Katleen skrifaði:
Ik zie geen video …
06.08.2022 - 01:14
Katleen skrifaði:
Bij afwerking, wat wordt er bedoeld met naai de naden dicht aan de binnenkant van de afkantranden ?
28.07.2022 - 16:23DROPS Design svaraði:
Dag Kathleen,
Hiermee wordt eigenlijk bedoeld dat je naast de afkantrand de naad dicht naait, zodat de afkantrand onzichtbaar wordt. Zie ook deze video:
01.08.2022 - 19:55
Yvonne skrifaði:
Als de minderingen voor de V-hals klaar zijn, is er nog een klein stukje voorpand te breien tot de schouder. Brei je dan nog steeds de 4e st vanaf de halsrand averechts (zoals in A2/A3)? Dit staat volgens mij niet met zoveel woorden in het patroon vermeld, maar het lijkt logisch om dit ook het laatste stukje zo te blijven doen? Alvast bedankt!
03.06.2022 - 00:03DROPS Design svaraði:
Dag Yvonne,
Ja, dat klopt. De 4e steek brei je dan nog steeds averecht, anders verbreek je de rand.
05.06.2022 - 21:16
Mieke skrifaði:
Hartstikke fijn 👍
26.02.2022 - 16:11
Mieke skrifaði:
Hallo, ik vind de beschrijving van de afwerking van de hals moeilijk beschreven, komt mss door de vertaling. Ik kom er niet wijs uit. Kan ik deze afwerking nog ergens anders vinden? Of kan het nog eens uitgelegd worden?
25.02.2022 - 08:41DROPS Design svaraði:
Dag Mieke,
Ja, er is een video over deze techniek, zie hieronder. Aan het begin van de video worden er een paar steken bij gemaakt, dat kun je negeren. Je kunt de video starten op 54 seconden.
26.02.2022 - 15:29
Sandra Van Der Veen skrifaði:
Kan je het patroon river hill ook breien met gewoone breinaalden en niet met rondbreinaalden.
28.10.2021 - 09:16DROPS Design svaraði:
Dag Sandra,
Ja, dat kan wel met dit patroon.
Om een patroon aan te passen om op rechte naalden te breien hebben we een instructie gemaakt. Deze vind je hier.
29.10.2021 - 12:55
Anna Paola Majer skrifaði:
Buongiorno, sto facendo la parte dietro: intrecciando le maglie per gli scalfi, diminuisco solo sui ferri a diritto, o anche a rovescio ( in tutti i ferri) ? Grazie!
27.10.2021 - 06:53DROPS Design svaraði:
Buonasera Anna, deve intrecciare le maglie all'inizio di ogni ferro, quindi anche dal rovescio del lavoro. Buon lavoro!
29.10.2021 - 21:17
Tricia skrifaði:
The perfect V-neck! I wish you made it in hot pink Melody :)
10.09.2021 - 01:31
Alessandra skrifaði:
Versatile, caldo e leggerissimo. Il più bel filato della collezione
16.08.2021 - 04:31
Mona-Lill Hanssen skrifaði:
Smyg
05.08.2021 - 11:45
River Hill Sweater#riverhillsweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað með V-hálsmáli og kaðli. Stærð S - XXXL.
DROPS 228-11 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 72 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim 70 lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 8) = 8,8. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis ca 7. og 8. hverja lykkju og 8. og 9. hverja lykkju slétt saman. V-HÁLSMÁL: Öll úrtaka er gerð frá réttu: Fækkið lykkjum á undan A.2 þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á eftir A.3 þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). ÚTAUKNING (á við um ermar): Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á ermi. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka hringprjón, neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna. Stykkin eru saumuð saman. Í lokin er prjónuð i-cord-affelling aftan í hnakka á bakstykki. BAKSTYKKI: Fitjið upp 72-80-84-92-104-112 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjón 5,5 með DROPS Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur brugðið, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 8-10-10-10-14-16 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 64-70-74-82-90-96 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið 1 umferð brugðið (kantlykkjur eru prjónaðar slétt). Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm, fellið af lykkjur fyrir handvegi í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3-4-4-5-6-7 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1-1-1-2-3-3 sinnum og 1 lykkja 1-2-2-2-2-2 sinnum = 52-54-58-60-62-66 lykkjur. Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, setjið miðju 24-24-24-26-26-26 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsi er felld af 1 lykkja = 13-14-16-16-17-19 lykkjur fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 72-80-84-92-104-112 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjón 5,5 með DROPS Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 8-10-10-10-14-16 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 64-70-74-82-90-96 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið 1 umferð brugðið (kantlykkjur eru prjónaðar slétt). Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm, fellið af lykkjur fyrir handvegi í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3-4-4-5-6-7 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1-1-1-2-3-3 sinnum og 1 lykkja 1-2-2-2-2-2 sinnum = 52-54-58-60-62-66 lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 36-7-38-39-40-41 cm, prjónið A.1 yfir miðju 8 lykkjur í umferð. Þegar 2. Umferð í mynsturteikningu hefur verið prjónuð til loka, skiptist stykkið mitt að framan fyrir hægra og vinstra framstykki og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Haldið áfram með úrtöku að handvegi ef úrtöku er ekki lokið, prjónið sléttprjón þar til 6 lykkjur eru eftir á undan hálsmáli, fækkið um 1 lykkju fyrir V-HÁLSMÁL – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.2 yfir síðustu 4 lykkjur. Þegar úrtöku fyrir handveg er lokið, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni yst við handveg. Haldið svona áfram með mynstur og fækkið lykkjum fyrir V-hálsmáli í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) 10-10-9-10-10-9 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 0-0-1-1-1-2 sinnum (= alls 10-10-10-11-11-11 lykkjur færri fyrir V-hálsmáli). Þegar allar úrtökur hafa verið gerðar fyrir V-hálsmáli og handvegi eru 16-17-19-19-20-22 lykkjur eftir fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, setjið ystu 3 lykkjur við hálsmál á þráð og þær 13-14-16-16-17-19 lykkjur sem eru eftir eru felldar af. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: A.3 yfir fyrstu 4 lykkjur, fækkið um 1 lykkju fyrir V-HÁLSMÁL – sjá útskýringu að ofan, prjónið sléttprjón út umferðina - þegar úrtöku fyrir handveg er lokið, endið umferð með 1 kantlykkju í garðaprjóni við handveg. Haldið svona áfram með mynstur, e.t.v. úrtöku fyrir handveg ef henni er ekki lokið og fækkið lykkjum fyrir V-hálsmáli í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) 10-10-9-10-10-9 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 0-0-1-1-1-2 sinnum (= alls 10-10-10-11-11-11 lykkjur færri fyrir V-hálsmáli). Þegar allar úrtökur hafa verið gerðar fyrir V-hálsmáli og handvegi eru 16-17-19-19-20-22 lykkjur eftir fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, setjið ystu 3 lykkjur við hálsmál á þráð og þær 13-14-16-16-17-19 lykkjur sem eru eftir eru felldar af. ERMI: Fitjið upp 42-46-46-50-50-54 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjón 5,5 með DROPS Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 0-3-3-5-3-6 lykkjur jafnt yfir = 42-43-43-45-47-48 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið 1 umferð brugðið (kantlykkjur eru prjónaðar slétt). Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar ermin mælist 26-21-21-21-18-18 cm, aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – munið eftir ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 3-3-2-2-2-1½ cm millibili alls 6-7-9-9-10-11 sinnum = 54-57-61-63-67-70 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 44-42-41-40-38-36 cm (það er styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu). Prjónið nú ermakúpu þannig. Prjónið sléttprjón fram og til baka og fellið af lykkju í byrjun á hverri umferð þannig: Fellið af 3-4-4-5-6-7 sinnum 1 sinni, 1 lykkja 0-0-0-2-4-6 sinnum, 2 lykkjur 0-3-2-4-3-2 sinnum og 3 lykkjur 3-1-2-0-0-0 sinnum = 30-31-33-33-35-36 lykkjur. Fellið af. Ermin mælist ca 49-49-48-49-49-48 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori innan við affellingarkantinn. Saumið ermar við fram- og bakstykki innan við affellingarkantinn á ermum og 1 kantlykkja í garðaprjóni á fram- og bakstykki. Saumið sauminn undir ermum og síðan niður yfir hliðarsaum – saumið innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp frá réttu ca 32 til 34 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði) á milli axlasauma aftan í hálsmáli með hringprjón 5,5 og DROPS Melody. Klippið þráðinn frá. Prjónið nú i-cord-kant þannig: Setjið 3 lykkjur af þræði frá hægra framstykki á hringprjón 5,5. Prjónið i-cord frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið næstu lykkju snúna slétt saman með fyrstu / næstu lykkju í upptökukanti á bakstykki. Færið þessar 3 lykkjur til baka frá hægri prjóni yfir á vinstri prjón (= í þeirri röð sem þær eru). Haldið svona áfram meðfram öllum kantinum í hálsmáli á bakstykki þar til ekki fleiri lykkjur eru til að prjóna í. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Saumið síðustu 3 lykkjur saman með 3 lykkjum á þræði á vinstra framstykki með lykkjuspori. Klippið þráðinn og festið. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #riverhillsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 228-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.