Katia skrifaði:
Hello! I am knitting the beginning of neck warmer, size L. It says here:Cast on 58 stitches. and then it says, work rib 20 stitches + 26 stitches + 6 stitches = 52 stitches! How many should it be, please help!?
13.02.2021 - 21:11DROPS Design svaraði:
Hi Katia, There are 20 stitches in rib, then purl 2, knit 1, 26 stitches in rib , purl 2, knit 1 and rib over the final 6 stitches. This adds up to 58 stitches, Happy knitting!
15.02.2021 - 08:00
Diane Villeneuve skrifaði:
Pour le modèle Cocoa Beans no : ee-709 , J'ai fait le bonnet il est parfait. Je suis rendue au plastron mais je ne saisie pas le départ ? au dessus? et les 6 dernières mailles.
13.01.2021 - 01:31DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Villeneuve, tricoter *1 maille envers, 1 maille endroit* au-dessus des 18 premières mailles signifie tricoter les 18 premières mailles en côtes 1 maille envers/1 maille endroit. De même pour les 6 dernières mailles que vous allez tricoter en répétant de *-* autrement dit en côtes (1 maille envers, 1 maille endroit) x 3. Bon tricot!
13.01.2021 - 07:29
Cocoa Beans Set#cocoabeansset |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð húfa, hálsskjól með axlarsæti og vettlingar úr DROPS Snow. Allt settið er prjónað með áferðamynstri.
DROPS 214-23 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1. Hálsskjól: Sjá mynsturteikningu A.2. Vettlingar: Sjá mynsturteikningu A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um efst á húfu): Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). ÚTAUKNING (á við um útaukningu fyrir axlarsætir á hálsskjóli): Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. ------------------------------------------------------ BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. Brotið er uppá neðstu 9 cm á húfunni. HÚFA: Fitjið upp 54-56 lykkjur á stuttan hringprjón 7 með Snow. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 12 cm. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 8 og prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 18-19 cm frá uppfitjunarkanti, prjónið A.1 hringinn. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið afgang af húfu í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 29-30 cm, byrjar úrtaka efst á húfu og fækkið lykkjum eins og útskýrt er að neðan. Setjið 6-7 prjónamerki með 9-8 lykkjur á milli prjónamerkja (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Í fyrstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við 6-7 prjónamerki – sjá ÚRTAKA (= 12-14 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í 3.-4. hverri umferð alls 3 sinnum á hæðina = 18-14 lykkjur eftir. Prjónið 1 umferð án úrtöku. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 9-7 lykkjur eftir. Klippið frá. Þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 35-37 cm ofan frá og niður. Brjótið uppá neðstu 9 cm á húfunni. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Lykkjur eru auknar út fyrir axlarsæti í hvorri hlið. Síðan skiptist stykkið – bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig til loka. HÁLSSKJÓL: Fitjið upp 50-58 lykkjur á stuttan hringprjón 7 með Snow. Prjónið stroff hringinn þannig (frá vinstri öxl að aftan, séð þegar hálsskjólið er mátað): * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt * , prjónið frá *-* yfir fyrstu 18-20 lykkjur, prjónið 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, prjónið frá *-* yfir næstu 22-26 lykkjur, prjónið 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, prjónið frá *-* yfir þær 4-6 lykkjur sem eftir eru. Haldið svona áfram með stroff í 10 cm, eða að óskaðri lengd. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Prjónamerkin eru sett á milli lykkja og prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti. Fyrsta prjónamerkið er sett í byrjun á umferð, teljið 13-13 lykkjur (= bakstykki), 2. prjónamerki er sett á undan næstu lykkju, teljið 12-16 lykkjur (= öxl – 2 lykkjur brugðið sitja mitt í þessum 12-16 lykkjum), 3. prjónamerki er sett á undan næstu lykkju, teljið 13-13 lykkjur (= framstykki), 4. prjónamerki er sett á undan næstu lykkju. Það eru 12-16 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki (= öxl – 2 lykkjur brugðið sitja mitt á milli þessa 12-16 lykkja). Skiptið yfir á hringprjón 8 og aukið út fyrir axlarsæti eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI: Prjónið sléttprjón yfir 13-13 lykkjur á bakstykki og framstykki og stroff eins og áður yfir 12-16 lykkjur á hvorri öxl. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT er aukið út um 4 lykkjur í hverri umferð fyrir axlarsæti þannig: Aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki og á EFTIR 1. og 3. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri – útauknar lykkjur eru taldar með í framstykki og bakstykki, þ.e.a.s. þær 12 axlalykkjur verða áfram þær sömu). Aukið svona út í hverri umferð alls 8-10 sinnum = 82-98 lykkjur. Prjónið síðan 4 umferðir eins og áður (með útaukningu eins og áður í hverri af þessum 4 umferðum), en yfir 12-16 lykkjur á hvorri öxl eru prjónaðar 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan = 98-114 lykkjur í umferð á eftir síðustu umferð með útaukningu. Í næstu umferð eru axlalykkjurnar felldar af, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 3 lykkjur brugðið, prjónið sléttprjón þar til 3 lykkjur eru eftir á undan 2. prjónamerki, prjónið 3 lykkjur brugðið, fellið laust af 12-16 axlalykkjur, prjónið 3 lykkjur brugðið, prjónið sléttprjón þar til 3 lykkjur eru eftir á undan 4. prjónamerki, prjónið 3 lykkjur brugðið og fellið laust af þær 12-16 axlalykkjur sem eftir eru. Bakstykkið og framstykkið er síðan prjónað hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 37-41 lykkjur. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.2 þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkju í A.2 (þannig að mynstrið byrji og endið alveg eins í hvorri hlið) og endið með 3 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið áfram með A.2 fram og til baka með 3 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, mælist stykkið ca 32-33 cm frá uppfitjunarkanti (mælt frá miðju að aftan). Skiptið yfir á hringprjón 7 og prjónið stroff frá réttu þannig: 3 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 3 kantlykkjum í garðaprjóni. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir stroff, fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist ca 34-35 cm frá uppfitjunarkanti mitt að aftan. FRAMSTYKKI: = 37-41 lykkjur. Prjónið á sama hátt og bakstykki. ------------------------------------------------------- VETTLINGAR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, neðan frá og upp. VINSTRI VETTLINGUR: Fitjið upp 24-26 lykkjur á sokkaprjóna 6 með Snow. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 7 og prjónið A.3 hringinn yfir allar lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur – A.3 er prjónað alls 2 sinnum á hæðina, prjónið síðan afgang af vettlingi í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 12-13 cm, prjónið op fyrir þumal í næstu umferð þannig: Prjónið 6-6 lykkjur eins og áður, setjið næstu 5-6 lykkjur á þráð fyrir þumal, fitjið upp 5-6 nýjar lykkjur á prjóninn yfir lykkjur á þræði og prjónið þær 13-14 lykkjur sem eftir eru eins og áður = 24-26 lykkjur í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 22-23 cm. Það eru ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd. Í næstu umferð er fækkað um 6-6 lykkjur jafnt yfir (prjónið ca 3. og 4. hverja lykkju slétt saman) = 18-20 lykkjur eftir. Prjónið 2 umferðir án úrtöku. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 9-10 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 5-5 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 25-26 cm ofan frá og niður. ÞUMALL: Setjið til baka 5-6 lykkjur af þræði á sokkaprjóna 7 og prjónið að auki upp 7-8 nýjar lykkjur í kringum op fyrir þumal = 12-14 lykkjur jafnt yfir á sokkaprjóna 7. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 2 lykkjur jafnt yfir = 10-12 lykkjur eftir. Prjónið þar til þumallinn mælist ca 6-7 cm (mælt frá þar sem lykkjurnar voru settar til baka á prjóninn). Nú er eftir ca 1 cm að loka máli, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 2 umferðir sléttprjón þar sem lykkjur eru prjónaðar slétt saman 2 og 2 í báðum umferðum = 3-3 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Þumallinn mælist ca 7-8 cm. HÆGRI VETTLINGUR: Fitjið upp jafn margar lykkjur og á vinstri vettlingi og prjónið stroff hringinn á sama hátt og á vinstri vettlingi í 6 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 7 og prjónið A.3 hringinn á sama hátt og á vinstri vettlingi. Þegar stykkið mælist 12-13 cm, er prjónað op fyrir þumal í næstu umferð þannig: Prjónið 13-14 lykkjur eins og áður, setjið næstu 5-6 lykkjur á þráð fyrir þumal, fitjið upp 5-6 nýjar lykkjur á prjóninn yfir lykkjur af þræði og prjónið þær 6-6 lykkjur eins og áður = 24-26 lykkjur í umferð. Afgangur af vettlingi er prjónaður á sama hátt og vinstri vettlingur. ÞUMALL: Prjónið á sama hátt og vinstri þumall. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cocoabeansset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 214-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.