Agnes Holst Kazuhara skrifaði:
Mht garnet AIR har jeg strikket 2 veste iflg denne opskrift. Det er dog ærgerligt, for efter kort tid ser vestene helt fnuldrede ud. Nok pgr de 28% polyamid.
30.01.2023 - 16:02
Helle Hermann skrifaði:
Det var et spørgsmål ikke en kommentar!
20.01.2023 - 21:58DROPS Design svaraði:
Hei Helle. Se vår svart under. mvh DROPS design
23.01.2023 - 10:58
Helle Hermann skrifaði:
Vest til dreng. 62 masker på pinden . Luk 2 masker 1 gang og 1 maske 3 gange = 5 masker. Hvorfor står der, at der så er 52 masker tilbage??? Svar venligst asap
20.01.2023 - 21:56DROPS Design svaraði:
Hei Helle. Du har ikke nevnt hvilken str. du strikker, men tar utgangspunkt at det er str. 7/8 år. Husk at du skal felle i hver side på bakstykket og på forstykket. Du har 62 masker og skal fell av 2 masker 1 ganger og 1 maske 3 ganger = 5 masker i hver side = 10 felte masker. Du hadde 62 masker og feller 5 masker i hver side = 62-5-5= 52 masker. mvh DROPS Design
23.01.2023 - 10:58
Radhika skrifaði:
Can I make this using 2 strands of fabel?
12.08.2022 - 14:20DROPS Design svaraði:
Dear Radhika, sure you can, read how to calculate new amount of yarn here. Happy knitting!
12.08.2022 - 15:08
Beatriz skrifaði:
Un error: Creo que hay demasiados puntos de remate para las sisas.
22.05.2022 - 17:23
Liv Puglisi skrifaði:
Vedr. vest til dreng. Kan det passe at der skal tages ind masker efter ribstrik ( vrangbord) ??\r\nSynes altid det plejer at være modsat,- at der skal øges masker !
08.10.2021 - 14:42
Spring Creek Slipover#springcreekslipover |
|
![]() |
![]() |
Prjónað vesti / slipover fyrir börn úr DROPS Air. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með köntum í stroffprjóni. Stærð 3 til 14 ára.
DROPS Children 40-10 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (jafnt yfir) : Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 136 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 12) = 11,3. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 10. og 11. hverja lykkju slétt saman. LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp. Lykkjur eru felldar af fyrir handveg. Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig. Stykkið er síðan saumað saman á öxlum. Að lokum er prjónaður kantur í stroffprjóni í kringum báða handvegi og í hringum hálsmál. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 136-140-148-156-164-172 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-12-12-12-16-16 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA = 124-128-136-144-148-156 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – prjónamerkið merkir hlið á fram og bakstykki og byrjun á umferð. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 22-25-28-31-33-35 cm, fellið af fyrir handveg, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, fellið af 6 lykkjur fyrir handveg, prjónið 56-58-62-66-68-72 lykkjur sléttprjón (= framstykki), fellið af 6 lykkjur fyrir handveg og prjónið 56-58-62-66-68-72 lykkjur sléttprjón (= bakstykki). Setjið lykkjur frá framstykki á þráð eða hjálparprjón og prjónið bakstykki eins og útskýrt er að neðan. BAKSTYKKI: Prjónið sléttprjón fram og til baka og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 2-1-1-1-1-1 sinnum og 1 lykkju 3-3-3-4-4-4 sinnum = 42-48-52-54-56-60 lykkjur. Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 38-42-46-50-53-56 cm, fellið af miðju 20-22-24-24-26-26 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 10-12-13-14-14-16 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 40-44-48-52-55-58 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Prjónið sléttprjón fram og til baka og fellið af fyrir handveg í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 2-1-1-1-1-1 sinnum og 1 lykkja 3-3-3-4-4-4 sinnum = 42-48-52-54-56-60 lykkjur. Þegar stykkið mælist 34-38-41-45-47-50 cm, setjið miðju 8-10-10-10-12-12 lykkjurnar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 2-2-2-2-2-2 sinnum og 1 lykkju 3-3-4-4-4-4 sinnum = 10-12-13-14-14-16 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 40-44-48-52-55-58 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. KANTUR Í HANDVEGI: Byrjið frá réttu, í botninum á öðrum handveginum og prjónið upp lykkjur innan við 1 kantlykkju ca 64-68-72-76-80-84 lykkjur í kringum handveg á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 með DROPS Air – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2-2-2-3-3-3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING. Prjónið hinn kantinn í handvegi á sama hátt. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu við aðra öxlina og prjónið upp lykkjur innan við 1 kantlykkju ca 56-60-68-68-72-72 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 með DROPS Air – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2-2-2-3-3-3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir LEIÐBEININGAR AFFELLING. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #springcreekslipover eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 40-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.