Helena skrifaði:
Gäller mönster DROPS / 223 / 14. Om jag vill sticka ärmarna på ett traditionellt sätt, nerifrån och upp och sedan sy i dem i tröjan. Hur gör jag då? Kommer sticka stl S
14.06.2021 - 15:15DROPS Design svaraði:
Hej Helena, vi kan ikke skrive opskriften om. Men du kan læse opskriften på ærmet nedefra og op, så kommer det til at passe :)
15.06.2021 - 15:55
Daniela skrifaði:
Nella descrizione del “campione” vengono indicati 1023 punti in larghezza. Credo ci sia stato un errore di trascrizione
22.03.2021 - 12:48DROPS Design svaraði:
Buonasera Daniela, grazie per la segnalazione, abbiamo corretto il campione. Buon lavoro!
23.03.2021 - 18:19
M Dijkstra skrifaði:
Wil de trui heeeel graag breien en wacht met veel ongeduld op het patroon.
09.03.2021 - 10:10
Alexandra Bühler skrifaði:
Unicorn Jumper
09.01.2021 - 15:47
Agnes skrifaði:
Nordic Summer
09.01.2021 - 11:32
Janne skrifaði:
Arctic Summer
08.01.2021 - 15:00
Marlena skrifaði:
Write my poem
08.01.2021 - 13:53
Sabine Hagemann skrifaði:
Rainbow
07.01.2021 - 21:38
Anna skrifaði:
Colors of the autum leaves
07.01.2021 - 20:10
Wilma skrifaði:
Evening Sun
07.01.2021 - 17:01
Painted Rose#paintedrosesweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca, DROPS Delight og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað í garðaprjóni og röndum. Stærð S - XXXL.
DROPS 223-14 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. RENDUR: 4 cm með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Brushed Alpaca Silk + 1 þræði Delight syren/grænn 8 cm með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Brushed Alpaca Silk + 1 þræði Delight ólífa/ryð/plóma 12 cm með 1 þræði Alpaca +1 þræði Brushed Alpaca Silk + 1 þræði Delight syren/grænn 4 cm með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Brushed Alpaca Silk + 1 þræði Delight ólífa/ryð/plóma 8 cm með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Brushed Alpaca Silk + 1 þræði Delight syren/grænn 12 cm með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Brushed Alpaca Silk + 1 þræði Delight ólífa/ryð/plóma Endurtakið rendur að loka máli. ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman, fækkið lykkjum innan við 1 lykkju garðaprjón í hvorri hlið. LEIÐBEININGAR: Vegna garðaprjóns þá kemur flíkin til með að teygjast við notkun. Ermarnar eru því prjónaðar styttri en venjulega, en þær koma til með að teygjast. Ef ermar verða of langar þegar flíkin hefur verið notuð í smá tíma, er hægt að rekja ermarnar upp að óskaðri lengd. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum á hringprjóna og saumað saman í lokin. Ermar eru prjónaðar upp í handveg og prjónaðar fram og til baka, ofan frá og niður. Peysan er prjónuð í röndum með 3 þráðum. BAKSTYKKI: Fitjið upp 48-52-56-64-68-76 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þráð Alpaca, 1 þráð Brushed Alpaca Silk og 1 þráð Delight syren/grænn. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan frá réttu þannig: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*. Prjónið RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 6 cm, skiptið yfir á hringprjón 9. Prjónið GARÐAPRJÓN yfir allar lykkjur – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 41-42-43-44-45-46 cm fellið af 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg = 46-50-54-62-66-74 lykkjur. Þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm fellið af miðju 16-16-18-18-20-20 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 14-16-17-21-22-26 lykkjur. Haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm (= 19-20-21-22-23-24 cm frá þar sem 1 lykkja var felld af í hvorri hlið fyrir handveg), fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 48-52-56-64-68-74 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þráð Alpaca, 1 þráð Brushed Alpaca Silk og 1 þráð Delight syren/grænn. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan frá réttu þannig: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*. Prjónið rendur eins og á bakstykki. Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 6 cm, skiptið yfir á hringprjón 9. Prjónið garðaprjón yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 41-42-43-44-45-46 cm fellið af 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg = 46-50-54-62-66-74 lykkjur. Þegar stykkið mælist 54-56-58-58-60-62 cm setjið miðju 10-10-12-12-14-14 lykkjurnar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af lykkjur í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 14-16-17-21-22-26 lykkjur eftir á hvorri öxl. Haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm (= 19-20-21-22-23-24 cm frá þar sem 1 lykkja var felld af í hvorri hlið fyrir handveg), fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. ERMI: Ermar eru prjónaðar fram og til baka ofan frá og niður, prjónaðar eru rendur eins og á framstykki og bakstykki: Takið upp 38-40-42-44-46-48 lykkjur í kringum op á ermum í ystu lykkjubogana á hringprjón 9 með 1 þræði Alpaca, 1 þræði Brushed Alpaca Silk og 1 þræði Delight syren/grænn (= 3 þræðir), þ.e.a.s. byrjið strax eftir þar sem 1 lykkja var felld af á framstykki/bakstykki og takið upp 19-20-21-22-23-24 lykkjur upp að axlasaum og takið upp 19-20-21-22-23-24 lykkjur frá axlasaumi og niður að síðustu umferð áður en 1 lykkja var felld af á bakstykki/framstykki. Prjónið garðaprjón fram og til baka og rendur eins og áður. Þegar stykkið mælist 3 cm, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið á stykki – sjá ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona með 6-5-5-3½-3½-3 cm millibili alls 7-8-8-9-9-10 sinnum = 24-24-26-26-28-28 lykkjur. Haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist 42-41-40-37-36-33 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 8, aukið út 4-4-6-6-4-4 lykkjur jafnt yfir = 28-28-32-32-32-32 lykkjur. Prjónið stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í 4 cm. Fellið af þegar ermin mælist 46-45-44-41-40-37 cm, passið uppá að affellingingarkanturinn verði ekki stífur, fellið e.t.v. af með einu númeri grófari prjónum – sjá LEIÐBEININGAR. Prjónið hina ermina á sama hátt. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu með 1 þræði Alpaca, 1 þræði Brushed Alpaca Silk og 1 þræði Delight ólífa/ryð/plóma og stuttan hringprjón 8 og prjónið upp ca 52-60 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði og deilanlegt með 4). Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 9 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. FRÁGANGUR: Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt í ystu lykkjubogana, þannig að það myndist ekki þykkur saumur. Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innan verðu á stykki. Saumið stroffið þannig að það myndist uppábrot. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði stífur og beygist út er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur og herði ekki á stykki. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #paintedrosesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 223-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.