Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Þetta mynstur hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að sjá leiðréttinguna/arnar.
= sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið | |
= prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman | |
= prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman | |
= fækkið um 2 lykkjur þannig: Prjónið næstu 3 lykkjur (+ uppslátt sem tilheyrir lykkjum) slétt saman (= 2 lykkjur færri) | |
= aukið út um 2 lykkjur í sléttu lykkjuna og uppsláttinn með því að prjóna 3 lykkjur í lykkju og uppsláttinn þannig: Prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman, en bíðið með að lyfta lykkjunni af og uppslættinum á vinstri prjón, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið sömu lykkju og uppsláttinn slétt saman einu sinni til viðbótar, sleppið síðan sléttu lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af vinstri prjóni (= 2 lykkjur fleiri). Prjónið síðan nýjar lykkjur í klukkuprjóni, en athugið að í fyrstu umferð á eftir umferð með útaukningum, prjónið brugðnar lykkjur í útaukningu brugðið án þess að prjóna saman með uppslætti, þar sem uppsláttur hefur ekki verið gerður. | |
= þessi umferð er prjónuð með þoka | |
= þessi umferð er prjónuð með gallabuxnablár |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Catching a Mermaid |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónuð húfa og hálsskjól úr DROPS Air. Stykkið er prjónað í tveggja lita klukkuprjóni.
DROPS 214-26 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Hálsskjól: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á stuttan hringprjón. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 99-108 lykkjur á hringprjóna 5 með litnum þoka. Prjónið mynstur í hring þannig: * Prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* hringinn í umferð = 66-72 lykkjur. Prjónið nú mynstur A.1 hringinn í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 4-5 cm, prjónið með tveggja lita klukkuprjóni og mynstri eins og útskýrt er í A.2. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, endurtakið allt mynstrið 1 sinni til viðbótar á hæðina, síðan eru prjónaðar 10 umferðir 1 sinni til viðbótar. Þegar stykkið mælist ca 18-19 cm. Prjónið nú A.3 yfir A.2. Þegar allt A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 22-24 lykkjur eftir í umferð. Prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman = 11-12 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 24-25 cm ofan frá og niður. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. HÁLSSKJÓL: Fitjið upp 99-108 lykkjur með þoka á hringprjón 6. Prjónið mynstur í hring þannig: * Prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 66-72 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð. Nú er mynstur A.1 prjónað umferðina hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 4-5 cm, prjónið tveggja lita klukkuprjón og mynstur eins og útskýrt er í A.2 umferðina hringinn. Þegar allt A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru prjónaðar 2 fyrstu umferðirnar í mynsturteikningu þar til stykkið mælist alls 18-22 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið uppsláttinn af slétt eins og eigin lykkja. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (20)
PJ wrote:
Great, thanks. I'm now getting it (I think) but I'm now getting into issues working A1. I'll have another go but I suspect this may just be too advanced for me.
18.12.2023 - 10:43PJ wrote:
Like Aruna, I am not understanding the initial decrease. For each set of 3 stitches on the left needle, I am knitting 2 together, making 1 yarn yarn over stitch, and slipping 1 stitch. So continue to have 3 stitches. Pattern suggest this should be a decrease. Your response to Aruna was to 'knitting 2 sts together, YO, slip 1 as if to P' which is the same, i.e., no decrease. How are you making the 'yarn overs belong to the slipped stitch'?
17.12.2023 - 13:14DROPS Design answered:
Dear PJ, for the English rib pattern you work 1 stitch with a yarn over. This yarn over is not counted as a stitch, as it is not considered technically an increase. This yarn over will be worked together with a slipped stitch a few rows afterwards. In the pattern stitch counts, the yarn overs in the English rib are therefore not included so, since you have 1 decrease, it will be considered as having decreased 1 stitch. You can read more on the English rib here: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=67&cid=19. Happy knitting!
17.12.2023 - 19:47Daniela wrote:
Buongiorno. Per eseguire il cappello dite di seguire il diagramma A1 e A3, ma poi nella descrizione parlate del diagramma A1 e A2! Inoltre cosa significa “ eseguire il diagramma A3 su A2” ?? Grazie
23.09.2023 - 21:21DROPS Design answered:
Buonasera Daniela, nelle indicazioni all'inizio del modello è riportato che per il cappello si devono seguire i diagrammi A.1-A.3, quindi dal diagramma A.1 al diagramma A.3; una volta finito il diagramma A.2 si prosegue con A.3 sulle maglie lavorate in A.2. Buon lavoro!
25.09.2023 - 23:08Jenni wrote:
Jeg sliter med råd 9 på A.2: " strikk de neste 3 maskene rett sammen (og kastene some hører til maskene". Om det skal felles 2 masker, strikkes det totalt 3 masker sammen? Er det ikke flere om de kastene som hører til også strikkes sammen?
23.08.2023 - 21:24DROPS Design answered:
Hei Jenni. Om du ser på raden under 1. diagramikon på 9.rad, så ble det strikket slik: lag 1 kast om pinnen, ta 1 maske løs av pinnen som om den skulle strikkes vrang, strikk kastet og den løse masken vrang sammen og lag 1 kast om pinnen, ta 1 maske løs av pinnen som om den skulle strikkes vrang = 3 masker + 2 kast. Når du da skal strikket 1. diagramikon på 9.rad strikkes det slik: 1 maske + kast + 1 maske vrang + 1 maske + 1kast RETT SAMMEN = 2 masker felt. Er usikker på hva du mener med: " Er det ikke flere om de kastene som hører til også strikkes sammen". mvh DROPS Design
28.08.2023 - 13:14Fransje wrote:
Wenn ich die Maschenprobe für die Mütze vergleiche mit den Anzahl der Maschen die ich für die Mütze aufsetzen muss, komme ich auf einem Kopfumfang der Mütze von ungefähr 70 cm ( 99:14x10 ). Ist das nicht viel zu weit für eine Kopfumfang von 54/56 cm? Oder mache ich da einen Denkfehler.
04.02.2023 - 14:00DROPS Design answered:
Liebe Fransje, die Mütze beginnt man mit 99 Maschen aber bei der 1. Runde wird man abnehmen: * 2 Maschen rechts zusammenstricken, 1 Umschlag arbeiten, 1 Masche wie zum Linksstricken abheben *, von *-* in der ganzen Runde wiederholen = 66 Maschen - so ist es nur noch ca 47 cm (Muster ist aber elastisch genug um einen Kopf von 54/56 cm zu passen). Viel Spaß beim stricken!
06.02.2023 - 15:24Irene Motti wrote:
Vielen Dank für dieses hübsche Muster, das sich viel leichter stricken lässt, als man vermutet. Die Mütze sieht so hübsch aus, dass ich direkt eine zweite stricken werde. ;-) Dabei frage ich mich erneut, warum ich nach der Maschenaufnahme direkt 1/3 der Maschen wieder abnehme. Ist es, damit die erste Reihe nicht zu eng ist? Das löse ich eigentlich immer, in dem ich die Maschen auf einer größeren Nadel aufnehme. Dank vorab!
21.05.2022 - 21:00DROPS Design answered:
Liebe Frau Motti, bei dem Bündchen braucht man mehr Maschen in der Breite als wenn man das Patentmuster strickt, deshalbt schlägt man mehr Maschen und dann wird 1/3 der Maschen abgenommen. Viel Spaß beim stricken!
23.05.2022 - 08:06Audrée wrote:
Hello! I made several attempts at this pretty neck warmer(set up row)but to no avail. It says: work patt in the round but there is no mention of joining the stitches. I tried both ways, by joining or as if working with straight needles but the problem starts when knitting A1. The working yarn is at the front on the right needle, before the last slipped stitch so how to do a yarn over as specified in the first square? For the set up row, the yarn stays at the front before K2 together? Thanks!
25.01.2022 - 22:51DROPS Design answered:
Dear Audree, the neckwarmer is worked in the round, this means after you have cast on the stitches you have to join and work in the round as explained on 1st round, then work A.1 over all stitches (in the round, read all rows from the right towards the left). When working the 1st round, work *K2 tog, place yarn at the front, slip 1 as if to P*, when working the next K2 tog, the yarn will automatically "cover" the slipped stitch. See the video to English Rib in the round with 2 colours. Happy knitting!
26.01.2022 - 08:57Karen Marie Davidsen wrote:
På oppskriften Mermaid til Drops Air står garnmengde 50 gram av hver av de to fargene, dvs 100 totalt for hele settet, både lue og hals. Er dette riktig? Har kjøpt kun de to nøstene, så håper virkelig d. Karen-Marie
22.04.2021 - 11:48DROPS Design answered:
Hei Karen. DROPS Air har en lang løpelengde (140 meter pr 50 gram). Om man overholder strikkefastheten skal garnmengden stemme. mvh DROPS design
03.05.2021 - 10:49Veerle wrote:
Bij de eerste naald loop ik al vast ! Als ik precies doe wat er staat blijft het aantal steken hetzelfde ! Haal ik de lus over de afgehaalde steek dan kom ik wel uit, maar dan heb ik de volgende naald geen omslag meer om samen te breien met de afgehaalde steek ? Moet er iedere naald geminderd worden ?
20.02.2021 - 11:17DROPS Design answered:
Dag Veerle,
Het aantal steken blijft inderdaad hetzelfde; je telt de omslagen niet mee. En je hoeft de omslagen dus ook niet over te halen.
23.02.2021 - 13:19Donatella Loss wrote:
Il punto invece di risultare una costa inglese, risulta attorcigliato....anche dopo aver guardato il tutorial. Poi non capisco dagli schemi dati come può risultare una riga in rilievo chiara che si interseca....
07.02.2021 - 09:53DROPS Design answered:
Buonasera Donatella, le istruzioni sono corrette, la riga in rilievo chiara si ottiene proprio con la lavorazione a coste inglesi. Buon lavoro!
07.02.2021 - 22:43