MARCHAND skrifaði:
J'aime le style apporté par ce petit gilet .
04.08.2021 - 09:53
Hanne Damm skrifaði:
Sehr stylisch
03.08.2021 - 22:21
Teresa skrifaði:
Me encanta, si no es muy difícil lo haré
03.08.2021 - 21:11
Shannon Oxley skrifaði:
Neverending Story
03.08.2021 - 18:44
Chocolate Moment#chocolatemomentvest |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónað vesti úr DROPS Puna. Stykkið er prjónað með köntum í stroffprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 227-10 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 103 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 17) = 5,9. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 5. og 6. hverja lykkju slétt saman og ekki er fækkað yfir kantlykkjur. ÚRTAKA-2 (á við um úrtöku fyrir handveg): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum í byrjun á umferð þannig: Prjónið fyrstu 11 lykkjur eins og áður, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum í lok umferðar þannig: Prjónið þar til 13 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið út umferðina eins og áður (= 1 lykkja færri). ÚRTAKA-3 (á við um úrtöku fyrir hálsmáli): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir hálsmáli þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 2 lykkjur sléttprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á undan hálsmáli þannig: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið út umferðina eins og áður (= 1 lykkja færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir 4 hnappagötum í hægri kanti að framan. Fellt er af fyrir fimmta hnappagatinu í kanti í hálsmáli. 1 hnappagat = prjónið 2 lykkjur saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn í mynstri prjónaður þannig að það myndist gat. Neðsta hnappagatið er staðsett ca 3-5 cm frá neðri kanti og efsta hnappagatið í kanti að framan ca 5-7 cm frá toppi. Þau 2 hnappagöt sem eftir eru, eru staðsett jafnt yfir með ca 7 til 8 cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum og saumað saman í lokin. Að lokum eru lykkjur prjónaðar upp fyrir kant að framan og í hálsmáli. BAKSTYKKI: Fitjið upp 103-113-121-133-149-163 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 3,5 með DROPS Puna. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1 (þetta er gert til að mynstrið verði alveg eins í báðum hliðum) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 5 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 17-19-19-21-25-27 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1= 86-94-102-112-124-136 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 22-23-24-25-26-27 cm, prjónið nú mynstur þannig (frá réttu): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.1 yfir næstu 12-12-12-14-16-18 lykkjur, prjónið sléttprjón þar til eftir eru 13-13-13-15-17-19 lykkjur, 1 lykkja brugðið, A.1 yfir næstu 11-11-11-13-15-17 lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm (stroffið í hvorri hlið mælist ca 3 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu), prjónið þannig: Fellið af fyrstu 4-4-4-6-8-10 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg (fellið af með sléttum lykkjum) = 78-86-94-100-108-116 lykkjur. Næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, mynstur eins og áður yfir næstu 8 lykkjur, sléttprjón þar til 9 lykkjur eru eftir, mynstur eins og áður yfir næstu 8 lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið á stykki fyrir handveg – sjá ÚRTAKA-2! Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu alls 1-3-5-6-8-10 sinnum = 76-80-84-88-92-96 lykkjur. Prjónið mynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm, fellið af miðju 36-36-40-40-44-44 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl (= 20-22-22-24-24-26 lykkjur) er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli – sjá ÚRTAKA-3! Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu alls 2 sinnum = 18-20-20-22-22-24 lykkjur eftir á öxl. Prjónið mynstur og sléttprjón þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 53-59-63-69-75-83 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 3,5 með DROPS Puna. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjón, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1 (þetta er gert til að mynstrið verði alveg eins í báðum hliðum) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 5 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 9-11-11-12-12-14 lykkjur jafnt yfir = 44-48-52-57-63-69 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 22-23-24-25-26-27 cm, prjónið nú mynstur þannig (frá réttu): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, sléttprjón þar til eftir eru 13-13-13-15-17-19 lykkjur, 1 lykkja brugðið, A.1 yfir næstu 11-11-11-13-15-17 lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm (stroffið í hvorri hlið mælist ca 3 cm, fellið af 4-4-4-6-8-10 lykkjur fyrir handveg í næstu umferð frá hlið (þ.e.a.s. frá röngu – fellið af með sléttar lykkjur) = 40-44-48-51-55-59 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í lok umferðar fyrir handveg – munið eftir ÚRTAKA-2! Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu alls 1-3-5-6-8-10 sinnum = 39-41-43-45-47-49 lykkjur. Prjónið mynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 30-32-32-34-34-36 cm, fellið af fyrstu 10-10-11-11-13-13 lykkjur fyrir hálsmáli í næstu umferð frá réttu = 29-31-32-34-34-36 lykkjur eftir. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli – munið eftir ÚRTAKA-3! Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu alls 11-11-12-12-12-12 sinnum = 18-20-20-22-22-24 lykkjur eftir á öxl. Prjónið mynstur og sléttprjón þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra framstykki þar til stykkið mælist 22-23-24-25-26-27 cm. Prjóni nú mynstur þannig (frá réttu): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.1 yfir næstu 12-12-12-14-16-18 lykkjur, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm (stroffið mælist ca 3 cm), fellið af 4-4-4-6-8-10 lykkjur í næstu umferð frá hlið (þ.e.a.s. frá réttu – fellið af með sléttum lykkjum) = 40-44-48-51-55-59 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í byrjun á umferð fyrir handveg – munið eftir ÚRTAKA-2! Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu alls 1-3-5-6-8-10 sinnum = 39-41-43-45-47-49 lykkjur. Prjóni mynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 30-32-32-34-34-36 cm, fellið af fyrstu 10-10-11-11-13-13 lykkjur af fyrir hálsmáli í næstu umferð frá röngu = 29-31-32-34-34-36 lykkjur eftir. Í næstu umferð frá réttu er fækka um 1 lykkju fyrir hálsmáli – munið eftir ÚRTAKA-3! Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu alls 11-11-12-12-12-12 sinnum = 18-20-20-22-22-24 lykkjur eftir á öxl. Prjónið mynstur og sléttprjón þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Byrjið frá réttu neðst á hægra framstykki og prjónið upp innan við 1 kantlykkju ca 74 til 90 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Puna. Stillið af að lykkjufjöldinn sé deilanlegur með 2. Prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja snúin brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið síðan A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar kanturinn að framan mælist ca 2 cm er fellt af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram fram og til baka í mynstri þar til kanturinn að framan mælist 4½ cm. Fellið af með snúnar lykkjur slétt yfir snúnar lykkjur slétt og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Byrjið frá réttu efst þar sem lykkjur voru felldar af fyrir hálsmái og prjónið upp jafn margar lykkjur og prjónaðar voru upp í hægri kanti að framan á hringprjón 3,5 með DROPS Puna. Prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið síðan næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 1 lykkja brugðið, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, 1 lykkja snúin slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til kanturinn að framan mælist 4½ cm. Fellið af með snúnar lykkjur slétt yfir snúnar lykkjur slétt og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Saumið tölur í. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu yst í hægri kanti að framan. Prjónið upp innan við 1 kantlykkju ca 145 til 181 lykkjur á hringprjón 3,5 með Puna. Stillið af að lykkjufjöldinn sé deilanlegur með 2 + 1 og að kanturinn dragist ekki saman / verði of laus miðað við hálsmál. Prjónið e.t.v. fleiri / færri lykkjur. Næsta umferð er frá röngu og er prjónuð þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til eftir eru 2 lykkjur, prjónið 1 lykkju snúna brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið síðan næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkjuna í A.1 (þetta er gert til að mynstrið verði eins í báðum hliðum) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar kantur í hálsmáli mælist 2 cm er fellt af fyrir 1 hnappagati í næstu umferð frá réttu, með því að prjóna 8. og 9. lykkju slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður inn í mynstur og mynstrið er prjónað eins og áður þar til kanturinn í hálsmáli mælist 4½ cm. Fellið af með snúnar lykkjur slétt yfir snúnar lykkjur slétt og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #chocolatemomentvest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 227-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.