DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Bob the Dinosaur

Hekluð risaeðla tyrannosaurus rex (T-Rex) úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er heklað frá nefi að hala með einungis einum saum. Þema: Leikföng.

DROPS Children 37-21
DROPS Design: Mynstur me-077-bn
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
Hæð: ca 18 cm
Lengd: ca 18 cm

EFNI:
DROPS Merino Extra Fine frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
50 gr nr 31 skógargrænn – fyrir búk
50 gr nr 41 ólífa – fyrir fætur og gadda
Og notið:
Afgang af svartur fyrir augu.

HEKLFESTA:
20 fastalykkjur á breidd og 20 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 3,5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

FYLGIHLUTIR: Vatt til fyllingar.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR (á við um loftlykkjur):
1 loftlykkja á að jafngilda 1 fastalykkju á breidd. Passið uppá að lykkjan sem er gerð í loftlykkju dragist aðeins upp á heklunálina svo að hún verði ekki of stíf. Ef loftlykkjurnar eru heklaðar of fast, kemur mynstrið til með að dragast saman í þeim einingum þar sem margar loftlykkjur eru.

HEKLAÐ SAMAN:
Heklið 2 fastalykkjur saman að 1 fastalykkju þannig:
Stingið heklunálinni í gegnum fyrstu lykkjuna og sækið þráðinn, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju og sækið þráðinn (= 3 lykkjur á heklunálinni), bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri).

LYKKJUSPOR:
Saumið með einföldum svörtum þræði. Augun eru saumuð út yfir 1. og 2. umferð í andliti og það eru 5 lykkjur á milli augna. Sjá mynsturteikningu sem sýnir hvernig lykkjusporið er gert.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

RISAEÐLA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað frá nefi að hala með einungis 1 saum mitt undir búk.
Fyrstu eru heklaðir 4 fætur sem lagðir eru til hliðar um stund. Risaeðlan byrjar við nef, síðan er höfuðið heklað. Hálsinn og búkurinn er heklað í framhaldi á höfði jafnframt því sem fram- og afturfætur eru heklaðir fastir. Síðan er neðri hlutinn heklaður á búk, halinn og bakið heklað saman. Að lokum eru gaddarnir heklaðir meðfram baki.

FRAMFÓTUR:
Heklið 2 loftlykkjur með heklunál 3,5 með litnum ólífa – sjá HEKLLEIÐBEININGAR.
Í fyrstu loftlykkju eru heklaðar 5 fastalykkjur, þetta verður lítill hringur með lykkjum. Endið hringinn með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju, þar með er hringurinn fastur og 1. umferð er lokið.
UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, heklið síðan 2 fastalykkjur í hverja lykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju, það eru 10 lykkjur í umferð. Klippið þráðinn frá og skiptið yfir í skógargrænn.
UMFERÐ 3: Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, * 1 fastalykkja í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn (= 15 lykkjur). Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð.
UMFERÐ 4-9: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju umferðina hringinn. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 15 lykkjur). Klippið frá og dragið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna.
Heklið annan framfót á sama hátt og fyllið fæturna með vatti.

AFTURFÆTUR:
Heklið eins og FRAMFÆTUR, nema nú er hekluð umferð meira í litnum ólífa áður en skipt er yfir í litinn skógargrænn.

NEF:
Heklið 2 loftlykkjur með heklunál 3,5 með litnum skógargrænn. Í fyrstu loftlykkju eru heklaðar 5 fastalykkjur, þetta verður lítill hringur af lykkjum. Endið hringinn með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju, þar með er hringurinn fastur og 1. umferð er lokið.
UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, síðan eru heklaðar 2 fastalykkjur í hverja lykkju (= 10 lykkjur). Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju.
UMFERÐ 3: Heklið 1 loftlykkju, * 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í næstu lykkju, * heklið frá *-* umferðina hringinn. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 15 lykkjur).
UMFERÐ 4: Heklið 1 loftlykkju, * 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja og eina af næstu 2 lykkjum *, heklið frá *-* umferðina hringinn. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 20 lykkjur).
UMFERÐ 5: Heklið 1 loftlykkju, * 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja og eina af næstu 3 lykkjum *, heklið frá *-* umferðina hringinn. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 25 lykkjur).
UMFERÐ 6: Heklið 1 loftlykkju, * 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja og eina af næstu 4 lykkjum *, heklið frá *-* umferðina hringinn. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 30 lykkjur).
UMFERÐ 7-11: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju umferðina hringinn. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 30 lykkjur).
UMFERÐ 12: Heklið 1 loftlykkju, * heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af 2 næstu fastalykkjum, heklið 2 næstu fastalykkjur saman til 1 1 fastalykkju – sjá HEKLAÐ SAMAN í útskýringu að ofan *, heklið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir. Heklið 1 fastalykkju í hvora af 2 síðustu fastalykkjum og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 23 lykkjur í hring).
UMFERÐ 13: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju umferðina hringinn. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 23 lykkjur).

ANDLIT:
Nú er ekki lengur heklað í hring, stykkið er heklað fram og til baka héðan.
UMFERÐ 1-4: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja af 23 lykkjum. Snúið stykkinu.
UMFERÐ 5-6: 1 loftlykkja, heklið 2 lykkjur í fyrstu lykkjuna, 1 fastalykkja í hverja lykkju þar til 1 lykkja er eftir og heklið 2 lykkjur í síðustu lykkjuna (= 2 lykkjur fleiri í hverri umferð (= 27 lykkjur). Snúið stykkinu.
UMFERÐ 7-8: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju. Snúið stykkinu.
Nú eru saumuð út 2 augu í andlitið með LYKKJUSPORI – sjá útskýringu að ofan.

HÁLS:
Meðfram hlið á ANDLIT hafa verið heklaðar 8 umferð, nú á að hekla áfram fram og til baka meðfram báðum að 2 hliðum á andliti, þ.e.a.s. meðfram alls 16 umferðum:
UMFERÐ 1: Heklið 2 fastalykkjur í síðustu umferð sem var hekluð í andliti, * 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 umferðum í andliti, 2 fastalykkjur í næstu umferð á andliti *, heklið frá *-* út umferðina = 22 lykkjur. Snúið stykkinu.
UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju út umferðina. Snúið stykkinu.
UMFERÐ 3: Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju þar til 1 lykkja er eftir, heklið 2 fastalykkjur í síðustu lykkjuna (= 2 lykkjur fleiri). Snúið stykkinu.
Heklið umferð 2 og 3 þar til heklaðar hafa verið alls 6 umferðir í hálsi (= 26 lykkjur í 6. umferð). Snúið stykkinu.

BÚKUR:
Nú eru framfæturnir heklaðir á búkinn, heklað er fram og til baka.
UMFERÐ 1: Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 lykkjum, brjótið annan framfótinn saman tvöfaldan og leggið á búkinn þannig að næstu 6 lykkjur sem eiga að heklast eru heklaðar í gegnum 3 lög í hverja lykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 4 fastalykkjur (= mitt að framan/á milli framfóta), brjótið hinn framfótinn saman tvöfaldan og leggið á búkinn þannig að næstu 6 lykkjurnar sem eiga að heklast eru heklaðar í gegnum 3 lög í hverja fastalykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af 4 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í síðustu lykkju (= 28 lykkjur). Snúið stykkinu.
UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju. Snúið stykkinu.
UMFERÐ 3: Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju þar til 1 lykkja er eftir, 2 fastalykkjur í síðustu lykkju (= 2 lykkjur fleiri). Snúið stykkinu.
Heklið umferð 2 og 3 þar til heklaðar hafa verið alls 5 umferðir á búk (= 32 lykkjur í 5. umferð). Snúið stykkinu.
UMFERÐ 6: Í þessari umferð er aukið út fyrir maga þannig:
Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 8 lykkjum, * 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, heklið frá *-* alls 7 sinnum, heklið 2 fastalykkjur í næstu lykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af næstu 7 lykkjum, 2 fastalykkjur í síðustu lykkju (= 10 lykkjur fleiri, það eru 42 lykkjur í umferð).
Snúið stykkinu.
UMFERÐ 7: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju út umferðina. Snúið stykkinu.
UMFERÐ 8: Í þessari umferð er einnig aukið út fyrir maga þannig:
Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 16 lykkjum, * 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, heklið frá *-* alls 4 sinnum, 1 fastalykkja í hverja af næstu 16 lykkjum, 2 fastalykkjur í síðustu lykkju (= 6 lykkjur fleiri, nú eru 48 lykkjur í umferð). Snúið stykkinu.
UMFERÐ 9: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju út umferðina. Snúið stykkinu.
UMFERÐ 10: Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju þar til 1 lykkja er eftir, heklið 2 fastalykkjur í síðustu lykkju (= 2 lykkjur fleiri, það eru 50 lykkjur í umferð). Snúið stykkinu.
UMFERÐ 11: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju út umferðina. Snúið stykkinu.
UMFERÐ 12: Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju þar til 1 lykkja er eftir, 2 fastalykkjur í síðustu lykkju (= 2 lykkjur fleiri, það eru 52 lykkjur í umferð). Snúið stykkinu.
UMFERÐ 13: Nú eru afturfæturnir heklaðir á búkinn. Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverjaaf fyrstu 15 lykkjum, brjótið saman annan afturfótinn tvöfaldan og leggið á búkinn þannig að næstu 6 fastalykkjur sem eiga að heklast eru heklaðar í gegnum 3 lög í hverja lykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af næstu 10 lykkjum (= mitt að framan/á milli afturfóta), brjótið hinn afturfótinn saman tvöfaldan og leggið á búkinn þannig að næstu 6 fastalykkjurnar sem eiga að heklast eru heklaðar í gegnum 3 lög í hverja lykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af síðustu 15 fastalykkjum. Snúið stykkinu.

NEÐRI HLUTI:
UMFERÐ 1-3: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju. Snúið stykkinu.
UMFERÐ 4: Í þessari umferð er lykkjum fækkað fyrir flatan botn þannig:
Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 18 lykkjum, * næstu 2 fastalykkjurnar eru heklaðar saman í 1 fastalykkju – sjá HEKLAÐ SAMAN í útskýringu að ofan *, heklið frá *-* alls 8 sinnum, heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af síðustu 18 lykkjum (= 8 lykkjur færri, það eru 44 lykkjur í umferð). Snúið stykkinu.
UMFERÐ 5: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju út umferðina. Snúið stykkinu.
UMFERÐ 6: Í þessari umferð er lykkjum fækkað fyrir flatan botn þannig:
Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 14 lykkjum, * næstu 2 fastalykkjurnar eru heklaðar saman í 1 fastalykkju *, heklið frá *-* alls 8 sinnum, heklið 1 fastalykkju í hverja af síðustu 14 lykkjum (= 8 lykkjur færri, það eru 36 lykkjur í umferð). Snúið stykkinu.
UMFERÐ 7: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju út umferðina. Snúið stykkinu.
UMFERÐ 8: Í þessari umferð er lykkjum fækkað fyrir flatan botn þannig:
Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 14 lykkjum, * næstu 2 fastalykkjurnar eru heklaðar saman í 1 fastalykkju *, heklið frá *-* alls 4 sinnum, heklið 1 fastalykkju í hverja af síðustu 14 lykkjum (= 4 lykkjur færri, það eru 32 lykkjur í umferð). Klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Saumið botninn saman á lengdina og saumið lykkju í lykkju þannig að botninn verði flatur.

HALI:
Notið heklunál 3,5 og litinn skógargrænn. Meðfram hlið á NEÐRI HLUTI hafa verið heklaðar 8 umferðir (í hvorri hlið á saum), nú á að heklað áfram fram og til baka meðfram báðum 2 hliðum á neðri hluta, þ.e.a.s. meðfram alls 16 umferðum:
UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í hverja umferð (= 16 lykkjur). Snúið stykkinu.
UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, fyrstu 2 fastalykkjurnar eru heklaðar saman að 1 lykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju þar til 2 lykkjur eru eftir, síðustu 2 lykkjurnar eru heklaðar saman í 1 lykkju (= 2 lykkjur færri). Snúið stykkinu.
Heklið umferð 1 og 2 þar til heklaðar hafa verið alls 12 umferðir og það eru 4 lykkjur í umferð. Klippið frá og festið enda.

BAK:
Notið heklunál 3,5 og litinn skógargrænn. Heklið 1 umferð með fastalykkjum meðfram öllu opinu á baki, byrjið við halann (það er heklað meðfram annarri hliðinni í einu) þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 1 lykkju í hverja umferð eða í hverja lykkju – frá hala að toppi á höfði og aftur niður meðfram hinni hliðinni á baki að hálsi. Það eru ca 45 lykkjur hvoru megin á baki, alls ca 90 lykkjur í kringum allt opið. Snúið stykkinu.
Nú verður að fylla risaeðluna með vatti á meðan heklað er áfram þannig:
UMFERÐ 2: Brjótið risaeðluna saman tvöfalda og heklið 1 umferð með fastalykkjum frá hala að topp á höfði (heklað er í gegnum bæði lögin þannig að bakið er heklað saman) = ca 45 fastalykkjur.
Klippið þráðinn frá í toppi á höfði og festið enda.

GADDAR:
Notið litinn ólífa og heklunál 3,5. Byrjið yst á hala og heklið þannig:
* Heklið 1 fastalykkju, hoppið yfir 1 lykkju og í næstu lykkju er heklað þannig: 2 stuðlar, 1 tvíbrugðinn stuðull, 2 loftlykkjur, 1 tvíbrugðinn stuðull og 2 stuðlar. Hoppið yfir 1 lykkju og heklið 1 fastalykkju í næstu lykkju *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, síðan er endurtekið frá *-* upp yfir bak, en hoppið yfir 2 lykkjur í stað 1 lykkju afgang af leiðinni að höfði.
Þegar ekki eru til nægilega margar lykkjur fyrir heilan gadd í lokin á höfði þá á að hekla umferðina til loka með fastalykkjum alveg upp að toppi á höfði. Klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 25.11.2020
NEÐRI HLUTI: …*, heklið frá *-* alls 8 sinnum, heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af síðustu 14 lykkjum (= 8 lykkjur færri, það eru 36 lykkjur í umferð). Snúið stykkinu.

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Bob the Dinosaur

Myrthe, Netherlands

Bob the Dinosaur

Anika, Austria

Bob the Dinosaur

Stacey, United Kingdom

Bob the Dinosaur

Marina, Netherlands

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 37-21

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (40)

country flag Peter Sandra wrote:

Ich finde den Dino cool und würde ihn gerne Nachhäkeln. Ich habe eine Stelle wo ich nicht ganz kapiere. Und zwar bei 8 Reihen am Gesicht gehäkelt, an beiden Seiten nun Maschen angehäkelt insgesamt 16 MA. Heisst das die erste und letzte MA wird verdoppelt bis 16 Ma sind? Besten Dank für eine Antwort

25.03.2024 - 17:48

DROPS Design answered:

Liebe Sandra, fürs Gesicht hat man 8 Reihen gehäkelt, für den Hals wird man jetzt in den Seiten (Anfang/Ende von den Reihen fürs Gesicht) häkeln, dh in je die 8 Reihen einer Seite + in je die 8 Reihen vom anderen Seite (die letzte Reihen vom Gesicht bleibt jetzt offen, wird später zusammengehäkelt) - bei der 1. Reihe wird man regelmäßig verteilt bis 22 Maschen zunehmen; die Reihen beginnen jetzt beim oberen Teil/Rückenteil vom Dino. Viel Spaß beim häkeln!

02.04.2024 - 10:04

country flag Heidi wrote:

Hei! Jeg skal starte på underdelen men skjønner ikke hvor jeg starter?

20.03.2024 - 18:06

DROPS Design answered:

Hei Heidi. Du starter der du sluttet 13. rad av Kroppen. Nå skal det hekles 1 fastmaske i hver maske, samtidig som det felles masker til en flat bunn. mvh DROPS Design

02.04.2024 - 13:28

country flag Stefania Piras wrote:

Buongiorno, non capisco come si lavora in piano...il pezzo tra il naso e il muso

30.12.2023 - 17:47

DROPS Design answered:

Buongiorno Stefania, alla fine del naso deve lavorare in righe di andata e ritorto iniziando sulle 23 maglie del naso come indicato. Buon lavoro!

31.12.2023 - 13:34

country flag Handspinnerei Giftgruen wrote:

Bob ist so niedlich. Habe ihn jetzt 2 mal gehäkelt. Die Anleitung finde ich teilweise umständlich erklärt aber mit viel rücktrennen habe ich es noch hinbekommen. Ich werde ihn auch in groß häkeln. Vielen Dank für die Anleitung

29.12.2023 - 22:06

country flag Sanne wrote:

Heel leuk patroon, je moet af en toe even goed lezen maar dat maakt het voor mij juist leuk om te haken. Wel viel me op dat toen ik hem af had, hij niet rechtop kon blijven staan maar voorover op z'n neus viel. Misschien kan het patroon de tip geven om wat zwaardere vulling in de staart te doen. Ik heb het zelf opgelost met een knikker in een klein hangertje gehaakt van hetzelfde garen als de stekels, en die aan de punt van de staart vastgemaakt.

18.12.2023 - 11:49

country flag Ida wrote:

Hej. Jag håller på med halsen till Bob the Dinosaur och jag har fastnat totalt. Förstår att det ska göras på sidorna men hur, var? Ska jag göra stolpmaskor? För i såna fall står det inte med. Det skulle verkligen hjälpa om det fanns videor på nån som gjorde mönstret också och inte bara delar.

01.10.2023 - 22:19

DROPS Design answered:

Hei Ida. Vi har dessverre ingen video på hele denne dinousauren nå, men vi har notert ned ditt videoønske. Om du ser på bildet av hode er det heklet fra snuten og til bakhodet, men når du skal begynne med halsen skal det hekles en annen retning. Du har heklet 8 rader til ansiktet og når du starter på halsen hekler du 2 fastmasker i siste rad/8.rad av ansiktet, så 1 fastmaske i 7. rad og 1 fastmaske i 6.rad, deretter 2 fastmasker i 5.rad, 1 fastmaske i 4. rad, 1 fastmaske i 3. rad, 2 fastmasker i 2. rad og 1 fastmaske i 1. rad. Så hekler du i 1. til 8. rad, men mottsatt side. mvh DROPS Design

16.10.2023 - 10:45

country flag Paola wrote:

Forse uncinetto troppo appuntito, punta molto sottile. E' uncinetto knit pro symfonie...

21.09.2023 - 19:12

country flag Paola wrote:

Ho trovato difficoltoso lavorare il merino extra fine con l'uncinetto, forse pechè ho uncinetto di legno, ma si infilava nelle trame della lana....chissa se sbaglio qualcosa?

21.09.2023 - 19:09

DROPS Design answered:

Buonasera Paola, la tensione nella lavorazione di un pupazzetto è comunque più stretta rispetto alla normale tensione. Buon lavoro!

22.09.2023 - 23:36

country flag Tarja Kolehmainen wrote:

Vartalon 6 kerroksesta lähtien ohje väärä...kääntäjän mukaan kun tekee niin tulee oikein. Silmukat lisääntyy ei kavene ja 6 kerroksen jälkeen silmukoita on 42 yhteensä. Aloittelijalle todella vaikeaa kun ohje on käännetty väärin

28.07.2023 - 15:29

country flag Katja wrote:

In making Bob the dinosaur, I have now made the face and have 27 stiches. But moving on to the neck I am very confused. How can I get to 22 stitches without decreasing? I am very much in need of your help. Sincerely Katja.

07.07.2023 - 17:58

DROPS Design answered:

Dear Katja, you don't work over the 27 stitches of the face. You work over the row end of the face. You have 8 rows on the face and you work on both sides, so you will work over 16 "stitches" or row ends. Since you work over 16 stitches and increase 6 times on the first row of the neck you should have 22 stitches. Happy crocheting!

10.07.2023 - 16:25