Anita skrifaði:
I've been knitting socks with Drops Delight for ages already and always start knitting from the inside of the skein. One skein for the 1st sock and a second skein for the 2nd sock. I was wondering about the colour pattern this time as there didn't seem to be a match. It now turns out one skein started from the inside and the other skein from the outside. They are completely opposite. I didn't think this was supposed to happen. Is that a "quality control" issue?
18.05.2021 - 14:24DROPS Design svaraði:
Dear Anita, first of all, the dye pattern of DROPS Delight is always unique, some variables are actually expected, this uniqueness is the charm of the yarn. Also, the color repeat is not necessarily symmetric from each side. Also, did you check, are your two balls were from the same dyelot?
18.05.2021 - 23:00
Maria skrifaði:
Buongiorno. Le istruzioni per le diminuzioni per la punta non sono complete, mancano alcune parole (eng.- decreasing for toes on each side of both markers as follows: Before marker: Knit 2 together. After marker: Knit 2 twisted together. ita.-Prima del segnapunti: lavorare 2 maglie insieme a diritto ritorto.)
02.12.2020 - 15:42DROPS Design svaraði:
Buongiorno Maria, grazie per la segnalazione. Abbiamo corretto il testo in italiano. Buon lavoro!
02.12.2020 - 15:53
Joelle Duchemin skrifaði:
I believe that the size of the needles should read 3.5mm ??
01.12.2020 - 23:48DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Duchemin, these socks are worked on needle size 2,5 mm with a tension of 26 sts x 34 rows stocking stitch = 10 x 10 cm - remember to always check your tension and adapt needle size if required - read more about tension here. Happy knitting!
02.12.2020 - 07:55
Kelsi skrifaði:
When it says "insert one marker in the piece" before making the heel flap, where is the marker supposed to go? Later it talks about two markers. Is it one on each side?
29.11.2020 - 14:53DROPS Design svaraði:
Dear Kelsi, the marker after decreases for heel should be inserted in stitches - this marker will be used to measure the lenght of foot from - the 2 markers just afterwards should be on each side of the stitches for upper foot - the ones you put aside before working heel. Happy knitting!
30.11.2020 - 09:18
Bente skrifaði:
Where had to stay polar light
08.06.2020 - 20:42
Bente skrifaði:
The colur on the stockings is reminiscens of polar ligger in the Winther in Denmark, Norway and Greenland
08.06.2020 - 20:39
Monster Mash#monstermashsocks |
|
![]() |
![]() |
Prjónaðir sokkar úr DROPS Delight. Stærð 35 - 43.
DROPS 214-55 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-8-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-8-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 14-14-16 lykkjur eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKUR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður, prjónað er í hring á sokkaprjóna niður að hæl. Hællinn er prjónaður fram og til baka áður en prjónað er í hring þar til fóturinn hefur verið prjónaður til loka. SOKKUR: Fitjið upp 60-64-68 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með Delight. Prjónið 1 umferð sléttprjón. Haldið áfram með stroff = 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í 4 cm. Prjónið síðan sléttprjón – JAFNFRAMT í 1. umferð er fækkað um 6-6-6 lykkjur jafnt yfir = 54-58-62 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12-14-16 cm, haldið eftir fyrstu 26-28-30 lykkjum á prjóni fyrir hæl og síðustu 28-30-32 lykkjur eru settar á þráð (= mitt ofan á fæti). Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur í 5-5½-6 cm. Setjið 1 prjónamerki í stykkið. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 13-14-16 lykkjur hvoru megin við hæl og þær 28-30-32 lykkjur af þræði eru settar til baka á prjóninn = 68-72-80 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 28-30-32 lykkjur ofan á fæti. Haldið áfram í sléttprjóni hringinn – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á undan fyrra prjónamerki á fæti snúnar slétt saman og prjónið 2 fyrstu lykkjur á eftir seinna prjónamerki á fæti slétt saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 8-8-10 sinnum = 52-56-60 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 18-19-21 cm frá prjónamerki á hæl (= 4-5-6 cm að loka máli). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, þannig að það verða 26-28-30 lykkjur bæði ofan á fæti og undir fæti. Haldið áfram í sléttprjóni – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin þannig: Á undan prjónamerki: 2 lykkjur slétt saman. Á eftir prjónamerki: 2 lykkjur snúnar slétt saman. Endurtakið úrtöku í hvorri hlið í annarri hverri umferð alls 4-7-9 sinnum og síðan í hverri umferð 6-3-2 sinnum = 12-16-16 lykkjur eftir á prjóni. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar saman 2 og 2. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið enda vel. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #monstermashsocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 214-55
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.