DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Nord yarn
DROPS Nord
45% Alpakka, 30% Polyamide, 25% Ull
frá 880.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5280.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

City Sweetheart

Prjónuð húfa, vettlingar og hálsskjól úr DROPS Nord. Stykkið er prjónað með köðlum, klukkuprjóni og útaukningu fyrir axlarsæti.

DROPS 214-29

#citysweetheartset

DROPS Design: Mynstur no-039
Garnfokkur A
-------------------------------------------------------

ALLT SETTIÐ:

STÆRÐ:
S/M - M/L - XL/XXL

EFNI:
DROPS NORD frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-300-300 g litur 08, þoka

HÚFA:

STÆRÐ:
S/M
Höfuðmál: 54/56 cm

EFNI:
DROPS NORD frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100 g litur 08, þoka

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 40 cm.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

VETTLINGAR:

STÆRÐ:
S/M

EFNI:
DROPS NORD frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100 g litur 08, þoka

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

HÁLSSKJÓL:

STÆRÐ
S/M - M/L - XL/XXL
Mál:
Breidd: ca:
Hæð: 23-25-27 cm
Axlavídd: ca 32-35-39 cm

EFNI:
DROPS NORD frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-150-150 g litur 08, þoka

PRJÓNFESTA:
23 lykkjur á breidd og 30 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Nord
DROPS Nord
45% Alpakka, 30% Polyamide, 25% Ull
frá 880.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5280.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5.
Vettlingar: Sjá mynsturteikningu A.6 og A.7.
Hálssskjól: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.8

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 11 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 2,8.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um vettling):
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.

ÚTAUKNING-3:
Aukið út hvoru megin við 21 lykkjur fyrir axlarsæti. Lykkjufjöldinn er alltaf 21 lykkja og lykkjur, lykkjur eru auknar út á framstykki og bakstykki. Aukið út 4 lykkjur í hverri umferð, aukið út 1 lykkju hvoru megin við hvert A.8 þannig:
Á UNDAN A.8:
Nýja lykkjan verður snúin til hægri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.
Á EFTIR A.8:
Nýja lykkjan verður snúin til vinstri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf.

HÚFA:
Fitjið upp 120 lykkjur á hringprjón 3 með Nord. Prjónið 1 umferð slétt.
Prjónið síðan A.1 hringinn í umferð í 15 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Snúið stykkinu þannig að réttan á stykki komi að innanverðu á húfunni og prjónað er síðan í gagnstæða átt (þannig að réttan á uppábroti snúi út þegar brotið er uppá húfuna þegar húfan hefur verið prjónuð til loka).
Næsta umferð er prjónuð þannig: * prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 11 lykkjurnar og aukið út 4 lykkjur jafnt yfir – sjá útaukning-1, prjónið A.2 (= 19 lykkjur) *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum = 136 lykkjur.
Prjónið nú mynstur þannig: * A.3 (= 15 lykkjur), A.2 *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum.
Haldið svona áfram hringinn með A.2 þar til stykkið mælist ca 26 cm, endið eftir heila mynstureiningu af A.3. Prjónið A.4 yfir A.3 og prjónið A.5 yfir A.2. Þegar mynsturteikningin hefur verið prjónuð til loka á hæðina eru 32 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið 1 umferð þar sem allar lykkjur eru prjónaðar 2 og 2 slétt saman = 16 lykkjur.
Klippið þráðinn frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 34 cm (= 26 cm með 7 cm uppábroti neðst niðri).

-------------------------------------------------------

VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.

HÆGRI VETTLINGUR:
Fitjið upp 42-46 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með Nord. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan mynstur A.6 umferðina hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið áfram mynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 5-6 cm – stillið af að næsta umferð sé umferð sem er eins og 1. umferð í A.6, prjónið A.7 yfir fyrstu lykkju í umferð, þær lykkjur sem eftir eru halda áfram eins og áður. Þegar A.7 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 54-58 lykkjur í umferð og 13 lykkjur fyrir þumalop (lykkjur frá A.7). Prjónið síðan án útaukningar þar til stykkið mælist 10-12 cm. Í næstu umferð eru 13 þumallykkjur á þráð, haldið áfram hringinn með mynstur eins og áður og fitjið jafnframt upp 1 nýja lykkju á prjóninn yfir lykkjur á þræði = 42-46 lykkjur. Prjónið áfram þar til vettlingurinn mælist 22-25 cm (nú eru eftir ca 2 cm að loka máli, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd). Næst umferð er prjónuð þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman þar til 1 lykkja er eftir, prjónið síðustu lykkjuna í umferð og fyrstu lykkju í næstu umferð slétt saman = 21-23 lykkjur. Prjónið 2 umferðir slétt. Prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman þar til 1 lykkja er eftir, 1 lykkja slétt = 6-6 lykkjur. Klippið þráðinn frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 24-27 cm ofan frá og niður.

ÞUMALL:
Setjið til baka 13-13 þumallykkjur af þræði á sokkaprjón 3, prjónið að auki upp 2 lykkjur aftan við þumal = 15-15 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til sjálfur þumallinn mælist ca 5½-6½ cm (nú eru eftir ca ½ cm að loka máli, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd). Prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð. Klippið þráðinn frá, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel.

VINSTRI VETTLINGUR:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægri vettlingur.

------------------------------------------------------

HÁLSSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón þar til útaukning hefur verið gerð til loka. Fellið síðan lykkjur af fyrir öxl og framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig.

HÁLSSKJÓL:
Fitjið upp 108-116-124 lykkjur á hringprjón 3,5 með Nord. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan mynstur þannig: * Prjónið A.8 (= 21 lykkjur), A.1 yfir næstu 32-36-40 lykkjur, prjónið fyrstu lykkjuna í A.1 *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð.
Haldið svona áfram hringinn þar til stykkið mælist 8 cm, setjið 1 prjónamerki hér, stykkið er nú mælt héðan.
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert A.8 – sjá ÚTAUKNING-3.
Aukið svona út í hverri umferð alls 28-32-36 sinnum = 220-244-268 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka er næsta umferð prjónuð eins og næst síðasta umferð í A.1 þannig: Fellið af fyrstu 21 lykkjur fyrir öxl, prjónið næstu 89-101-113 lykkjur (= bakstykki), fellið af næstu 21 lykkjur fyrir öxl, prjónið síðustu 89-101-113 lykkjur (= framstykki).

FRAMSTYKKI:
Haldið áfram fram og til baka með mynstri eins og áður, en ysta lykkjan í hvorri hlið er prjónuð í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 23-25-27 cm frá prjónamerki er fellt af með sléttum lykkjum yfir lykkjur í klukkuprjóni/sléttum lykkjum og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Klippið þráðinn frá og festið.

BAKSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og framstykki.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 21.12.2020
Mynsturtexta hefur verið bætt við: prjónið 2 lykkjur slétt saman = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var slétt
Yfirfarið á vefsvæði: 05.04.2024
Mynsturteikning hefur verið uppfærð. A.2.

Mynstur

1 lykkja slétt = 1 lykkja slétt
1 lykkja brugðið = 1 lykkja brugðið
1 klukkuprjónslykkja: Prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna fyrir neðan næstu lykkju = 1 klukkuprjónslykkja: Prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna fyrir neðan næstu lykkju
Sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat = Sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat
setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur af kaðlaprjóni = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur af kaðlaprjóni
setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
prjónið 3 lykkjur slétt saman = prjónið 3 lykkjur slétt saman
lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni af prjóninum = lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni af prjóninum
prjónið 2 lykkjur slétt saman = prjónið 2 lykkjur slétt saman
lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var slétt = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var slétt
engin lykkja, hoppaðu yfir þessa rúðu = engin lykkja, hoppaðu yfir þessa rúðu
Diagram for DROPS 214-29
Diagram for DROPS 214-29
Diagram for DROPS 214-29
Diagram for DROPS 214-29

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #citysweetheartset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 214-29

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (30)

country flag Lilly skrifaði:

Ich stricke die Mütze Modell City Sweetheart. Jetzt hänge ich bei den Abnahmen von Strickschrift A4. Was bedeuten die schrägen Striche über 2 Maschen? Ich vermute das heisst immer 2 zusammenstricken, aber sicher bin ich nicht. Ich habe auch nirgends eine Erklärung dafür gefunden. Danke für schnelle Hilfe!

22.12.2020 - 12:32

DROPS Design svaraði:

Liebe Lilly, Verzeihung für die verspäte Antwort, Ihre Frage wurde leider übersehen; diese Striche sind die Abnahmen von 9. (= 2 Maschen rechts zusammenstricken) + 10. Symbol (= 1 Masche wie zum Rechtsstricken abheben, 1 Masche rechts, die abgehobene Masche überziehen). Viel Spaß beim stricken!

26.04.2021 - 13:49

country flag Caroline JB skrifaði:

Bonjour, Dans l'explication du plastron, il est indiqué : "Augmenter maintenant 1 maille de chaque côté de chaque A.8 – voir AUGMENTATIONS-3. Augmenter ainsi 28-32-36 fois au total tous les 2 tours = 220-244-268 mailles." Et dans l'explication de "augmentation 3", il est indiqué : "Augmenter 4 mailles tous les tours, 1 maille de chaque côté de A.8". Doit-on augmenter tous les tours ou tous les deux tours? Merci beaucoup!!!

20.12.2020 - 17:55

DROPS Design svaraði:

Bonjour Caroline, il était entendu sous AUGMENTATIONS-3 que l'on augmente 4 mailles à chaque fois que l'on tricote ce tour, augmentez bien tous les 2 tours comme indiqué dans les explications, la formulation a été changée, merci pour votre retour. Bon tricot!

21.12.2020 - 08:18

country flag Riopel Lucie skrifaði:

Bonjour, Pour le bonnet, diagramme numéro A4, est ce que c’est tricoter 2 mailles ensembles ou 3. Merci!

10.12.2020 - 22:45

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Riopel, il semble qu'il manque la légende de ce symbole, effectivement, il faudra tricoter 2 mailles ensemble à l'endroit à la fin de la 1ère torsade et glisser 1 m à l'endroit, tricoter 1 maille endroit et passer la maille glissée par-dessus la maille tricotée après la maille envers = au début de la 2ème torsade, merci pour votre retour, la correction sera faite dès que possible. Bonne continuation!

11.12.2020 - 07:28

country flag Cecilia Larsson skrifaði:

Hej! Jag känner mig förvirrad över att på diagramet visas två gånger rättmäskor fast med olika täcken. Är det tryckfel eller? Hur kan jag veta vilken av de är rätt? Tack för svaret/Cecilia

25.11.2020 - 21:45

DROPS Design svaraði:

Hej Cecilia. Det var ett skrivfel på den svenska översättningen, tack för info! Detta är nu rättat. Mvh DROPS Design

26.11.2020 - 08:10

country flag Lucie Riopel skrifaði:

Merci pour la réponse. Je comprends que l'envers est vers moi mais comment faut il faire pour les aiguilles. Ma première aiguille avec le fil de la pelote est vers moi et l'autre que je dois tricoter en versle haut. Est-ce cela que vous voulez dire? Merci

24.11.2020 - 20:43

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Riopel, vous pouvez glisser la première maille (vous la tricoterez à la fin du tour), ou bien utiliser la technique des jetés des rangs raccourcis: avant de retourner l'ouvrage sur l'envers, passez le fil devant l'ouvrage, glissez la dernière m du tour, remettez le fil derrière l'ouvrage, remettez la dernière maille du tour sur l'aiguille gauche, tournez votre ouvrage pour tricoter maintenant sur l'endroit et tricotez simplement en rond. Bon tricot!

25.11.2020 - 07:32

country flag Riopel Lucie skrifaði:

Bonjour, Pour le bonnet, je ne comprends pas lorsque c’est écrit tricoter dans le sens opposé . Que faut-il faire?

24.11.2020 - 12:08

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Riopel, cela veut dire que vous tournez l’ouvrage, l’envers est maintenant sur l’endroit, et commencez a travailler dans l’autre sens. Bon tricot!

24.11.2020 - 13:38

country flag Jana skrifaði:

Vkusné,elegantní,určitě upletu.

08.08.2020 - 17:26

country flag Carmen-Gabriela skrifaði:

Diese Art Mütze sitzt schön fest und ist trotzdem dehnbar. Mein Mann will jetzt schon die Gleiche:)!!! - Fäustlinge später:)

07.06.2020 - 17:56

country flag Mary skrifaði:

Nice warm hat

05.06.2020 - 00:27

country flag Dea skrifaði:

Mi piace molto il cappello.

04.06.2020 - 21:14