Kirsten skrifaði:
Jeg kunne godt tænke mig at strikke model 215-9. Jeg vil gerne bruge noget andet garn, idet jeg ikke kan tåle uld. Har I et bud? Hvis ja, hvor meget garn skal jeg så bruge? Jeg skal strikke str. L
15.01.2021 - 15:13DROPS Design svaraði:
Hej Kirsten, ja du kan også strikke den i DROPS Safran, prøv vores garnomregner, Vælg DROPS BabyMerino, vælg antal gram i din størrelse og vælg 1 tråd, så får du alle de alternativer som findes i garngruppe A
15.01.2021 - 15:39
Gitte skrifaði:
Hej jeg skal til at strikke denne trøje men er i tvivl om hvilken størrelse. Kan I sige mig om modellen har en str. S eller M på? Mange tak! Gitte
13.01.2021 - 14:30DROPS Design svaraði:
Hej Gitte, Modellen på billedet bruger ca str M, men se på måleskitsen nederst i opskriften og vælg den størrelse som passer til dine mål :)
15.01.2021 - 07:56
Martje Veenstra skrifaði:
Ik ben dit patroon aan het breien in maat M. Helaas loop ik met pas vast. Wanneer begin ik met meerderen en moet ik elke toer meerderen of is het in 2e, 4e, 6e en 8e naald meerderen? En voor hoe veel herhalingen moet ik dat eigenlijk doen? Kunnen jullie dit voor mij in een telpatroon o.i.d helder maken. Bij voorbaat dank!
12.01.2021 - 14:37DROPS Design svaraði:
Dag Martje,
Op het moment dat je met de pas begint voeg je markeerdraden in de steken zoals aangegeven en daarna begin je gelijk met meerderen. Je meerdert 4 steken in iedere markeerdraadsteek. Voor maat M begin je met iedere 4e naald te meerderen (omdat bij iedere 2e naald 0 keer staat voor maat M, kun je dit overslaan) dan in iedere 4e naald in totaal 6-9-9-10-11-12 keer, zo ga je verder zoals aangegeven.
17.01.2021 - 12:19
Kerstin skrifaði:
Kann man diesen Pullover auch mit dem DROPS Sky Garn (Garngruppe B) Nadelstärke 4 stricken? Falls dies möglich ist wie viel Wolle benötige ich dann? Und wie kann ich die Maschenzahl umrechnen?
10.01.2021 - 19:55DROPS Design svaraði:
Liebe Kerstin, dieses Modell wird mit DROPS BabyMerino gestrickt, dh mit einem Garn von der Garngruppe A, Sky kann hier keine Alternative sein. Hier finden Sie alle Modellen mit der Garngruppe B - wie Sky. Viel Spaß beim stricken!
11.01.2021 - 10:02
Anke Dannenberg skrifaði:
Ich habe diesen Pullover genau nach Anleitung gestrickt. Leider komme ich mit der Garnmengen nicht hin. Bei Grösse L reichen keine 400 gramm. Sehr schade. Nicht schön.
10.01.2021 - 09:01
Eileen skrifaði:
Hallo, bei mir entstehen durch den Zuhnahmetipp 2 große unschöne Löcher. Ich habe es auch ohne den Umschlag zwischen den 2 rechten Maschen probiert, führte leider zum selben Resultat. Werde die Löcher durch Häkeln verkleinern (wie Zusammennähen) oder gäbe es noch eine andere Möglichkeit ? Vielen Dank, Eileen
08.12.2020 - 11:08DROPS Design svaraði:
Liebe Eileen, dieses Video zeigt, wie man für die Sattelschulter zunimmt, dh Löcher entstehen - wenn Sie keine Löcher möchten können Sie verschränkt stricken/nur 1 Umschlag stricken, aber seien Sie sicher, daß die Zunahmen dann nicht zu eng sind. Viel Spaß beim stricken!
08.12.2020 - 16:39
Karin Persson skrifaði:
Hej! Ska man fortsätta att göra omslag och släppa omslag vartannat varv även när ökningarna glesas ut till vart 4:e varv, vart 6:e varv osv?
07.12.2020 - 04:40DROPS Design svaraði:
Hej Karin, det är flera olika ökningar. Vilka omslag frågar du om. Vilka omslag är det du skall släppa?
15.12.2020 - 14:23
Moniek Steemans skrifaði:
Ik vind geen patentbelasting op jullie site? Bedankt
06.12.2020 - 14:19DROPS Design svaraði:
Dag Moniek,
Helaas begrijp ik je vraag niet goed. Wat bedoel je met patentbelasting?
11.12.2020 - 14:02
Monika Averweg skrifaði:
Hallo, In dieser Weise in jeder 2. Runde insgesamt 0-0-3-3-4-5 x zunehmen, dann in jeder 4. Runde insgesamt 6-9-9-10-11-12 x, danach in jeder 6. Runde insgesamt 4-3-3-3-3-3 x und zuletzt in jeder 8. Runde insgesamt 1 x (d.h. es wurde insgesamt 11-13-16-17-19-21 x zugenommen) = 312-348-396-420-464-504 Maschen. ich verstehe die Zunahmen nicht. Ich weiß nicht wie ich zunehmen soll
05.12.2020 - 20:07DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Averweg, Sie sollen insgesamt 16 Maschen zunehmen, dh 4 Maschen in jeder markierte Maschen zunehmen (= siehe ZUNAHMETIPP-2) - diese Zunahmen werden je nach der Größe in jeder 2. Runde, dann in jeder 4. Runde, dann in jeder 6. Runde und zuletzt in jeder 8. Runde gearbeitet. Gerne können Sie uns die Größe sagen, so kann man Ihnen erklären, wie Sie in Ihrer Größe zunehmen sollen. Viel Spaß beim stricken!
07.12.2020 - 08:04
Soili skrifaði:
Mistä korjatut silmämäärät löytyy? Nyt ohjeessa olevilla ei onnistu... Where I can find correction? Won't work with those I can see now... :(
26.11.2020 - 18:24
Lucky Clover Sweater#luckycloversweater |
||||
![]() |
![]() |
|||
Prjónuð peysa úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með útaukningu á öxlum fyrir axlarsæti og áferðamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 215-9 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 110 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 24) = 4,58. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 4. og 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT UM 4 LYKKJUR Í LYKKJUR MEÐ 1. OG 3. PRJÓNAMERKI ÞANNIG: Prjónið 5 lykkjur í brugðnu lykkjuna og færið prjónamerkið þannig: * Prjónið lykkjuna brugðið, en bíðið með að sleppa lykkjunni af prjóni sem prjónað var í, sláið 1 sinni uppá hægri prjón *, prjónið frá *-* 2 sinnum og prjónið 1 lykkju brugðið í sömu lykkju, færið prjónamerkið að síðustu lykkju sem var prjónuð í lykkjuna (= 5 lykkjur prjónaðar í sömu lykkju. AUKIÐ ÚT UM 4 LYKKJUR Í LYKKJUR MEÐ 2. OG 4. PRJÓNAMERKI ÞANNIG: Prjónið 5 lykkjur í brugðnu lykkjuna og færið prjónamerkið þannig: Prjónið lykkjuna brugðið og færið prjónamerkið að lykkjunni sem var prjónuð, * en bíðið með að sleppa lykkjunni sem prjónað var í af prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón, prjónið 1 lykkju brugðið í sömu lykkju *, prjóni frá *-* 2 sinnum (= 5 lykkjur prjónaðar í sömu lykkju). Prjónamerkið situr í fyrstu lykkjunni sem var prjónuð. Í næstu umferð eru lykkjurnar prjónaðar inn í mynstrið, þ.e.a.s. lykkjan með prjónamerki er prjónuð brugðið og þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar inn í mynstur með 2 lykkjur sléttprjón og 2 lykkjur garðaprjón. Næsta útaukning er gerð í brugðnu lykkjuna (þ.e.a.s. lykkjuna með prjónamerki). Aukið út lykkjur fyrir framstykki/bakstykki. Fjöldi axlalykkja verðu sá sami. ÚTAUKNING-3 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (merkiþráður situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráður situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 110-116-122-126-134-144 lykkjur á hringprjón 2,5 með BabyMerino. Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 2 cm, aukið út um 26-24-18-22-26-24 lykkjur jafnt yfir í næstu umferð – sjá ÚTAUKNING-1 = 136-140-140-148-160-168 lykkjur. Prjónið 1 umferð sléttprjón. Skiptið yfir á hringprjón 3. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan), berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Nú er prjónað áfram í mynstri og 4 prjónamerki sett í lykkjur og 4 merkiþræðir á milli lykkja eru settir í stykkið þannig: HÁLFT BAKSTYKKI: Prjónið * 2 lykkjur sléttprjón, 2 lykkjur garðaprjón *, prjónið frá *-* yfir 16-16-16-16-20-20 lykkjur, 1 lykkja brugðið (setjið 1. prjónamerki í þessa lykkju, það á að auka út síðar í þessa lykkju). HÆGRI ÖXL/ERMI: Prjónið 1 lykkju sléttprjón, setjið 1 merkiþráð (þ.e.a.s. setjið 1 merkiþráð á milli 2 lykkja slétt), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón, * 2 lykkjur garðaprjón, 2 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* yfir 28-28-28-32-32-36 lykkjur, 2 lykkjur garðaprjón, 1 lykkja sléttprjón, setjið 1 merkiþráð (þ.e.a.s. það er settur 1 merkiþráður á milli 2 lykkja slétt), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón. FRAMSTYKKI: Prjónið 1 lykkju brugðið (setji 2. prjónamerki í þessa lykkju, það á að auka síðar út í þessa lykkju), * 2 lykkjur garðaprjón, 2 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* yfir 28-32-32-32-36-36 lykkjur, 2 lykkjur garðaprjón, 1 lykkja brugðið (setjið 3. prjónamerki í þessa lykkju, það á að auka síðar út í þessa lykkju). VINSTRI ÖXL/ ERMI: Prjónið 1 lykkju sléttprjón, setjið 1 merkiþráð (þ.e.a.s. það er settur 1 merkiþráður á milli 2 lykkja slétt), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón, * 2 lykkjur garðaprjón, 2 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* yfir 28-28-28-32-32-36 lykkjur, 2 lykkjur garðaprjón, 1 lykkja sléttprjón, setjið 1 merkiþráð (þ.e.a.s. það er settur 1 merkiþráður á milli 2 lykkja slétt), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón. HÁLFT BAKSTYKKI: Prjónið 1 lykkju brugðið (setjið 4. prjónamerki í þessa lykkju, það á að auka síðar út í þessa lykkju) og prjónið * 2 lykkjur garðaprjón, 2 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* yfir 16-16-16-16-20-20 lykkjur og endið með 2 lykkjur garðaprjón. Í næstu umferð er uppslátturinn látinn falla laust niður við hvern merkiþráð. Þetta er gert til að lykkjurnar á undan/eftir útaukningu fyrir axlarsæti komi ekki til með að herða á stykkinu. Sláið 1 sinni uppá prjóninn við hvern merkiþráð (þ.e.a.s. á milli 2 lykkjur slétt) í annarri hverri umferð og sleppið uppslættinum laust af prjóni í umferðinni á eftir (þ.e.a.s. lykkjum er ekki aukið út). Þetta er gert þangað til berustykkið hefur verið prjónað til loka. Haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón. Í næstu umferð er aukið út um 4 lykkjur í hverja lykkju með prjónamerki (þ.e.a.s. brugðnar lykkjur) – sjá ÚTAUKNING-2 (= alls 16 lykkjur fleiri). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 0-0-3-3-4-5 sinnum, í 4. hverri umferð alls 6-9-9-10-11-12 sinnum, í 6. hverri umferð alls 4-3-3-3-3-3 sinnum og í 8. hverri umferð alls 1 sinni (þ.e.a.s. það hefur verið aukið út alls 11-13-16-17-19-21 sinnum) = 312-348-396-420-464-504 lykkjur. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 20-22-24-25-26-28 cm. Prjónið eina umferð sléttprjón JAFNFRAMT sem fækkað er um 2-0-0-0-2-2 lykkjur jafnt yfir. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar í næstu umferð þannig: Prjónið 44-50-57-59-67-75 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), setjið næstu 68-74-84-92-98-102 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið 86-100-114-118-132-148 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 68-74-84-92-98-102 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8 nýjar lykkjur undir ermi og prjónið 44-50-57-59-67-75 lykkjur slétt (= hálft bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 190-216-244-252-282-314 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt á milli 8 lykkja sem fitjaðar voru upp undir ermi. Nú eru 94-108-122-126-140-156 lykkjur á milli merkiþráða á bakstykki. Látið merkiþræðina fylgja með í stykkinu, það á að nota þá síðar þegar auka á út í hliðum. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 5 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvern merkiþráð – sjá ÚTAUKNING-3 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 2½-3-5-2-2½-3 cm millibili alls 7-6-4-8-7-6 sinnum = 218-240-260-284-310-338 lykkjur. Þegar stykkið mælist 25 cm frá skiptingu, aukið út um 2-0-0-0-2-2 lykkjur jafnt yfir = 220-240-260-284-312-340 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur garðaprjón/2 lykkjur slétt) yfir allar lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum þegar stroffið mælist 4 cm – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 54-56-58-60-61-64 cm, mælt frá öxl og niður. ERMI: Setjið 68-74-84-92-98-102 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 76-82-92-100-106-110 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt á milli 8 lykkja undir ermi. Það á síðar að fækka lykkjum hvoru megin við þennan merkiþráð. Haldið áfram hringinn í mynstri, þ.e.a.s. það er prjónað garðaprjón yfir garðaprjón, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og sléttprjón yfir sléttprjón, nýjar lykkjur undir ermi eru prjónaðar inn í mynstur (þ.e.a.s. 2 lykkjur sléttprjón, 2 lykkjur garðaprjón). Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstur mitt undir ermi, eru prjónaðar í sléttprjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 5 cm frá skiptingu. Nú er stykkið prjónað áfram í sléttprjóni yfir allar lykkjur. Í fyrstu umferð í sléttprjóni er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn – sjá ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 1 cm millibili alls 5-5-5-6-6-7 sinnum, síðan með 4-3½-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 7-8-12-14-16-16 sinnum = 52-56-58-60-62-64 lykkjur. Þegar ermin mælist 41-40-38-38-38-37 cm, aukið út um 0-0-2-0-2-0 lykkjur jafnt yfir = 52-56-60-60-64-64 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur garðaprjón) hringinn. Fellið af með sléttum lykkjum þegar stroffið mælist 4 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #luckycloversweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 215-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.