Meral Yurdadur skrifaði:
🙏🙏🙏🙏
13.03.2025 - 22:59
Sylvie skrifaði:
Je fais la grandeur XL . Si je fais les augmentations à 6 mailles avant le fil marqueur, je vais me ramasser avec trop de mailles pour faire mon motif de 15 mailles au tour suivant, quoi faire?
25.05.2023 - 22:18DROPS Design svaraði:
Bonjour Sylvie, les augmentations des côtés se font dans les mailles envers tricotées sur les côté: tricotez jusqu'à ce qu'il reste 6 mailles avant le fil marqueur sur le côté soit: les 2 dernières mailles de A.2 + les 4 mailles envers avant le fil marqueur, faites 1 jeté, tricotez ces 6 mailles, puis les 4 m envers après le fil marqueur, les 2 premières mailles de A.1 et faites 1 jeté (= 12 m entre les 2 jetés). Répétez à l'autre marqueur. Lorsque vous augmentez la fois suivante, procédez de la même façon en augmentant quand il reste 7 mailles avant le fil marqueur (vous aurez cette fois 14 mailles entre les 2 jetés) et ainsi de suite. Bon tricot!
26.05.2023 - 10:10
Cindy Pedersen skrifaði:
Hej Jeg har fundet ud af diagrammet. Så jeg skal ikke have svar på min henvendelse.
28.06.2022 - 18:33
Cindy Pedersen skrifaði:
Ved A1 ved maskerne 10-12 i mønstret. Pind 1 reducerer man ved maskerne antallet af masker fra 3 til 2. Pind 2 står der man skal strikke 3 masker her. Pind 3 skal man strikke 1 m og lave 1 omslag og 1 m igen. Pind 4 er der kun 2 masker at strikke. Skal de sorte firkanter ikke være på pind 2 og 3, så mener jeg mønstret passer
28.06.2022 - 17:30DROPS Design svaraði:
Hej Cindy, du starter altid nederst i højre hjørne af diagrammet. Første pind strikker du: 2vr, 2r, 2vr,9r(=15m) og så videre. På næste pind laver du 1 omslag imellem de 2 ret og strikker snoningerne over de 9r :)
29.06.2022 - 11:22
Bee skrifaði:
Dear all, the issue regarding number of back stitches after the 4 decrease is still appearing in French version. Would it be possible to correct all language ? Thank you :-)
20.06.2022 - 15:10DROPS Design svaraði:
Dear Bee, this issue was already edited in French - this applies only if you printed the pattern before the date of correction, otherwise,online pattern is right. Happy knitting!
20.06.2022 - 15:25
Mana skrifaði:
I am working on the back piece now in size small and I need clarification. After I decrease 68sts to 54sts, I continue working on it until I get 43cm in length. Then,, I am supposed to decrease 4 more stitches in the middle 24sts, but could you help me understand how I could get 48 sts? Thanks!
10.06.2022 - 23:07DROPS Design svaraði:
Dear Mana, you are right, there was a mistake in the pattern, the number of stitches has been now fixed, thanks. Happy knitting!
14.06.2022 - 09:55
Ulrike skrifaði:
Rapport A1 hat nicht 15 sondern 16M, A2 hat 7 und nicht 6m. Somit ist die Anleitung fehlerhaft. Oder habe ich einen Denkfehler gemacht? Ich würde mich über Hilfe sehr freuen. :-}
20.07.2021 - 18:18DROPS Design svaraði:
Liebe Ulrike, die erste Reihe in A.1 wird über 15 Maschen gestrickt, aber richtig, das Muster wird bei einigen Reihen 16 Maschen sein (2,3,5,6 und 7). Viel Spaß beim stricken!
21.07.2021 - 07:51
Ilaria skrifaði:
Molto bello! Quando sarà disponibile lo schema? Grazie.
25.04.2021 - 21:34
Biggi skrifaði:
Muster und Farbe super schön. Trägt sich sicher angenehm!
18.01.2021 - 00:12
Mechthild skrifaði:
Tolles Muster
16.01.2021 - 19:45
Blue Pine Shore#bluepineshoretop |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónaður toppur úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað með köðlum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 221-26 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um í hliðum á fram- og bakstykki): Í fyrsta skipti sem aukið er út, er prjónað þannig: Prjónið þar til 2-5-2-6-5-4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4-10-4-12-10-8 lykkjur brugðið (prjónamerkið situr mitt í þessum 4-10-4-12-10-8 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn = 2 lykkjur fleiri við prjónamerki. Endurtakið við hitt prjónamerkið = 4 lykkjur fleiri í umferð. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur brugðið. Í hvert skipti sem lykkjur eru auknar út á hæðina, prjónið 2 lykkjur fleiri á milli uppsláttar í hvorri hlið (þ.e.a.s. prjónið 1 lykkju fleiri hvoru megin við prjónamerkin), þannig að uppslátturinn er alltaf gerður slétt á eftir gataumferðina á undan prjónamerki og strax eftir gataumferðina á eftir prjónamerki. Með þessu verður útaukningin eins lítið sýnileg og hægt er í hvorri hlið. ÚRTAKA (á við um handveg): Fækkið lykkjum innan við 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 3 KANTLYKKJUM Í GARÐAPRJÓNI ÞANNIG: Prjónið 2 lykkjur brugðið saman. FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 3 KANTLYKKJUM Í GARÐAPRJÓNI ÞANNIG: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan 3 kantlykkjum og prjónið þessar 2 lykkjur snúnar brugðið saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring upp að handveg. Síðan er bakstykkið og framstykkið prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig til loka. Stykkið er saumað saman á öxlum. Að lokum er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli í stroffprjóni. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 132-144-162-178-204-230 lykkjur á hringprjón 4 með Paris – passið uppá að uppfitjunarkanturinn verði ekki stífur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2-2-2-3-3-3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 66-72-81-89-102-115 lykkjur (= í hliðar á fram- og bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Það á að nota þau síðar þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki. Prjónið 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð þannig: * Prjónið 0-3-0-4-3-2 lykkjur brugðið, prjónið A.1 yfir næstu 60-60-75-75-90-105 lykkjur (= 4-4-5-5-6-7 mynstureiningar með 15 lykkjum), prjónið A.2 (= 6 lykkjur), prjónið 0-3-0-4-3-2 lykkjur brugðið, prjónamerki *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 7 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 5-5-6-6-7-7 cm millibili alls 4 sinnum í hvorri hlið = 148-160-178-194-220-246 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm – stillið af að næsta umferð sé jöfn umferð í A.1 (þetta er mikilvægt til að koma í veg fyrir að snúa kaðlinum frá röngu þegar stykkið skiptist fyrir bakstykki og framstykki). Prjónið nú 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir miðju 12-12-14-14-16-18 lykkjur í hvorri hlið (þ.e.a.s. prjónið 6-6-7-7-8-9 lykkjur í garðaprjóni hvoru megin við bæði prjónamerkin – aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður). Eftir 4 umferðir í garðaprjóni, fellið af fyrir handveg, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af 3-3-4-4-5-6 lykkjur fyrir handveg, prjónið eins og áður þar til 3-3-4-4-5-6 lykkjur eru eftir á undan næsta prjónamerki, fellið af 6-6-8-8-10-12 lykkjur fyrir handveg, prjónið eins og áður þar til 3-3-4-4-5-6 lykkjur eru eftir í umferð og fellið af síðustu 3-3-4-4-5-6 lykkjurnar fyrir handveg. Klippið þráðinn frá og þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna. Bakstykkið og framstykkið er nú prjónað hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 68-74-81-89-100-111 lykkjur. Byrjið frá röngu og haldið áfram með mynstur fram og til baka með 3 kantlykkjum í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir handveg – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 4-6-8-10-14-17 sinnum í hvorri hlið og síðan í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 3-3-3-3-2-2 sinnum í hvorri hlið = 54-56-59-63-68-73 lykkjur eftir. Þegar stykkið mælist 43-45-47-49-51-53 cm, fækkið um 4-4-4-6-6-6 lykkjur jafnt yfir miðju 24 lykkjur = 50-52-55-57-62-67 lykkjur. Í næstu umferð eru felldar af miðju 26-26-27-29-30-31 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram eins og áður og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsmáli = 10-11-12-12-14-16 lykkjur eftir. Þegar 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 2 lykkjur jafnt yfir = 8-9-10-10-12-14 lykkjur eftir. Fellið af með brugðnum lykkjum frá röngu. Stykkið mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 68-74-81-89-100-111 lykkjur. Byrjið frá röngu og haldið áfram með mynstur fram og til baka með 3 kantlykkjum í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir handveg – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umferð alls 4-6-8-10-14-17 sinnum í hvorri hlið og síðan í 4. hverri umferð alls 3-3-3-3-2-2 sinnum í hvorri hlið. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 38-39-41-42-44-46 cm, fækkið um 4-4-4-6-6-6 lykkjur jafnt yfir miðju 24 lykkjur = 50-52-55-57-62-67 lykkjur. Í næstu umferð eru miðju 10-10-11-13-14-15 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 3 sinnum. Eftir alla úrtöku fyrir handveg og hálsmáli eru = 10-11-12-12-14-16 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 2 lykkjur jafnt yfir = 8-9-10-10-12-14 lykkjur eftir. Fellið af með brugðnum lykkjum frá röngu. Stykkið mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI. Byrjið frá réttu við aðra öxlina og prjónið upp ca 80 til 100 lykkjur í kringum hálsinn (meðtaldar lykkjur á þræði að framan) á stuttan hringprjón 4 með Paris – lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 7 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bluepineshoretop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 221-26
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.