Jullian skrifaði:
Bonjour comme je n arrive à tricoter avec les aiguilles circulaire j abandonne. Mais je voudrais quand même faire le modelecaux aiguilles a tricoter comment faut-il faire pouf le nombre de mailles poir le dos et le devant. D il vous plaît merci
29.05.2025 - 17:19DROPS Design svaraði:
Bonjour Jullian, retrouvez ici quelques infos pour vous permettre d'adapter un modèle sur aiguilles droites. Bon tricot!
30.05.2025 - 09:05
Angela skrifaði:
Io non so usare i ferri circolari, ho provato ma non ci riesco. C'è qualche gilet per un bimbo di due o tre anni che io posso usare, altrimenti come posso lavorare questo con i ferri al diritto? Grazie mille 😘
19.11.2023 - 18:43DROPS Design svaraði:
Buonasera Angela, questo modello è lavorato in tondo: se vuole lavorarlo in piano deve adattare il motivo alla lavorazione in piano aggiungendo 1 maglia di vivagno per lato per la cucitura. Per un aiuto più personalizzato può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!
19.11.2023 - 19:08
Francesca skrifaði:
Buona sera mi serve aiuto dal punto in cui devo passare a lavorare separatamente il dietro da davanti . Ho fatto i primi intrecci per gli scalfi. Ora mi trovo che non riesco ad andare avanti. Devo rompere il filo e proseguire il lavoro con altro filo lavorando separatamente? Perché non saprei cos'altro fare. ... scusate è il mio primo lavoro
12.11.2021 - 21:57DROPS Design svaraði:
Buonasera Francesca, a quel punto prosegue la lavorazione separatamente del davanti e del dietro: può lavorare la parte che preferisce per prima. Buon lavoro!
16.11.2021 - 22:28
Christin skrifaði:
Hallo Meine Frage gilt dem Rumpfteil. Man soll bis 16cm Stricken aber es steht nicht wo ich messen soll, nach den 4 cm oder ab Anfang? Viele Grüße Christin
24.09.2021 - 08:58DROPS Design svaraði:
Liebe Christin, die Arbeit wird von der Anschlagskante/von Anfang gemessen, Viel Spaß beim stricken!
27.09.2021 - 09:09
Green River Vest#greenrivervest |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónað vesti / slipover fyrir börn úr DROPS Air. Stykkið er prjónað með áferðamynstri, v-hálsmáli og stroffprjóni. Stærð 2-12 ára.
DROPS Children 40-15 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------ BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Síðan er bakstykkið og framstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig og lykkjum fækkað fyrir v-hálsmáli. Að lokum er prjónaður stroffkantur í kringum v-hálsmál og í kringum báða handvegi. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 108-108-120-132-132-144 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð slett, prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið A.1 yfir allar lykkjur (= 18-18-20-22-22-24 mynstureiningar með 6 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 16-18-21-24-27-30 cm, fellið af lykkjur fyrir handveg þannig: Fellið af 3 fyrstu lykkjur í umferð, prjónið næstu 48-48-54-60-60-66 lykkjur með mynstri eins og áður, fellið af næstu 6 lykkjur, prjónið næstu 48-48-54-60-60-66 lykkjur með mynstri eins og áður og fellið af síðustu 3 lykkjur í umferð = 48-48-54-60-60-66 lykkjur á bakstykki og framstykki. Hvort stykki er nú prjónað til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 48-48-54-60-60-66 lykkjur. Byrjið frá röngu, haldið áfram með A.1 og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 2-2-4-6-6-7 sinnum = 36-36-38-40-40-44 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 31-34-38-42-46-50 cm. Í næstu umferð eru felldar af miðju 14-14-16-16-18-18 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með A.1 og fækkið lykkjum í næstu umferð við hálsmál þannig: 1 lykkja 1 sinni = 10-10-10-11-10-12 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 33-36-40-44-48-52 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 48-48-54-60-60-66 lykkjur. Byrjið frá röngu, haldið áfram með A.1 og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 2-2-4-6-6-7 sinnum, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 17-19-22-25-28-31 skiptist stykkið og lykkjum er fækkað fyrir v-hálsmáli þannig: Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð, það eiga að vera jafn margar lykkjur hvoru megin við prjónamerki. Byrjið frá réttu og prjónið eins og áður fram þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman og prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Setjið síðustu lykkjur á þráð án þess að prjóna þær. Héðan eru axlirnar prjónaðar hvor fyrir sig, ekki klippa þráðinn frá. Vinstri öxl er prjónuð héðan (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). VINSTRI ÖXL (framstykki): Prjónið með A.1 og 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan og fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli innan við 1 kantlykkju í lok umferðar frá réttu, fækkið lykkjum með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum með 1½-1½-1½-1½-2-2 cm millibili 7-7-8-8-9-9 sinnum til viðbótar (alls 8-8-9-9-10-10 úrtökur, fyrsta úrtakan er gerð þar sem framstykkið skiptist) = 10-10-10-11-10-12 lykkjur eftir á öxl. Prjónið A.1 og 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan þar til stykkið mælist alls 33-36-40-44-48-52 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. HÆGRI ÖXL (framstykki): Setjið lykkjur til baka af þræði yfir á prjóninn. Prjónið sían með A.1 og 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan (fyrsta umferð er prjónuð frá réttu) og fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í byrjun umferðar frá réttu, fækkið lykkjum með því að lyfta 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Fækkið lykkjum með 1½-1½-1½-1½-2-2 cm millibili alls 8-8-9-9-10-10 sinnum til viðbótar = 10-10-10-11-10-12 lykkjur eftir á öxl. Prjónið A.1 og 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan þar til stykkið mælist alls 33-36-40-44-48-52 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. KANTUR Í HANDVEGI: Byrjið frá réttu neðst í handvegi og prjónið upp ca 58 til 74 lykkjur í kringum handveg, á stuttan hringprjón 4 með DROPS Air (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2). Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2½ cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING! Prjónið hinn kantinn í handvegi á sama hátt. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu við annan axlasauminn og prjónið upp ca 74 til 100 lykkjur í kringum hálsmálið á stuttan hringprjón 4 með Air (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2). Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) en stillið af að það komi 1 lykkja slétt nákvæmlega mitt að framan. JAFNFRAMT í annarri hverri umferð er fækkað um 2 lykkjur mitt að framan þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan sléttu lykkjunni mitt að framan, lyftið 2 lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt, steypið 2 lyftu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). Með þessu þá kemur v-hálsmálið til með að leggjast fallega við hálsinn og slétta lykkjan kemur til með að fylgja sem bein lína mitt að framan. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar kanturinn í hálsi mælist ca 2½ cm – munið eftir LEIÐBEININGAR AFFELLING! |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #greenrivervest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 40-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.