Julie skrifaði:
Ugh! I’m not that experienced at knitting and this pattern might be too much for me. What does “cast on 110 stitches including 5 band stitches in each side towards mid front” mean? I know I will have more ?? as I get going but I am having trouble even starting!
25.03.2022 - 01:20DROPS Design svaraði:
Dear Julie, since the 5 front band stitches are included you don't need to cast them on extra, you just need to cast on 110 stitches in size S. Happy knitting!
25.03.2022 - 07:51
Lene skrifaði:
Glem mit spørgsmål, jeg har læst krydset som 3 ret sammen i stedet for 3 ret, så maskeantallet passer, beklager Mvh Lene
23.05.2021 - 11:05
Lene skrifaði:
I flere af diagrammerne f.eks. p 7 i A6 er der en sort trekant=2 masker ind, skal der ikke være tilsvarende masker ud ellers vil mønsterrapporten ikke længere være 16 masker? Mvh Lene
23.05.2021 - 10:53DROPS Design svaraði:
Hej Lene. Så fint att det löste sig. Mvh DROPS Design
24.05.2021 - 08:48
Hanne Sander Olsen skrifaði:
I pindens sidste gentagelse af diagram A4 skal sidste maske på p. 13-14-15 vel strikkes glat ret? Ellers starter og slutter mønsteret jo ikke - som der i opskriften ellers udtrykkes ønske om - ens på disse pinde, der ovenikøbet ligger det sted på jakken, hvor en asymmetri ses allermest.
05.05.2021 - 12:02DROPS Design svaraði:
Hej Hanne, ja det har du ret i, vi skal få det skrevet ind i opskriften. Tak for info :)
05.05.2021 - 15:53
Hanne Sander Olsen skrifaði:
I diagram A1 mener jeg, der må være en fejl. Skal sidste maske i rækkerne 12-15 ikke strikkes ret i stedet for vrang? Ellers er der jo en af "strålerne" øverst i bærestykket, der delvis forsvinder.
02.05.2021 - 21:22DROPS Design svaraði:
Hej Hanne, vi skal høre med design :)
06.05.2021 - 11:16
Sonja Shea skrifaði:
Sehr schönes Jäckchen. Sieht aus wie "Take a break". Frisch und luftig.
22.02.2021 - 03:58
Eileen Di Cenzo skrifaði:
Pretty in Pink
13.01.2021 - 19:29
Julie skrifaði:
Glimpse of spring
11.01.2021 - 04:39
Nastassia skrifaði:
"Berry Smoothie"
08.01.2021 - 14:09
Now and Forever Cardi#nowandforevercardi |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Cotton Merino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með rúllukanti í hálsmáli, hringlaga berustykki, gatamynstri á berustykki og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 222-33 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.5 og A.6). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 110 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim 100 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 39) = 2,6. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca aðra hverja og 3. hverja lykkju - ekki er aukið út yfir kanta að framan/kantlykkjur. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð í þessu dæmi til skiptis ca hver og önnur hver lykkja og önnur hver og 3. hver lykkja slétt saman. ÚTAUKNING (á við um í hliðum á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 8 lykkjur sléttprjón (prjónamerki situr mitt á milli þessa 8 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki og alls 4 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar rúllukantur í hálsi hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 4-4-5-5-5-5 næstu hnappagötum með ca 8½-9-8-8-8½-9 cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 110-114-118-124-128-132 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna 3 með Cotton Merino. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan 8 umferðir sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið við miðju að framan (= rúllukantur). Setjið 1 prjónamerki eftir fyrstu 5 lykkjurnar í umferð – berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 39-43-47-49-53-57 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 149-157-165-173-181-189 lykkjur. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu – uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið og ystu 5 lykkjurnar í hvorri hlið eru prjónaðar slétt (= kantur að framan). Prjónið síðan berustykkið eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 (= 10 lykkjur), prjónið A.2 þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð (= 16-17-18-19-20-21 mynstureiningar með 8 lykkjum), prjónið fyrstu lykkjuna í A.1 (þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins í hvorri hlið) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 285-301-317-333-349-365 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.3 (= 18 lykkjur), prjónið A.4 þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð (= 16-17-18-19-20-21 mynstureiningar með 16 lykkjum), prjónið fyrstu lykkjuna í A.3 (þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins í hvorri hlið) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. ATH: Í síðustu 4 umferðum í síðustu endurtekningu með A.4 við kantlykkjur, prjónið síðusut lykkjuna í A.4 í sléttprjóni þannig að mynstrið byrji og endi alveg eins í hvorri hlið við miðju að framan. Haldið svona áfram með mynstur þar til A.3 og A.4 hefur verið prjónað 1-1-1-2-2-2 sinnum á hæðina. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.5 (= 18 lykkjur), prjónið A.6 þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð (= 16-17-18-19-20-21 mynstureiningar með 16 lykkjum), prjónið fyrstu lykkjuna í A.5 (þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins í hvorri hlið) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Í umferð merktri með ör í A.5 og A.6, aukið út 22-30-38-18-28-42 lykkjur jafnt yfir (það eru 285-301-317-373-391-409 lykkjur í umferð áður en útaukningin byrjar) – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 307-331-355-391-419-451 lykkjur. Þegar A.5 og A.6 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan þar til berustykkið mælist 19-20-22-25-26-28 cm frá prjónamerki við hálsmál. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 48-52-55-60-66-72 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 62-66-72-80-82-86 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 87-95-101-111-123-135 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 62-66-72-80-82-86 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður yfir þær 48-52-55-60-66-72 lykkjur sem eftir eru (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 195-211-227-247-275-299 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 51-55-59-64-71-77 lykkjur inn frá hvorri hlið (= í hliðar á fram- og bakstykki). Það eru 93-101-109-119-133-145 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki. Prjónið sléttprjón fram- og til baka með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 6 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 6 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 207-223-239-259-287-311 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 20-21-21-20-21-21 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Nú eru lykkjur auknar út eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna dragi stykkið saman. Prjónið 1 umferð frá réttu þar sem aukið er út um 32-34-36-40-42-48 lykkjur jafnt yfir = 239-257-275-299-329-359 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til prjónaðar hafa verið alls 5 umferðir í stroffprjóni. Prjónið síðan 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 62-66-72-80-82-86 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-72-80-88-92-96 lykkjur. Prjónið sléttprjón í hring þar til ermin mælist 11-10-9-6-6-4 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 8-6-8-10-8-6 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 60-66-72-78-84-90 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Prjónið síðan 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Fellið af með sléttum lykkjum – sjá AFFELLING! Ermin mælist ca 16-15-14-11-11-9 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #nowandforevercardi eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 222-33
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.