Ayse Sari wrote:
Hallo habe nach der Anleitung die Wolle bestellt ,bei diesem Modell muss man zwei Garne zusammen stricken dabei blieb am ende von der wolle drops Delight 05 Beige Grau Rosa mehr übrig als von der Drobs Delight 01 Grau könnten sie mir weiterhelfen
20.02.2021 - 11:35DROPS Design answered:
Liebe Frau Sari, so kann auch passieren, wenn man 2-Fädig strickt, kann man von 1 Garn etwas mehr benutzen/stricken. Gerne wird Ihnen Ihr DROPS Laden damit weiterhelfen. Viel Spaß beim stricken!
22.02.2021 - 07:57Marie Thouvenin wrote:
Bonjour, Merci pour ce joli modèle. Je suis en train d'entamer le bas du dos et devant. Quand je place mes mailles sur le fil et que je tourne, cela crée un trou. Comment faire pour éviter cela Merci Marie
29.12.2020 - 16:11DROPS Design answered:
Bonjour Mme Thouvenin, lorsque vous tricotez les rangs raccourcis du bas du pull, vous pouvez utiliser la technique de base en serrant le fil pour éviter les trous ou bien celles des mailles enveloppées (= voir ici sur l'endroit et là sur l'envers). Bon tricot!
04.01.2021 - 11:45THOUVENIN wrote:
Bonjour j'aimerai faire ce modèle mais il n'y a plus de gris en stock. Si je choisis la couleur n° 8 quel fil dois je joindre à la place du gris. Cordialement marie
25.11.2020 - 21:42DROPS Design answered:
Bonjour Mme Thouvenin, n'hésitez pas à contacter votre magasin - même par mail ou téléphone - pour toute assistance au choix des couleurs, on saura vous aider et vous conseiller. Bon tricot!
26.11.2020 - 10:28Uschi Warzecha wrote:
Hallo, das ist mein erster Pullover seit sehr langer Zeit, bin jetzt am abgerundeten Vorderteil angekommen und frage mich, ob die Maschen wirklich nur wie in der Anleitung (>>diese 3 Maschen zu den stillgelegten Maschen der vorderen Mitte legen, wenden, links stricken>>) - ohne Umschlag oder ähnliches - auf die stillgelegte Nadel geschoben werden? Viele Grüße
28.11.2019 - 11:42DROPS Design answered:
Liebe Frau Warzecha, es sind hier verkürzten Reihen, die können Sie nach Ihren gewönchlichen Technik stricken - hier finden Sie die Grundlage oder mit Umschlag - Hinreihen und Rückreihen. Viel Spaß beim stricken!
28.11.2019 - 12:08Maria Rosa Valmorbida wrote:
Buongiorno, mi piacciono molto i vostri modelli e vorrei capire se la taglia S si riferisce alla taglia italiana 42 grazie
14.11.2019 - 11:47DROPS Design answered:
Buongiorno Maria Rosa. Le taglie Drops vestono comodo. Alla fine delle spiegazioni, tova un grafico con le misure in cm. Confrontando le misure indicate con quelle di un maglione la cui vestibilità la soddisfa, riesce a trovare la misura giusta da lavorare. Buon lavoro!
14.11.2019 - 14:06Elżbieta wrote:
A mnie wychodzi po podziale robótki tył 78 a nie 77 coś robię nie tak?
10.10.2019 - 09:24DROPS Design answered:
Witaj Elżbieto! Coś tam się pewnie pomyliło po drodze, nie martw się, gdzieś na tyle po prostu przerób 2 o. razem na prawo i będzie 77. Miłej pracy!
05.11.2019 - 16:12Leila Sabio Sassaki wrote:
Hello! Please have some video demonstrating how to do the ELEVATION (for back of neck)?
09.10.2019 - 14:58Leila Sabio Sassaki answered:
I'm sorry... I just saw that there is an explanatory video... Was on the phone and had not appeared to me before...
09.10.2019 - 15:02Maria wrote:
Sehr schön, warte auf die Anleitung.
26.08.2019 - 23:22Strickse wrote:
Wunderschön! Den würde ich gerne nachstricken :-)
20.07.2019 - 16:04
November Flowers |
|
|
|
Prjónuð peysa með laskalínu úr 2 þráðum DROPS Delight. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 206-40 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 76 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 19. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 19. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. UPPHÆKKUN (á við um aftan í hnakka): Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun. Byrjið frá röngu og prjónið brugðið þar til prjónaðar hafa verið 7-7-8-8-9-9 lykkjur fram hjá prjónamerki í byrjun á umferð, snúið, herðið á þræði og prjónið 14-14-16-16-18-18 lykkjur slétt til baka. Snúið, herðið á þræði og prjónið 22-22-24-24-27-27 lykkjur brugðið, snúið, herðið á þræði og prjónið 29-29-32-32-36-36 lykkjur slétt til baka. Snúið, herðið á þræði og prjónið 36-36-40-40-45-45 lykkjur brugðið, snúið, herðið á þræði og prjónið 43-43-48-48-54-54 lykkjur slétt til baka. Snúið og prjónið brugðið til baka í byrjun á umferð. Færið prjónamerkið sem sýnir byrjun á umferð 14-14-15-17-18-20 lykkjur til hægri. Klippið þráðinn frá. Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er að neðan. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Aukið út alls 8 lykkjur í hverri útauknings umferð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með ½ númeri grófari prjónum. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Eftir kant í hálsmáli er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka til að flíkin passi betur og þá verður berustykkið aðeins hærra í hnakka. Hægt er að sleppa þessari upphækkun og þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – sjá útskýringu í uppskrift. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 76-80-84-88-92-96 lykkjur á stuttan hringprjón 4 með 1 þræði í litnum grár og 1 þræði í litnum beige/grár/bleikur (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-0-0-4-4-8 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 80-80-84-92-96-96-104 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð. Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan, eða fara beint áfram í BERUSTYKKI. BERUSTYKKI: Setjið 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar þannig: Fyrsta prjónamerkið er sett í byrjun á umferð, annað prjónamerki eftir 28-28-30-34-36-40 lykkjur (= bakstykki), þriðja prjónamerki eftir nýjar 12 lykkjur (= ermi), fjórða prjónamerki eftir 28-28-30-34-36-40 lykkjur (= framstykki), nú eru eftir 12 lykkjur fram að fyrsta prjónamerki (= ermi). Prjónið sléttprjón hringinn, JAFNFRAMT í 2. umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 18-21-23-25-27-30 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu eru 224-248-268-292-312-344 lykkjur í umferð. Prjónið áfram án útaukningar þar til stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá kanti í hálsmáli mitt að framan. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 65-71-77-85-92-102 lykkjur slétt (= bakstykki), setjið næstu 46-52-56-60-62-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 66-72-78-86-94-104 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 46-52-56-60-62-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 1-1-1-1-2-2 lykkjur sem eftir eru (= bakstykki). Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar er prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 144-156-172-188-208-228 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út. Byrjið umferð við prjónamerki í hægri hlið (þegar flíkin er mátuð) og prjónið áfram í sléttprjóni. Prjónið þar til stykkið mælist 20-20-19-19-18-18 cm frá skiptingu. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 72-78-86-94-104-114 lykkjur á bakstykki og prjónið 25-25-28-28-32-33 lykkjur á framstykki. Prjónið næstu 22-28-30-38-40-48 lykkjur og setjið síðan þessar lykkjur á þráð (= mitt að framan). Nú eru eftir 25-25-28-28-32-33 lykkjur á framstykki og fram að byrjun á umferð = 122-128-142-150-168-180 lykkjur í umferð. Nú byrjar bogalaga framstykki, þ.e.a.s. nú er prjónað sléttprjón fram og til baka þannig: * Prjónið sléttar lykkjur (rétta) þar til 3 lykkjur eru eftir og setjið þessar 3 lykkjur á sama þráð og lykkjur mitt að framan, snúið stykkinu, prjónið brugðið (ranga) þar til 3 lykkjur eru eftir og setjið þessar 3 lykkjur á sama þráð og lykkjur mitt að framan, snúið stykkinu *, prjónið frá *-* alls 1-1-2-2-4-5 sinnum = 116-122-130-138-144-150 lykkjur í umferð. * Prjónið sléttar lykkjur (rétta) þar til 2 lykkjur eru eftir og setjið þessar 2 lykkjur á sama þráð og lykkjur mitt að framan, snúið stykkinu, prjónið brugðið (ranga) þar til 2 lykkjur eru eftir og setjið þessar 2 lykkjur á sama þráð og lykkjur mitt að framan, snúið stykkinu *, prjónið frá *-* alls 10-10-10-10-9-8 sinnum = 76-82-90-98-108-118 lykkjur í umferð. Setjið lykkjur af þræði á sama hringprjón = 144-156-172-188-208-228 lykkjur. Prjónið síðan í hring til loka. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 36-36-40-44-52-56 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 180-192-212-232-260-284 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 2 cm er aukið út um 1 lykkju í hverri brugðinni einingu. Prjónið nú stroff þannig: * 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn. Þegar allt stroffið mælist 6 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. ERMI: Setjið 46-52-56-60-62-68 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 52-58-64-68-72-78 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota prjónamerkið aðeins síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 5-3½-3-2-2-1½ cm millibili alls 8-10-12-14-15-17 sinnum = 36-38-40-40-42-44 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 40-38-37-35-33-32 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-6-8-8-10-8 lykkjur jafnt yfir = 44-44-48-48-52-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Turid Eide wrote:
Skikkelig kul genser, venter på mønsteret
30.08.2019 - 14:17