Paola skrifaði:
Cuando se habla de punto orillo entiendo que es al principio de la labor, pero entonces me sobra un punto. Por ejemplo en el gráfico A1 tengo 92 puntos y hay que hacer 9 repeticiones de 10 puntos (90 puntos) un punto orillo y que hago con el otro?
22.03.2022 - 17:57DROPS Design svaraði:
Hola Paola, se trabaja 1 punto orillo al principio y 1 punto orillo al final de la fila. Por lo tanto obtienes 92 puntos.
26.03.2022 - 19:17
Diane Johnson skrifaði:
Hi, I simply love this pattern but have never seen one produced in this way and don’t understand it at all. It would be helpful to see the other questions in English asthis may have helped. I am truly disappointed as I would have loved this pattern for my Shih Tzu and the wools look great.
24.02.2022 - 10:35DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Johnson, this jumper is worked first in the round from the neck , you will divide piece for legs and work separately back piece and bottom pice for legs openings, then work in the round again for some cm then cast off sts on mid front/bottom and on each side to the end. You then pick up sts around opening /legs for the ribbing edge. Read more about diagrams here. Happy knitting!
24.02.2022 - 10:51
Lucy Pemberton skrifaði:
Hello! Why does the pattern say to switch to 4mm needles for Front Piece 2 and the Back Piece when Front Piece 1 is knitted on 3mm needles?
03.12.2021 - 00:09DROPS Design svaraði:
Hi Lucy, you are right, Front Piece 1, Front Piece 2 and Back piece should be knitted on 4 mm needles. Happy knitting!
06.12.2021 - 09:18
Linda Thoresen skrifaði:
Hei, jeg vil bare si i fra om at det ikke er beskrevet når man skal gå over til pinne nr 4 ( har selv gått over etter rett på vrang avslutningen på halsen, før bilen begynner. Det er også en feil i A5 rapporten. Den slutter med en rett pinne og begynner med en rett pinne, så her må man velge om man skal legge til eller trekke fra en runde med rette og vrange masker. Bortsett fra det så blir denne genseren helt nydelig når den er ferdig strikket!
27.10.2021 - 18:16
Danielle skrifaði:
Hej! Jag har en Saluki! Skulle så gärna vilja ha mönster till henne då hon blir så kall på vintern. Med bästa hälsningar, Danielle
27.10.2021 - 06:50DROPS Design svaraði:
Hej Danielle. Här är en länk till alla våra hundtröjor, hoppas du hittar någon som passar! Mvh DROPS Design
27.10.2021 - 11:26
Ellis skrifaði:
Waarom staat er niet een werktekening bij net als bij andere truien? why isn't there a pattern drawing as with all sweaters and coats?
23.10.2021 - 11:55DROPS Design svaraði:
Dag Ellis,
Voor een aantal typen patronen, waaronder hondentruien is ervoor gekozen om geen werktekening te maken, omdat uit de beschrijving duidelijk genoeg zou moeten zijn hoe de maatvoering in elkaar steekt. Laat het gerust weten als je ergens niet uit komt met het patroon.
23.10.2021 - 13:59
Ivana skrifaði:
Hola,el patrón se empieza de ida y vuelta,o en redondo
13.10.2021 - 09:23DROPS Design svaraði:
Hola Ivana, el patron se empieza de ida y vuelta. Saludos!
13.10.2021 - 13:10
Monika Opočenská skrifaði:
Dobrý den, svetr na modelce se mi moc líbí. Kdy ho budete překládat? Ráda bych ho upletla z příze Drops Sky. Děkuji Monika
04.10.2021 - 13:03DROPS Design svaraði:
Dobrý den Moniko, na překladu právě usilovně pracujeme, zkuste, prosím, ještě pár dní vydržet. :-)
04.10.2021 - 23:06
Heidi skrifaði:
Hei. Jeg har en chihuahua som trenger genser i vinter. Denne er kjempefin, men min chihuahua har bredere bryst, 34cm på det bredeste. Kan jeg strikke den minste størrelsen til han eller må jeg legge opp flere masker, eller gå opp på pinne størrelse?
03.10.2021 - 10:37DROPS Design svaraði:
Hei Heidi, Du kunne prøve å strikke med en pinnestørrelse større slik at brystvidden blir riktig for hunden din. God fornøyelse!
04.10.2021 - 09:37
Snowy Trails#snowytrailsdogsweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð hundapeysa / peysa fyrir hund með köðlum úr DROPS Karisma. Stærð XS - M.
DROPS 228-52 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 82 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 6,8. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 7. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA FYRIR HUND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður á hringprjóna en með opi mitt að neðan sem síðar er saumað saman. Stykkið skiptist síðan þannig að það verður op fyrir framfætur og stykkin eru prjónuð fram og til baka hvort fyrir sig. Síðan eru stykkin sett saman og prjónað er fram og til baka yfir allar lykkjur eins og áður. Prjónaður er kantur í kringum op fyrir framfætur og prjónaður er kantur í kringum op á peysu. Að lokum er peysan saumuð saman mitt að neðan. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 72-82-92 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Karisma. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 yfir næstu 70-80-90 lykkjur (= 7-8-9 mynstureiningar með 10 lykkjur), endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 8 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið út um 12-20-26 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNNG í útskýringu að ofan = 84-102-118 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð, stykkið er nú mælt héðan. BERUSTYKKI: Prjónið áfram í mismunandi stærðum þannig: STÆRÐ XS: Prjónið þannig – frá réttu: A.2 (= 20 lykkjur), A.3 yfir næstu 12 lykkjur (= 2 mynstureiningar með 6 lykkjum), A.5 (= 20 lykkjur), A.3 yfir næstu 12 lykkjur, A.6 (= 20 lykkjur). STÆRÐ S: Prjónið þannig – frá réttu: A.2 (= 20 lykkjur), A.3 (= 6 lykkjur), A.4 (= 9 lykkjur), A.3, A.5 (= 20 lykkjur), A.3 (= 6 lykkjur), A.4 (= 9 lykkjur), A.3, A.6 (= 20 lykkjur). STÆRÐ M: Prjónið frá réttu – þannig: A.2 (= 20 lykkjur), A.3 (= 6 lykkjur), A.7 (= 4 lykkjur), A.4 (= 9 lykkjur), A.8 (= 4 lykkjur), A.3, A.5 (= 20 lykkjur), A.3, A.7, A.4, A.8, A.3, A.6 (= 20 lykkjur). Prjónið mynsturteikningu fram og til baka svona þar til stykkið mælist ca 2-4-7 cm frá prjónamerki sem var sett á eftir kanti í hálsi – stillið af að næsta umferð sé frá röngu og prjónið þannig: Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 11-11-15 lykkjur og setjið þessar lykkjur á þráð (= framstykki hluti-2), prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 62-80-88 lykkjur og setjið þær á þráð (= bakstykki), prjónið mynstur eins og áður yfir síðustu 11-11-15 lykkjur (= framstykki hluti-1). Prjónið síðan hvort stykki fyrir sig: FRAMSTYKKI (hluti-1): Byrjið frá réttu, prjónið mynstur eins og áður og fitjið að auki upp 1 kantlykkju í lok fyrstu umferðar frá réttu (kantlykkjan er prjónuð í garðaprjóni) = 12-12-16 lykkjur. Prjónið mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 9-11-13 cm frá skiptingu – endið með umferð frá röngu og fellið af kantlykkju (að opi á fæti) í byrjun á síðustu umferð = 11-11-15 lykkjur. Klippið þráðinn og geymið stykkið. FRAMSTYKKI (hluti-2): Setjið til baka lykkjur af þræði á prjón 4. Byrjið frá réttu, prjónið mynstur eins og áður og fitjið að auki upp 1 kantlykkju í lok fyrstu umferðar frá röngu (kantlykkjan er prjónuð í garðaprjóni) = 12-12-16 lykkjur. Prjónið mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 9-11-13 cm frá skiptingu – endið eftir sömu umferð og í hluti-1 og fellið af kantlykkju (að opi á fæti) í byrjun á síðustu umferð = 11-11-15 lykkjur. Klippið þráðinn og geymið stykkið. BAKSTYKKI: Setjið til baka lykkjur af þræði á hringprjón 4. Byrjið frá réttu, prjónið mynstur eins og áður og fitjið að auki upp 1 kantlykkju í lok umferðar og í einum af 2 fyrstu umferðum (kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni) = 64-82-90 lykkjur. Prjónið mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 9-11-13 cm frá skiptingu – endið eftir sömu umferð og á framstykki og fellið af kantlykkjur í byrjun á 2 síðustu umferðum. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið nú framstykki og bakstykki til baka á sama prjón = 84-102-118 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður, fyrsta umferð er prjónuð frá réttu. Prjónið þar til stykkið mælist 14-19-28 cm frá prjónamerki. Nú eru eftir ca 3 cm undir peysu (meðfram maga) og ca 10-12-12 cm efst á peysu (meðfram baki). Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Haldið áfram með mynstur eins og áður JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 11-11-15 lykkjur 1 sinni, fellið af 3 lykkjur 1 sinni, fellið af 2 lykkjur 2-3-3 sinnum, fellið af 1 lykkju 3 sinnum, fellið af 2 lykkjur 2-3-3 sinnum og fellið af 3 lykkjur 1 sinni = 28-38-46 lykkjur. Fellið af síðustu 28-38-54 lykkjur í næstu umferð. Stykkið mælist ca 21-29-37 cm frá prjónamerki. KANTUR Í KRINGUM OP FYRIR FRAMFÓT: Notið sokkaprjóna 3 og prjónið upp ca 48 til 68 lykkjur innan við 1 kantlykkju í opi fyrir annan framfótinn. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn þar til kanturinn mælist ca 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Prjónið kant í kringum hitt opið fyrir framfót á sama hátt. KANTUR Í KRINGUM FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið kant meðfram neðri hlið á peysu. Byrjið frá réttu og notið hringprjón 3, prjónið upp ca 98 til 122 lykkjur. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4 + 2. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið stroff frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið garðaprjón yfir garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til kanturinn mælist ca 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. FRÁGANGUR: Saumið peysuna mitt að neðan. Saumið í ystu lykkjubogana svo saumurinn verði ekki þykkur. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #snowytrailsdogsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 228-52
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.