Justine Dalby wrote:
Friends Forever pattern ... Drops 206-37 What size is the sweater in the picture? What size pattern was used please?
11.04.2022 - 14:53DROPS Design answered:
Dear Justine, the model is wearing an M size. Happy knitting!
11.04.2022 - 22:38Pia W wrote:
Slet ingen kun natur striber? Det ser sådan ud?
23.02.2020 - 23:25DROPS Design answered:
Hej Pia, nej ingen ren natur, den er strikket sammen med den støvrosa :)
24.02.2020 - 13:27Pia Blegvad wrote:
Hvis jeg vil strikke blusen ensfarvet, hvor meget garn skal jeg så beregne? 200 g i alt? PÅ forhånd tak for svar.
12.02.2020 - 15:57DROPS Design answered:
Hej Pia, ja natur er strikker med i hver stribe, så det dobbelte af natur i din størrelse. God fornøjelse!
13.02.2020 - 10:28Hanne wrote:
Hej. Vil gerne strikke model DROPS Design: Model as-122 Garngruppe C + C eller E og har købt garnet på nett, da min vanlige garnbutikk har sluttet at sælge Brushed Alpaca Silk - mit favoritgarn, som jeg har strikket mindst 20 ponchoer i, i alle farver. Det som jeg lurer på, er diagrammet længere oppe på siden her: er tallene cm? Jeg tror det, men vil gerne være helt sikker. Tak for svar. Venlig hilsen Hanne
21.10.2019 - 18:20DROPS Design answered:
Hei Hanne, Diagrammet er i cm. God fornøyelse!
22.10.2019 - 07:24Carina Johansson wrote:
Jag vill sticka 206-37 i bomulls garn tex paris hur mycket garn behöver jag då?
19.08.2019 - 17:14DROPS Design answered:
Hej Carina. Du kan använda vår konverterare för att beräka alternativ garnåtgång. Där ser du t.ex. att 25 g Brushed Alpaca Silk motsvarar 94 g Paris. Lycka till!
20.08.2019 - 09:00Ankie Wolthers wrote:
Ik wil het garen voor de trui Forever Friends graag bestellen (medium size), maar hoe doe ik dat? Ik vind het niet zo duidelijk aangegeven. Wacht op antwoord Ankie
08.08.2019 - 17:06DROPS Design answered:
Dag Ankie
Via Zoek een winkel op de site kun je een (online) winkel vinden waar onze garens worden verkocht. Je gaat naar de site van de betreffende winkel om garens te bestellen. Mocht je er niet uit komen, neem dan even contact op met de betreffende winkel.
10.08.2019 - 15:33Ellis wrote:
I see almost everything for teenagers
09.06.2019 - 21:28Candy Stripes wrote:
Witzige Farbkombi für einen schönen Draußen-Pulli
08.06.2019 - 14:15
Friends Forever |
|
|
|
Prjónuð peysa með laskalínu úr 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með röndum. Stærð S - XXXL.
DROPS 206-37 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 48 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 6. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 6. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. RENDUR: 2½ cm með 1 þræði natur og 1 þræði fjólublár 2½ cm með 1 þræði natur og 1 þræði kirsuber 2½ cm með 1 þræði natur og 1 þræði karrí 2½ cm með 1 þræði natur og 1 þræði svartur 2½ cm með 1 þræði natur og 1 þræði daufbleikur 2½ cm með 1 þræði natur og 1 þræði kóral 2½ cm með 1 þræði natur og 1 þræði svartur 2½ cm með 1 þræði natur og 1 þræði skógargrænn Endurtakið síðan þessar 8 umferðir til loka. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Aukið út alls 8 lykkjur í hverri útauknings umferð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með ½ númeri grófari prjónum. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 48-52-52-56-60-64 lykkjur á stuttan hringprjón 7 með 1 þræði í litnum svartur og 1 þræði í litnum skógargrænn (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff hringinn í 2½ cm. Skiptið yfir á hringprjón 8 og prjónið síðan 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-0-4-8-4-4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 56-52-56-64-64-68 lykkjur. Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig (þetta er gert án þess að prjóna): Setjið fyrsta prjónamerki í byrjun á umferð, setjið annað prjónamerki eftir næstu 22-20-22-26-26-28 lykkjur (= bakstykki), setjið þriðja prjónamerki eftir næstu 6 lykkjur (= ermi), setjið fjórða prjónamerkið eftir næstu 22-20-22-26-26-28 lykkjurnar (= framstykki), nú eru eftir 6 lykkjur fram að fyrsta prjónamerki (= ermi). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! BERUSTYKKI: Prjónið síðan sléttprjón og RENDUR – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT í 2. umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 13-16-17-17-19-21 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu eru 160-180-192-200-216-236 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 17-21-23-23-25-28 cm frá eftir kanti í hálsmáli við miðju að aftan. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 22-24-26-28-30-32 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 48-52-56-60-65-72 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 32-38-40-40-42-44 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 48-52-56-60-66-74 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 32-38-40-40-42-44 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 0-0-0-0-1-2 lykkjur (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 108-116-124-136-148-164 lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og röndum. Prjónið þar til stykkið mælist ca 30 cm frá skiptingu í öllum stærðum – stillið af eftir heila rönd. Prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 16-20-20-24-24-28 lykkjur jafnt yfir = 124-136-144-160-172-192 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í 2½ cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 32-38-40-40-42-44 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjón 8 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 38-44-46-48-50-52 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-6-8-8-8 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið merkir byrjun á umferð. Byrjið umferð við prjónamerki og haldið áfram hringinn í sléttprjóni og röndum. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2 cm millibili alls 4-5-5-5-5-5 sinnum = 30-34-36-38-40-42 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist ca 40-38-37-35-33-32 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 3 cm að loka máli – ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis) – stillið af eftir heila rönd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-6-4-6-8-6 lykkjur jafnt yfir = 36-40-40-44-48-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 7. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2½ cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 43-41-40-38-36-35 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Diana wrote:
Отличные !
19.06.2019 - 19:05