Susanne Nielsen skrifaði:
Skal det forstås som kun rib skrukkes med 2 tråde, siden der kun anvendes hhv 150 g af havudsigt, men. Kun 50 g af slik Mvh Susanne
21.11.2020 - 11:59DROPS Design svaraði:
Hej Susanne. Hela västen stickas med 2 trådar (Fabel + Kid Silk) men det är fler meter per gram av DROPS Kid Silk än av DROPS Fabel, därav olika garnforbruk. Mvh DROPS Design
24.11.2020 - 11:22
Inge Kristensen skrifaði:
Hej. Jeg kunne godt tænke mig en forklaring på hvorfor I strikker med flere masker i ribkanten end i bullen? Jeg har altid gjort omvendt. Fx i model u-874 og ovenstående vest. Venlig hilsen Inge
12.11.2020 - 09:06DROPS Design svaraði:
Hej Inge. Ribkanten er mere elastisk og vil trække sig lidt sammen i forhold til det glatstrikkede. Ved at ha flere masker i ribkanten , så undgår du en for stor forskel mellem krop og kant. Mvh DROPS Design
13.11.2020 - 10:36
Line skrifaði:
Hei Dersom jeg vil bytte til garngruppe c drops air, hvor mange nøster går det til str M og L?
06.10.2020 - 23:03DROPS Design svaraði:
Hej Line. Då får du räkna ut hur många meter garn du behöver, du kan läsa mer om hur du gör det här. Lycka till!
07.10.2020 - 08:55
Kerstin skrifaði:
Hur många nystan behövs i strl S?
05.10.2020 - 22:08DROPS Design svaraði:
Hej Kerstin. Du behöver 3 nystan DROPS Fabel och 2 nystan DROPS Kid-Silk till storlek S. Mvh DROPS Design
06.10.2020 - 08:26
Kirsten Lykke Jensen skrifaði:
Hvornår kommer mønstret til denne, skal lave den til julegave. Hvor meget garn bruges dertil og er det fabel long print?
10.09.2020 - 12:10
River Reflections#riverreflectionsvest |
|
![]() |
![]() |
Prjónað vesti / slipover úr 1 þræði DROPS Fabel og 1 þræði Kid-Silk. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með kanti í stroffprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 216-33 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 89 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 15) = 5,9. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 5. og 6. hverja lykkju slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI / SLIPOVER – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki og bakstykki er prjónað hvort fyrir sig fram og til baka, neðan frá og upp. Bakstykkið er 4 cm lengra en framstykkið. Kantar í kringum handveg og hálsmál er prjónað í hring á hringprjón eða sokkaprjóna. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 89-97-103-111-121-131 lykkjur á prjón 4 með 1 þræði Fabel og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt frá réttu. Prjónið stroff í næstu umferð þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Prjónið þar til stroffið mælist 10 cm í öllum stærðum. Skiptið yfir á prjón 5. Prjónið nú í sléttprjóni og í fyrstu umferð er lykkjum fækkað jafnt yfir um 15 lykkjur í öllum stærðum – sjá ÚRTAKA í útskýringu að ofan = 74-82-88-96-106-116 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið áfram þar til stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm frá uppfitjunarkanti. Í næstu umferð er fellt af fyrir handveg í hvorri hlið: Fellið af 3-3-3-4-4-4 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 1-3-4-6-9-12 sinnum = 62-66-70-72-76-80 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 34-36-36-38-38-40 cm (nú eru eftir ca 10-10-12-12-14-14 cm að loka máli). Í næstu umferð frá réttu er fellt af fyrir hálsmáli þannig: Prjónið 25-27-28-29-30-32 lykkjur, fellið af næstu 12-12-14-14-16-16 lykkjur fyrir hálsmáli og prjónið síðustu 25-27-28-29-30-32 lykkjur. Axlir eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig, ekki klippa þráðinn frá – hægri öxl er prjónuð núna frá röngu héðan. HÆGRI ÖXL FRAMSTYKKI: = 25-27-28-29-30-32 lykkjur. Prjónið sléttprjón með byrjun frá röngu og fellið af lykkjur fyrir hálsmáli í byrjun á umferð frá réttu þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og fellið af 1 lykkju 4 sinnum = 17-19-20-21-22-24 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist alls 44-46-48-50-52-54 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið af og klippið þráðinn frá. VINSTRI ÖXL FRAMSTYKKI: = 25-27-28-29-30-32 lykkjur. Prjónið sléttprjón með byrjun frá réttu og fellið af lykkjur fyrir hálsmáli í byrjun á umferð frá röngu þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og fellið af 1 lykkju 4 sinnum = 17-19-20-21-22-24 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist alls 44-46-48-50-52-54 cm frá uppfitjunarkanti, stillið af við vinstri öxl. Fellið af og klippið þráðinn frá. BAKSTYKKI: Fitjið upp 89-97-103-111-121-131 lykkjur á prjón 4 með 1 þræði Fabel og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt frá réttu. Prjónið stroff í næstu umferð þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Prjónið þar til stroffið mælist 14 cm í öllum stærðum. Skiptið yfir á prjón 5. Prjónið nú í sléttprjóni og í fyrstu umferð er lykkjum fækkað jafnt yfir um 15 lykkjur í öllum stærðum – sjá ÚRTAKA í útskýringu að ofan = 74-82-88-96-106-116 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm frá uppfitjunarkanti. Í næstu umferð er fellt af fyrir handveg í hvorri hlið: Fellið af 3-3-3-4-4-4 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 1-3-4-6-9-12 sinnum = 62-66-70-72-76-80 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm (nú eru eftir ca 4 cm að loka máli). Í næstu umferð frá réttu er fellt af fyrir hálsmáli þannig: Prjónið fyrstu 18-20-21-22-23-25 lykkjur, fellið af næstu 26-26-28-28-30-30 lykkjur fyrir hálsmáli og prjónið síðustu 18-20-21-22-23-25 lykkjur. Axlir eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig, ekki klippa þráðinn frá – vinstri öxl er prjónuð núna frá röngu héðan. VINSTRI ÖXL BAKSTYKKI: = 18-20-21-22-23-25 lykkjur. Prjónið sléttprjón með byrjun frá röngu og fellið af 1 lykkju í byrjun á næstu umferð frá réttu = 17-19-20-21-22-24 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist alls 48-50-52-54-56-58 cm frá uppfitjunarkanti, stillið af við framstykkin. Fellið af og klippið þráðinn frá. HÆGRI ÖXL BAKSTYKKI: = 18-20-21-22-23-25 lykkjur. Prjónið sléttprjón með byrjun frá réttu og fellið af 1 lykkju í byrjun á næstu umferð frá röngu = 17-19-20-21-22-24 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist alls 48-50-52-54-56-58 cm frá uppfitjunarkanti, stillið af við framstykkin. Fellið af og klippið þráðinn frá. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma kant í kant. Saumið hliðarsauma, byrjið við handveg og saumið niður að 1 cm á stroffi – héðan og niður á að vera klauf og bakstykkið er lengra en framstykkið. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Bryjið frá réttu við annan axlasauminn með 1 þræði Fabel og 1 þræði Kid-Silk. Notið hringprjón eða sokkaprjón 4 og prjónið upp ca 80 til 100 lykkjur innan við 1 lykkju í kringum allt opið í hálsi (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2). Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til stroffið mælist 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. KANTUR Í KRINGUM HANDVEG: Byrjið frá réttu þar sem fellt var af fyrir handveg með 1 þræði Fabel og 1 þræði Kid-Silk. Notið hringprjón eða sokkaprjóna 4 og prjónið upp ca 110 til 134 lykkjur í kringum allan handveginn (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2). Prjónið stroff hringinn með 1 lykkju slétt og 1 lykkju brugðið þar til stroffið mælist 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið kant í kringum hinn handveginn á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #riverreflectionsvest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 216-33
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.