Pascale skrifaði:
Un modèle qui me plaît à moi aussi, cependant je remarque une « bosse » sous l’encolure à l’avant... je ne trouve pas ça très joli. Comment l’éviter ?
29.10.2020 - 16:11DROPS Design svaraði:
Bonjour Pascale, vous pouvez bloquer votre pull quand il est terminé pour essayez de lui donner la forme souhaitée, mais on ne peut pas ici, dans un modèle de haut en bas avec des manches marteau, ajouter de rangs raccourcis pour avoir l'encolure dos plus haute que celle du devant. Bon tricot!
09.11.2020 - 12:18
Åsa Andreasson skrifaði:
Hej . Ska man använda ökningstips 2 även när man gör ärmökningen? Har gjort första ökningen till sadelaxel och det blir väldigt snyggt. Mvh Åsa
26.10.2020 - 17:38DROPS Design svaraði:
Hej Åsa. Ja det ska du göra. Mvh DROPS Design
28.10.2020 - 07:50
Caron skrifaði:
Modèle très simple mais classique et élégant à la fois. Un modèle un peu passe-partout que je tricote actuellement. La laine Lima est très agréable à travailler, je l'ai choisie en beige mix. Le col doublé est un classique du plus bel effet, les manches marteau sont une bonne idée. Merci beaucoup pour tous ces modèles que vous nous proposez régulièrement. A mon grand regret, je n'ai pas suffisamment de temps pour me faire plaisir. Merci à vous.
21.10.2020 - 17:38
Saga skrifaði:
Hi! What size is the model wearing?
14.10.2020 - 22:23DROPS Design svaraði:
Hi Saga. She is wearing size S or M (not sure which one). Happy knitting!
15.10.2020 - 08:42
Marie Var skrifaði:
Ce modèle est superbe. Il semble très confortable et pas si difficile que ça tout compte fait. Une première pour moi ces manches marteau. Bravo pour ces magnifiques ouvrages et vos laines.
12.10.2020 - 17:34
Anne Marie Meldgaard skrifaði:
Kan jeg få hjælp til at lave modellen højre i nakken?
29.09.2020 - 23:37DROPS Design svaraði:
Hej Anne Marie, du kan følge forhøjningen i DROPS 205-18. God fornøjelse!
30.09.2020 - 11:45
Steffi skrifaði:
Hallo liebes Dropsteam, ich stricke bei der beidseitigen Zunahmen jedes Markierers wie folgt: 1 Markierer: rechts geneigte Zunahme, 1 Masche rechts stricken, Maschenmarkierer abheben, 1 links geneigte Zunahme dann stricken bis zum 2 Markierer: rechts geneigte Zunahme, Maschenmarkierer abheben, 1 Masche rechts, 1 links geneigte Zunahme, rechts und dann noch mal die Zunahmen wie soeben beschrieben. Habe ich das so richtig verstanden? Vielen lieben Dank Steffi
31.08.2020 - 12:31DROPS Design svaraði:
Liebe Steffi, ganz genau :) und bei der 3. Markierung wie bei der 1. und bei der 4. Markierung wie bei der 2. zunehmen. Viel Spaß beim stricken!
31.08.2020 - 12:57
Steffi skrifaði:
Hallo liebes Dropsteam, Bei den Zunahmen beidseitig jedes Markierers stricken bis noch 1 Masche vor dem 1. bzw. 3. Markierer übrig ist lautet meine Frage Die erste Zunahme fange ich mit einer rechts oder links geneigten Zunahme an und bei der 2. bzw. 4 Markierer fange ich mit einer links oder rechts geneigten Zunahme an? Vielen Dank Steffi
31.08.2020 - 06:11DROPS Design svaraði:
Liebe Steffi, es wird vor den 1. und 3. Markierung gestrickt = vor der Markierung = nach recht geneight und nach den 2. und 4. Markierung gestrickt = nach der Markierung = nach links geneigt - siehe ZUNAHMETIPP-2. Viel Spaß beim stricken!
31.08.2020 - 10:16
CC skrifaði:
Finally a great simple saddle shoulder sweater! Can't wait to cast on :-)
30.08.2020 - 18:00
Masalinchen skrifaði:
Endlich mal wieder Sattelschultern! Ideal auch als Herrenpullover!
13.06.2020 - 08:27
Glacier Waters#glacierwaters |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa með útaukningu á öxl fyrir axlarsæti úr DROPS Lima eða DROPS Soft Tweed. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 216-9 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 96 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 8. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2: Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um í hlið á fram- og bakstykki og ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring, ofan frá og niður. Kantur í hálsmáli er prjónaður tvöfaldur og saumaður inn í lokinn. Á berustykki eru auknar út lykkjur fyrir öxl, síðan eru lykkjur auknar út fyrir ermi. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er síðan prjónað í hring, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 92-96-100-108-112-116 lykkjur á hringprjón 3,5 með Lima eða Soft Tweed. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 8½ cm. Prjónið 1 umferð slétt á þar sem aukið er út um 12-12-20-20-24-28 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 104-108-120-128-136-144 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (þ.e.a.s. mitt að aftan). Látið prjónamerkið sitja í stykkinu. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! BERUSTYKKI: Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar (prjónamerkið er sett á milli lykkja), þannig: Teljið 18-19-20-22-22-24 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið 1. prjónamerki, teljið 16-16-20-20-24-24 lykkjur (= axlarlykkjur), setjið 2. prjónamerki, teljið 36-38-40-44-44-48 lykkjur (= framstykki), setjið 3. prjónamerki, teljið 16-16-20-20-24-24 lykkjur (= axlarlykkjur), setjið 4. prjónamerki, nú eru 18-19-20-22-22-24 lykkjur eftir síðasta prjónamerki (= hálft bakstykki). ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir öxl þannig: Aukið út um 1 lykkju á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út um 1 lykkju á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2 (= alls 4 lykkjur fleiri). Einungis er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi lykkja á öxl verður sá sami. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Aukið svona út í hverri umferð alls 21-21-24-24-26-26 sinnum = 188-192-216-224-240-248 lykkjur. Stykkið mælist ca 8-8-9-9-10-10 cm frá kanti í hálsmáli. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! ÚTAUKNING Á ERMUM: Nú er aukið út fyrir ermum þannig: Aukið út um 1 lykkju á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út um 1 lykkju á UNDAN 2. og 4. prjónamerki (= alls 4 lykkjur fleiri). Einungis er aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami. Þ.e.a.s. það er aukið út í axlarlykkjurnar. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 17-18-18-17-17-17 sinnum = 256-264-288-292-308-316 lykkjur. Stykkið mælist ca 21-22-23-22-23-23 cm frá kanti í hálsmáli. Prjónið e.t.v. áfram í sléttprjóni án útaukningar þar til stykkið mælist 21-22-23-22-23-23 cm. ÚTAUKNING Á BERUSTYKKI: Aukið nú um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan 1. og 3. prjónamerki, aukið út um 1 lykkju á UNDAN prjónamerki, prjónið 1 lykkju, lyftið prjónamerkinu yfir á hægri prjón og aukið út um 1 lykkju á EFTIR prjónamerki. Prjónið að 2. og 4. prjónamerki, aukið út um 1 lykkju á UNDAN prjónamerki, lyftið prjónamerkinu yfir á hægri prjón, prjónið 1 lykkju og aukið út um 1 lykkju á EFTIR prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING-2 (= alls 8 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð 4-5-6-10-11-14 sinnum = 288-304-336-372-396-428 lykkjur. Þegar öll útaukning hefur verið gerð, mælist stykkið ca 24-26-28-30-32-34 cm frá kanti í hálsmáli. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar í næstu umferð þannig: Prjónið yfir fyrstu 42-45-49-54-59-65 lykkjur (hálft bakstykki), setjið næstu 60-62-70-78-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-10-10-12-12 lykkjur undir ermi, prjónið 84-90-98-108-118-130 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 60-62-70-78-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-10-10-12-12 lykkjur undir ermi og prjónið síðustu 42-45-49-54-59-65 lykkjur (= hálft bakstykki). Prjónið nú fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 184-200-216-236-260-284 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-10-10-10-12-12 lykkja undir ermi í báðum hliðum. Það á síðar að fækka lykkjum hvoru megin við hvort prjónamerki. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 5 cm millibili alls 4 sinnum = 168-184-200-220-244-268 lykkjur. Þegar stykkið mælist 23 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt á meðan aukið er út um 40 lykkjur jafnt yfir = 208-224-240-260-284-308 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 7 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! ERMI: Setjið 60-62-70-78-80-84 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á sokkaprjóna 4,5. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-10-10-10-12-12 nýjum lykkjum undir ermi = 68-72-80-88-92-96 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja undir ermi. Það á síðar að fækka lykkjum hvoru megin við þetta prjónamerki. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkið – munið eftir ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 6-5-3-2-2-1½ cm millibili alls 5-6-9-12-13-14 sinnum = 58-60-62-64-66-68 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 33-32-31-30-29-28 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 18-16-18-16-18-16 lykkjur jafnt yfir = 76-76-80-80-84-84 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður að röngu þannig að það myndist uppábrot. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #glacierwaters eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 216-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.