Elaine Hallows wrote:
Please may I ask - when beginning the yoke section where the pattern states to place a marker 'in' a stitch does it mean before or after that stitch? Thank you.
13.03.2024 - 08:41DROPS Design answered:
Dear Mrs Hallows, markers should be inserted in that stitch not before nor after, just in that stitch. Happy knitting!
13.03.2024 - 13:21Teresa wrote:
Is the back of this jumper done in plain stock stitches or is it patterned like the front? Thank you .
12.01.2022 - 19:56DROPS Design answered:
Hi Teresa, The back has the same pattern as the front. Happy knitting!
13.01.2022 - 07:58Paola wrote:
Buona sera, le varie taglie in base a che misure di busto sono calcolate? Vorrei capire quanto ha di "positive ease" questo maglione per riuscire a trovare la taglia perfetta per me 😁. Saluti
04.08.2021 - 20:39DROPS Design answered:
Buonasera Paola, per scegliere la taglia più adeguata, può confrontarlo con un capo che possiede e che ha la stessa vestibilità. Buon lavoro!
06.08.2021 - 19:11Vita wrote:
Buongiorno mi può dire quale motivo video tutorial corrisponde a questo modello grazie DROPS / 223 / 17 Free Motion by DROPS Design Maglione lavorato ai ferri in DROPS Snow. Lavorato dall’alto in basso con raglan, motivo traforato e maniche a ¾. Taglie: S - XXXL Tags: maglioni, maniche a 3/4, maniche larghe, punti traforati, raglan, top down, DROPS design: Modello n° ee-715
15.04.2021 - 16:39DROPS Design answered:
Buonasera Vita, non c'è un videotutorial che spiega l'intero modello, ma in fondo alla pagina può trovare i video delle tecniche utilizzate nel modello. Buon lavoro!
15.04.2021 - 19:20Vita wrote:
Salve potrebbe gentilmente dirmi quale è il video tutorial del diagramma schema da seguire per DROPS 223-17. Grazie Vita
13.04.2021 - 22:38DROPS Design answered:
Buonasera Vita, non c'è un videotutorial che spiega l'intero modello, ma in fondo alla pagina può trovare i video delle tecniche utilizzate nel modello. Buon lavoro!
15.04.2021 - 19:17Alexandra Janse wrote:
Bonjour Y-a-t-il une photo de la dentelle de la manche ? Bonne journée
26.03.2021 - 08:34DROPS Design answered:
Bonjour Mme Janse, nous n'avons pas de photos du détail de la manche, mais le motif est approximativement le même que celui de A.3 répété en hauteur, adapté à un seul motif (alors que A.3 se répète en largeur). Bon tricot!
26.03.2021 - 11:25Cathy Yarber wrote:
How do I download or save your patterns? Thank you
25.03.2021 - 17:55DROPS Design answered:
Dear Mrs Yarber, our pattern can only be printed, but using a virtual printer will allow you to save them as a .pdf file. Happy knitting!
26.03.2021 - 07:02Marie-france VIDAL wrote:
Trés beaux moments à passer lorsque je vais commencer ce pull. Merci pour votre aide
25.03.2021 - 08:06Coby Dalens wrote:
Fashionable boxy sweater, lovely lace pattern but choosing a super bulky woolen yarn prone to felting for a summer garment is beyond my comprehension.
11.01.2021 - 14:14
Free Motion |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Snow. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, gatamynstri og ¾-löngum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 223-17 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 44 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 3,7. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 3. og 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 1 lykkju slétt í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð) þannig: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur á framstykki og bakstykki inn í mynstur A.2 og A.4 og á ermum eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá skiptinguinni á milli bakstykkis og hægri ermi, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar, síðan er fram- og bakstykki prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 44-46-48-50-52-54 lykkjur á hringprjón 8 með Snow. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-10-12-22-20-22 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 56-56-60-72-72-76 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat). Skiptið yfir á hringprjón 9. Setjið eitt prjónamerki hér, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki). BERUSTYKKI: Setjið nú 4 ný prjónamerki í stykkið án þess að prjóna. Þessi prjónamerki verða að hafa annan lit, svo að þau séu frábrugðin frá prjónamerki eftir kanti í hálsmáli. Prjónamerkin eru sett í lykkjurnar og eiga að fylgja með í stykkinu. Setjið eitt prjónamerki í fyrstu lykkju (= í skiptinguna á milli bakstykkis og hægri ermi), hoppið yfir næstu 7-7-9-9-9-11 lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju (= í skiptinguna á milli hægri ermi og framstykkis), hoppið yfir næstu 19-19-19-25-25-25 lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju (= í skiptinguna á milli framstykkis og vinstri ermi), hoppið yfir næstu 7-7-9-9-9-11 lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju (= í skiptinguna á milli vinstri ermi og bakstykkis), nú eru 19-19-19-25-25-25 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Prjónið nú mynstur jafnframt því sem aukið er út fyrir laskalínu þannig: * Prjónið 1 lykkju slétt (= fyrsta lykkja með prjónamerki í), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 0-0-1-1-1-2 lykkjur slett, A.1 yfir næstu 7 lykkjurnar, 0-0-1-1-1-2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2 yfir fyrstu 7 lykkjurnar, A.3 yfir næstu 6-6-6-12-12-12 lykkjur (= 1-1-1-2-2-2 mynstureiningar með 6 lykkjum), A.4 yfir næstu 6 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð. Nú hafa verið auknar út 8 lykkjur fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram hringinn og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 13-15-16-16-18-19 sinnum = 160-176-188-200-216-228 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í hvert skipti sem mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina, er pláss fyrir 2 mynstureiningar til viðbótar með A.3 á framstykki og bakstykki. Á ermum er A.1 prjónað mitt á ermi til loka. Aðrar lykkjur á ermum eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar til loka, prjónið áfram þar til stykkið mælist 21-21-23-24-26-28 cm frá prjónamerki eftir kanti í hálsmáli. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig: Setjið fyrstu 35-39-43-43-47-51 lykkjurnar á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-6-6-6-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 45-49-51-57-61-63 lykkjur í mynstri eins og áður (= framstykki), setjið næstu 35-39-43-43-47-51 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-6-6-6-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 45-49-51-57-61-63 lykkjur inn í mynstur eins og áður. Klippið þráðinn frá. Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 98-106-114-126-134-142 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar 4-4-6-6-6-8 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum í hvorri hlið (= 2-2-3-3-3-4 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Byrjið umferð við eitt af prjónamerkjunum og prjónið mynstur hringinn – stillið af að byrjað sé í umferð í mynsturteikningu þannig að mynstrið passið við mynstur á berustykki: Prjónið * 2-4-6-6-2-4 lykkjur slétt, A.5 yfir næstu 8 lykkjur, A.3 yfir næstu 30-30-30-36-48-48 lykkjur (= 5-5-5-6-8-8 mynstureiningar með 6 lykkjum), A.6 yfir næstu 7 lykkjur, 2-4-6-6-2-4 lykkjur *, prjónið *-* 1 sinni til viðbótar í umferð. Haldið svona áfram hringinn. Þegar stykkið mælist 21-23-22-23-23-22 cm frá skiptingu – stillið af að endað sé eftir 4., 6., 10. eða 12. umferð í A.3, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 14-16-18-18-20-22 lykkjur jafnt yfir = 112-122-132-144-154-164 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 35-39-43-43-47-51 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón 9. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 4-4-6-6-6-8 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 39-43-49-49-53-59. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi (= 2-2-3-3-3-4 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og A.1 eins og áður. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 18-19-17-17-15-14 cm frá skiptingu – mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd (það eru ca 4 cm að loka máli). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 5-7-7-7-7-9 lykkjur jafnt yfir = 44-50-56-56-60-68 lykkjur. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 8. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist 22-23-21-21-19-18 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Lilou wrote:
Bonjour, de plus en plus de modèles compliqués pour les débutantes (épaules biaisées, raglans etc...) ne pouvez-vous revenir aux modèles anciens (manches montées) entre autre, qui me paraissaient beaucoup plus simple. je me surprend à aller sur d'autres sites....
22.10.2023 - 09:12