cm frá prjónamerki á hæl – mælt undir fæti. Ef stykkið mælist minna en þetta er prjónað sléttprjón með litnum kaki að réttu máli. Nú eru eftir ca 4-4-5-5 cm að loka máli. Mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd, fyrir tá. Nú byrjar úrtaka fyrir tá. Takið frá fyrri prjónamerki og setjið 1 nýtt prjónamerki í hvora hlið á sokknum þannig að það verða 22-24-26-28 lykkjur bæði ofan á og undir fæti. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og með litnum khaki og fækkið lykkjum fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA-2 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 3-3-5-5 sinnum og síðan í hverri umferð alls 6-7-6-7 sinnum = 8 lykkjur eftir í öllum stærðum. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Sokkurinn mælist 22-24-27-30 cm frá prjónamerki á hæl. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #forestmagicsocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1558
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.