Insa Blessing skrifaði:
Ich habe bis zum Anschlag des Halsausschnittes gestrickt und eine Schulterseite bereits hochgestrickt. Ich habe jede Reihe eine Masche abgenommen bis ich auf der Nadel 19 Maschen hatte (Gr.M). Die Schulter ist aber zu lang geworden. Meine Frage ist, wie ich die Schulterseite richtig stricken muss?
11.02.2024 - 10:50DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Blessen, nach 18 cm ketten Sie die mittleren 17 Maschen für den Hals ab; dann stricken Sie beide Schulter separat, am Anfang der nächsten Reihe von Hals bis Armloch ketten Sie 1 Masche (- bei einer Rückreihe für rechte Schulter/Hinreihe für linke Schulter), dann stricken Sie noch bis die Arbeit 20 cm mist und ketten Sie die restlichen 19 Maschen ab; die Schulter misst ca 3 cm nach Halsausschnitt, 21 cm von der Teilung und 58 cm insgesamt. Viel Spaß beim stricken!
12.02.2024 - 07:48
Insa Blessing skrifaði:
Ich habe bis zum Anschlag des Halsausschnittes gestrickt und eine Schulterseite bereits hochgestrickt. Ich habe jede Reihe eine Masche abgenommen bis ich auf der Nadel 19 Maschen hatte (Gr.M). Die Schulter ist aber zu lang geworden. Meine Frage ist, wie ich die Schulterseite richtig stricken muss?
11.02.2024 - 10:48
Susanne Simonsen skrifaði:
Pinde nr er kun vejledende. Får du for mange masker på 10 cm, skift til tykkere pinde. Får du for få masker på 10 cm, skift til tyndere pinde. Er det ikke lige omvendt
03.08.2023 - 07:21
Susanne Simonsen skrifaði:
Jeg kan ikke finde ud af om blusen skal strikkes med bobbel garn, eller er det kun striberne på ærmerne der strikkes med to farver i nogle af striberne
01.08.2023 - 16:38DROPS Design svaraði:
Hej Susanne, hele blusen strikkes i samme garn i de 5 forskellige farver som står i opskriften :)
07.08.2023 - 13:47
Hanne skrifaði:
Hej Jeg kan kun finde et diagram over, hvordan Ærmekuplen sys til ærmegabet. Jeg mangler et diagram selve trøjen, som der findes i de opskrifter, som jeg har strikket af drops design. Er det muligt, at få dette, da jeg bruger det ligeså meget, som det nedskrevne opskrift Mvh Hanne
18.09.2022 - 15:46DROPS Design svaraði:
Hei Hanne. Alle våre oppskrifter, inkl diagram og målskisse er online og kan lastes ned gratis på vår hjemmeside. mvh DROPS Design
19.09.2022 - 13:53
Lena Nockert skrifaði:
Denna jumpern finns även som kofta. Alla bilder visar modellen sittande. Är det något problem med nederkanten eller passformen eftersom ni inte vill visa den på bild?
27.07.2021 - 16:00DROPS Design svaraði:
Hej Lena, absolut inte... det här är en rak modell. Se även formen och måttskissen längst ner i mönstret :)
06.08.2021 - 14:26
Gitte Wennicke skrifaði:
Er det korrekt at ærmerne skal strikkes på pind 5 hele tiden, og at der ikke skal skiftes til pind, 8, som man gør i blusen?
06.04.2021 - 21:59DROPS Design svaraði:
Hej Gitte, du har ret, du skifter til pind 8 efter ribkanten - tak for info, vi skal få det rettet :)
07.04.2021 - 08:44
Stine Lise skrifaði:
Lilac fields or lavender field
08.01.2021 - 19:57
Ania Belle skrifaði:
Love love love this sweater! Can't wait to start knitting !
08.01.2021 - 17:44
Avril skrifaði:
Lavender Sky Sweater
07.01.2021 - 20:54
Blue Sunrise#bluesunrisesweater |
||||
![]() |
![]() |
|||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað með röndum og blöðruermum. Stærð XS - XXL.
DROPS 221-24 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. RENDUR: 2 umferðir með 2 þræðir ljós beige. 4 umferðir með 1 þræði ljós beige + 1 þræði ljós sægrænn. 4 umferðir með 2 þræðir ljós sægrænn. 10 umferðir með 2 þræðir gallabuxnablár. 4 umferðir með 1 þræði gallabuxnablár + 1 þræði ljós sægrænn. 4 umferðir með 1 þræði gallabuxnablár + 1 þræði fjólublár 8 umferðir með 2 þræðir ljós lavender. 2 umferðir með 2 þræðir ljós beige. 4 umferðir með 2 þræðir fjólublár. 2 umferðir með 2 þræðir gallabuxnablár. 2 umferðir með 1 þráður gallabuxnablár + 1 þráður ljós lavender. Prjónið síðan með 2 þráðum ljós lavender til loka. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 116 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 14) = 8,3. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 7 og 8. hverja lykkju slétt saman. ÚRTAKA-2 (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna upp að handveg. Síðan eru lykkjur felldar af fyrir handveg og framstykkið og bakstykkið er síðan prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Að lokum er stykkið sett saman og prjónaður er kantur í hálsmáli á stuttan hringprjón. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 116-124-136-144-156-172 lykkjur á hringprjón 5 með 2 þráðum ljós lavender. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 14-14-18-18-18-20 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 102-110-118-126-138-152 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 34-36-37-38-39-40 cm frá uppfitjunarkanti, prjónið næstu umferð þannig: Fellið af fyrstu 2-2-2-4-6-10 lykkjur fyrir handveg, prjónið næstu 49-53-57-59-63-66 lykkjur áður en þær eru settar á þráð (= framstykki), fellið af næstu 2-2-2-4-6-10 lykkjur fyrir handveg, prjónið síðustu 49-53-57-59-63-66 lykkjur (= bakstykki). BAKSTYKKI: = 49-53-57-59-63-66. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 18-18-19-20-21-22 cm frá skiptingu, fellið af miðju 15-17-17-17-17-18 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Síðan í næstu umferð frá hálsi er felld af 1 lykkja = 16-17-19-20-22-23 lykkjur. Þegar stykkið mælist 20-20-21-22-23-24 cm frá skiptingu, fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 49-53-57-59-63-66. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 13-13-14-14-15-16 cm frá skiptingu, setjið miðju 9-11-11-11-11-12 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Síðan í næstu umferð frá hálsi eru lykkjur felldar af þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 16-17-19-20-22-23 lykkjur. Þegar stykkið mælist 20-20-21-22-23-24 cm frá skiptingu, fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 28-28-28-32-32-32 lykkjur á sokkaprjóna 5 með 2 þráðum í litnum ljós beige. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 5 cm. Skiptið yfir í sokkaprjóna nr 8. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 56-56-56-64-64-64 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat). Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Þegar ermin mælist 20 cm frá uppfitjunarkanti, setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Fækkið nú um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með ca 4-4-5-3½.-4-4½ cm millibili alls 6-6-5-8-6-5 sinnum = 44-44-46-48-52-54 lykkjur. Þegar ermin mælist 52-52-51-50-48-47 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu), prjónið ermakúpuna fram og til baka á hringprjóna að loka máli. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 54-54-53-53-52-52 cm, þ.e.a.s. það er klauf 2-2-2-3-4-5 cm efst á ermi. FRÁGANGUR: Frágangurinn er gerður með 2 þráðum í litnum ljós lavender. Saumið axlasauma með lykkjuspori. Saumið ermakúpu við handveg. Saumið síðan klauf efst á ermi við botninn á handveg – sjá teikningu. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp ca 48 til 60 lykkjur með 2 þráðum ljós lavender og stuttum hringprjónum 5 frá réttu í kringum hálsmál. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bluesunrisesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 221-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.