Tuija Mikkonen wrote:
Mitä tämä tarkoittaa? Missä vaiheessa hihanaukkoa varten kavennetaan? Neulo kunnes työn pituus on 27 cm ja olet viimeksi neulonut nurjan puolen kerroksen. Työhön neulotaan vielä n. 29-31-33-35-37-39 cm.
19.03.2024 - 20:18DROPS Design answered:
Hei, kädentien silmukat päätetään, kun työn pituus on 27 cm. Myöhemmin neulotaan vielä 29-31-33-35-37-39 cm (kaarrokkeessa).
21.03.2024 - 17:27Margrit Stotz wrote:
Aus wie vielen Maschen besteht der Sattel? Wennich abnehme wie beschrieben habe ich am Ärmel keine Maschen mehr.
20.01.2023 - 16:45DROPS Design answered:
Liebe Frau Stotz, beachten Sie, daß die Abnahmen vor 1. + 3. und nach 2. und 4. Markierung gestrickt werden, jeweils 2 Maschen damit die maschen von den Ärmeln/Sattelschulter nicht abgenommen wird und nur die Maschenanzahl bei den Vorderteile und Rückenteil wird abnehmen. Viel Spaß beim stricken!
06.02.2023 - 15:44Ellis wrote:
Waarom is de mouw -vanaf de kop van de schouder gemeten- hier 5 cm langer dan bij patroon 226-11 dat ongeveer eenzelfde patroon is? ronde hals, zadelschouder, dit is van onder af en het andere top-down gebreid maar dat mag aan maatvoering niets af doen, allebei vest. maar de lengte van een arm blijft toch gelijk ? ik heb bewust gekeken naar ‘niet-raglan’ zodat daarin geen verschil kan zitten. de basis patronen zien er op het scherm ongeveer hetzelfde uit. 5 cm is best veel hier.
31.01.2022 - 15:41Kim Mazur wrote:
I am knitting the pumpkin pattern The Patch.. I am unsure what the directions mean when they say REMEMBER THE KNITTING GAUGE BIND OFF. Would someone elaborate for me? Is this just a typical bind off? Thank you in advance
28.09.2021 - 23:40DROPS Design answered:
Dear Mrs Mazur, you are working this pattern, correct? You have to work the diagram a total of 6 times in height, while you have to check and keep your tension. After A.1 has been worked a total of 6 times in height, just bind off. Happy knitting!
29.09.2021 - 07:40Grażyna wrote:
Błękitny z żakardem uroczy.
09.08.2021 - 11:27
Toffee Apple Jacket |
|
|
|
Prjónuð peysa úr DROPS Sky og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað með axlarsæti, tvöföldum kanti í hálsmáli, klauf í hliðum og köntum í stroffprjóni. Stærð S-XXXL.
DROPS 228-25 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 47 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan (t.d. 5 lykkjur) og deilið þeim 42 lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 9) = 4,7. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis ca 3. og 4. hverja lykkju og 4. og 5. hverja lykkju slétt saman – lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur. ÚRTAKA-2 (á við um úrtöku á ermum og úrtöku á axlarsæti): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri). Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri). ÚRTAKA-3 (á við úrtöku á ermum): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). ÚTAUKNING (á við í hvorri hlið á ermum): Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni og 1 lykkju í sléttprjóni með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Ef prjónfestan passar ekki á hæðina, þá kemur það til með að hafa áhrif á loka mál á berustykki. Ef prjónað er of fast/laust þá kemur berustykkið til með að vera styttra/lengra en uppgefið mál í uppskrift. Ef prjónað er of fast þá er hægt að prjóna nokkrar auka umferðir í sléttprjóni áður en úrtakan byrjar. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkin og bakstykkið eru prjónuð fram og til baka hvert fyrir sig, neðan frá og upp að handveg. Ermar eru prjónaðar fram og til baka, neðan frá og upp að handvegi. Ermar eru settar inn á sama hringprjón og framstykkin og bakstykkið. Síðan er berustykkið prjónað fram og til baka frá miðju að framan. Lykkjum er fækkað í hvorri hlið á hvorri ermi á berustykki. Síðan er lykkjum fækkað fyrir axlarsæti. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp meðfram báðum framstykkjum fyrir kanta að framan. Kantar að framan eru prjónaðir í stroffprjóni. Síðan er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli í stroffprjóni. Að lokum er stykkið saumað saman undir ermum og í hliðum eins og útskýrt er í uppskrift. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 47-51-55-59-67-71 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig – þ.e.a.s. frá miðju að framan: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 4 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 8 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 9-9-10-10-13-13 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 38-42-45-49-54-58 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið frá röngu þannig: 4 kantlykkjur í garðaprjóni (= að hlið), prjónið brugðnar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan og 4 kantlykkjur í garðaprjóni að hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið þar til stykkið mælist 27 cm – stillið af að næsta umferð sé frá röngu. Nú eru eftir ca 29-31-33-35-37-39 cm upp að öxl. Í næstu umferð eru felldar af fyrstu 3-3-4-4-5-5 lykkjur frá röngu fyrir handveg = 35-39-41-45-49-53 lykkjur eftir. Prjónið út umferðina eins og áður. Klippið þráðinn. Geymið stykkið. Prjónið vinstra framstykki eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 47-51-55-59-67-71 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig – þ.e.a.s. frá hlið: 4 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 8 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 9-9-10-10-13-13 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA-1 = 38-42-45-49-54-58 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni (= að miðju að framan), prjónið brugðnar lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir, endið með 4 kantlykkjur í garðaprjóni að hlið. Prjónið síðan sléttprjón með 4 kantlykkjur í garðaprjóni að hlið og 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan. Prjónið þar til stykkið mælist 27 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu. Nú eru eftir ca 29-31-33-35-37-39 cm upp að öxl. Prjónið frá röngu þar til eftir eru 3-3-4-4-5-5 lykkjur í umferð og fellið af þessar 3-3-4-4-5-5 lykkjur fyrir handveg = 35-39-41-45-49-53 lykkjur eftir. Klippið þráðinn. Geymið stykkið. Prjónið bakstykki eins og útskýrt er að neðan. BAKSTYKKI: Fitjið upp 94-106-114-122-134-146 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 4 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 8 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 18-22-24-24-26-30 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA-1 = 76-84-90-98-108-116 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 4 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið síðan sléttprjón með 4 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið þar til stykkið mælist 27 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Nú eru eftir ca 29-31-33-35-37-39 cm upp að öxl. Fellið af 3-3-4-4-5-5 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 70-78-82-90-98-106 lykkjur eftir. Klippið þráðinn. Geymið stykkið. Prjónið ermar eins og útskýrt er að neðan. ERMI: Fitjið upp 44-44-48-48-52-52 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 8 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 8-6-8-6-8-8 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA-1 = 36-38-40-42-44-44 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 10-9-10-11-10-12 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4-3½-2½-2-2-1½ cm millibili alls 9-10-12-14-15-16 sinnum = 54-58-64-70-74-76 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 44-42-41-41-40-38 cm – stillið af að næsta umferð sé frá réttu. Nú eru eftir ca 25-27-29-30-32-34 cm að loka máli – mátið e.t.v. ermina og prjónið að óskaðri lengd. Fellið af 3-3-4-4-5-5 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 48-52-56-62-64-66 lykkjur. Klippið þráðinn. Geymið stykkið. Prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið stykkin inn á sama hringprjón 5,5 þannig – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar: 35-39-41-45-49-53 lykkjur frá hægra framstykki, 48-52-56-62-64-66 lykkjur frá ermi, 70-78-82-90-98-106 lykkjur frá bakstykki, 48-52-56-62-64-66 lykkjur frá ermi og 35-39-41-45-49-53 lykkjur frá vinstra framstykki = 236-260-276-304-324-344 lykkjur í umferð. Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert og eitt af þessum 4 prjónamerkjum eru sett á milli 2 lykkja. Prjónamerkin eru notuð síðar þegar fækka á lykkjum fyrir ermar og axlarsæti. Fyrsta prjónamerki: Teljið 39-41-43-44-45-47 lykkjur, setjið 1. prjónamerki á undan næstu lykkju (þetta er núna hægra framstykki). Annað prjónamerki: Teljið 40-48-52-64-72-78 lykkjur, setjið 2 prjónamerki á undan næstu lykkju (þetta er nú hægri ermi). Þriðja prjónamerki: Teljið 78-82-86-88-90-94 lykkjur, setið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju (þetta er núna bakstykki). Fjórða prjónamerki: Teljið 40-48-52-64-72-78 lykkjur, setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju (þetta er núna vinstri ermi). Það eru 39-41-43-44-45-47 lykkjur á eftir 4. prjónamerki (= vinstra framstykki). Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að fækka lykkjum við hvert og eitt af þessum prjónamerkjum. Sjá LEIÐBEININGAR og prjónið 1-0-0-1-0-0 cm sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Fækkið síðan lykkjum á ermum eins og útskýrt er að neðan. ÚRTAKA Á ERMUM: Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 8 lykkjum á ermum þannig (á ekki við um stærð S). Fækkið um 2 lykkjur á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og fækkið um 2 lykkjur á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚRTAKA-2. Lykkjum er einungis fækkað á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami. Haldið svona áfram og fækkið lykkjum alveg eins í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 0-1-2-7-8-9 sinnum = 236-252-260-248-260-272 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 4 lykkjur fyrir ermar þannig (á við um allar stærðir): Fækkið um 1 lykkju á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og fækkið um 1 lykkju á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚRTAKA-3. Lykkjum er einungis fækkað á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami. Haldið svona áfram og fækkið lykkjum alveg eins í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 13-15-15-10-12-13 sinnum = 184-192-200-208-212-220 lykkjur. Eftir síðustu úrtöku mælist stykkið ca 14-16-17-18-20-22 cm frá þar sem stykkin voru sett saman við handveg. Fækkið síðan lykkjum fyrir axlarsæti eins og útskýrt er að neðan. ÚRTAKA Á AXLARSÆTI: Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 8 lykkjur fyrir axlarsæti þannig: Fækkið um 2 lykkjur á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og fækkið um 2 lykkjur á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚRTAKA-2. Lykkjum er einungis fækkað á framstykki og bakstykki og fjöldi lykkja á ermum verður sá sami. Haldið svona áfram og fækkið lykkjum alveg eins í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 11-11-12-12-12-12 sinnum = 96-104-104-112-116-124 lykkjur. Eftir síðustu úrtöku mælist stykkið ca 25-27-29-30-32-34 cm frá þar sem stykkin voru sett saman við handveg. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 22-26-26-30-30-34 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA-1 = 74-78-78-82-86-90 lykkjur. Látið þessar lykkjur hvíla á prjóninum eða setjið lykkjurnar á þráð. Síðan er prjónaður kantur að framan eins og útskýrt er að neðan. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Byrjið frá réttu neðst á hægra framstykki og prjónið upp lykkjur innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni ca 92-96-100-100-104-108 lykkjur meðfram framstykki á hringprjóna 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Passið uppá að kanturinn dragist ekki saman, prjónið upp fleiri lykkjur eftir þörf. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff. Þegar kanturinn að framan mælist ca 1½ cm, fellið af fyrir 5-5-5-6-6-6 hnappagötum jafnt yfir. 1 HNAPPAGAT = prjónið 2 lykkjur saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn (það er fallegast að prjóna 2 lykkjur brugðið saman í brugðinni einingu séð frá réttu). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Efsta hnappagatið er staðsett ca 1 til 1½ cm frá kanti efst og neðsta hnappagatið er staðsett ca 8 cm frá neðri kanti. Prjónið þar til kanturinn að framan mælist 3 til 3½ cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Byrjið frá réttu efst á vinstra framstykki og prjónið upp jafn margar lykkjur og á hægri kanti að framan innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á hringprjón 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið þar til kanturinn að framan mælist það sama og hægri kantur að framan. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu efst í hægri kanti að framan og prjónið upp 7 lykkjur innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni meðfram kanti að framan á hringprjón 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir), prjónið sléttar lykkjur yfir 74-78-78-82-86-90 lykkjur frá prjóni/þræði og prjónið upp 7 lykkjur innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni meðfram kanti efst í vinstri kanti að framan = 88-92-92-96-100-104 lykkjur. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka. Þegar kanturinn í hálsi mælist 10-10-10-12-12-12 cm, aukið út allar 2 lykkjur brugðið (séð frá réttu) til 3 lykkjur brugðið = 109-114-114-119-124-129 lykkjur. Prjónið þar til kanturinn í hálsmáli mælist 13-13-13-15-15-15 cm (eða að óskaðri lengd). Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Brjótið niður stroffið að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju að framan á kanti að framan með smáu spori. FRÁGANGUR: Saumið sauma undir ermum – saumið í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur (það myndast kantur með 2 lykkjum í garðaprjóni mitt undir hvorri ermi sem er sýnilegur). Saumið hliðarsauma – byrjið efst við handveg og saumið í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur, þar til ca 15 cm er eftir neðst í hvorri hlið fyrir klauf (það myndast kantur með 8 lykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið á fram- og bakstykki sem er sýnilegur). Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Ellis wrote:
Ik heb zeker 16 keer de test moeten doen dat ik geen robot ben. ik zie niet meer zebra’s of auto’s dan ik aangeef. mogelijk zijn mijn ogen niet meer zo goed als ooit maar het is erg vervelend om meer dan 15 x aan te moeten tonen dat je geen robot bent. kunt u meer duidelijke beelden erin plaatsen?
31.01.2022 - 15:43