Mists of Dover Jacket#mistsofdoverjacket |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Alpaca. Stærð S - XXXL.
DROPS 215-32 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 96 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 16) = 6. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna 5. og 6. hverja lykkju slétt saman. ÚTAUKNING (á við um ermar): Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, hvort fyrir sig. Síðan eru kanta að framan á framstykkjum prjónaðir. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna. Kantur í hálsmáli er prjónaður fram og til baka í lokin. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 96-104-112-120-132-144 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) með 1 þræði natur og 1 þræði sjávarþoka á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Haldið svona áfram með stroff (1. umferð = rétta): 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 5. Haldið áfram með sléttprjón og kantlykkjur eins og áður – JAFNFRAMT í 1. umferð er fækkað um 16-18-18-18-22-24 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA í útskýringu að ofan = 80-86-94-102-110-120 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10 cm, fækkið um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. Endurtakið úrtöku með 5 cm millibili alls 4 sinnum = 72-78-86-94-102-112 lykkjur. Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið: 3 lykkjur 1-1-1-1-2-2 sinnum, 2 lykkjur 0-0-1-3-3-4 sinnum og 1 lykkja 1-3-4-3-3-5 sinnum = 64-66-68-70-72-74 lykkjur. Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm, fellið af miðju 26-26-26-28-28-28 lykkjur fyrir hálsmáli. Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið síðan um 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 18-19-20-20-21-22 lykkjur á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. VINSTRA FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 48-52-56-60-64-72 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 4 með 1 þræði natur og 1 þræði sjávarþoka. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Haldið svona áfram með stroff: 1 kantlykkja í garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 5. Haldið áfram með sléttprjón og kantlykkjur eins og áður – JAFNFRAMT í 1. umferð er fækkað um 8-9-9-9-9-12 lykkjur jafnt yfir = 40-43-47-51-55-60 lykkjur. Þegar stykkið mælist 10 cm, byrjar úrtaka í hlið eins og á bakstykki – fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju í byrjun á umferð frá réttu. Eftir alla úrtöku eru 36-39-43-47-51-56 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, byrjar úrtaka í hlið fyrir handveg eins og á bakstykki – fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju í byrjun umferðar frá réttu. Eftir alla úrtöku eru 32-33-34-35-36-37 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm, fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá röngu: 8-8-8-9-9-9 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1 sinni og síðan 1 lykkju 4 sinnum = 18-19-20-20-21-22 lykkjur á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp (frá réttu) ca 70 til 90 lykkjur með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnum sjávarþoka á hringprjón 4, innan við 1 kantlykkju meðfram vinstra framstykki. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu jafnframt því sem lykkjur eru auknar út jafnt yfir til: 87-91-95-99-103-107 lykkjur (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4 + 3). Prjónið síðan frá réttu þannig (frá toppi): 1 kantlykkja sem prjónuð er slétt í öllum umferðum, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur slétt og 4 lykkjur í garðaprjóni. Haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón þar til kantur að framan mælist ca 3½ cm (stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu). Prjónið nú 1 umferð slétt frá röngu, fellið síðan af með sléttum lykkjum frá réttu. HÆGRA FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 48-52-56-60-64-72 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 4 með 1 þræði natur og 1 þræði sjávarþoka. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Haldið svona áfram með stroff: 1 kantlykkja í garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 5. Haldið áfram með sléttprjón og kantlykkjur eins og áður – JAFNFRAMT í 1. umferð er fækkað um 8-9-9-9-9-12 lykkjur jafnt yfir = 40-43-47-51-55-60 lykkjur. Þegar stykkið mælist 10 cm, byrjar úrtaka í hlið eins og á bakstykki – fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju í byrjun á umferð frá réttu. Eftir alla úrtöku eru 36-39-43-47-51-56 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, byrjar úrtaka í hlið fyrir handveg eins og á bakstykki – fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju í byrjun umferðar frá röngu. Eftir alla úrtöku eru 32-33-34-35-36-37 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm, fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá réttu: 8-8-8-9-9-9 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1 sinni og síðan 1 lykkju 4 sinnum = 18-19-20-20-21-22 lykkjur á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp (frá réttu) ca 70 til 90 lykkjur með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnum sjávarþoka á hringprjón 4, innan við 1 kantlykkju meðfram hægra framstykki. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu jafnframt því sem lykkjur eru auknar út jafnt yfir til: 87-91-95-99-103-107 lykkjur (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4 + 3). Prjónið síðan frá réttu þannig (neðan frá): 4 lykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón þar til kantur að framan mælist ca 2 cm (stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu). Nú eru gerð hnappagöt meðfram kanti að framan, efsta hnappagatið á peysunni er gert þegar kantur í hálsmáli er prjónaður – byrjið þess vegna með að staðsetja prjónamerki þar sem þau hnappagöt sem eftir eru, eiga að vera. Neðsta hnappagatið á að vera ca 3-2½-2-4-3-2 cm frá kanti að neðan og það efsta á að vera ca 7-7½-8-8-7-7½ cm frá kanti að ofan. Síðan eru þau 3-3-3-3-4-4 hnappagöt sem eftir eru í kanti að framan með staðsett með ca 8-8½-9-9½-8-8½ cm millibili. Fellið af fyrir 1 hnappagati þannig: Prjónið 2 lykkjur saman og sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður slétt eða brugðið inn í mynstur í næstu umferð. Prjónið þar til kantur að framan mælist ca 3½ cm, prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 42-46-46-50-50-50 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjón 4 með 2 þráðum í litnum sjávarþoka. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Skiptið yfir í 1 þráð í litnum natur og 1 þráð í litnum sjávarþoka. Prjónið stroff með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stroffið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni – JAFNFRAMT í 1. umferð er fækkað um 4-6-4-6-4-4 lykkjur jafnt yfir = 38-40-42-44-46-46 lykkjur. Þegar stykkið mælist 12-12-12-12-11-11 cm, aukið út um 1 lykkju innan við kantlykkju í hvorir hlið – sjá ÚTAUKNING í útskýringu að ofan. Endurtakið útaukningu með 3½-3-3-2½-2½-2 cm millibili alls 11-12-12-13-14-16 sinnum = 60-64-66-70-74-78 lykkjur. Þegar stykkið mælist 50-49-48-47-46-44 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla), fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorir hlið: 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 3 sinnum, 1 lykkja 0-1-2-3-4-5 sinnum og síðan 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 55 cm. Fellið síðan af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru, stykkið mælist ca 56 cm í öllum stærðum. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma kant í kant. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið stuttan hringprjón 4 og 1 þráð í litnum natur og 1 þráð í litnum sjávarþoka, byrjið frá réttu og prjónið upp ca 82-90 lykkjur í kringum hálsmál (einnig yfir kanta að framan á hvoru framstykki), lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4 + 2 lykkjur. Prjónið frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 1 lykkja brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Í næstu umferð frá réttu er síðasta hnappagatið gert, það er gert í línu fyrir ofan þar sem fellt var af fyrir öðru hnappagatinu í kanti að framan JAFNFRAMT er prjónað þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til kantur í hálsmáli mælist ca 3 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu, skiptið yfir í 2 þræði í litnum sjávarþoka og prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið laust af með sléttum lykkjum í næstu umferð. FRÁGANGUR: Saumið ermar í. Saumið saum undir ermum og saum niður meðfram hliðum í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mistsofdoverjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 215-32
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.