Summer Promise |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónuð vafningspeysa með laskalínu úr DROPS BabyAlpaca Silk og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað með gatamynstri og ¾ löngum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 213-24 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 261 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 22 lykkjur) og deilið þeim lykkjufjölda sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 34) = 7. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 6. og 7. hverja lykkju slétt saman og ekki er lykkjum fækkað yfir ystu 11 lykkjur í hvorri hlið. ÚRTAKA-2 (á við um hliðar á framstykki): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Lykkjum er fækkað í hlið í hægra og vinstra framstykki (= 2 lykkjur færri í umferð) þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki í skiptingunni á milli hægra framstykkis og bakstykkis, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið fram að prjónamerki í skiptingunni á milli bakstykkis og vinstra framstykkis, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri). Þegar ekki eru nægilega margar lykkjur til að prjóna bæði uppslátt og úrtöku í mynstri (þ.e.a.s. 2. og 3. lykkju í A.2 og 5. og 6. lykkju í A.4), prjónið sléttar lykkjur yfir þessar 2 lykkjur þar til þeim hefur fækkað til loka. LASKALÍNA: Fækkið um 1 lykkju á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). Fækkið um 1 lykkju á eftir prjónamerki þannig: Lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri). Fækkið um 2 lykkjur á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri). Fækkið um 2 lykkjur á eftir prjónamerki þannig: Lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VAFNINGSPEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna upp að handveg. Ermar eru prjónaðar í hring á hringprjóna upp að handveg. Síðan eru ermarnar settar inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki og berustykkið er prjónað fram og til baka. Að lokum er hægri og vinstri kantur að framan prjónað til loka áður en saumað er saman aftan í hnakka. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 261-285-309-317-349-381 lykkjur á hringprjón 4 (meðtaldar 11 kantlykkjur að framan í hvorri hlið) með 1 þræði BabyAlpaca Silk og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð þannig: A.1 yfir fyrstu 11 lykkjurnar (= kantur að framan), sléttar lykkjur yfir næstu 239-263-287-295-327-359 lykkjur (þ.e.a.s. þar til 11 lykkjur eru eftir í umferð), JAFNFRAMT er fækkað um 34-37-40-41-45-49 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – sjá ÚRTAKA-1, A.3 yfir síðustu 11 lykkjurnar (= kantur að framan) = 227-248-269-276-304-332 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið 1 prjónamerki 69-76-83-83-90-97 lykkjur inn frá hvorri hlið (= í hliðar á fram- og bakstykki). Nú eru 89-96-103-110-124-138 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar fækka á lykkjum á framstykki. Prjónið nú mynstur og stuttar umferðir á framstykki með byrjun frá réttu: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið A.1 yfir fyrstu 11 lykkjur (mynstrið á að passa með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur), lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn frá röngu á stykki, leggið þráðinn frá réttu á stykki, lyftið til baka ystu lykkjunni á hægri prjóni yfir á vinstri prjón, snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 2: Prjónið til baka í mynstri. UMFERÐ 3: Prjónið A.1 yfir fyrstu 11 lykkjur, A.2 yfir næstu 7 lykkjur, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn frá röngu á stykki, leggið þráðinn frá réttu á stykki, lyftið til baka ystu lykkjunni á hægri prjóni yfir á vinstri prjón, snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 4: Prjónið til baka í mynstri. Haldið svona áfram fram og til baka og prjónið nýja mynstureiningu af A.2 yfir næstu 7 lykkjur í umferð í hvert skipti sem prjónað er frá réttu – stillið af að byrjað sé til skiptis í 1. og 3. umferð í mynstri í hvert skipti sem byrjað er á nýrri einingu með A.2, þannig að gatamynstrið (úrtaka + uppsláttur) er prjónað alveg eins í mismunandi einingum í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar prjónaðar hafa verið stuttar umferðir og 8-9-10-10-11-12 mynstureiningar með A.2 á breidd (þá eru eftir 2 lykkjur á undan prjónamerki í hlið), prjónið mynstur frá réttu yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð þannig: Prjónið 1 lykkju brugðið, 1 lykkja slétt, prjónamerki situr hér, 1 lykkja brugðið, A.4 yfir næstu 84-91-98-105-119-133 lykkjur (= 12-13-14-15-17-19 mynstureiningar með 7 lykkjum), 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, prjónamerki situr hér, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, A.4 yfir næstu 56-63-70-70-77-84 lykkjur, A.3 yfir síðustu 11 lykkjur. Nú eru prjónaðar stuttar umferðir alveg eins og á hægra framstykki þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið A.3 yfir fyrstu 11 lykkjur (mynstrið á að passa með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur), lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn frá réttu á stykki, leggið þráðinn frá röngu á stykki, lyftið til baka ystu lykkjunni á hægri prjóni yfir á vinstri prjón, snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 2: Prjónið til baka í mynstri. UMFERÐ 3: Prjónið A.3 yfir fyrstu 11 lykkjur, A.4 yfir næstu 7 lykkjur, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, leggið þráðinn frá röngu á stykki, lyftið til baka ystu lykkjunni á hægri prjóni yfir á vinstri prjón, snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 4: Prjónið til baka í mynstri. Haldið svona áfram fram og til baka og prjónið eina nýja einingu af A.4 yfir næstu 7 lykkjur í umferð í hvert skipti sem prjónað er frá röngu – stillið af að byrjað sé til skiptis á 1. og 3. umferð í mynstri í næstu umferð frá réttu í hvert skiptis sem byrjað er á nýrri einingu með A.4, þannig að gatamynstrið (úrtaka + uppsláttur) sé prjónaður alveg eins í mismunandi einingum í umferð. Prjónið nú stuttar umferðir og 8-9-10-10-11-12 mynstureiningar með A.4 á breidd (nú eru eftir 2 lykkjur á undan prjónamerki í hlið), prjónið nú mynstur eins og áður frá röngu yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð. Nú er umferðum með stuttum umferðum lokið. Haldið áfram fram og til baka með mynstur eins og áður. Þegar stykki mælist 6 cm frá uppfitjunarkanti og meðfram prjónamerki í hlið, byrjar úrtaka í hlið á framstykki – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með ca 2 cm millibili alls 9 sinnum (= alls 18 lykkjur færri) = 209-230-251-258-286-314 lykkjur. Þegar stykkið mælist 24-24-25-25-25-25 cm frá uppfitjunarkanti (meðfram prjónamerki í hlið), fellið af 3-4-5-5-6-7 lykkjur fyrir handveg hvoru megin við prjónamerki í hliðum í næstu umferð frá röngu. Nú eru 83-88-93-100-112-124 lykkjur á bakstykki og 57-63-69-69-75-81 lykkjur á hvoru framstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Fitjið upp 110-112-116-118-120-122 lykkjur á hringprjón með 1 þræði BabyAlpaca Silk og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um (= 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið) hringinn í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 14-14-16-16-16-16 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA-1 = 96-98-100-102-104-106 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Þegar ermin mælist 24-23-22-21-20-19 cm, fellið af 6-8-10-10-12-14 lykkjur undir ermi = 90-90-90-92-92-92 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg í hvorri hlið = 377-394-411-422-446-470 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykki og ermar. Haldið áfram fram og til baka með mynstur eins og áður á framstykki og bakstykki og prjónið sléttprjón yfir lykkjur á ermum. Þegar stykkið mælist 2-1-0-2-1-0 cm, byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Lykkjum er fækkað mismunandi á framstykki, bakstykki og ermum. Hægra og vinstra framstykki: Fækkið um 2 lykkjur í annarri hverri umferð alls 23-26-29-29-32-35 sinnum (= 46-52-58-58-64-70 lykkjur færri á hvoru framstykki). Bakstykki: Fækkið um 1 lykkju í annarri hverri umferð alls 23-26-29-29-32-35 sinnum (= alls 46-52-58-58-64-70 lykkjur færri á bakstykki). Ermar: Fækkið um 1 lykkju í annarri hverri umferð 10-14-18-21-25-29 sinnum, fækkið síðan um 2 lykkjur í annarri hverri umferð 15-13-11-10-8-6 sinnum (= alls 80-80-80-82-82-82 lykkjur færri á hvorri ermi). Þegar öll úrtaka fyrir laskalínu hefur verið gerð til loka, eru 79-78-77-84-90-96 lykkjur eftir í umferð. Næsta umferð er frá réttu og er prjónuð þannig: Prjónið A.1 yfir fyrstu 11 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 10 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 37-36-35-42-48-54 lykkjur og fækkið jafnframt um 3-2-0-6-11-17 lykkjur jafnt yfir, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 10 lykkjur, A.3 eins og áður yfir síðustu 11 lykkjur = 76-76-77-78-79-79 lykkjur. Næsta umferð frá röngu er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 11 lykkjur áður en þær eru settar á þráð (= vinstri kantur að framan), fellið af næstu 54-54-55-56-57-57 lykkjur, prjónið síðustu 11 lykkjur (= hægri kantur að framan). HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið nú kant fram og til baka með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur, brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þegar kantur að framan mælist 4 cm, prjónið stuttar umferðir með byrjun frá réttu þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið allar lykkjur, snúið. UMFERÐ 2: Prjónið fyrstu 7 lykkjur, snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 3: Prjónið til baka, snúið. UMFERÐ 4: Prjónið allar lykkjur, snúið. Endurtakið umferð 1-4 einu sinni til viðbótar (= alls 2 sinnum). Haldið síðan áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til kantur að framan mælist 15-15-15½-15½-16-16 cm meðfram lengstu hliðinni. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn og prjónið kant að framan fram og til baka með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þegar kantur að framan mælist 4 cm, prjónið stuttar umferðir með byrjun frá röngu þannig: UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið allar lykkjur, snúið. UMFERÐ 2: Prjónið fyrstu 7 lykkjur, snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 3: Prjónið til baka, snúið. UMFERÐ 4: Prjónið allar lykkjur, snúið. Endurtakið umferð 1-4 einu sinni til viðbótar (= alls 2 sinnum). Haldið síðan áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til kantur að framan mælist 15-15-15½-15½-16-16 cm meðfram lengstu hliðinni. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið saman kanta að framan mitt að aftan og saumið síðan við hálsmál aftan í hnakka. SNÚRA OG LYKKJUR: Fitjið upp 5 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði BabyAlpaca Silk og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir 5 lykkjur. Þegar snúran mælist ca 180 til 250 cm – eða að óskaðri lengd, fellið af. Festið endana í hvorum enda á snúru. Heklið lykkju í hvorri hlið meðfram sléttri lykkju í skiptingunni á milli framstykkis og bakstykkis með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir) með heklunál 3. Festið þræðina með keðjulykkju í hlið ca 5 cm neðan við þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg, heklið loftlykkjur í ca 4 cm. Festið þræðina með 1 keðjulykkju ca 4 cm neðan við þar sem lykkjan byrjaði. Klippið þræðina frá og festið enda vel. Endurtakið í hinni hliðinni. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (25)
Brigitte wrote:
Würde ich gerne arbeiten.
16.01.2020 - 21:41Gabriele wrote:
WOW!Die Jacke möchte ich gerne nacharbeiten!
07.01.2020 - 12:04Gunnel Benesch wrote:
Precis vad jag söker!
03.01.2020 - 19:13Heidi wrote:
Das Modell strahlt schon absolutes Wohlfühlen aus
03.01.2020 - 16:58Johanna wrote:
Love this design! I hope it makes the collection =)
19.12.2019 - 12:57