Agnetha Norén skrifaði:
Hur är denna modell i storleken? Stor, liten eller normal?
18.10.2021 - 20:22DROPS Design svaraði:
Hej Agneta. Jag skulle säga att den är normal i storleken. Längst ner på sidan har du en måttskiss med alla mått i cm för alla storlekar. Det bästa är att du mäter ett plagg du redan har och gör den storlek som passar bäst utifrån de måtten. Mvh DROPS Design
19.10.2021 - 08:26
Lorena skrifaði:
Buongiorno pensavo di realizzare questo gilè con la tecnica degli aghi circolari, ovviamente mi dovrò fermare all’altezza degli scalfi, lasciare in sospeso metà del lavoro e procedere con l’altra metà. Potrei usare a questo punto anche i ferri tradizionali o quelli circolari con la tecnica avanti indietro facendo tutte le diminuzioni sino alla fine delle spalle, poi continuare con la parte lasciata in sospeso e cucire le spalle in alto. È corretta la mia proposta?
27.09.2021 - 12:07
Jose Munster skrifaði:
De zijkant van deze spencer is met een ribbelsteek, hoe maas ik deze aan elkaar want er is niet een duidelijke steek zichtbaar zoals in het voorbeeld filmpje
08.08.2021 - 14:07DROPS Design svaraði:
Dag Jose,
Het werk wordt in tricotsteek gebreid met aan elke kant 1 kantsteek. Deze kantsteken vallen weg bij het in elkaar mazen, waardoor de tricotsteken mooi tegen elkaar aan komen. In de video hieronder kun je zien hoe je zijnaden in tricotsteek maast.
18.08.2021 - 17:28
Jose Munster skrifaði:
De zijkant van deze spencer is met een ribbelsteek, hoe maas ik deze aan elkaar want er is niet een duidelijke steek zichtbaar zoals in het voorbeeld filmpje
30.07.2021 - 19:05
Lalitha Chivukula skrifaði:
Hello I am a beginner knitter and I made some scarves, cushion covers and hats before. Is this pattern easy for a first time sweater? Also instead of two strands of yarn can I use worsted weight yarn? Thank you so much for your beautiful patterns. Lalitha.
12.04.2021 - 06:25DROPS Design svaraði:
Dear Lalitha, this pattern is easy enough for an "advanced beginner", and we do have a number of viseos (linked below the pattern) to help you , also you can always ask for help in th estore where you bought your DROPS yarn from. For substituting yarns, you can used our yarn converter HERE. Happy knitting,
12.04.2021 - 09:38
Annabelle Vest#annabellevest |
|
![]() |
![]() |
Prjónað vesti / slipover úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með köntum í stroffprjóni og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 220-41 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA (jafnt yfir) : Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 98 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 24) = 4,1. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 3. og 4. hverja lykkju slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum og saumað saman í lokin. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp í kringum handvegi og hálsmáli sem prjónað er í stroffprjóni. Allt stykkið er prjónað úr 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir). BAKSTYKKI: Fitjið upp 98-106-114-122-134-150 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 8 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, síðan er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 24-26-28-28-30-36 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 74-80-86-94-104-114 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-1-2-2 sinnum, 2 lykkjur 2-3-3-4-4-5 sinnum og 1 lykkju 1-1-2-2-3-4 sinnum = 58-60-64-68-70-74 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm, fellið af miðju 24-24-26-26-28-28 lykkjurnar af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 16-17-18-20-20-22 lykkjur eftir fyrir öxl. Prjónið sléttprjón og kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm, stykkið mælist nú 27-28-29-30-31-32 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu (passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur). Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 98-106-114-122-134-150 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjón, * prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 8 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, síðan er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 24-26-28-28-30-36 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 74-80-86-94-104-114 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-1-2-2 sinnum, 2 lykkjur 2-3-3-4-4-5 sinnum og 1 lykkju 1-1-2-2-3-4 sinnum = 58-60-64-68-70-74 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 47-49-50-52-53-55 cm setjið miðju 12-12-14-14-16-16 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af lykkjur í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 16-17-18-20-20-22 lykkjur eftir á öxl. Prjónið sléttprjón og kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm, stykkið mælist nú 27-28-29-30-31-32 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu (passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur). Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori innan við affellingarkantinn. Byrjið undir ermi og saumið hliðarsaum innan við kantlykkju – skiljið eftir ca 8 cm fyrir klauf. Endurtakið í hinni hliðinni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu við annan axlasauminn. Notið stuttan hringprjón 4,5 og 1 þráð Alpaca og 1 þráð Kid-Silk (= 2 þræðir) og prjónið upp ca 88 til 104 lykkjur (meðtaldar 12-12-14-14-16-16 lykkjur af þræði) innan við 1 lykkju í kringum allt op í hálsmáli (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4). Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. KANTUR Í HANDVEGI: Byrjið frá réttu við hliðarsaum undir handveg. Notið stuttan hringprjón 4,5 og 1 þráð Alpaca og 1 þráð Kid-Silk (= 2 þræðir) og prjónið upp ca 116 til 140 lykkjur í kringum allan handveginn (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4). Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hinn kantinn í handvegi á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #annabellevest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 220-41
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.