Toffee Apple Sweater#toffeeapplesweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Sky og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað með axlarsæti, tvöföldum kanti í hálsmáli, klauf í hliðum og köntum í stroffprjóni. Stærð S-XXXL.
DROPS 228-26 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 94 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan (t.d. 8 lykkjur) og deilið þeim 86 lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 18) = 4,8. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 4. og 5. hverja lykkju slétt saman – lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur. ÚRTAKA-2 (á við um úrtöku á ermum og úrtöku á axlarsæti): Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri). Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri). ÚRTAKA-3 (á við úrtöku á ermum): Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). ÚTAUKNING (á við í hvorri hlið á ermum): Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni og 1 lykkju í sléttprjóni með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Ef prjónfestan passar ekki á hæðina, þá kemur það til með að hafa áhrif á loka mál á berustykki. Ef prjónað er of fast/laust þá kemur berustykkið til með að vera styttra/lengra en uppgefið mál í uppskrift. Ef prjónað er of fast þá er hægt að prjóna nokkrar auka umferðir í sléttprjóni áður en úrtakan byrjar. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkið og bakstykkið eru prjónuð fram og til baka hvort fyrir sig, neðan frá og upp að handveg. Ermar eru prjónaðar fram og til baka, neðan frá og upp að handvegi. Ermar eru settar inn á sama hringprjón og framstykkin og bakstykkið. Síðan er berustykkið prjónað í hring. Lykkjum er fækkað í hvorri hlið á hvorri ermi á berustykki. Síðan er lykkjum fækkað fyrir axlarsæti. Síðan er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli í stroffprjóni. Að lokum er stykkið saumað saman undir ermum og í hliðum eins og útskýrt er í uppskrift. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 94-106-114-122-134-146 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 4 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 8 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 18-22-24-24-26-30 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA-1 = 76-84-90-98-108-116 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 4 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið síðan sléttprjón með 4 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið þar til stykkið mælist 29 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Nú eru eftir ca 29-31-33-35-37-39 cm upp að öxl. Fellið af 3-3-4-4-5-5 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 70-78-82-90-98-106 lykkjur eftir. Klippið þráðinn. Geymið stykkið. BAKSTYKKI: Fitjið upp jafn margar lykkjur og á framstykki. Prjónið bakstykkið á sama hátt og framstykkið – þ.e.a.s. framstykkið og bakstykkið eru alveg eins. ERMI: Fitjið upp 44-44-48-48-52-52 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 8 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 8-6-8-6-8-8 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA-1 = 36-38-40-42-44-44 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 10-9-10-11-10-12 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3½-3-2½-2-1½-1½ cm millibili alls 9-10-12-14-15-16 sinnum = 54-58-64-70-74-76 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 42-40-38-38-37-35 cm – stillið af að næsta umferð sé frá réttu. Nú eru eftir ca 24-26-28-29-31-33 cm að loka máli – mátið e.t.v. ermina og prjónið að óskaðri lengd. Fellið af 3-3-4-4-5-5 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 48-52-56-62-64-66 lykkjur. Klippið þráðinn. Geymið stykkið. Prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið stykkin inn á sama hringprjón 5,5 þannig – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar: 70-78-82-90-98-106 lykkjur frá bakstykki, 48-52-56-62-64-66 lykkjur frá ermi, 70-78-82-90-98-106 lykkjur frá framstykki, 48-52-56-62-64-66 lykkjur frá ermi = 236-260-276-304-324-344 lykkjur í umferð. Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert og eitt af þessum 4 prjónamerkjum eru sett á milli 2 lykkja. Prjónamerkin eru notuð síðar þegar fækka á lykkjum fyrir ermar og axlarsæti. Fyrsta prjónamerki: Teljið 2-4-5-6-9-11 lykkjur, setjið 1. prjónamerki á undan næstu lykkju (þetta er núna hægri ermi). Annað prjónamerki: Teljið 66-70-72-78-80-84 lykkjur, setið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju (þetta er núna bakstykki). Þriðja prjónamerki: Teljið 52-60-66-74-82-88 lykkjur, setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju (þetta er núna vinstri ermi). Fjórða prjónamerki: Teljið 66-70-72-78-80-84 lykkjur, setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju (þetta er núna framstykki). Það eru 50-56-61-68-73-77 lykkjur í umferð á eftir 4. prjónamerki (= þessar lykkjur tilheyra hægri ermi með 2-4-5-6-9-11 lykkjum á undan 1. prjónamerki = 52-60-66-74-82-88 lykkjur). Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að fækka lykkjum við hvert og eitt af þessum prjónamerkjum. Byrjið umferð nákvæmlega á eftir 1. prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjum fækkað á ermum eins og útskýrt er að neðan – sjá LEIÐBEININGAR. ÚRTAKA Á ERMUM: Fækkið um 8 lykkjur á ermum þannig: Fækkið um 2 lykkjur á EFTIR 2. og 4. prjónamerki og fækkið um 2 lykkjur á UNDAN 3. og 1. prjónamerki – sjá ÚRTAKA-2. Lykkjum er einungis fækkað á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami. Haldið svona áfram og fækkið lykkjum alveg eins í annarri hverri umferð alls 3-5-6-8-10-11 sinnum = 212-220-228-240-244-256 lykkjur. Prjónið 1 umferð án úrtöku á eftir síðustu úrtöku. Í næstu umferð er fækkað um 4 lykkjur fyrir ermar þannig: Fækkið um 1 lykkju á EFTIR 2. og 4. prjónamerki og fækkið um 1 lykkju á UNDAN 3. og 1. prjónamerki – sjá ÚRTAKA-3. Lykkjum er einungis fækkað á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami. Haldið svona áfram og fækkið lykkjum alveg eins í annarri hverri umferð alls 12-12-13-11-11-12 sinnum = 164-172-176-196-200-208 lykkjur. Eftir síðustu úrtöku mælist stykkið ca 15-17-19-19-21-23 cm frá þar sem stykkin voru sett saman við handveg. Prjónið 1 umferð án úrtöku. Fækkið síðan lykkjum fyrir axlarsæti eins og útskýrt er að neðan. ÚRTAKA Á AXLARSÆTI: Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 8 lykkjur fyrir axlarsæti þannig: Fækkið um 2 lykkjur á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og fækkið um 2 lykkjur á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚRTAKA-2. Lykkjum er einungis fækkað á framstykki og bakstykki og fjöldi lykkja á ermum verður sá sami. Haldið svona áfram og fækkið lykkjum alveg eins í annarri hverri umferð alls 9-9-9-10-10-10 sinnum = 92-100-104-116-120-128 lykkjur. Eftir síðustu úrtöku mælist stykkið ca 24-26-28-29-31-33 cm frá þar sem stykkin voru sett saman við handveg. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 16-20-20-28-28-32 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA-1 = 76-80-84-88-92-96 lykkjur. Síðan er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli eins og útskýrt er að neðan. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Skiptið yfir á stuttan hringprjón 4,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar kantur í hálsi mælist 10-10-10-12-12-12 cm, aukið allar 2 lykkjur brugðið til 3 lykkjur brugðið = 95-100-105-110-115-120 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 13-13-13-15-15-15 cm (eða að óskaðri lengd). Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Brjótið niður stroffið að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. FRÁGANGUR: Saumið sauma undir ermum – saumið í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur (það myndast kantur með 2 lykkjum í garðaprjóni mitt undir hvorri ermi). Saumið hliðarsauma – byrjið efst við handveg og saumið í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur, þar til ca 15 cm er eftir neðst í hvorri hlið fyrir klauf (það myndast kantur með 8 lykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið á fram- og bakstykki sem er sýnilegur). Saumið saman op undir ermum. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #toffeeapplesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 228-26
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.