DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8624.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Snowy Trails

Prjónuð peysa úr DROPS Karisma eða DROPS Daisy. Stykkið er prjónað með laskalínu, köðlum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.

DROPS 226-16
DROPS Design: Mynstur u-925
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
700-800-850-950-1050-1150 g litur 01, natur

Eða notið:
DROPS Daisy frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
650-750-800-900-950-1050 g litur no 01, natur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8624.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 21 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 5,3.
Í þessu dæmi er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna ca 4. og 5. hverja lykkju slétt saman.
Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING (á við um mitt undir ermum):
Aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við lykkju með prjónamerki í mitt undir ermi.
Prjónið frá byrjun á umferð þannig: Prjónið 1 lykkju (þessi lykkja er alltaf prjónuð sem fyrsta lykkja í A.4), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið mynstur eins og áður fram að lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan útauknar lykkjur jafnóðum inn í A.4.

LASKALÍNA:
Fækkið lykkjum fyrir laskalínu hvoru megin við prjónamerki í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma eins og útskýrt er að neðan. Í stærstu stærðunum er lykkjum fækkað mismunandi á framstykki/bakstykki og ermum – þetta er útskýrt í uppskrift.

FRÁ RÉTTU:
FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR PRJÓNAMERKI ÞANNIG: Prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN PRJÓNAMERKI ÞANNIG: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt (= 1 lykkja færri).

FRÁ RÖNGU:
FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR PRJÓNAMERKI ÞANNIG: Prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 2 lykkjur brugðið saman (= 1 lykkja færri).
FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN PRJÓNAMERKI ÞANNIG: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur snúnar brugðið saman, prjónið 1 lykkju brugðið (= 1 lykkja færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp að handvegi. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp að handvegi.
Ermar eru settar inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem lykkjur eru felldar af fyrir handveg. Berustykkið er síðan prjónað í hring upp að hálsmáli.
Lykkjur eru felldar af fyrir hálsmáli mitt að framan. Síðan er afgangur af berustykki prjónað fram og til baka á hringprjóna til loka máls. Að lokum er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli í stroffprjóni og kaðlar.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fijtið upp 264-280-296-336-352-384 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Karisma eða DROPS Daisy.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff þannig:
1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 20-24-28-24-28-36 lykkjur, prjónið A.1 yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur (= 1-1-1-2-2-2 mynstureiningar með 14 lykkjum), A.2 (= 18 lykkjur), A.3 (= 26 lykkjur), A.2 (= 18 lykkjur), prjónið A.1 yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur (= 1-1-1-2-2-2 mynstureiningar með 14 lykkjum), * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 40-48-56-48-56-72 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið A.1 yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur, prjónið A.2 (= 18 lykkjur), prjónið A.1 yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur (= 1-1-1-2-2-2 mynstureiningar með 14 lykkjur), prjónið A.2 (= 18 lykkjur), prjónið A.3 (= 26 lykkjur), prjónið A.2 (= 18 lykkjur), prjónið A.1 yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur (= 1-1-1-2-2-2 mynstureiningar með 14 lykkjur, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 20-24-28-24-28-36 lykkjur og endið með 1 lykkju slétt.
Haldið svona áfram með stroff – ATH: Í mynsturteikningu A.2 og A.3 eru endurteknar einungis 2 fyrstu umferðir á hæðina.

Nú er eftir 1 umferð þar til stykkið mælist 5 cm, fækkið lykkjum í stroffprjóni – þetta er gert þannig:
Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 21-25-29-25-29-37 lykkjur og fækkið jafnframt um 4-4-4-4-4-6 lykkjur jafnt yfir þessar 21-25-29-25-29-37 lykkjur – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING,
prjónið A.1 eins og áður yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur,
prjónið síðustu umferð í A.2 (= 18 lykkjur og 1 lykkja færri),
prjónið síðustu umferð í A.3 (= 26 lykkjur og 2 lykkjur færri),
prjónið síðustu umferð í A.2 (= 18 lykkjur og 1 lykkja færri),
prjónið A.1 eins og áður yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur,
prjónið sléttprjón yfir næstu 42-50-58-50-58-74 lykkjur og fækkið jafnframt um 9-9-9-9-9-13 lykkjur jafnt yfir þessar 42-50-58-50-58-74 lykkjur,
prjónið A.1 eins og áður yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur,
prjónið síðustu umferð í A.2 (= 18 lykkjur og 1 lykkja færri),
prjónið síðustu umferð í A.3 (= 26 lykkjur og 2 lykkjur færri),
prjónið síðustu umferð í A.2 (= 18 lykkjur og 1 lykkja færri),
prjónið A.1 eins og áður yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur,
prjónið sléttprjón yfir síðustu 21-25-29-25-29-37 lykkjur og fækkið jafnframt um 5-5-5-5-5-7 lykkjur jafnt yfir þessar 21-25-29-25-29-37 lykkjur = 238-254-270-310-326-350 lykkjur. Stroffið er nú tilbúið.

Setjið 1 prjónameri í fyrstu lykkju í umferð og 1 prjónamerki í 120.-128.-136.-156.-164.-176. lykkju í umferð (= í hliðar á fram- og bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Það á síðar að fella af lykkjur fyrir handveg hvoru megin við þessi prjónamerki. Skiptið yfir á hringprjón 4,5.

Nú byrjar mynstrið og fyrsta umferðin er prjónuð þannig:
Prjónið A.4 yfir fyrstu 17-21-25-21-25-31 lykkjur, prjónið A.5 yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur (= 1-1-1-2-2-2 mynstureiningar með 14 lykkjum), A.6 (= 17 lykkjur), A.7 (= 24 lykkjur), A.6 (= 17 lykkjur), prjónið A.8 yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur (= 1-1-1-2-2-2 mynstureiningar með 14 lykkjum), prjónið A.4 yfir næstu 33-41-49-41-49-61 lykkjur (prjónamerki í hlið situr í miðju að þessum lykkjum), prjónið A.5 yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur (= 1-1-1-2-2-2 mynstureiningar með 14 lykkjum), prjónið A.6 (= 17 lykkjur), prjónið A.7 (= 24 lykkjur), prjónið A.6 (= 17 lykkjur), prjónið A.8 yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur (= 1-1-1-2-2-2 mynstureiningar með 14 lykkjum) og prjónið A.4 yfir síðustu 16-20-24-20-24-30 lykkjur.
Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Þegar stykkið mælist 26 cm í öllum stærðum, fellið af fyrir handveg eins og útskýrt er að neðan. Nú eru ca 24-26-28-30-32-34 cm að loka máli.
Stillið af að næsta umferð sé oddatala í umferð í mynsturteikningu, fellið af fyrstu 6-6-7-7-8-8 lykkjur fyrir handveg, haldið áfram með mynstur eins og áður þar til eftir eru 5-5-6-6-7-7 lykkjur á undan næstu lykkju með prjónamerki í, fellið af 11-11-13-13-15-15 lykkjur fyrir handveg, prjónið eins og áður þar til eftir eru 5-5-6-6-7-7 lykkjur í umferð og fellið af síðustu 5-5-6-6-7-7 lykkjur = 108-116-122-142-148-160 lykkjur eftir fyrir framstykki og 108-116-122-142-148-160 lykkjur eftir fyrir bakstykki. Klippið þráðinn.
Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Fitjið upp 60-60-64-64-68-68 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með DROPS Karisma eða DROPS Daisy.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 27-27-25-25-23-23 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 87-87-89-89-91-91 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð – látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið er notað þegar auka á út mitt undir ermi.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5.

Nú byrjar mynstrið og fyrsta umferðin er prjónuð þannig:
Prjónið A.4 yfir fyrstu 1-1-2-2-3-3 lykkjur (prjónamerki situr í fyrstu lykkju), prjónið A.5 (= 14 lykkjur), prjónið A.6 (= 17 lykkjur), A.7 (= 24 lykkjur), A.6 (= 17 lykkjur), prjónið A.8 (= 14 lykkjur) og endið með A.4 yfir síðustu 0-0-1-1-2-2 lykkjur. Haldið áfram með þetta mynstur.

Þegar stykkið mælist 12-12-12-12-14-11 cm, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 6½-3½-3-2½-2-2 cm millibili alls 6-10-11-13-14-16 sinnum = 99-107-111-115-119-123 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 48-47-45-45-44-43 cm (það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Mátið e.t.v. ermina og prjónið að óskaðri lengd. Stillið af að næsta umferð sé oddatölu umferð í mynsturteikningu og fellið lykkjur af fyrir handveg þannig:
Fellið af 6-6-7-7-8-8 lykkjur, prjónið eins og áður þar til eftir eru 5-5-6-6-7-7 lykkjur í umferð og fellið af síðustu 5-5-6-6-7-7 lykkjur = 88-96-98-102-104-108 lykkjur. Klippið þráðinn.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið ermar á sama hringprjón 4,5 eins og fram- og bakstykki, þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar) = 392-424-440-488-504-536 lykkjur í umferð.
Setjið eitt prjónamerki í hverja skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma = 4 prjónamerki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Prjónamerkin eru notuð síðar þegar fækka á lykkjum fyrir laskalínu.
Byrjið umferð í skiptingunni á milli bakstykkis og vinstri ermi – setjið e.t.v. eitt prjónamerki hér til að merkja byrjun á umferð.
Haldið áfram með mynstur eins og áður, en lykkjur hvoru megin við öll 4 prjónamerkin eru prjónaðar í sléttprjóni (= 2 lykkjur sléttprjón í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma). Prjónið 1 umferð með mynstri hringinn yfir allar lykkjur.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Í næstu umferð byrjar úrtaka fyrir laskalínu. Í stærstu stærðum er lykkjum fækkað mismunandi á fram- og bakstykki og ermum. Að auki er lykkjum fækkað fyrir hálsmáli mitt að framan og síðasta umferð er prjónuð fram og til baka frá miðju að framan.
Þegar ekki er nægilega mikil til af lykkjum til að gera kaðal, prjónið sléttprjón yfir þessar lykkjur.
Lestu kaflann LASKALÍNA og HÁLSMÁL áður en þú prjónar áfram.

LASKALÍNA – STÆRÐ S, M og L:
Fækkið lykkjum fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 prjónamerkin – sjá útskýringu að ofan.
Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð alls 15-19-21 sinnum og síðan í hverri umferð alls 18-17-17 sinnum.

LASKALÍNA – STÆRÐ XL, XXL og XXXL:
Fækkið lykkjum fyrir LASKALÍNA á eftir/undan 4 prjónamerkjum – sjá útskýringu að ofan.
Í ANNARRI HVERRI UMFERÐ:
Í hvorri hlið á ermum: Fækkið alls 25-29-32 sinnum.
Í hvorri hlið á framstykki og bakstykki: Fækkið alls 13-17-16 sinnum.
Í HVERRI UMFERÐ:
Í hvorri hlið á ermum: Fækkið alls 12-9-8 sinnum.
Í hvorri hlið á framstykki og bakstykki: Fækkið alls 35-33-40 sinnum.

HÁLSMÁL (á við um allar stærðir):
Þegar stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm (stillið af að næsta umferð sé oddatölu umferð í mynsturteikningu), fækkið um 6 lykkjur jafnt yfir miðju 24 lykkjur að framan (= A.7) – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING. Setjið síðan miðju 20-22-24-24-26-26 lykkjur á framstykki á þráð fyrir hálsmáli. Prjónið áfram að byrjun á umferð. Klippið þráðinn frá. Byrjið frá röngu við háls og haldið áfram með mynstur fram og til baka.
JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 1 sinni í hvorri hlið.

Eftir allar úrtöku fyrir laskalínu og hálsmáli eru 92-98-96-108-110-110 lykkjur eftir í umferð. Klippið þráðinn frá. Prjónið síðan kant í hálsmáli eins og útskýrt er að neðan.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið mitt að aftan og prjónið upp ca 122-130-130-142-146-146 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 3,5.
Í næstu umferð er lykkjum fækkað jafnt yfir til að koma í veg fyrir að hálsmálið verði of vítt – prjónið 1 umferð slétt og fækkið jafnframt lykkjum jafnt yfir til 92-96-100-104-108-112 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið.
Í næstu umferð eru lykkjur auknar út til að koma í veg fyrir að mynstri sem prjóna á dragi stykkið saman – prjónið 1 umferð slétt og aukið jafnframt út 28-24-20-26-32-28 lykkjur jafnt yfir = 120-120-130-130-140-140 lykkjur.
Prjónið A.9 hringinn (= 12-12-13-13-14-14 mynstureiningar með 10 lykkjum). Prjónið þar til kantur í hálsmáli mælist ca 8-8-8-10-10-10 cm – eða óskaðri lengd. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju yfir hvern kaðal = 108-108-117-117-126-126 lykkjur eftir. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 13.10.2021
Leiðrétting í 7. mynsturtákni: setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkjur brugðið af kaðlaprjóni

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkjur brugðið af kaðlaprjóni
symbols = kaðall er prjónaður yfir 2 lykkjur þannig: Hoppið yfir fyrstu lykkjuna á vinstra prjóni, prjónið aðra lykkjuna á vinstra prjóni slétt án þess að lyfta lykkjunni af vinstra prjóni, prjónið síðan fyrstu lykkjuna sem hoppað var yfir slétt, lyftið báðum lykkjum af vinstra prjóni
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Snowy Trails

Allie, United States

Snowy Trails

sirosdiy, Finland

Snowy Trails

Yarnveiled, Netherlands

Snowy Trails

Julia Berg, Finland

Snowy Trails

Monika, Czech Republic

Skrifaðu athugasemd um DROPS 226-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (77)

country flag Zoonia Adeel wrote:

Is there a video for the neck? I'm so confused at the neck instructions

18.03.2024 - 11:10

DROPS Design answered:

Dear Mrs Adeel, starting on mid back you will pick up the stitches around neckline, including the stitches from thread on front piece, then knit 1 round decreasing evenly to 92-112 sts, then purl 1 round, knit 1 round increasing evenly to 120-140 sts (decreasing/increasing let the neckedge looking nicer); and now work A.9 in the round. Happy knitting!

18.03.2024 - 15:11

country flag Wenche wrote:

Hei Jeg forstår ikke helt raglanfellingen i str xxl. Skal jeg felle annenhver omg først, og så på hver omg, eller er det ment at jeg skal felle ulikt hele veien fra start til slutt, ulikt. Veldig forvirrende skrevet i oppskriften, og ønsker en tydeliggjøring på hva som skal gjøres her. Snowy trails. Mvh Wenche

01.03.2024 - 12:42

DROPS Design answered:

Hei Wenche, Du feller annenhver omgang 29 ganger på ermene og 17 ganger på bolen. Når du er ferdig med de annenhver på bolen, fortsetter du med annenhver på ermene til riktig antall, men feller hver omgang på bolen 33 ganger. Når du er ferdig med annenhver på ermene, feller du hver omgang 9 ganger. Håper det hjelper og god fornøyelse!

04.03.2024 - 11:22

country flag Elina wrote:

Dank voor dit mooie patroon. Een vraag: er staat bij maat S dat de hals start als het lijf 48 cm meet. Zou dit niet 43 cm moeten zijn? Met 5 cm boord, 26 cm lijf, 19 cm pas en 5 cm halsboord kom ik volgens het patroon uit op 50 cm totale lengte, maar dan zouden de halsminderingen in de boord plaats moeten vinden.

25.02.2024 - 08:12

DROPS Design answered:

Dag Elina,

De totale hoogte vanaf de boord aan de onderkant tot de schouder is 50 cm, dit is als je het werk plat neerlegt en exclusief de halsboord. Ik denkt dat de getallen dan wel kloppen, want je moet na de 48 cm nog een paar naalden heen en weer breien en dan kom je ongeveer op 50 cm.

25.02.2024 - 10:24

country flag Anna wrote:

Jeg strikker trøjen i størrelse small og er nået til halsen. Jeg har sat de 20 forreste masker på en snor og har strikket hen til starten. Jeg er nu nået til: SAMTIDIG lukkes der af til hals på begyndelsen af hver pind fra halsen således: Luk 2 masker af 2 gange og 1 maske 1 gang i hver side. Jeg forstår simpelthen ikke hvad jeg skal. Kan I hjælpe med at forklare det?

13.02.2024 - 13:39

country flag Cambazard wrote:

J ai un souci avec les marqueurs en utilisant les chiffres indiqués les marqueurs se situe au milieu du dos et pas au niveau des côtés du pull, pouvez vous m aider ?

11.02.2024 - 15:34

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Cambazard, vous devez bien avoir le bon nombre de mailles de chaque côté des 2 marqueurs, soit 1 maille avec 1 marqueur, puis 118-126-134-154-162-174 m, 1 maille avec 1 marqueur (= la 120ème-128ème-136ème-156ème-164ème-176ème maille du tour), et 118-126-134-154-162-174 m jusqu'à la fin du tour soit un total de 238-254-270-310-326-350 m. Bon tricot!

12.02.2024 - 08:32

country flag Tine Kjærbye wrote:

Jeg forstår ikke indtagningerne i ribben. Skal maskerne forskydes når man tager ind i A2 række 3? Og i forklaringen står, at der er taget 2 m. ind ved 3. række i A.3, men ifølge diagrammet skal man strikke 2 gange ved siden af hinanden. Hvor kommer indtagningerne ind?

08.02.2024 - 10:14

DROPS Design answered:

Hei Tine. I diagram A.2 og A.3 gentages kun de 2 første omgange i højden, altså indtagningerne i A.2 og A.3 strikkes kun siste gang diagrammene strikkes. Og da vil vrangborden stemme med mønstret / diagrammene som skal strikkes etter vrangborden. mvh DROPS Design

16.02.2024 - 10:35

country flag Ewa wrote:

Nie wiem kto opracowuje te wzory ale takiego dziadostwa dawno nie widziałam.Wzory wydają się bardzo proste a po przeczytaniu opisu nie wiem od czego zacząć.

20.01.2024 - 11:40

DROPS Design answered:

Witaj Ewo, zachęcam do zapoznania się z kursem jak czytać nasze wzory TUTAJ. Proszę napisz jaki konkretnie masz problem, a postaramy się pomóc. Pozdrawiamy!

22.01.2024 - 08:59

country flag Kirsten Bjerregaard Nielsen wrote:

Det vil være rart om der også stod hvad strikkefastheden er i mønster delen, der er jo ingen glatstrik hvor man kan kontrollere om man holder strikkefastheden. Jeg har desuden brugt tid på at lave en side hvor jeg har kopieret diagram i rækkefølge og forklaring dertil, så jeg ikke skulle kikke på 3 forskellige sider, hver gang jeg kom til en ny mønsterdel + lavet et skema 1 til 16 ( 5 stk) hvor jeg sætter en markering hvor A5 skal snoes. Det har gjort mønteret lettere.

05.01.2024 - 14:36

country flag Agnieszka wrote:

Dzień dobry, czy istniałaby możliwość dodania do wzoru danych na rozmiar XS?

11.12.2023 - 17:33

DROPS Design answered:

Witaj Agnieszko, niestety nie jesteśmy w stanie dopasować naszych wzorów do indywidualnych potrzeb. Zalecam kontakt ze sklepem, w którym zakupiłaś włóczkę, powinien udzielić Ci pomocy. Pozdrawiam!

12.12.2023 - 11:10

country flag Barbara wrote:

Buongiorno, ho difficoltà a capire la parte del collo. Devo lavorare in piano dopo aver finito le diminuzioni del raglan o durante? E finisco il lavoro in piano quando ho fatto le diminuzioni per il collo? E poi come le riprendo le maglie per il collo? Grazie

24.10.2023 - 12:42

DROPS Design answered:

Buonasera Barbara, deve iniziare a lavorare il collo all'altezza indicata, iniziando in tondo e poi in piano. Le maglie del collo vengono messe in sospeso e poi riprese. Buon lavoro!

24.10.2023 - 22:33