Natalie Ghys skrifaði:
Beste, Bij het vormen van de mouwkop zijn er een aatal minderingen voorzien. Is het de bedoeling dat je die enkel aan de goede kant van het werk afkant ( dus om de andere naald) of moet er ook in de averechte naald afgekant worden? Dank bij voorbaat, Natalie
19.03.2023 - 16:47DROPS Design svaraði:
Dag Natalie,
Je kant steken af aan het begin van elke, dus zowel aan de goede als de verkeerde kant.
21.03.2023 - 21:20
Annika skrifaði:
Hej, stämmer verkligen diagrammet A1, rad 17, maska 4-6? Om man stickar så blir det ju tre hål i rad, och det ser inte ut att överensstämma med bilden. Jag provade att sticka så, och det såg konstigt ut.
24.10.2022 - 15:46DROPS Design svaraði:
Hej Annika, tak for info! Det stemmer rad 15 skal se ud som rad 11. Vi skal få opdateret diagrammet :)
25.10.2022 - 14:00
Lillian skrifaði:
Er maskeantall som strikkes opp til halskant ved slutten i tillegg til eller inkludert de som man satt av på en tråd i halsfellingen?
19.06.2022 - 18:20DROPS Design svaraði:
Hei Lillian. De 87-90-90-93-93-96 maskene er nok alle halsmaskene (de som strikkes og de som er satt på en tråd). mvh DROPS Design
20.06.2022 - 14:39
Surmann skrifaði:
Hallo, ich verstehe beim Ärmel nicht nach dem man die untere Ärmelmitte =6 Maschen weiterstrickt. Da ist ja dann eine "lücke". Ich müsste dann ja getrennt weiter stricken oder wie? Und wie vernäht man das dann?
02.02.2022 - 08:28DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Surmann, diese 6 Maschen unter der Ärmel werden zusammen mit den abgekettene 6 Maschen beim Rumpfteil (3 beim Rückenteil + 3 beim Vorderteil). Vielleicht kann Ihnen dieses Video helfen?
02.02.2022 - 09:07
Raili skrifaði:
Kuinka on mahdollista, että luodaan 113 silmukkaa ja neulotaan ensimmäinen kierros nurin. Miten seuraavalla kierroksella onkin jo 120 silmukkaa?!?!
17.08.2021 - 19:07
Inge skrifaði:
Ik zie het antwoord al: maat S wordt niet genoemd dus staat de telling van XL nu op de derde plaats ipv op de vierde. Poeh, je moet wel heel goed opletten:)
21.02.2021 - 10:00DROPS Design svaraði:
Dag Inge,
Mooi dat je het gevonden hebt en bedankt voor de terugkoppeling. Veel breiplezier!
23.02.2021 - 13:13
Inge skrifaði:
Zet 113 steken op (maat XL). En dan bij alle maten: A.1 over de volgende 120 steken? Dat begrijp ik niet, waar moet er dan worden gemeerderd?
21.02.2021 - 09:51
Annika skrifaði:
Sweet Rosie
16.01.2021 - 10:20
Terri skrifaði:
Heather
09.01.2021 - 18:01
RoffaDame skrifaði:
V-Hal’s of polo-nek zou ook wel eens leuk zijn. (zoveel hoge ronde nekken)
09.01.2021 - 09:44
Strawberry Mousse#strawberrymoussesweater |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað með gatamynstri og blöðruermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 220-16 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 32 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 28) = 1,1. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca aðra hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um ermar í XL, XXL og XXXL): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum og saumað saman í lokin. Bakstykkið er 4 cm lengra en framstykkið. Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón upp að handveg, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka á hringprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 86-93-103-113-123-133 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 4 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan mynstur mismunandi eftir stærðum þannig: Stærð S: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, A.1 yfir næstu 60 lykkjur (= 2 mynstureiningar með 30 lykkjum), prjónið fyrstu 21 lykkjurnar í A.1, 1 kantlykkja garðaprjón. Prjónið síðan eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR. Stærð M, L, XL, XXL og XXXL: 1 kantlykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 yfir næstu 90-90-90-120-120 lykkjur (= 3-3-3-4-4 mynstureiningar með 30 lykkjum), prjónið fyrstu 0-11-21-0-11 lykkjur í A.1, 1-0-0-1-0 lykkja slétt, 1 kantlykkja garðaprjón. Prjónið síðan eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR. ALLAR STÆRÐIR: Endurtakið 4 fyrstu umferðirnar í mynsturteikningu þar til stroffið mælist 9 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið nú áfram eins og útskýrt er í mynsturteikningu (= 8-9-10-11-12-13 lykkjur færri í næstu umferð) = 78-84-93-102-111-120 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með mynstur eins og áður. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar mynstrið hefur verið prjónað til loka á hæðina, haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm, fellið lykkjur af í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið fyrir handveg þannig: Fellið af 3-3-4-4-5-6 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 0-1-2-3-3-4 sinnum og 1 lykkja 1-1-1-2-3-3 sinnum = 70-72-75-78-83-86 lykkjur. Prjónið í sléttprjóni og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þegar handvegur mælist 17-18-19-20-21-22 cm (stykkið mælist ca 55-57-59-61-63-65 cm frá uppfitjunarkanti), fellið af miðju 32-34-35-36-37-38 lykkjurnar fyrir hálsmáli. Prjónið síðan hverja öxl til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsmáli er felld af 1 lykkja = 18-18-19-20-22-23 lykkjur. Þegar handvegur mælist 20-21-22-23-24-25 cm (stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm frá uppfitjunarkanti), fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 86-93-103-113-123-133 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 4 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan mynstur í mismunandi stærðum þannig: Stærð S: 1 kantlykkja garðaprjón, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, A.1 yfir næstu 60 lykkjur (= 2 mynstureiningar með 30 lykkjur), prjónið fyrstu 21 lykkjur í A.1, 1 kantlykkja garðaprjón. Prjónið síðan eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR. Stærð M, L, XL, XXL og XXXL: 1 kantlykkja garðaprjón, A.1 yfir næstu 90-90-90-120-120 lykkjur (= 3-3-3-4-4 mynstureiningar með 30 lykkjum), prjónið fyrstu 0-11-21-0-11 lykkjur í A.1, 1-0-0-1-0 lykkjur slétt, 1 kantlykkja garðaprjón. Prjónið síðan eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR. ALLAR STÆRÐIR: Endurtakið 4 fyrstu umferðirnar í mynsturteikningu þar til stroffið mælist 5 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið nú áfram eins og útskýrt er í mynsturteikningu (= 8-9-10-11-12-13 lykkjur færri í næstu umferð) = 78-84-93-102-111-120 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með mynstri eins og áður. Þegar mynstrið hefur verið prjónað til loka á hæðina, haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm, fellið af lykkjur í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið fyrir handveg þannig: Fellið af 3-3-4-4-5-6 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 0-1-2-3-3-4 sinnum og 1 lykkja 1-1-1-2-3-3 sinnum = 70-72-75-78-83-86 lykkjur. Prjónið í sléttprjóni og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þegar handvegurinn mælist 11-12-13-13-14-15 cm (stykkið mælist ca 45-47-49-50-52-54 cm frá uppfitjunarkanti), setjið miðju 18-20-21-22-23-24 lykkjurnar á þráð fyrir hálsmáli. Prjónið síðan hvora öxl til loka fyrir sig. Í hverri umferð frá hálsmáli eru lykkjur felldar af þannig: Fellið af 3 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 2 sinnum = 18-18-19-20-22-23 lykkjur. Þegar handvegurinn mælist 20-21-22-23-24-25 cm (stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm frá uppfitjunarkanti), fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 36-36-39-39-42-42 lykkjur á sokkaprjóna 4 með Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 5 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 16-16-16-16-19-19 lykkjur, prjónið A.2 yfir næstu 4 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 16-16-19-19-19-19 lykkjur. Prjónið 1 umferð til viðbótar með mynstri og aukið jafnframt út 28-32-31-33-30-32 lykkjur jafnt yfir lykkjur með sléttum lykkjum – sjá ÚTAUKNING-1 = 64-68-70-72-72-74 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið eitt prjónamerki mitt í lykkjur í sléttprjóni (= mitt undir ermi) þannig að það verða 30-32-33-34-34-35 lykkjur í sléttprjóni hvoru megin við prjónamerki. A.2 kemur mitt á ermi. Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Það er notað síðar. Haldið áfram hringinn með A.2 og sléttprjóni. Í stærð S, M og L, prjónið áfram frá ALLAR STÆRÐIR. Í stærð XL, XXL og XXXL, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út í öðrum hverjum cm alls 1-2-3 sinnum = 74-76-80 lykkjur. ALLAR STÆRÐIR: Prjónið áfram þar til ermin mælist 53-52-50-48-47-46 cm. Fellið nú af 6-6-8-8-10-12 lykkjur mitt undir ermi (= 3-3-4-4-5-6 lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið síðan fram og til baka í sléttprjóni með byrjun frá miðju undir ermi, jafnframt eru lykkjur felldar af fyrir handveg í hvorri hlið í byrjun á hverri umferð þannig: Fellið af 2-2-1-1-1-1 lykkjur 1-2-4-6-7-9 sinnum, eftir það 5-5-5-5-4-4 lykkjur 2-2-2-2-2-1 sinnum = 34-34-34-34-36-42 lykkjur. Fellið af. Ermin mælist alls 56 cm í öllum stærðum. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasaumana með lykkjuspori. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni – bakstykkið er 4 cm lengra en framstykkið. Skiljið e.t.v. eftir smá klauf / op neðst á fram- og bakstykki í hvorri hlið þar sem stroffið er (= 9 cm á bakstykki og 5 cm á framstykki). Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju garðaprjón – sjá teikningu fyrir frágang á ermum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp 87-90-90-93-93-96 lykkjur innan við 1 lykkju í kringum hálsmál á stuttan hringprjón 4 og Air. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #strawberrymoussesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 220-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.