Mimi skrifaði:
J'ai hâte d'avoir l'explication, il est magnifique
05.02.2021 - 10:50
Tatjana skrifaði:
Nefeli
20.01.2021 - 22:24
Jo skrifaði:
"Prairie Dreamer"
20.01.2021 - 02:07
Na12 skrifaði:
Ruffled daisy
15.01.2021 - 06:16
Olga skrifaði:
Romantic blouse
14.01.2021 - 14:55
VERSTAEVEL skrifaði:
Spring Inspiration White Beauty Beauty of Spring
13.01.2021 - 21:43
Lola Luft skrifaði:
Mademoiselle Luise
13.01.2021 - 13:11
Milena skrifaði:
Le volant à l'encolure et aux manches souligne avec élégance ce modèle
11.01.2021 - 12:34
Sylvaine skrifaði:
Chantilly
09.01.2021 - 12:59
Mimi M Routh skrifaði:
"Cream Puff on Doily"! I don't mind if the knitting is fiddly; it flatters the wearer. Just lovely!
07.01.2021 - 20:04
Incoming Tide Sweater#incomingtidesweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, laskalínu, pífu, gatamynstri og ¾-löngum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 222-21 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 120 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 36) = 3,3. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 3. og 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi til skiptis ca önnur hver og 3. hver lykkja og 3. og 4. hver lykkja slétt saman. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Að lokum er heklaður pífukantur sem er heklaður/saumaður að berustykki og ermum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 120-124-128-134-138-144 lykkjur á hringprjón 2,5 með Alpaca. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 3 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 36-36-36-38-38-40 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 156-160-164-172-176-184 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt). Skiptið yfir á hringprjón 3. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Nú er mynstrið prjónað þannig: Prjónið A.1 hringinn í umferð (= 39-40-41-43-44-46 mynstureiningar með 4 lykkjum). Jafnframt í umferð með ör er aukið út jafnt yfir þannig: Ör-1: Aukið út 28-28-28-32-36-36 lykkjur = 184-188-192-204-212-220 lykkjur. Ör-2: Aukið út 50-52-54-54-64-62 lykkjur = 234-240-246-258-276-282 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið með A.2 (= 39-40-41-43-46-47 mynstureiningar með 6 lykkjum). Í 3. umferð í A.2 færist byrjun á umferð um 1 lykkju til hægri, þannig að það verði hægt að prjóna fyrsta tákn í mynsturteikningu. Haldið svona áfram þar til mynsturteikningin hefur verið prjónuð 2-2-2-3-3-3 sinnum á hæðina, síðan eru prjónaðar fyrstu 6 umferðir í mynsturteikningu Prjónið nú A.3 yfir hverja einingu með A.2. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina, mælist stykkið ca 13-13-13-15-15-15 cm. Í næstu umferð eru auknar út 34-44-54-66-64-70 lykkjur jafnt yfir = 268-284-300-324-340-352 lykkjur. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna þannig: Fyrsta prjónamerkið: Teljið 42-45-47-51-55-58 lykkjur, setjið 1. prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli bakstykkis og hægri ermi). Annað prjónamerkið: Teljið 50-52-56-60-60-60 lykkjur, setjið 2. prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli hægri ermi og framstykkis). Þriðja prjónamerkið: Teljið 84-90-94-102-110-116 lykkjur, setjið 3. prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli framstykkis og vinstri ermi). Fjórða prjónamerkið: Teljið 50-52-56-60-60-60 lykkjur, setjið 4. prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli vinstri ermi og bakstykkis). Nú eru 42-45-47-51-55-58 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Prjónið sléttprjón hringinn. Jafnframt í næstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 10-11-14-15-18-19 sinnum = 348-372-412-444-484-504 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 20-22-24-26-28-30 cm. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 52-56-61-66-73-77 lykkjurnar (= ½ bakstykki), setjið næstu 70-74-84-90-96-98 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-10-12 lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 104-112-122-132-146-154 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 70-74-84-90-96-98 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-10-12 lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 52-56-61-66-73-77 lykkjur (= ½ bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 220-240-260-284-312-332 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 22 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 3 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 44-48-52-58-64-68 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 264-288-312-342-376-400 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn. Þegar stroffið mælist 3 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 70-74-84-90-96-98 lykkjur af þræði frá annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-8-8-10-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 76-82-92-100-106-110 lykkjur. Byrjið umferð mitt í 6-8-8-10-10-12 lykkjum undir ermi og prjónið sléttprjón hringinn þar til ermin mælist 17-15-14-12-11-9 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 6 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 14-18-24-30-34-36 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 62-64-68-70-72-74 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 23-21-20-18-17-15 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. PÍFUKANTUR Á BERUSTYKKI: Heklið 277-284-291-305-326-333 loftlykkjur (meðtaldar 5 loftlykkjur til að snúa við með) með heklunál 3,5 og Alpaca. Snúið og heklið þannig: Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, * 2 loftlykkjur, 1 stuðull í næstu loftlykkju *, heklið frá *-* út umferðina. Skiptið pífukantinum frá réttu á stykki þannig að hann liggi jafnt yfir meðfram neðri kanti á gatamynstri, þ.e.a.s. þar sem A.3 var prjónað. Festið e.t.v. pífukantinn til bráðabyrgða við flíkina. Pífukantinn á að festa með loftlykkjum inn að réttu á flíkinni og er hægt að festa við berustykkið annað hvort með því að sauma hann niður eða að hekla hann fastan: FRÁGANGUR MEÐ SAUM: Saumið frá röngu þannig: Festið þráðinn í úrtöku (þ.e.a.s. þríhyrningstákn í A.3) mitt aftan á peysu og saumið eitt spor á milli 2 ystu kanta framan á pífukanti. Þræðið til baka þráðinn að röngu á stykki, * þræðið meðfram neðri kanti á gatamynstri (ekki er saumað í pífukantinn) að næstu úrtöku í mynstri (þ.e.a.s. þríhyrningstákn í næstu einingu af A.3), færið nálina hringinn í þessa úrtöku og á milli 6. og 7. stuðuls eftir síðasta skipti sem pífukanturinn er festur við stykkið, þræðið þráðinn til baka frá röngu á stykki *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn – það er mikilvægt til að saumurinn verði ekki stífur, svo flíkin missi ekki teygjanlekan. Festið þráðinn. FRÁGANGUR MEÐ HEKLI: Heklið frá röngu með heklunál 3,5 þannig: Festið þráðinn með fastalykkju um úrtöku (þ.e.a.s. þríhyrningstákn í A.3) mitt aftan á peysu, færið heklunálina í gegnum stykkið (frá röngu að réttu – þráðurinn verðu áfram frá röngu), færið síðan heklunálina á milli 2 ystu stuðla á pífukanti og til baka frá röngu á stykki, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum lykkjurnar á heklunálinni þannig að pífukanturinn verður fastur við berustykkið *, heklið 8 loftlykkjur (frá röngu á stykki), hoppið að næstu úrtöku á berustykki (þ.e.a.s. þríhyrningstákn í A.3), færið heklunálina í gegnum stykkið frá röngu að réttu (þráðurinn verður áfram frá röngu), færið heklunálina á milli 6. og 7. stuðuls eftir síðasta skipti sem pífukanturinn er festur við berustykkið og til baka frá röngu, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum lykkjurnar á heklunálinni þannig að pífukanturinn verði fastur við berustykkið *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn – það er mikilvægt að saumurinn verði ekki stífur, svo flíkin missi ekki teygjanleikan. Festið þráðinn. PÍFUKANTUR Á ERMUM: Heklið 67-67-74-74-81-81 loftlykkjur (meðtaldar 5 loftlykkjur til að snúa við með) með heklunál 3,5 og Alpaca. Snúið og heklið þannig: Heklið 1 stuðul í 6. loftlykkju frá heklunálinni, * 2 loftlykkjur, 1 stuðull í næstu loftlykkju *, heklið frá *-* út umferðina. Hægt er að festa pífukantinn við ermar annað hvort með því að sauma hann niður eða hekla hann fastan. Festið pífukantinn við efstu umferð í stroffi á ermi. Saumið eða heklið alveg eins og á berustykki og hoppið yfir 7 stuðla á pífukanti í stað einnar úrtöku eins og á berustykki. Passið uppá að þráðurinn verði ekki stífur. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #incomingtidesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 222-21
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.