Kirsten Bjørneboe skrifaði:
Hvordan får man dette mønster til at passe hele vejen rundt? Jeg er ret øvet, også i lace-strikning, men jeg kan ikke rigtig greje dette her.
05.04.2025 - 00:41DROPS Design svaraði:
Hej Kirsten, du har 60 masker, strikker A.1 = 6 masker 10 gange og starter forfra når du kommer til næste pind. På 3.pind starter du 1 maske tidligere med at tage 1 maske løst af pinden... og så videre ifølge symbolet :)
08.04.2025 - 14:33
Linda skrifaði:
Hej , Opfølgning på Natalias spørgsmål. jeg forstår heller ikke hvordan man ikke skal klippe tråden? Hvordan kan man strikke frem til hælen, det er jo midt på foden hvor der er mønster? Ødelægger det ikke mønsteret? Eller skal man strikke mønster de første masker frem til hælen? På forhånd tak. MVH Linda
15.11.2023 - 17:18DROPS Design svaraði:
Hei Linda. Du kan klippe tråden og deretter strikker hælen ferdig, slik den er forklart i oppskriften. Om du velger å ikke klippe tråden, men strikke frem til hælmaskene (da etter diagram A.2) må du passe på at nå er 1. omgang av diagram A.2 strikket på de 23-24-25 første maskene når du skal strikke videre etter hælfellingen. mvh DROPS Design
20.11.2023 - 08:14
Carita skrifaði:
Onko A1 kuvio oikein mallipiirustuksessa? Kolmas kerros mietityttää minua, sillä piirustuksen mukaan neulottaessa kuvio "liikkuu".
27.10.2022 - 11:23
Ginette skrifaði:
Combien d aiguilles pour ce modèle.? Merci
05.08.2022 - 17:29DROPS Design svaraði:
Bonjour Ginette, il vous faut pour ces chaussettes un set de 5 aiguilles doubles pointes - ou bien une aiguille circulaire de 80 cm pour tricoter en magic loop. Bon tricot!
08.08.2022 - 08:21
Nataliia skrifaði:
Hei! Jeg kom til hæl: Neste omgang strikkes slik: Sett de første 23-24-25 maskene på en tråd (= midt oppå foten), behold de neste 33-31-35 maskene på pinnen til hæl, og sett de siste 4-5-6 maskene på tråden (= totalt 27-29-31 masker oppå foten). Må jeg klippe trå?
18.09.2021 - 17:05DROPS Design svaraði:
Hei Nataliia, Du kan strikke de første maskene før du setter dem på en tråd. Da har du garnet klart til å strikke hælen. God fornøyelse!
20.09.2021 - 12:59
Dorrit Jensen skrifaði:
Ingen pt
29.08.2021 - 11:27DROPS Design svaraði:
Hei Dorrit. Hva mener du med ingen pt? Om du trenger hjelp til oppskriften, legg igjen et spørsmål om hva problemet er/hvilken størrelse du strikker og evnt mer nyttig informasjon. mvh DROPS design
30.08.2021 - 13:11
Sanna skrifaði:
Dreamy lace
20.01.2021 - 13:27
Laila skrifaði:
Kivat kesäsukat
19.01.2021 - 23:32
Grace Escamilla skrifaði:
Nunca he hecho calcetines pero podría empezar con este modelo, lindos!
18.01.2021 - 21:54
Anne Marie skrifaði:
Beautiful summer socks
13.01.2021 - 10:32
Rain Runners#rainrunnerssocks |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónaðir sokkar úr DROPS Nord. Stykkið er prjónað með gatamynstri. Stærð 35-43.
DROPS 223-43 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 72 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 12) = 6. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna 5. og 6. hverja lykkju slétt saman. LEIÐBEININGAR (á við um hæl): Til að styrkja hælinn er hægt að prjóna allan hælinn og hælúrtökuna með 2 þráðum þannig: Notið þráð bæði innan úr og utan með dokkunni og prjónið 1 lykkju til skiptis með sitt hvorum þræðinum. Með þessu þá færðu aðeins þykkari hæl án þess að prjóna með tvöföldum þræði. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 8-8-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 8-8-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 14-14-16 lykkjur eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Sokkarnir eru prjónaðir í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 72-72-80 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með Nord. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í ca 2½-3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-12-14 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 60-60-66 lykkjur. Prjónið A.1 hringinn (= 10-10-11 mynsturteikningar með 6 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram þar til stykkið mælist 15 cm frá uppfitjunarkanti í öllum stærðum, endið eftir heila mynstureiningu með A.1 á hæðina. Næsta umferð er prjónuð þannig: Setjið fyrstu 23-24-25 lykkjurnar á þráð (= mitt ofan á fæti), haldið eftir næstu 33-31-35 lykkur á prjóni fyrir hæl og setjið síðustu 4-5-6 lykkjur á þráð (= alls 27-29-31 lykkjur á fæti). Sjá LEIÐBEININGAR og prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjurnar í 5-5½-6 cm, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 5-3-5 lykkjur jafnt yfir = 28-28-30 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki mitt í síðustu umferð – prjónamerkið er notað aðeins síðar þegar mæla á lengd á fæti. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan! Eftir hælúrtöku er næsta umferð prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir 14-14-16 hællykkjur, prjónið upp 13-14-16 lykkjur meðfram hlið á hæl, setjið 1 prjónamerki, prjónið 1-2-3 lykkjur slétt, prjónið A.2A yfir næstu 3 lykkjur, A.2B yfir næstu 18 lykkjur (= 3 mynstureiningar með 6 lykkjum), prjónið A.2C (= 4 lykkjur), prjónið 1-2-3 lykkjur slétt, setjið 1 prjónamerki og prjónið upp 13-14-16 lykkjur meðfram hinni hlið á hæl = 67-71-79 lykkjur í umferð. Haldið svona áfram með sléttprjón og A.2 yfir 25 lykkjur mitt ofan á fæti. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað núna hvoru megin við 27-29-31 lykkjur á milli prjónamerkja á fæti þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á undan fyrsta prjónamerki á fæti slétt saman og prjónið 2 lykkjur á eftir síðasta prjónamerki á fæti snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 8-8-10 sinnum = 51-55-59 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 18-19-21 cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir ca 4-5-6 cm að loka máli, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd). Takið frá öll fyrri prjónamerki, nema prjónamerki á hæl og setjið 2 ný prjónamerki í stykkið þannig að það verða 26-28-30 lykkjur ofan á fæti og 25-27-29 lykkjur undir fæti (það á að vera 1 prjónamerki í hvorri hlið á sokk og prjónamerkin eru notuð þegar fækka á lykkjum fyrir tá). Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur og fækkið lykkjum fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman. Endurtakið við hitt prjónamerkið (= 4 lykkjur færri í umferð). Fækkið lykkjum svona í hvorri hlið í annarri hverri umferð alls 5-7-11 sinnum og síðan í hverri umferð alls 5-4-0 sinnum = 11-11-15 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = ca 6-6-8 lykkjur eftir. Klippið þráðinn frá, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Sokkurinn mælist ca 22-24-27 cm frá prjónamerki á hæl. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #rainrunnerssocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 223-43
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.