Iselin skrifaði:
Peut on tricoter le modèle drops 224 15 avec des aiguilles normales?
04.10.2021 - 13:26DROPS Design svaraði:
Bonjour Iselin, c'est tout a fait possible. Seuls les manches et le col sont tricotes sur les aiguilles double pointes. Bon tricot!
04.10.2021 - 13:54
Winter Hive#winterhivesweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Wish. Stykkið er prjónað með köðlum, býkúpumynstri og háum kraga. Stærð S - XXXL.
DROPS 224-15 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (jafnt yfir) : Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 36 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 9. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna 8. og 9. hverja lykkju slétt saman. ÚTAUKNING (á við um ermar): Byrjið einni lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat (= 2 lykkjur fleiri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp, í stykkjum sem síðar eru saumuð saman í lokin. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 74-82-82-90-98-106 lykkjur á hringprjón 7 með DROPS Wish. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 2 lykkjur slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 4-8-8-12-16-20 lykkjur, A.1 (= 14 lykkjur), A.2 (= 32 lykkjur), A.3 (= 14 lykkjur), 2 lykkjur slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 4-8-8-12-16-20 lykkjur, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Prjónið stroff svona í 6 cm. Skiptið yfir á hringprjón 8. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, sléttprjón yfir 6-10-10-14-18-22 næstu lykkjur, jafnframt er fækkað um 1-2-0-1-2-3 lykkjur jafnt yfir, A.4 (= 14 lykkjur), A.5 (= 32 lykkjur), A.6 (= 14 lykkjur), sléttprjón yfir 6-10-10-14-18-22 næstu lykkjur, jafnframt er fækkað um 1-2-0-1-2-3 lykkjur jafnt yfir, 1 kantlykkja í garðaprjóni = 72-78-82-88-94-100 lykkjur. Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm, fellið af 3-4-4-5-7-9 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 66-70-74-78-80-82 lykkjur. Prjónið mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm. Fækkið nú um 14 lykkjur jafnt yfir lykkjur í A.5. Í næstu umferð eru miðju 12-12-12-14-14-14 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Síðan er lykkjum fækkað í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 16-18-20-21-22-23 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 65-67-69-71-73-75 cm, fækkið um 4 lykkjur jafnt yfir kaðal í A.4 / A.6 = 12-14-16-17-18-19 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm og fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. BAKSTYKKI: Fitjið upp 74-82-82-90-98-106 lykkjur á hringprjón 7 með DROPS Wish. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 2 lykkjur slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 4-8-8-12-16-20 lykkjur, A.1 (= 14 lykkjur), A.2 (= 32 lykkjur), A.3 (= 14 lykkjur), 2 lykkjur slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 4-8-8-12-16-20 lykkjur, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Prjónið stroff svona í 6 cm. Skiptið yfir á hringprjón 8. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, sléttprjón yfir 6-10-10-14-18-22 næstu lykkjur, jafnframt er fækkað um 1-2-0-1-2-3 lykkjur jafnt yfir, A.4 (= 14 lykkjur), A.5 (= 32 lykkjur), A.6 (= 14 lykkjur), sléttprjón yfir 6-10-10-14-18-22 næstu lykkjur, jafnframt er fækkað um 1-2-0-1-2-3 lykkjur jafnt yfir, 1 kantlykkja í garðaprjóni = 72-78-82-88-94-100 lykkjur. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm, fellið af 3-4-4-5-7-9 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 66-70-74-78-80-82 lykkjur. Prjónið mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. Fækkið nú um 14 lykkjur jafnt yfir lykkjur í A.5. Í næstu umferð eru miðju 18-18-18-20-20-20 lykkjur felldar af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Síðan er felld af 1 lykkja í næstu umferð frá hálsmáli = 16-18-20-21-22-23 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 65-67-69-71-73-75 cm, fækkið um 4 lykkjur jafnt yfir kaðal í A.4 / A.6 = 12-14-16-17-18-19 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm og fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp, í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Fitjið upp 36-40-40-44-44-48 lykkjur á sokkaprjón 7 með DROPS Wish. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 8. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4-6-4-6-4-6 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 32-34-36-38-40-42 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 8 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 11-11-10½-10½-10-9½ cm millibili alls 5 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Þegar ermin mælist 56-55-54-53-50-49 cm, prjónið ermakúpuna fram og til baka (frá miðju undir ermi) á hringprjóna að loka máli. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 58-58-57-57-56-56 cm, þ.e.a.s. það er klauf 2-3-3-4-6-7 cm efst á ermi. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermakúpuna við handveg. Saumið síðan klaufina efst á ermi við botninn á handveg – sjá teikningu. Saumið hliðarsaum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu og á annarri öxlinni og prjónið upp ca 56 til 64 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði), á stuttan hringprjón 7 með DROPS Wish. Lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 12 cm, eða að óskaðri lengd. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterhivesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 33 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 224-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.