DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11704.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Friends Forever

Hekluð peysa með laskalínu úr 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er heklað ofan frá og niður með röndum. Stærð S - XXXL.

DROPS 206-38
DROPS Design: Mynstur as-121
Garnflokkur C + C eða E
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
150-175-200-200-225-250 g litur 01, natur
50-50-50-75-75-75 g litur 16, svartur
25-25-25-50-50-50 g litur 19, karrí
25-25-25-25-25-25 g litur 12, daufbleikur
25-25-25-25-50-50 g litur 06, kóral
25-25-50-50-50-50 g litur 18, kirsuber
25-25-25-50-50-50 g litur 09, fjólublár
25-25-25-50-50-50 g litur 11, skógargrænn

HEKLFESTA:
13 stuðlar á breidd og 7 umferðir á hæðina með 2 þráðum = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 5,5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11704.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

30% AFSLÁTTUR á 6 tegundum af bómullargarni!
Tilboðið gildir til 12.04.2024

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------<br />
UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur, þ.e.a.s. hoppið yfir 1. lykkju frá fyrri umferð. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda stuðla í umferð (t.d. 58 kantlykkjur) og deilið stuðlum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 9,6.
Í þessu dæmi er aukið út með því að hekla 2 stuðla í sama stuðul til skiptis í ca 9. og 10. hvern stuðul.

RENDUR:
2 umferðir með 1 þræði natur og 1 þræði fjólublár
2 umferðir með 1 þræði natur og 1 þræði kirsuber
2 umferðir með 1 þræði natur og 1 þræði karrí
2 umferðir með 1 þræði natur og 1 þræði svartur
2 umferðir með 1 þræði natur og 1 þræði daufbleikur
2 umferðir með 1 þræði natur og 1 þræði kóral
2 umferðir með 1 þræði natur og 1 þræði svartur
2 umferðir með 1 þræði natur og 1 þræði skógargrænn
Endurtakið síðan 16 umferð til loka.

LASKALÍNA:
Aukið út um 16 stuðla þannig:
Aukið út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Heklið þar til 2 stuðlar eru eftir á undan prjónamerki, heklið 3 stuðla í næsta stuðul, heklið 1 stuðul í hvern og einn af næstu 2 stuðlum (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 stuðla), heklið 3 stuðla í næsta stuðul (= 4 stuðlar fleiri). Aukið út alls 16 stuðla í hverri útauknings umferð.
Aukið út um 8 stuðla þannig:
Aukið út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Heklið þar til 2 stuðlar eru eftir á undan prjónamerki, heklið 2 stuðla í næsta stuðul, heklið 1 stuðul í hvern og einn af næstu 2 stuðlum (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 stuðla), heklið 2 stuðla í næsta stuðul (= 2 stuðlar fleiri). Aukið út alls 8 stuðla í hverri útauknings umferð.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 stuðul hvoru megin við prjónamerki þannig: Heklið þar til 3 stuðlar eru eftir á undan prjónamerki, heklið 2 STUÐLAR SAMAN – sjá útskýringu að neðan, heklið 1 stuðul í hvern og einn af næstu 2 stuðlum (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), heklið 2 stuðla saman.

HEKLIÐ 2 STUÐLA SAMAN:
* Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring, ofan frá og niður. Ermar eru heklaðar í hring, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Heklið 58-60-62-66-68-72 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJUR, með heklunál 5,5 með 1 þræði í litnum svartur og 1 þræði í litnum skógargrænn (= 2 þræðir) og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. Heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull) – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju umferðina hringinn = 58-60-62-66-68-72 stuðlar.
Heklið 1 umferð með stuðlum jafnframt því sem aukið er út um 6-12-10-10-12-12 stuðla jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 64-72-72-76-80-84 stuðlar.
Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig (þetta er gert án þess að hekla): Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, setjið annað prjónamerki eftir næstu 22-26-26-28-30-32 stuðla (= bakstykki), setjið þriðja prjónamerki eftir næstu 10 stuðla (= ermi), setjið fjórða prjónamerki eftir næstu 22-26-26-28-30-32 stuðla (= framstykki), nú eru eftir 10 stuðlar fram að fyrsta prjónamerki (= ermi). HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

BERUSTYKKI:
Heklið síðan stuðla og RENDUR – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út fyrir LASKALÍNA í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma- sjá útskýringu að ofan, aukið út í hverri umferð þannig: Aukið út 16 stuðla alls 3-3-4-4-4-5 sinnum, síðan er aukið út um 8 stuðla alls 11-12-12-14-15-15 sinnum –
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Eftir síðustu útaukningu eru 200-216-232-252-264-284 stuðlar í umferð og stykkið mælist ca 20-21-23-26-27-29 cm frá eftir kanti í hálsmáli við miðju að aftan. Heklið áfram þar til stykkið mælist 22-24-26-28-30-32 cm.
Næsta umferð er hekluð þannig:
Heklið 57-62-67-73-78-85 stuðlar (= bakstykki), heklið 6-6-6-6-8-8 lausar loftlykkjur (= í hlið undir ermi), hoppið yfir 42-46-48-52-52-54 stuðla (= ermi, heklið 58-62-68-74-80-88 stuðla (= framstykki), heklið 6-6-6-6-8-8 lausar loftlykkjur (= í hlið undir ermi), hoppið yfir 42-46-48-52-52-54 stuðla (= ermi), heklið 1-0-1-1-2-3 stuðla (= bakstykki) og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð eins og áður. Síðan er heklað fram- og bakstykki og ermar til loka hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Haldið áfram hringinn með stuðlum og röndum. Það er heklaður 1 stuðull í hverja af 6-6-6-6-8-8 loftlykkjum í hlið undir hvorri ermi = 128-136-148-160-176-192 stuðlar. Haldið áfram þar til stykkið mælist ca 33 cm frá skiptingu í öllum stærðum – stillið af eftir heila rönd (= 2 umferðir). Klippið frá og festið enda. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Haldið áfram hringinn með stuðlum og röndum.
Byrjið á að hekla í 4.-4.-4.-4.-5.-5. loftlykkju af 6-6-6-6-8-8 loftlykkjum sem heklaðar voru í handveg á fram- og bakstykki þannig: Heklið 1 keðjulykkju, 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), 1 stuðull í hverja af næstu 2-2-2-2-3-3 loftlykkjum, 1 stuðull í hvern stuðul og endið með 1 stuðul í hverja af síðustu 3-3-3-3-4-4 loftlykkjum undir ermi = 48-52-54-58-60-62 stuðlar. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Þegar heklaðar hafa verið 2 umferðir frá skiptingu, fækkið um 2 stuðla mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 6-6-6-7-7-6 sinnum = 36-40-42-44-46-50 stuðlar. Haldið áfram þar til stykkið mælist ca 39-38-36-34-33-31 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 6 cm að loka máli – ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis) – stillið af eftir heila rönd (= 2 umferðir).
Heklið síðan 1 kant þar sem litaröðin hættir (eða haldið áfram með litaröð eins og áður þar til 4 umferðir eru til loka) þannig: Heklið 2 umferðir með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnum fjólublár (= 2 þræðir) og endið með 2 umferðir með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnum kirsuber (= 2 þræðir). Klippið frá og festið enda. Ermin mælist ca 45-44-42-40-39-37 cm frá skiptingu.
Heklið hina ermina á sama hátt.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið við miðju að aftan með 1 þræði í litnum svartur og 1 þræði í litnum skógargrænn (= 2 þræðir) og festið enda með 1 keðjulykkju í fastalykkju, heklið 1 loftlykkju (= 1 fastalykkja), heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun á umferð = 58-60-62-66-68-72 fastalykkjur. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 206-38

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag Lina wrote:

Hello, I don't really understand this part of the pattern "Work 57-62-67-73-78-85 double crochets (= back piece), 6-6-6-6-8-8 loose chain stitches (= in side under sleeve), skip 42-46-48-52-52-54 double crochets (= sleeve)" When working the loose stitches, should I slip stitch them after skipping?

04.11.2023 - 20:57

DROPS Design answered:

Dear Lina, the loose chain stitches will form an arch around the skipped double crochets and will be joined to the piece when you work the next double crochet, for the front/ back piece. There is no need to join with slip stitches. Happy crochetting!

05.11.2023 - 19:43

country flag Abigail wrote:

Where about on the body does the increasing on the yoke end, because it doesn’t look right to me and looks too wide? And do you do the sleeves first or the rest of the body first, and it seems like you do more rounds before working on these things, is that correct?

25.03.2023 - 04:25

DROPS Design answered:

Dear Abigail, you should "After the final increase there are 200-216-232-252-264-284 treble crochets on the round and the piece measures approx. 20-21-23-26-27-29 cm from the neck mid back. Then continue to crochet until the piece measures 22-24-26-28-30-32 cm." In the next row should you separate the sleeves and the body. Happy Crafting!

25.03.2023 - 09:53

country flag Sarah wrote:

Hi, maybe a silly question, never made a jumper before. When increasing do you count the increase. I need to increase on the 5 treble , so i crochet 5 then increase into same treble. Then another 5 but do you count from the increase or begin counting from the next treble. Thankyou

14.02.2022 - 21:18

DROPS Design answered:

Dear Sarah, do you mean raglan increases? you have to set a total of 4 markers for the raglan lines, you then first increase 16 trebles on each round - see RAGLAN: work until 2 trebles remain before the stitch with the marker, work 2 trebles in the next stitch, 1 treble in each of the next stitches (marker is between these 2 sts), 2 trebles in the next stitch. Can this help?

15.02.2022 - 09:05

country flag Netta *****5650 wrote:

I have started and now i started in increasing. How should I increase at the end of the round? I suppose to have 3 tr after the marker,but there isnt any room at the end of the round

29.01.2022 - 14:21

DROPS Design answered:

Dera Netta, at the beg of the round, work 1 tr, increase in next tr, continue the round increasing as explained under RAGLAN, until 2 sts remain before the end of the round, increase in next tr, finish with 1 tr in the last tr of the round = you have increased on each side of 2 tr on each marker. Happy crocheting!

31.01.2022 - 09:06

country flag Sonja wrote:

Hallo, warum benötigt die gehäkelte Variante doppelt so viel Wolle in Farbe Natur wie für den gestrickten Pullover? Kann das ein Fehler sein? Leider habe ich zu spät bemerkt, dass es beide Varianten gibt und befürchte nun viel zu wenig Wolle bestellt zu haben. Die Grammangaben für die anderen Farben sind ansonsten identisch. Vielen Dank schonmal!

02.11.2021 - 19:30

DROPS Design answered:

Liebe Sonja, der Pullover wird mit Streifen und jeweils 1 Faden Natur + 1 Faden von einer anderen Farbe gestrickt, deshalb braucht man viel mehr natur als den anderen Farben. Viel Spaß beim häkeln!

03.11.2021 - 08:14

country flag Emma wrote:

I've completed the first 62 chains and double crochet first round (for large size), but it's far too small to go over a standard size adult head. The pattern implies a circumference of 36cm at the neck (2x18cm), however the average head circumference is 55cm. I've watched your tutorial videos on chain stitch and double crochet to ensure I'm doing it correctly. Am I missing something? I don't want to continue with a jumper that won't go over my head! Thanks.

20.09.2021 - 09:51

DROPS Design answered:

Dear Emma, make sure that your foundation chain is not too tight (use a larger hook if necessary), so that the first round on neck with 62 stitches should be approx 48 cm circumference and be able to go over the head - then this circumference will be divided into both neck on front/back piece and shoulders to get 18 cm width for the neck when laying flat. Happy crocheting!

20.09.2021 - 11:27

country flag Elke Ziller wrote:

Die Farbreihenfolge im Text passt nicht zum Bild

13.09.2021 - 07:49

DROPS Design answered:

Liebe Frau Ziller, beachten Sie, daß der Pullover von oben nach unten gehäkelt wird - und die Halsblende (mit 1 Faden schwarz und 1 Faden waldgrün) wird am Ende gehäkelt. Viel Spaß beim häkeln!

13.09.2021 - 09:18

country flag Emma wrote:

How much ease do I add to get the same fit as the model? I don't have any similar fit jumpers to use as a comparison, thanks.

10.09.2021 - 17:55

DROPS Design answered:

Dear Emma, just take a jumper you have and like the shape to measure it and compare the measurements in the chart to find out the matching size - read more about sizing here. Happy knitting!

13.09.2021 - 08:16

country flag Stine wrote:

Hei, hvordan blir denne genseren om du bruker kun 1 tråd? Anbefales det helst å bruke 2?

13.08.2020 - 14:25

DROPS Design answered:

Hej Stine. För att få heklefastheten att stämma i denna oppskrift så måste du bruke 2 trådar. Vill du bruke kun 1 tråd så kommer du få en annan heklefasthet och då måste du bruke en annan oppskrift. Mvh DROPS Design

14.08.2020 - 08:08

country flag Swistix wrote:

Enfin un modèle raglan au crochet! Je le réjouis MAIS les couleurs sont horribles. Il serait bon de voir ce modèle en uni

17.09.2019 - 18:14