Peppermint Twist#pepperminttwistset |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónað eyrnaband, hálsskjól og vettlingar úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað með köðlum.
DROPS 214-35 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Eyrnaband: Sjá mynsturteikningu A.1. Hálsskjól: Sjá mynsturteikningu A.2 og A.3. Vettlingar: Sjá mynsturteikningu A.4 og A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 124 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 28) = 4,4. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. og 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um vettlinga): Prjónið fram að lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með prjónamerki í), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo ekki myndist gat. Næsta útaukning er prjónuð þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= lykkjur fleiri). Haldið svona áfram með útaukningu í annarri hverri umferð, þ.e.a.s. aukið er út allan tímann utan með útauknar lykkjur. ÚRTAKA (á við um vettlinga): Lykkjum er fækkað innan í hönd þannig: Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður fram að fyrsta merkiþræði, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, prjónið sléttprjón þar til 3 lykkjur eru eftir á undan næsta merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt (= 2 lykkjur). LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert A.2 með því að slá 1 sinni uppá prjóninn (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) á öxlum og prjónað er sléttprjón á framstykki og bakstykki. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- EYRNABAND – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón og saumað saman mitt að aftan. EYRNABAND: Fitjið upp 32 lykkjur á hringprjón 4 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan mynstur A.1 yfir allar lykkjurnar í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Endurtakið mynsturteikningu þar til eyrnabandið mælist 49 cm – eða að óskaðri lengd og stillið af að endað sé eftir heila mynstureiningu á hæðina. Saumið eyrnabandið saman mitt að aftan með lykkjuspori innan við affellingarkantinn og uppfitjunarkantinn. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. HÁLSSKJÓL: Fitjið upp 124-128 lykkjur á hringprjón 4 með Merino Extra Fine. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 7 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 28-32 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 152-160 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið 1 lykkju slétt og setjið einn merkiþráð hér (= mitt á milli 2 lykkja slétt). Þetta er nú byrjun á umferð. Prjónið nú mynstur þannig: 11-13 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), A.2 yfir næstu 20 lykkjurnar (= í skiptingunni á milli bakstykkis og hægri öxl), prjónið (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 12 lykkjur, 2 lykkjur brugðið (= hægri öxl), A.2 yfir næstu 20 lykkjur (= í skiptingunni á milli hægri öxl og framstykkis), sléttar lykkjur yfir næstu 22-26 lykkjur (= framstykki), A.2 yfir næstu 20 lykkjur (= í skiptingunni á milli framstykkis og vinstri öxl), prjónið (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 12 lykkjur, 2 lykkjur brugðið (= vinstri öxl), A.2 yfir næstu 20 lykkjur (= í skiptingunni á milli vinstri öxl og bakstykkis), sléttar lykkjur yfir næstu 11-13 lykkjur (= hálft bakstykki). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram með mynstur og í 2. umferð í mynstri byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 16-20 sinnum = 280-320 lykkjur. Í stærð S/M hefur A.2 verið prjónað 3 sinnum á hæðina + fyrstu 2 umferðir í A.2 (= 32 umferðir með mynstri). Haldið síðan áfram eins og útskýrt er að neðan. Í stærð M/L hefur A.2 verið prjónað 4 sinnum á hæðina. Prjónið 2 umferðir til viðbótar með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur (= 42 umferðir með mynstri). Haldið síðan áfram eins og útskýrt er að neðan. Báðar stærðir: Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 27-33 lykkjur (þ.e.a.s. fram að fyrstu einingu A.2). Setjið 1 prjónamerki hér. Nú er þetta byrjun á umferð. Prjónið A.3 yfir A.2, prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 44-52 lykkjur, 2 lykkjur brugðið, A.3 yfir A.2, 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* alls 17-21 sinnum (= yfir 51-63 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt. Endurtakið 1 sinni til viðbótar í umferð = 316-364 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir fyrstu 86-94 lykkjurnar, prjónið 1 lykkju slétt, * prjónið uppsláttinn snúinn brugðið, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* alls 17-21 sinnum, prjónið uppsláttinn snúinn brugðið, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt. Endurtakið 1 sinni til viðbótar í umferð. Haldið áfram hringinn með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 6 umferðir í stroffi. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Klippið frá og festið enda. ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. HÆGRI VETTLINGUR: Fitjið upp 44-48 lykkjur á sokkaprjón 3 með Merino Extra Fine. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 4-5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 0-2 lykkjur slétt, setjið einn merkiþráð hér (= byrjun á umferð), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 2-4 lykkjur sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 18 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur út umferðina = 46-50 lykkjur. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið 2-4 lykkjur slétt, A.4 yfir næstu 20 lykkjur (uppsláttur frá fyrri umferð er prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat), prjónið sléttar lykkjur út umferðina. Haldið svona áfram með mynstur hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 6-7 cm, setjið 1 prjónamerki í 25.-29. lykkju í umferð (= þumallykkja). Aukið nú fyrir opi fyrir þumal með því að auka út 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki í – sjá ÚTAUKNING-2 (= 2 lykkjur fleiri). Haldið áfram með útaukningu fyrir þumal í annarri hverri umferð alls 4-5 sinnum til viðbótar (= alls 5-6 sinnum) = 56-62 lykkjur. Prjónið án útaukninga þar til stykkið mælist 9-11 cm. Í næstu umferð eru settar 11-13 þumallykkjur á þráð, haldið áfram hringinn með mynstri og sléttprjóni og fitjið jafnframt upp 1 nýja lykkju á prjóninn yfir lykkjurnar á þræði = 46-50 lykkjur. Prjónið áfram þar til A.4 hefur verið prjónað til loka 4 sinum á hæðina. Stykkið á nú að mælast ca 17-18 cm (nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd). Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið þannig að það verða 1-2 lykkjur slétt á milli merkiþráða og A.4 í hvorri hlið. Nú eru 24-26 lykkjur slétt á milli merkiþráða innan í vettlingi. Prjónið nú A.5 yfir A.4 og þegar prjónað hefur verið upp að umferð með ör í mynsturteikningu, heldur mynstrið áfram eins og áður og úrtaka byrjar – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 3 sinnum og í hverri umferð 5 sinnum. Þegar úrtöku er lokið og A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 19-23 lykkjur eftir í umferð. Prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman þar til 5-6 lykkjur eru eftir í umferð. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 22-23 cm ofan frá og niður. ÞUMALL: Setjið til baka 11-13 þumallykkjur frá þræði á sokkaprjóna 3,5, prjónið að auki upp 4-3 lykkjur aftan við þumal = 15-16 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til sjálfur þumallinn mælist ca 5-5½ cm (nú eru eftir ca ½ cm að loka máli, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd). Prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. VINSTRI VETTLINGUR: Fitjið upp 44-48 lykkjur á sokkaprjón 3 með Merino Extra Fine. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 4-5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 0-2 lykkjur slétt, setjið einn merkiþráð hér (= byrjun á umferð), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 2-4 lykkjur sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 18 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur út umferðina = 46-50 lykkjur. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið 2-4 lykkjur slétt, A.4 yfir næstu 20 lykkjur (uppsláttur frá fyrri umferð er prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat), prjónið sléttar lykkjur út umferðina. Haldið svona áfram með mynstur hringinn. Þegar stykkið mælist ca 6-7 cm, setjið 1 prjónamerki í síðustu lykkju í umferð (= þumallykkja). Aukið nú fyrir opi fyrir þumal með því að auka út 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki í – sjá ÚTAUKNING-2 (= 2 lykkjur fleiri). Haldið áfram með útaukningu fyrir þumal í annarri hverri umferð alls 4-5 sinnum til viðbótar (= alls 5-6 sinnum) = 56-62 lykkjur. Prjónið án útaukningar þar til stykkið mælist 9-11 cm. Í næstu umferð eru settar 11-13 þumallykkjur á þráð, haldið áfram hringinn með mynstri og sléttprjóni og fitjið jafnframt upp 1 nýja lykkju á prjóninn yfir lykkjurnar á þræði = 46-50 lykkjur. Prjónið áfram þar til A.4 hefur verið prjónað til loka 4 sinum á hæðina. Stykkið á nú að mælast ca 17-18 cm (nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd). Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið þannig að það verða 1-2 lykkjur slétt á milli merkiþráða og A.4 í hvorri hlið. Nú eru 24-26 lykkjur slétt á milli merkiþráða innan í vettlingi. Prjónið nú A.5 yfir A.4 og þegar prjónað hefur verið upp að umferð með ör í mynsturteikningu, heldur mynstrið áfram eins og áður og úrtaka byrjar – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 3 sinnum og í hverri umferð 5 sinnum. Þegar úrtöku er lokið og A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 19-23 lykkjur eftir í umferð. Prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman þar til 5-6 lykkjur eru eftir í umferð. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 22-23 cm ofan frá og niður. Prjónið þumal á sama hátt og hægri þumall. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #pepperminttwistset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 214-35
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.