Anita Fjærestrand skrifaði:
Hei. Jeg har nå strikket 2 stk av denne nydelige oppskriften. En i hver str. I oppskriften står det 150 g i begge str, men jeg brukte kun 100 g i begge str. Jeg har i tillegg samme strikkefasthet som oppskriften sier. Vil bare informere i tilfelle det er skrevet feil her. Kjedelig å kjøpe for mye garn. Hilsen Anita
05.11.2021 - 22:43
Amélie skrifaði:
Bonjour, Dans le passage cagoule, après les diminutions (on arrive à 97 mailles pour la grande taille), doit-on reprendre les 4,5? Ou finit on le modèle avec les 3,5? Merci beaucoup :)
11.10.2021 - 23:27DROPS Design svaraði:
Bonjour Amélie, vous avez raison, on reprend l'aiguille circulaire 4,5 après les côtes, la correction a été faite, merci pour votre retour et bonne continuation!
13.10.2021 - 13:10
Petra Goossen skrifaði:
Ik kan de patronen helaas niet afprinten.
28.09.2021 - 18:38DROPS Design svaraði:
Dag Petra,
Al onze patronen zijn gratis af te drukken via de knop 'Afdrukken' onder de materialenlijst. Klik op de knop 'Afdrukken' en dan op 'Patroon'. In het pop-up venster dat vervolgens in beeld komt klik je rechts boven op de link 'Het patroon afdrukken'.
30.09.2021 - 10:12
Eva skrifaði:
Snowy elf
24.08.2021 - 23:36
Carmen Maria Garcia Diaz skrifaði:
Me encanta
24.08.2021 - 12:59
Lisbeth skrifaði:
Lady Marian
10.08.2021 - 13:51
Michèle PREVOST skrifaði:
Je propose Cocon de neige
08.08.2021 - 02:40
Sabrina skrifaði:
Cosy Huva
04.08.2021 - 19:47
Frost Buster Balaclava#frostbusterbalaclava |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð balaclava / húfa / lambhúshetta úr DROPS Air. Stykkið er prjónað í perluprjóni með kanti í stroffprjóni.
DROPS 225-7 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið síðan umferð 2. ÚRTAKA (jafnt yfir) : Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 115 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 23) = 5. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna 4. og 5. hverja lykkju slétt saman. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- LAMBHÚSHETTA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp. Lykkjur eru settar á þráð fyrir opi mitt að framan, síðan er stykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna að loka máli. Lambhúshettan er saumuð saman á toppnum. Að lokum er prjónaður tvöfaldur kantur í stroffprjóni í kringum opið að framan. LAMBHÚSHETTA: Fitjið upp, aðeins laust,115-127 lykkjur á hringprjón 4,5 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð sléttprjón. Prjónið síðan PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 6 cm, prjónið 2 umferðir sléttprjón – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 23-25 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 92-102 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 4 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Eftir stroffið, skiptið aftur yfir á hringprjón í stærð 4,5 og prjónið 1 umferð þar sem fækkað er um 5-5 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA = 87-97 lykkjur. Haldið áfram hringinn í perluprjóni þar til stykkið mælist 14 cm frá uppfitjunarkanti í báðum stærðum. Í næstu umferð eru miðju 17-19 lykkjur settar á þráð mitt að framan, þannig að það myndist op mitt að framan = 70-78 lykkjur á prjóni. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (= mitt að aftan). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – það er notað þegar stykkinu er skipt á toppnum. Prjónið síðan hettuna eins og útskýrt er að neðan. HETTA: Haldið áfram í perluprjóni fram og til baka yfir allar lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 40-42 cm frá uppfitjunarkanti (stykkið mælist ca 26-28 cm frá þar sem stykkinu var skipt mitt að framan). Nú eru eftir ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. lambhúshettuna og prjónið áfram að óskaðri lengd. Nú er lykkjum fækkað mitt aftan á hettu. Skiptið stykkinu við prjónamerki mitt að aftan og prjónið hvort stykki til loka fyrir sig eins og útskýrt er að neðan. FYRRA STYKKI: = 35-39 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í perluprjóni og fellið af í byrjun á hverri umferð frá miðju að aftan þannig: Fellið af 1 lykkju, 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum og 3 lykkjur 1 sinni = 27-31 lykkjur eftir. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Stykkið mælist ca 43-45 cm ofan frá og niður að uppfitjunarkanti. SEINNA STYKKI: Prjónið á sama hátt og fyrra stykki. FRÁGANGUR: Saumið lambhúshettuna saman á toppnum innan við affellingarkantinn. KANTUR Í KRINGUM OP MITT AÐ FRAMAN: Setjið lykkjur af þræði að framan á hringprjón 3,5. Prjónið brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur og sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir þessar 17-19 lykkjur, prjónið síðan upp ca 111 til 125 lykkjur innan við 1 lykkju í kringum opið að framan = alls ca 128 til 144 lykkjur. Lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6-7 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Brjótið inn stroffið að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #frostbusterbalaclava eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 225-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.