Anja Malling Bak-Madsen skrifaði:
Rigtig fin cardigan. Dog undrer jeg mig over hvor instruktionerne er henne? Der er kun diagrammerne? Mvh
18.03.2021 - 09:02DROPS Design svaraði:
Hej Anja, så er opskriften lagt ud, tak for info :)
18.03.2021 - 09:28
Heidi Jensen skrifaði:
Jeg kan desværre ikke finde ensrettelse med masker og forklaring ril at strikke efter ! Har i evt en rettelse ?
17.03.2021 - 22:07DROPS Design svaraði:
Hej Heidi, jo men opskriften ligger ude og der er ikke nogle rettelser til den :)
18.03.2021 - 09:32
Sweet Marigold#sweetmarigoldcardigan |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og gatamynstri. Stærð 6 mánaða – 8 ára.
DROPS Baby & Children 38-11 |
|||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring – á við um ermar): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 82 lykkjur) mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 7) = 10,3. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 10. hverja lykkju. Ekki í aukið út yfir kantlykkjur að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð í umferð frá réttu! Á framstykki og bakstykki er laksalínu útaukningin inni í mynsturteikningu. Aukið er út í laskalínu á hvorri ermi þannig: Aukið út um 1 lykkju á eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið í næstu umferð (= frá röngu). Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 3 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 4-4(4-4-5-5) næstu hnappagötum með ca 6- 6½ (7-7½-7-7½) cm millibili. LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 82-86 (92-95-100-104) lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 2,5 með Baby Merino. Prjónið 8 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Fellt er af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 7-3 (3-0-9-5) lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 89-89 (95-95-109-109) lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni við miðju að framan. Setjið 1 prjónamerki mitt að framan innan við 5 kantlykkjur að framan. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! BERUSTYKKI: Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Vinstra framstykki: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 (= 10-10 (12-12-14-14) lykkjur), A.4 (= 2-2 (1-1-3-3) lykkjur). Vinstri ermi: Prjónið 1 lykkju sléttprjón, setjið 1. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 14 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið 2. prjónamerki, 1 lykkja sléttprjón. Bakstykki: Prjónið A.5 (= 1-1 (1-1-2-2) lykkjur), A.2 yfir 20-20 (24-24-28-28) lykkjur, A.4 yfir 2-2 (1-1-3-3) lykkjur. Hægri ermi: Prjónið 1 lykkju sléttprjón, setjið 3. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 14 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið 4. prjónamerki, 1 lykkja sléttprjón. Hægra framstykki: Prjónið A.5 yfir 1-1 (1-1-2-2) lykkjur, A.3 (= 11-11 (13-13-15-15) lykkjur) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni = 97-97 (103-103-113-113) lykkjur (meðtalinn allur uppsláttur). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, aukið út í hverri umferð frá réttu alls 14-16 (17-18-19-20) sinnum (meðtalin útaukning í fyrstu umferð frá réttu á eftir kanti í hálsmáli). Þegar útaukning fyrir ermar hefur verið gerð til loka, prjónið í sléttprjóni og mynstri eins og áður. Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu og þegar A.4/A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 219-227 (255-259-287-291) lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 10-10 (12-12-15-15) cm frá kanti í hálsi. Prjónið nú mynstur þannig (frá réttu): Vinstra framstykki: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 yfir 10-10 (12-12-14-14) lykkjur, A.2 yfir 10-10 (12-12-14-14) lykkjur, A.3 yfir 11-11 (13-13-15-15) lykkjur. Vinstri ermi: Prjónið 43-47 (49-51-53-55) lykkjur sléttprjón. Bakstykki: Prjónið A.1 yfir 10-10 (12-12-14-14) lykkjur, A.2 yfir 40-40 (48-48-56-56) lykkjur (= 4 sinnum á breiddina), A.3 yfir 11-11 (13-13-15-15) lykkjur. Hægri ermi: Prjónið 43-47 (49-51-53-55) lykkjur sléttprjón. Hægra framstykki: Prjónið A.1 yfir 10-10 (12-12-14-14) lykkjur, A.2 yfir 10-10 (12-12-14-14) lykkjur, A.3 yfir 11-11 (13-13-15-15) lykkjur og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 12-13 (14-15-16-17) cm frá prjónamerki eftir kant í hálsi mitt að framan – endið þannig að síðasta umferð sé prjónuð frá réttu. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Haldið áfram með kant að framan og mynstur eins og áður yfir fyrstu 36-36 (42-42-48-48) lykkjur (= framstykki), setjið næstu 43-47 (49-51-53-55) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 9-9 (11-11-13-13) nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), haldið áfarm með mynstur eins og áður yfir næstu 61-61 (73-73-85-85) lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 43-47 (49-51-53-55) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 9-9 (11-11-13-13) nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), haldið áfram með mynstur eins og áður yfir síðustu 36-36 (42-42-48-48) lykkjur (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 151-151 (179-179-207-207) lykkjur. Næst umferð er prjónuð frá réttu þannig (haldið áfram í réttri umferð í mynsturteikningu): Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 yfir 10-10 (12-12-14-14) lykkjur, A.2 yfir 120-120 (144-144-168-168) lykkjur (= 12 sinnum á breidd), A.3 yfir 11-11 (13-13-15-15) lykkjur og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 14-15 (17-19-22-25) cm frá skiptingu – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið 6 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING. ERMI: Setjið 43-47 (49-51-53-55) lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 3, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 9-9 (11-11-13-13) lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 52-56 (60-62-66-68) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkju undir ermi og byrjið umferð hér. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 1½-1½ (2-3-3-3) cm millibili alls 8-9 (9-8-9-9) sinnum = 36-38 (42-46-48-50) lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 16-19 (22-28-32-33) cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Fellið af með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 17-20 (23-29-33-34) cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweetmarigoldcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby & Children 38-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.