Suzan Kornelisse skrifaði:
In toer 3 voor de poten komt het steken aantal niet uit. Met 3 steken tussen elke meerdering kom ik niet uit. Moet het niet zijn: 1 vaste, 1 meerdering, 1 vaste, 1 meerdering enz net als in patroon ee-147-bn, Dino Cuddles? Die komt wel uit. Mijn vorige post waren als opmerking gemarkeerd en niet als vraag zie ik. Nu let ik erop dat ik "vraag" aanklik, want ik wil graag een reactie. ;)
24.06.2024 - 22:25DROPS Design svaraði:
Dag Suzan,
Er lijkt inderdaad een fout in te zitten en ik denk dat het de bedoeling is om in de 3e toer van de poten om en om 2 steken en 1 steek in de steek eronder moet haken. Ik heb het doorgegeven aan de ontwerpafdeling om te controleren, dus hopelijk komt er spoedig een correctie. Misschien kun je eerst zo verder.
25.06.2024 - 19:18
Suzan Kornelisse skrifaði:
In toer 3 voor de poten komt het steken aantal niet uit. Met 3 steken tussen elke meerdering kom ik niet uit. Moet het niet zijn: 1 vaste, 1 meerdering , 1 vaste, 1 meerdering enz net als in patroon ee-147-bn, dino cuddles? Die komt wél uit. Alvast bedankt.
28.12.2023 - 09:43
Suzan Kornelisse skrifaði:
In toer 3 voor de poten komt het steken aantal niet uit. Met 3 steken tussen elke meerdering kom ik niet uit. Moet het niet zijn: 1 vaste, 1 meerdering, 1 vaste, 1 meerdering enzo... net als in patroon ee-147-bn, dino cuddles? Die komt wél uit. Alvast bedankt.
16.08.2023 - 23:08
GIROD Jeannine skrifaði:
Bonjour, Merci pour les explications précédentes mais je ne comprends pas la suite du rang 24 comment peut il rester 6 mailles avant et 2 mailles avant le marqueur et comment confectionner la queue. Avec tous mes remerciements anticipés.
01.06.2023 - 23:14DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Girod, vous continuez toujours comme au tour 24: crochetez jusqu'à ce qu'il reste 2 ms avant le marqueur et crochetez ces 2 m ensemble (tour 25), crochetez jusqu'à ce qu'il reste 2 m avant le marqueur du dos, crochetez 2 m ens avant le marqueur + 2 m end après le marqueur (tour 26), crochetez jusqu'à ce qu'il reste 2 m avant le marqueur, crochetez 2 m ens avant le marqueur, 2 m ens après le marqueur (tours 27 à 36) et ainsi de suite. Bon crochet!
02.06.2023 - 08:25
GIROD Jeannine skrifaði:
Je ne comprends pas le rang 24 comment écouler 6 fois 2 mailles serrées alors qu’il faut laisser 6 mailles avant le marqueur dos . Merci
01.06.2023 - 12:52DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Girod, crochetez jusqu'à ce qu'il reste 6 mailles serrées avant le marqueur du dos, puis crochetez 6 fois 2 mailles serrées écoulées ensemble (soit 3 fois avant le marqueur et 3 fois après le marqueur). Bon crochet!
01.06.2023 - 16:59
CJ AmburDuck skrifaði:
❤️ these patterns!
01.05.2023 - 14:55
Catharina Almén skrifaði:
Hej, jag upptäckte att det är fel i mönstret på benens varv 3. Fick inte ihop ökningen, så jag virkade 1 FM, 2 FM i mästa varvet ut för att få 15 FM totalt.
10.11.2022 - 16:44
Guenda skrifaði:
Salve, lo schema della coda passa dal giro 24 al 27. In totale lavoro 42 o 44 giri? I due giri che mancano come li lavoro? Grazie.
18.12.2020 - 00:43DROPS Design svaraði:
Buongiorno Guenda, abbiamo corretto la numerazione dei giri nella coda, le spiegazioni erano corrette. I giri totali sono 42. Grazie per la segnalazione. Buon lavoro!
18.12.2020 - 08:56
Tracy the Triceratops#dropstracythetriceratops |
|
![]() |
![]() |
Hekluð risaeðla triceratops / leikfang úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er heklað frá nefi að hala án sauma. Þema: Leikföng.
DROPS Children 37-22 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR (á við um loftlykkjur): 1 loftlykkja á að jafngilda 1 fastalykkju á breidd. Passið uppá að lykkjan sem er gerð í loftlykkju dragist aðeins upp á heklunálina svo að hún verði ekki of stíf. Ef loftlykkjurnar eru heklaðar of fast, kemur mynstrið til með að dragast saman í þeim einingum þar sem margar loftlykkjur eru. HEKLAÐ SAMAN: Heklið 2 fastalykkjur saman að 1 fastalykkju þannig: Stingið heklunálinni í gegnum fyrstu lykkjuna og sækið þráðinn, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju og sækið þráðinn (= 3 lykkjur á heklunálinni), bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri). LYKKJUSPOR: Saumið með einföldum svörtum þræði. Augun eru saumuð út yfir 12. og 13. umferð á nefi og það eru 4 lykkjur á milli augna. Sjá mynsturteikningu sem sýnir hvernig lykkjusporið er gert. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- RISAEÐLA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað frá nefi að hala án sauma. Fyrstu eru heklaðir 4 fætur og 3 horn sem er langt til hliðar um stund. Risaeðlan byrjar við nef, síðan er kraginn heklaður áfram frá nefi. Búkurinn er heklaður frá bakhlið á kraga, fæturnir eru heklaðir við stykkið og búkurinn endar með halanum. Að lokum eru gaddarnir heklaðir meðfram kanti á kraga. FRAMFÓTUR OG AFTURFÓTUR: Heklið 2 loftlykkjur með heklunál 3,5 með litnum ólífa – sjá HEKLLEIÐBEININGAR. Í fyrstu loftlykkju eru heklaðar 5 fastalykkjur, þetta verður lítill hringur með lykkjum. Endið hringinn með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju, þar með er hringurinn fastur og 1. umferð er lokið. UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, heklið síðan 2 fastalykkjur í hverja lykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju, það eru 10 lykkjur í umferð. UMFERÐ 3: Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu lykkju, * 1 fastalykkja í næstu lykkju, 2 fastsalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, heklið 1 fastalykkju í næstu lykkju. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 15 lykkjur). UMFERÐ 4-10: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju í umferð. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 15 lykkjur). Heklið 4 fætur svona og fyllið fæturna með vatti. HORN: VIÐ ENNI: Heklið 11 loftlykkjur með heklunál 3,5 með litnum turkos. Byrjið í 2. loftlykkju frá heklunálinni og heklið 1 keðjulykkju í hverja af næstu 10 loftlykkjum, að auki eru heklaðar 2 fastalykkjur í síðustu loftlykkjuna (þessar 2 fastalykkjur eru notaðar til að hekla síðar stykkið saman). Snúið stykkinu og heklið 1 keðjulykkju í neðri hlið á 10 loftlykkjum sem heklað var í. Klippið frá og festið þráðinn. Heklið annað horn til viðbótar á sama hátt. VIÐ NEF: Heklið 6 loftlykkjur með heklunál 3,5 með litnum ólífugrænn. Byrjið í 2. loftlykkju frá heklunálinni og heklið 1 keðjulykkju í hverja af næstu 5 loftlykkjum, að auki eru heklaðar 2 fastalykkjur í síðustu loftlykkjuna (þessar 2 fastalykkjur eru notaðar síðar til að hekla stykkið saman). Klippið frá og festið þráðinn. NEF: Heklið 2 loftlykkjur með heklunál 3,5 með litnum ólífugrænn, í fyrstu loftlykkju eru heklaðar 5 fastalykkjur, þetta verður lítill hringur af lykkjum. Endið hringinn með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju, þar með er hringurinn fastur og 1. umferð er lokið. UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, síðan eru heklaðar 2 fastalykkjur í hverja lykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju, það eru 10 lykkjur í umferð. UMFERÐ 3-4: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkju í hverja lykkju. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 10 lykkjur). UMFERÐ 5: Í þessari umferð er hornið heklað fast við nefið þannig: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 4 lykkjum, leggið hornið á nefið þannig að næstu 2 lykkjur sem eiga að heklast eru heklaðar í gegnum 2 lög í hvora lykkju, 1 fastalykkja í hverja af síðustu 4 lykkjum. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 10 lykkjur). UMFERÐ 6: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 4 lykkjum, 2 fastalykkjur í hvora af 2 næstu lykkjum, 1 fastalykkja í hverja af síðustu 4 lykkjum. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 2 lykkjur fleiri, það eru 12 lykkjur í umferð). UMFERÐ 7: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 5 lykkjum, 2 fastalykkjur í hvora af 2 næstu lykkjum, 1 fastalykkja í hverja af síðustu 5 lykkjum. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 14 lykkjur). UMFERÐ 8-15: Heklið eins og umferð 6 með útaukningu með 2 fastalykkjum í hvora af 2 miðju lykkjum á nefi í hverri umferð. Eftir UMFERÐ 15 eru 30 lykkjur í umferð. UMFERÐ 16: Í þessari umferð eru hornin hekluð föst við enni þannig: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 8 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í næstu lykkju, leggið hornið á nefið þannig að næstu 2 fastalykkjur sem eiga að heklast eru heklaðar í gegnum 2 lög í hvora lykkju, 2 fastalykkjur í næstu lykkju (= miðja á nefi), 2 fastalykkjur í næstu lykkju, heklið hitt hornið fast yfir næstu 2 fastalykkjur alveg eins og það fyrra. Heklið 1 fastalykkju í næstu lykkju, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 8 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju og 1 fastalykkja í síðustu lykkju. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 36 lykkjur). KRAGI: Allar fastalykkjur í næstu umferð eru heklaðar í fremri lykkjubogann á lykkju. Með þessu þá verður smá lykkjukantur á bakhlið á stykki, það á að hekla í þennan lykkjukant þegar búkurinn er gerður. UMFERÐ 17: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hvora af 2 fyrstu lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 8 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 5 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju (= miðja á nefi), 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 5 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 8 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hvora af síðustu 2 lykkjum. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 42 lykkjur). UMFERÐ 18: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hvora af 2 fyrstu lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 10 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 6 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 6 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 10 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hvora af síðustu 2 lykkjum. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 48 lykkjur). UMFERÐ 19: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hvora af 2 fyrstu lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 12 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 7 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 7 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 12 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hvora af síðustu 2 lykkjum. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 54 lykkjur). UMFERÐ 20: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 3 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 13 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 8 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 8 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 13 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 lykkjum. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 60 lykkjur). UMFERÐ 21: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju umferðina hringinn. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju, klippið frá og dragið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna. Þegar nefið og kraginn er tilbúið. Saumið augun með svartur, sjá LYKKJUSPOR í útskýringu að ofan. BÚKUR: Notið heklunál 3,5 og litinn ólífa. Byrjið neðst á höfði og heklið í lausu lykkjubogana frá 16. umferð (bakhlið á umferð 17) þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í hvern lykkjuboga, en hoppið yfir 1 lykkju í umferð (= 35 lykkjur). Ekki á að enda þessa umferð með 1 keðjulykkju eins og áður. Þegar byrja á næstu umferð er 1. lykkjan í þessari umferð hekluð í fyrstu lykkjuna frá fyrri umferð – þannig að stykkið getur haldið áfram hringinn án þess að umferðin endi. Setjið 1 prjónamerki mitt ofan á baki og 1 prjónamerki mitt undir maga. UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju, en heklið 2 fastalykkjur í lykkjuna sem er á undan og á eftir prjónamerki mitt undir maga (= 2 lykkjur fleiri, það eru 37 fastalykkjur í umferð). UMFERÐ 3: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju, en heklið 2 fastalykkjur í lykkjuna sem er á undan og á eftir prjónamerki mitt undir maga og heklið 2 fastalykkjur í lykkjuna sem er á undan og á eftir prjónamerki mitt ofan á baki (= 4 lykkjur fleiri, það eru 41 fastalykkjur í umferð). UMFERÐ 4: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. Fyllið risaeðluna með vatti. UMFERÐ 5: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju, en heklið 2 fastalykkjur í lykkjuna sem er á undan og á eftir prjónamerki mitt undir maga og heklið 2 fastalykkjur í lykkjuna sem er á undan og á eftir prjónamerki mitt ofan á baki (= 4 lykkjur fleiri, það eru 45 fastalykkjur í umferð). UMFERÐ 6: Nú eru framfæturnir heklaðir á búkinn. Byrjið mitt undir maga, brjótið saman annan framfótinn tvöfaldan og leggið á búkinn þannig að næstu 6 lykkjur sem eiga að heklast eru heklaðar í gegnum 3 lög í hverja fastalykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 6 lykkjum. Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð. Brjótið hinn framfótinn tvöfaldan og leggið á búkinn þannig að næstu 6 lykkjurnar sem eiga að heklast eru heklaðar í gegnum 3 lög í hverja fastalykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja af 6 lykkjum. UMFERÐ 7: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju, en heklið 2 fastalykkjur í lykkjuna sem er á undan og á eftir prjónamerki mitt ofan á baki (= 2 lykkjur fleiri, það eru 47 lykkjur í umferð). UMFERÐ 8: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju umferðina hringinn. UMFERÐ 9: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju, en heklið 2 fastalykkjur í lykkjuna sem er á undan og á eftir prjónamerki mitt ofan á baki (= 2 lykkjur fleiri, það eru 49 lykkjur í umferð). UMFERÐ 10: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju umferðina hringinn. UMFERÐ 11: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju, en heklið 2 fastalykkjur í lykkjuna sem er á undan og á eftir prjónamerki mitt ofan á baki (= 2 lykkjur fleiri, það eru 51 lykkjur í umferð). UMFERÐ 12: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju umferðina hringinn. UMFERÐ 13: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju, en heklið 2 fastalykkjur í lykkjuna sem er á undan og á eftir prjónamerki mitt ofan á baki (= 2 lykkjur fleiri, það eru 53 lykkjur í umferð). UMFERÐ 14-21: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju umferðina hringinn. UMFERÐ 22: Nú eru afturfæturnir heklaðir á búkinn. Byrjið mitt undir maga, brjótið saman annan afturfótinn tvöfaldan og leggið á búkinn þannig að næstu 6 lykkjur sem eiga að heklast eru heklaðar í gegnum 3 lög í hverja fastalykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 6 lykkjum. Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð. Brjótið hinn afturfótinn tvöfaldan og leggið á búkinn þannig að næstu 6 lykkjurnar sem eiga að heklast eru heklaðar í gegnum 3 lög í hverja fastalykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja af 6 lykkjum. Fyllið risaeðluna með vatti. HALI: UMFERÐ 23: Heklið 2 fyrstu fastalykkjurnar saman – sjá HEKLAÐ SAMAN í útskýringu að ofan, heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju umferðina hringinn (= 52 lykkjur). Passið uppá að prjónamerkin sitji áfram mitt ofan á baki og mitt undir maga/hala! Fækkið nú lykkjum fyrir hala: UMFERÐ 24: Heklið 2 fastalykkjur saman, heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju fram að 6 lykkjum á undan prjónamerki ofan á baki, heklið 2 fastalykkjur saman alls 6 sinnum, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju fram að 2 lykkjum á undan prjónamerki mitt undir maga/hala, heklið 2 fastalykkjur saman (= 8 lykkjur færri, það eru 44 fastalykkjur í umferð). UMFERÐ 25: Heklið 2 fastalykkjur saman, heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju fram þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki mitt undir maga/hala, heklið 2 fastalykkjur saman (= 2 lykkjur færri, það eru 42 fastalykkjur í umferð). Fyllið risaeðluna með vatti. UMFERÐ 26: Heklið 2 fastalykkjur saman, 1 fastalykkju í hverja lykkju fram þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki ofan á baki, heklið 2 fastalykkjur saman alls 4 sinnum, 1 fastalykkja í hverja lykkju fram að 2 lykkjum á undan prjónamerki mitt undir maga/hala, heklið 2 fastalykkjur saman (= 6 lykkjur færri, það eru 36 lykkjur í umferð). UMFERÐ 27-36: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju fram þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki ofan á baki, heklið 2 fastalykkjur saman, heklið 2 fastalykkjur saman, 1 fastalykkja í hverja lykkju fram að prjónamerki mitt undir maga/hala (= 2 lykkjur færri í hverri umferð og á eftir UMFERÐ 36 eru 16 lykkjur í umferð). Fyllið risaeðluna með vatti, jafnóðum og heklað er. UMFERÐ 37-42: Heklið 2 fastalykkjur saman, 1 fastalykkja í hverja lykkju fram þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki undir maga/hala, heklið 2 fastalykkjur saman (= 2 lykkjur færri í umferð). Eftir UMFERÐ 42 eru 6 lykkjur í umferð. Fyllið afgang af risaeðlunni með vatti. Klippið frá, dragið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna. Notið endann á þræðinum til að sauma saman síðustu 6 lykkjurnar. Festið þráðinn vel. GADDAR: Það eru 60 lykkjur í kringum kragann. Notið heklunál 3,5 og litinn turkos. Byrjið frá réttu neðst á kraga, það eiga að vera 19 lykkjur mitt undir nefi sem gaddar eru ekki heklaðir í. Festið þráðinn með 1 keðjulykkju og heklið 1 fastalykkju í sömu lykkju, * hoppið yfir 1 lykkju og í næstu lykkju er heklað þannig: 2 stuðlar, 1 tvíbrugðinn stuðull, 3 loftlykkjur og heklið 1 keðjulykkju sem er hekluð föst við fyrri tvíbrugðna stuðul þannig: Stingið heklunálinni efst í tvíbrugðna stuðulinn og síðan niður í gegnum efsta liðinn af sama tvíbrugðna stuðul (í gegnum 2 lykkjur), sækið þráðinn og dragið í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni), 1 tvíbrugðinn stuðull, 2 stuðlar, hoppið yfir 1 lykkju og heklið 1 fastalykkju í næstu lykkju *, heklið frá *-* alls 10 sinnum. Klippið frá og dragið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna. Festið þráðinn. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dropstracythetriceratops eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 37-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.