Victoria skrifaði:
Hej Jeg har lige lukket af til ærmegab og skal til at strikke frem og tilbage på mit bagstykke, men min omgangsstart er jo midt i bagstykket, hvordan skal jeg strikke frem og tilbage uden det bliver skævt?
14.12.2022 - 13:23DROPS Design svaraði:
Hej Victoria, du fortsætter frem og tilbage forbi omgangsstarten :)
15.12.2022 - 09:23
Else Johansen Panagiotaki skrifaði:
Hei Hvis dette er en oppskrift som er gjennomgått i alle størrelser, hvorfor ikke oppgi hvor mange masker man må plukke opp til halskant i hver størrelse? I oppskriften oppgir dere et margin fra 60 - 96 masker og at man må prøve seg frem til hva som passer
29.10.2022 - 08:03DROPS Design svaraði:
Hei Else. Ved å plukke 60-96masker vil du kunne tilpasse det maskeantallet som passer ditt plagg best slik at man ikke blir helt låst om man mangler 1 maske eller 3. Men strikker du den minste str vil 60 masker passe fint og ved den største størrelsene passer 96 masker best, og da er det ikke så vanskelig å finne ut hvilken maskeantall på de andre størrelsene når maskeantallet må være delbart med 4. mvh DROPS Design
31.10.2022 - 11:18
Mari skrifaði:
Hello, sorry i'm new here, i just found out about this amazing website, and i got lost in so many patterns hehe, it's amazing :)) but my question is, where can i download the patterns?
21.09.2022 - 13:36DROPS Design svaraði:
Dear Mari and thank you :) Our patterns can only be printed, but using a virtual printer you will be able to download them as a .pdf file. Happy knitting!
21.09.2022 - 17:11
Tina skrifaði:
Hei. Strikker størrelse 9-10 år og har bestilt 150g Karisma, som det står i oppskriften. Dette må være feil. Har nå strikket 30 cm og er halvveis inn i nøste nummer 3. Har målt strikkefastheten min og den er 21 masker på 10 cm. Kjedelig å måtte bestille nytt garn og betale for ny frakt, får håpe de har igjen samme partinummer
12.09.2022 - 12:28
Kathrine skrifaði:
Hei, strikker str.2-3år. Har kommet til bakstykket, og gjort fellingene 2×3. Skal man ikke da ende opp med 44 masker, ikke 46 som det står i oppskriften? Mvh Kathrine
13.01.2022 - 13:52DROPS Design svaraði:
Hei Kathrine, I størrelse 2-3 år skal man felle 2 ganger på hver side (2 x 2 masker felt) og da har man 46 masker igjen. God fornøyelse!
14.01.2022 - 07:14
Gledesspreder#gledesspredervest |
|
![]() |
![]() |
Prjónað vesti / slipover fyrir börn úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð 12 mánaða – 12 ára.
DROPS Baby & Children 38-8 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (jafnt yfir) : Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 120 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 12) = 10. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna 9. og 10. hverja lykkju slétt saman. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (á við um úrtöku fyrir handveg og hálsmál): Öll úrtaka er gerð í umferð frá réttu! Fækkið um 1 lykkju í byrjun umferðar þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna (= 1 lykkja færri). Fækkið um 1 lykkju í lok umferðar þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 2 lykkjur slétt. LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna neðan frá og upp að handveg, síðan er fram- og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Prjónaður er kantur í kringum handvegi og hálsmál í stroffprjóni í lokin. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 120 (128-140-148-156-164-172) lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Karisma. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 = 108 (116-128-136-144-152-160) lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 22 (24-27-30-33-36-39) cm frá uppfitjunarkanti, fellið lykkjur af fyrir handveg þannig: Prjónið 23 (25-28-30-32-34-36) lykkjur slétt (= hálft bakstykki), fellið af næstu 8 lykkjur, prjónið 46 (50-56-60-64-68-72) lykkjur slétt (= framstykki), fellið af næstu 8 lykkjur og prjónið síðustu 23 (25-28-30-32-34-36) lykkjur slétt (= hálft bakstykki). Prjónið nú til loka hvort stykki fyrir sig. BAKSTYKKI: = 46 (50-56-60-64-68-72) lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka. Í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju innan við 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2! Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu alls 3 (2-3-3-4-3-3) sinnum = 40 (46-50-54-56-62-66) lykkjur. Þegar stykkið mælist 30 (33-37-41-45-49-53) cm frá uppfitjunarkanti, fellið af miðju 26 (28-30-32-34-34-36) lykkjur fyrir hálsmáli (= 7 (9-10-11-11-14-15) lykkjur eftir á hvorri öxl) og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið um 1 lykkju innan við 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsmáli = 6 (8-9-10-10-13-14) lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 33 (36-40-44-48-52-56) cm frá uppfitjunarkanti. FRAMSTYKKI: = 46 (50-56-60-64-68-72) lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka. Í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju innan við 2 lykkjur í hvorri hlið á stykki – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2! Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu alls 3 (2-3-3-4-3-3) sinnum = 40 (46-50-54-56-62-66) lykkjur. Þegar stykkið mælist 27 (30-33-37-40-44-47) cm frá uppfitjunarkanti, fellið af miðju 20 (22-24-26-28-28-30) lykkjur fyrir hálsmáli (= 10 (12-13-14-14-17-18) lykkjur eftir á hvorri öxl) og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið um 1 lykkju innan við 2 lykkjur frá hálsmáli alls 4 sinnum = 6 (8-9-10-10-13-14) lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 33 (36-40-44-48-52-56) cm frá uppfitjunarkanti (stillið lengdina af við bakstykki). FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp 60 til 96 lykkjur meðfram kanti í hálsmáli innan við 1 lykkju frá réttu á sokkaprjóna 3 með DROPS Karisma (stillið af að lykkjufjöldinn sé deilanlegur með 4). Passið uppá að kanturinn í kringum hálsmál dragist ekki saman/verði of laus á stykki, takið e.t.v. upp fleiri eða færri lykkjur. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í ca 5 cm (meðtalinn kantur með uppábroti). Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING. Brjótið kantinn tvöfaldan og saumið hann laust niður að röngu þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir kant í hálsmáli, passið uppá að saumurinn dragi ekki stykkið saman í hálsmáli. KANTUR Í HANDVEGI: Prjónið upp 48 til 72 lykkjur meðfram kanti í handvegi innan við 1 lykkju frá réttu á sokkaprjóna 3 með DROPS Karisma (passið uppá að lykkjufjöldinn sé deilanlegur með 4). Passið uppá að kanturinn í kringum handveg dragi ekki stykkið saman/verði of laus á stykki, takið upp e.t.v. fleiri eða færri lykkjur. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í ca 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir LEIÐBEININGAR AFFELLING. Prjónið hinn kantinn í handvegi á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #gledesspredervest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby & Children 38-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.