DROPS Nord
DROPS Nord
45% Alpakka, 30% Polyamide, 25% Ull
frá 814.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1628.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sunshine Comfort

Prjónaðir sokkar úr DROPS Nord. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í stroffprjóni og með fölskum köðlum. Stærð 35-43.

DROPS 223-45
DROPS Design: Mynstur no-045
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
Skóstærð: 35/37 - 38/40 - 41/43
Lengd fótar: ca 22-24-27 cm.
Hæð á sokk niður að hæl: Ca 12 cm í öllum stærðum.

EFNI:
DROPS NORD frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-100 g litur 18, gulur

PRJÓNFESTA:
26 lykkjur á breidd og 34 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nord
DROPS Nord
45% Alpakka, 30% Polyamide, 25% Ull
frá 814.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1628.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

HÆLÚRTAKA:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 8-8-9 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 8-8-9 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-7-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-7-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu.
Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 13-15-17 lykkjur eru eftir á prjóni.

ÚRTAKA-2 (á við um tá):
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri við prjónamerki og alls 4 lykkjur færri í umferð).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður.

SOKKUR:
Fitjið upp 66-68-72 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með Nord.
Byrjun á umferð = mitt að aftan. Prjónið 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* yfir fyrstu 14-14-16 lykkjur, prjónið A.1 (= 39 lykkjur), 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 12-14-16 lykkjur og endið með 1 lykkja slétt.
Haldið svona áfram með stroffprjón þar til A.1 hefur verið prjónað til loka. Fækkið um 2 lykkju í síðustu umferð í mynsturteikningu A.1 = 64-66-70 lykkjur. Stykkið mælist ca 3 cm.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið stroffprjón eins og áður yfir fyrstu 14-14-16 lykkjur, prjónið A.2 (= 37 lykkjur) og prjónið stroffprjón eins og áður yfir þær 13-15-17 lykkjur sem eftir eru. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 12 cm í öllum stærðum. Prjónið nú hæl þannig:
Haldið eftir fyrstu 14-14-16 lykkjur og síðustu 13-15-17 lykkjur á prjóni fyrir hæl = 27-29-33 hællykkjur. Setjið þær 37 lykkjur sem eftir eru mitt á fæti á þráð eða látið þær hvíla á prjóni.
Prjónið stroffprjón eins og áður fram og til baka yfir hællykkjur og fitjið jafnframt upp 1 nýja lykkju í hvorri hlið í fyrstu umferð (= kantlykkjur) = 29-31-35 hællykkjur.
Prjónið þar til hællinn mælist 5-5½-6 cm og fellið jafnframt af 1 kantlykkju í hvorri hlið í síðustu umferð = 27-29-33 hællykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt í síðustu umferð – prjónamerkið er notað síðar til að mæla lengd á fæti frá.
Prjónið HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Eftir hælúrtöku er næsta umferð prjónuð þannig: Prjónið sléttprjón yfir 13-15-17 hællykkjur, prjónið upp 13-14-16 lykkjur meðfram hlið á hæl innan við 1 kantlykkju, setjið 1 prjónamerki, prjónið A.2 eins og áður yfir 37 lykkjur ofan á fæti, setjið 1 prjónamerki og prjónið upp 13-14-16 lykkjur meðfram hinni hlið á hæl innan við 1 kantlykkju = 76-80-86 lykkjur.
Haldið svona áfram með mynstur með A.2 ofan á fæti og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru undir fæti.
JAFNFRAMT er lykkjum fækkað núna hvoru megin við 37 lykkjur á milli prjónamerkja á fæti þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á undan fyrra prjónamerki á fæti snúnar slétt saman og prjónið 2 fyrstu lykkjur á eftir seinna prjónamerki á fæti slétt saman.
Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 12-12-13 sinnum = 52-56-60 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 17-19-21 cm undir fæti frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir ca 5-5-6 cm að loka máli, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd).
Takið frá öll prjónamerkin í stykkinu og setjið 1 nýtt prjónamerki í hvora hlið á sokknum þannig að það verða 26-28-30 lykkjur bæði ofan á fæti og undir fæti.
Prjónið sléttprjón hringinn og fækkið lykkjum fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 7-6-8 sinnum og síðan í hverri umferð alls 4-6-5 sinnum = 8 lykkjur eftir í öllum stærðum.
Klippið þráðinn frá, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Sokkurinn mælist ca 22-24-27 cm undir fæti frá prjónamerki á hæl.

Prjónið annan sokk á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri)
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt (það eiga að myndast göt)
symbols = prjónið 3 lykkjur slétt, lyftið síðan fyrstu lykkjunni sem var prjónuð (af þessum 3) yfir hinar 2 lykkjurnar, þannig að lykkjan liggi utan um hinar 2 (= 1 lykkja færri)
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju þar sem búið er að fækka um þessa lykkju, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 223-45

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (9)

country flag Lily wrote:

Bonjour, Je ne comprends pas pour "Tricoter les mailles du talon en allers et retours, en côtes comme avant, en montant 1 maille de chaque côté au 1er rang (= mailles lisières) = 29-31-35 mailles pour le talon." On augmente une maille de chaque côté qui nous servira de mailles lisière ? De plus, la hauteur de 12 cm c'est y compris les côtes de 3 cm ? Merci pour votre retour. Cordialement,

29.05.2023 - 14:25

DROPS Design answered:

Bonjour Lily, pour le talon, vous montez 1 maille de chaque côté au 1er rang (vous augmentez ainsi 2 mailles) et tricotez les 29-31-35 mailles obtenues pour le talon; lorsque l'on va relever les mailles de chaque côté du talon, on relèvera les mailles à 1 m lisière du bord (cette nouvelle maille ajoutée de chaque côté que l'on va diminuer au dernier rang du talon). Les 12 cm avant le talon comprennent les 3 cm de A.1 + le début de A.2. Bon tricot!

30.05.2023 - 11:11

country flag Lara wrote:

Hi Drops Team, ich habe die Anleitung schon in Größe 37 für mich selbst gestrickt und war begeistert. Nun will ich für meinen Freund auch ein Paar stricken. Er hat Größe 47. Wie kann ich die Anleitung anpassen, damit ich Größe 47 stricken kann? Liebe Grüße

17.05.2022 - 11:55

DROPS Design answered:

Liebe Lara, leider können wir nicht jede Anleitung nach jeder Anfrage anpassen, aber sicher können Sie sich von diesen Modellen inspirieren. Danke im voraus für Ihr Verständnis. Viel Spaß beim stricken!

17.05.2022 - 14:23

country flag Vera wrote:

Hej! Jag undrar lite över varv två (efter det räta varvet). Som jag tolkar det så är hela varvet resårstickning, en rm en am. Varför är det så krångligt skrivet? Eller har jag missat något? Med vänlig hälsning, Vera

04.05.2022 - 14:53

DROPS Design answered:

Hej Vera, det er for at du skal kunne placere A.1 og A.2 de rigtige steder i forhold til ribben :)

04.05.2022 - 15:04

country flag Ana Mª Isabel Martín González wrote:

¿Se pueden tejer los calcetines con agujas circulares? Muchas gracias.

09.04.2022 - 00:48

DROPS Design answered:

Hola Ana, sí, se puede. Puedes ver como hacerlo en el siguiente vídeo: https://www.garnstudio.com/video.php?id=97&lang=es. Si tienes pocos puntos se usan 2 agujas circulares, con más puntos puedes trabajar con una aguja circular corta. Se trabajaría igual que con agujas de doble punta (no hay que añadir ni quitar puntos de las instrucciones).

09.04.2022 - 18:04

country flag Simona wrote:

Hi, I believe there is a small error. When decreasing for the toe in size 38/40 after 6+5 decreases 4 stitches each time, I am left with 56-44= 12 stitches, instead of 8 as the description tells.

12.12.2021 - 10:44

DROPS Design answered:

Dear Simona, you are right there was a mistake in the English pattern here, you are supposed to decrease 6 times on every round, pattern has been edited, thanks for your feedback. Happy knitting!

13.12.2021 - 09:38

country flag Joke wrote:

Als ik 2 x14 steken brei is dat 28 steken daarna nog 39 steken , maakt totaal 67 steken en ik heb er 68 opgezet. Is het telpatroon verkeerd of het aantal opzet steken?

05.11.2021 - 14:14

DROPS Design answered:

Dag Joke,

Dat is inderdaad 67 steken, maar je breit op het eind nog 1 recht = 68 steken.

11.11.2021 - 08:46

country flag Bea Maas wrote:

Het begin van de sok klopt niet,zoals jullie het beschrijven is het gewoon 1 links 1 rechts aansluitend maar op de foto is te zien dat er 2 linkse tussen zit??

18.10.2021 - 13:02

country flag Sene wrote:

Je souhaite avoir des explications sur la façon de faire la pointe de la chaussette. Merci d'avance

30.05.2021 - 18:33

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Sene, cette vidéo devrait pouvoir vous aider, elle montre comment tricoter la pointe en diminuant de chaque côté de chacun des marqueurs. Bon tricot!

31.05.2021 - 07:56

country flag Charlotte Kristensen wrote:

Hej diagrammet til denne model er væk og har været væk i en uges tid. Hjælp

12.05.2021 - 15:13