Marianne Cordes skrifaði:
In size M it is recommended to buy 400 gr of yarn(8 🧶). My finished product is 100 % according to the measurements, and I only used 300 gr of yarn.
10.01.2023 - 21:26
Marie Christine skrifaði:
Le modèle est joli et pas difficile à faire... Mais grosse déception : les pelotes coton merino. Sur les huit pelotes, au moins six étaient abîmées : 1 noeud voire plusieurs à l'intérieur des pelotes, plus le fil dédoublé par endroit. Très gênant étant donné le temps et l'investissement que demande un ouvrage... Merci de faire le nécessaire auprès de votre fournisseur.
12.04.2022 - 11:38
Beatrice Dixon skrifaði:
Why are some circular needles faulty? I purchase a pair from a website and used them only twice, but I lost all the stitches midway when I was knitting an intricate pattern and had to pull the whole lot out. The plastic broke off from the actual needle. When I asked for a replacement or refund I was told to contact the manufacturer. Shouldn’t circular needles have a guarantee because it’s frustrating having to start all over again
15.10.2021 - 16:01DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Dixon, we are sorry to hear that you got worries with the needles, please contact the store where you bought them, they will then contact us. thank you! Happy knitting!
15.10.2021 - 16:20
Ela skrifaði:
To piekny wzór córka wybrała zrobilam z belle też białą polecam przepiękna oryginalna bluzeczka
09.08.2021 - 10:18
Sindy skrifaði:
Ist sehr einfach zu stricken nach der Anleitung. Natürlich sollte man Grundkenntnisse haben (linke und rechte Maschen, Umschläge , 2 Maschen zusammenstricken usw.). Es ist wirklich eine gute leicht zu verstehende Anleitung und das Ergebnis kann sich auch sehen lassen.
28.07.2021 - 12:14
Nonnemi skrifaði:
Daisy flower
14.01.2021 - 14:56
Camilla Kjær skrifaði:
Smuk let sommer bluse
12.01.2021 - 00:44
Astrid skrifaði:
Edles Shirt
11.01.2021 - 15:19
Merete Bjørn skrifaði:
Love is in the Air
10.01.2021 - 22:13
Marina skrifaði:
Delizioso!
09.01.2021 - 16:58
White Moon Top#whitemoontop |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Cotton Merino eða DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með hringlaga berustykki, gatamynstri á berustykki og kanti í stroffiprjóni. Stærð XS - XXL.
DROPS 223-13 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2 og A.3). ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 194 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 18) = 10,8. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 10. og 11. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 11. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handveg. Kantar á ermum eru prjónaðir í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp að handveg. Fram- og bakstykki og kantar á ermum er sett saman, síðan er berustykkið prjónað í hring á hringprjóna til loka. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 194-212-228-246-268-294 lykkjur á hringprjón 3,5 með Cotton Merino eða Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 18-20-20-22-24-26 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 176-192-208-224-244-268 lykkju. Prjónið síðan sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 25-28-28-28-28-28 cm, fellið af fyrir handveg í hvorri hlið, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af 3-3-4-4-5-5 lykkjur fyrir handveg, prjónið 82-90-96-104-112-124 lykkjur sléttprjón, fellið af 6-6-8-8-10-10 lykkjur fyrir handveg, prjónið 82-90-96-104-112-124 lykkjur sléttprjón og fellið af síðustu 3-3-4-4-5-5 lykkjur fyrir handveg. Klippið þráðinn og dragið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna. Geymið stykkið og prjónið kanta á ermum. KANTUR Á ERMI: Fitjið upp 60-64-68-76-84-88 lykkjur á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3,5 með Cotton Merino eða Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 64-68-72-80-88-92 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 5 cm í öllum stærðum. Í næstu umferð er fellt af fyrir handveg, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af 3-3-4-4-5-5 lykkjur, prjónið 58-62-64-72-78-82 lykkjur sléttprjón og fellið af síðustu 3-3-4-4-5-5 lykkjur. Klippið þráðinn frá og dragið í gegnum síðustu lykkjuna. Prjónið hinn kant á ermi á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið kanta á ermum á sama hringprjón 4,5 og fram- og bakstykki, þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar = 280-304-320-352-380-412 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í umferð – berustykkið er mælt frá þessu prjónamerki. Byrjið í skiptingunni á milli bakstykkis og hægri ermi og prjónið sléttprjón hringinn í 2-2-3-1-3-4 cm – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 7-10-5-16-2-13 lykkjur jafnt yfir = 273-294-315-336-378-399 lykkjur. Prjónið A.1 hringinn – ATH: Í 6. umferð í A.1 er síðasta lykkjan í umferð prjónuð slétt (á við um stærð XS, M og XXL). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.2 hringinn (= 13-14-15-16-18-19 mynstureiningar með 21 lykkjum). Haldið svona áfram með stroff og fækkið lykkjum eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Þegar prjónaðar hafa verið upp lykkjur að umferð merktri með ör í A.2 eru 182-196-210-224-252-266 lykkjur í umferð. Í umferð merktri með ör í A.2 er fækkað um 13-14-28-14-28-28 lykkjur jafnt yfir = 169-182-182-210-224-238 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.3 hringinn (= 13-14-14-15-16-17 mynstureiningar með 13-13-13-14-14-14 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur og fækkið lykkjum eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, eru 117-126-126-135-144-153 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 19-19-20-22-24-25 cm frá prjónamerki. Prjónið sléttprjón þar til berustykkið mælist 19-19-21-22-24-26 cm frá prjónamerki. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 25-30-30-31-36-41 lykkjur jafnt yfir = 92-96-96-104-108-112 lykkjur. Prjónið síðan kant í hálsmáli eins og útskýrt er að neðan. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 47-50-52-54-56-58 cm frá öxl og niður. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #whitemoontop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 223-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.