DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6820.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

River Hill

Prjónuð peysa úr DROPS Melody. Stykkið er vafningspeysa og er hnýtt saman í mitti. Stærð S - XXXL.

DROPS 228-21
DROPS Design: Mynstur ml-073
Garnflokkur D
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS MELODY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki D)
250-300-300-350-400-400 g litur 03, perlugrár

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 7: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5,5: lengd 80 cm.

PRJÓNFESTA:
13 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6820.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 72 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim 70 lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 10) = 7.
Í þessu dæmi eru prjónaðar 6. og 7. hver lykkja slétt saman.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á ermum):
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúin svo ekki myndist gat. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka hringprjón hvort fyrir sig, neðan frá og upp.
Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp. Stykkin eru saumuð saman. Prjónaðar eru 2 snúrur sem eru saumaðar niður á peysuna.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 72-80-84-92-104-112 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjón 5,5 með DROPS Melody.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur brugðið, 1 kantlykkja garðaprjón.
Haldið svona áfram með stroff í 4 cm.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 10-12-12-12-16-18 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 62-68-72-80-88-94 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 7.
Prjónið 1 umferð brugðið (kantlykkjur eru prjónaðar slétt).
Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 16-17-18-19-20-21 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni – sjá ÚTAUKNING = 64-70-74-82-90-96 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm, fellið af lykkjur fyrir handvegi í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3-4-4-5-6-7 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1-1-1-2-3-3 sinnum og 1 lykkja 1-2-2-2-2-2 sinnum = 52-54-58-60-62-66 lykkjur.
Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm, prjónið stroffprjón yfir miðju 22-22-22-26-26-26 lykkjur þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 15-16-18-17-18-20 lykkjur, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið yfir næstu 20-20-20-24-24-24 lykkjur, prjónið 2 lykkjur brugðið, prjónið eins og áður yfir síðustu 15-16-18-17-18-20 lykkjur. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, fellið af miðju 14-14-14-18-18-18 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 19-20-22-21-22-24 lykkjur eftir fyrir öxl. Haldið áfram með mynstur eins og áður, þ.e.a.s. prjónið 2 lykkjur slétt við háls og 2 lykkjur brugðið innan við þessar lykkjur, þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar í sléttprjóni (séð frá réttu).
Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur, brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 57-61-65-73-81-85 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni og 6 lykkjur í rúllukant) á hringprjón 5,5 með DROPS Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: 6 lykkjur brugðið (= rúllukantur, prjónaður brugðið frá réttu og slétt frá röngu), * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 6 lykkjur brugðið, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 50-54-58-66-74-78 lykkjur og fækkið jafnframt um 7-6-7-8-10-10 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA, 1 kantlykkja garðaprjón = 50-55-58-65-71-75 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 7.
Prjónið 1 umferð brugðið (kantlykkja og 6 lykkjur í rúllukanti mitt að framan eru prjónaðar slétt).
Prjónið nú sléttprjón með 6 lykkjur í rúllukanti við miðju að framan og 1 kantlykkju garðaprjón í hlið eins og áður.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Fækkið núna lykkjum fyrir vafning, jafnframt eru lykkjur auknar út í hlið og lykkjur felldar af fyrir handveg – lestu því allan næsta kafla áður en þú heldur áfram að prjóna.

VAFNINGUR:
Þegar stykkið mælist 10-10-10-9-8-8 cm, byrjar úrtaka fyrir vafning. Fækkið lykkjum innan við 6 lykkjur brugðið (= rúllukantur) með því að lyfta 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð 1-1-1-1-1-2 sinnum, í annarri hverri umferð 22-24-25-30-32-32 sinnum og í 4. hverri umferð 1-1-1-1-1-1 sinnum (= 24-26-27-32-34-35 lykkjur færri fyrir vafning).
ÚTAUKNING Í HLIÐUM:
Þegar stykkið mælist 16-17-18-19-20-21 cm, aukið út um 1 lykkju í hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni – munið eftir ÚTAUKNING.
AFFELLING FYRIR HANDVEG:
Þegar stykkið mælis 32-33-34-35-36-37 cm, fellið af lykkjur fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá hlið þannig: Fellið af 3-4-4-5-6-7 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1-1-1-2-3-3 sinnum og 1 lykkju 1-2-2-2-2-2 sinnum (= 6-8-8-11-14-15 lykkjur felldar af fyrir handvegi).

Þegar öll affelling / úrtaka hefur verið gerð fyrir handveg og vafningurinn er tilbúinn, eru 21-22-24-23-24-26 lykkjur fyrir öxl. Nú eru 2 lykkjur fleiri á öxlum á framstykki en á bakstykki. Þessar 2 auka lykkjur á framstykki eru síðar saumaðar inn í axlasauminn þannig að rúllukanturinn haldist upprúllaður frá axlasaumi og niður. Prjónið áfram þar til stykkið mælist alls 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 57-61-65-73-81-85 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni og 6 lykkjur í rúllukant) á hringprjón 5,5 með DROPS Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt, 6 lykkjur brugðið (= rúllukantur, prjónast brugðið frá réttu og slétt frá röngu). Haldið svona áfram með stroff í 4 cm.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 50-54-58-66-74-78 lykkjur og fækkið jafnframt um 7-6-7-8-10-10 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA, 6 lykkjur brugðið = 50-55-58-65-71-75 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 7.
Prjónið 1 umferð brugðið (kantlykkja og 6 lykkjur í rúllukanti mitt að framan eru prjónaðar slétt).
Prjónið nú sléttprjón með 6 lykkjur í rúllukanti við miðju að framan og 1 kantlykkju garðaprjón í hlið eins og áður.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Fækkið núna lykkjum fyrir vafning, jafnframt eru lykkjur auknar út í hlið og lykkjur felldar af fyrir handveg – lestu því allan næsta kafla áður en þú heldur áfram að prjóna.

VAFNINGUR:
Þegar stykkið mælist 10-10-10-9-8-8 cm, byrjar úrtaka fyrir vafning. Fækkið lykkjum innan við 6 lykkjur brugðið (= rúllukantur) með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).
Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð 1-1-1-1-1-2 sinnum, í annarri hverri umferð 22-24-25-30-32-32 sinnum og í 4. hverri umferð 1-1-1-1-1-1 sinnum (= 24-26-27-32-34-35 lykkjur færri fyrir vafning).
ÚTAUKNING Í HLIÐUM:
Þegar stykkið mælist 16-17-18-19-20-21 cm, aukið út um 1 lykkju í hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni – munið eftir ÚTAUKNING.
AFFELLING FYRIR HANDVEG:
Þegar stykkið mælis 32-33-34-35-36-37 cm, fellið af lykkjur fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá hlið þannig: Fellið af 3-4-4-5-6-7 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1-1-1-2-3-3 sinnum og 1 lykkju 1-2-2-2-2-2 sinnum (= 6-8-8-11-14-15 lykkjur felldar af fyrir handvegi).

Þegar öll affelling / úrtaka hefur verið gerð fyrir handveg og vafningurinn er tilbúinn, eru 21-22-24-23-24-26 lykkjur fyrir öxl. Nú eru 2 lykkjur fleiri á öxlum á framstykki en á bakstykki. Þessar 2 auka lykkjur á framstykki eru síðar saumaðar inn í axlasauminn þannig að rúllukanturinn haldist upprúllaður frá axlasaumi og niður. Prjónið áfram þar til stykkið mælist alls 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

ERMI:
Fitjið upp 42-46-46-50-50-54 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjón 5,5 með DROPS Melody.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff í 4 cm.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 0-3-3-5-3-6 lykkjur jafnt yfir = 42-43-43-45-47-48 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið 1 umferð brugðið (kantlykkjur eru prjónaðar slétt).
Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar ermin mælist 26-21-21-21-18-18 cm, aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – munið eftir ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 3-3-2-2-2-1½ cm millibili alls 6-7-9-9-10-11 sinnum = 54-57-61-63-67-70 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 44-42-41-40-38-36 cm (það er styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu).
Prjónið nú ermakúpu þannig. Prjónið sléttprjón fram og til baka og fellið af lykkju í byrjun á hverri umferð þannig: Fellið af 3-4-4-5-6-7 sinnum 1 sinni, 1 lykkja 0-0-0-2-4-6 sinnum, 2 lykkjur 0-3-2-4-3-2 sinnum og 3 lykkjur 3-1-2-0-0-0 sinnum = 30-31-33-33-35-36 lykkjur. Fellið af. Ermin mælist ca 49-49-48-49-49-48 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma þannig: Það eru 2 lykkjur fleiri á öxlum á framstykki en á bakstykki. Brjótið inn 2 ystu lykkjurnar í rúllukanti á framstykki að réttu, þannig að þessar 2 lykkjur liggja tvöfaldar yfir næstu 2 lykkjur í rúllukanti (nú eru eftir 2 brugðnar lykkjur á undan sléttprjónuðu einingunni á framstykki).
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn – passið uppá að 2 ystu lykkjur við hálsmál sem voru brotnar tvöfaldar festist inn í axlasauminn.
Saumið ermar við fram- og bakstykki innan við affellingarkantinn á ermum og 1 kantlykkja í garðaprjóni á fram- og bakstykki. Saumið sauminn undir ermum og síðan niður yfir hliðarsaum – saumið innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni, en skiljið eftir smá op ca 3 cm til að þræða snúruna í gegnum hægri hlið ca 10 cm upp frá uppfitjunarkanti.

SNÚRA:
Fitjið upp 6 lykkjur á hringprjón 5,5 með DROPS Melody. Prjónið sléttprjón fram og til baka í 120 til 150 cm – eða að óskaðri lengd. Snúran kemur til með að rúllast inn. Fellið af.
Prjónið aðra snúru á sama hátt.
Festið hvora snúruna að röngu á hvort framstykki nákvæmlega í skiptinguna á milli rúllukants ca 10 cm upp frá uppfitjunarkanti.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 228-21

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (6)

country flag Mund wrote:

"Wie zuvor über die ersten 15-16-18-17-18-20 Maschen stricken, * 2 Maschen links, 2 Maschen rechts *, von *-* über die nächsten 20-20-20-24-24-24 Maschen stricken, 2 Maschen links, wie zuvor über die letzten 15-16-18-17-18-20 Maschen stricken. " Kann mir bitte dies einer erklären? Ich verstehe nicht was das *-* bedeutet und wie ich das stricken soll. Wie soll das aussehen? Hinten Rückenteil Kragen verzweifelte Grüße soraya

06.11.2021 - 08:47

DROPS Design answered:

Liebe Soraya, *-* bezeichnet die Wiederholung, die gestrickt werden soll. Beispiel: für die kleinste Größe werden 20 Maschen benötigt. Diese sollen durch Wiederholung von 2x Links und 2x Rechts gestrickt werden - also 5 Wiederholungen. Viel Spaß beim Stricken!

06.11.2021 - 19:08

country flag Susanne Vollmer wrote:

I love this cosy wrap, cannot wait to start.

24.08.2021 - 17:21

country flag Maria wrote:

Cuddly hug

10.08.2021 - 01:23

country flag Sara wrote:

Wow

05.08.2021 - 08:08

country flag Kjersti L Johnsen wrote:

Soft wrap sweater

04.08.2021 - 09:28

country flag Patricia Thibert wrote:

Matin cocooning

03.08.2021 - 17:19