DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5544.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Follow the Fjord

Prjónuð peysa með útaukningu á öxl fyrir axlarsæti úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 215-21
DROPS Design: Mynstur u-902
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
450-500-550-600-650-750 g litur 50, sægrænn

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón/mynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5544.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 12 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 3.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2:
AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU Á UNDAN PRJÓNAMERKI ÞANNIG:
Prjónið fram að prjónamerki, notið hægri prjón til að lyfta þræðinum á milli lykkju sem þú hefur prjónað og næstu lykkju upp á vinstri prjón, þannig að vinstri hliðin á hlekknum komi að réttu á stykki, prjónið hlekkinn slétt (hlekkurinn verður nú snúinn svo ekki myndist gat og lykkjan snýr til hægri), færið nú prjónamerkið á hægri prjón.
AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU Á EFTIR PRJÓNAMERKI ÞANNIG:
Prjónið fram að prjónamerki, færið prjónamerkið yfir á hægri prjón, notið hægri prjón til að lyfta þræðinum á milli lykkju sem þú hefur prjónað og næstu lykkju upp á vinstri prjón, þannig að hægri hliðin á hlekknum komi að réttu á stykki, prjónið hlekkinn slétt í aftari lykkjubogann (hlekkurinn verður nú snúinn svo ekki myndist gat og lykkjurnar snúi til vinstri).

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring, ofan frá og niður.
Kantur í hálsmáli er prjónaður tvöfaldur og saumaður inn í lokinn. Á berustykki eru auknar út lykkjur fyrir öxl/framstykki/bakstykki, síðan eru lykkjur auknar út fyrir ermi.
Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er síðan prjónað í hring, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 96-104-104-112-120-128 lykkjur á hringprjón 3,5 með Karisma.
Prjónið 1 umferð slétt.
Prjónið síðan stroff þannig: Prjónið 1 lykkju brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir og endið með 2 lykkjur slétt og 1 lykkju brugðið. Prjónið stroff hringinn í 8½ cm.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (þ.e.a.s. mitt að aftan). Látið prjónamerkið sitja í stykkinu. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

BERUSTYKKI:
Í næstu umferð eru lykkjur auknar út, mynstur er prjónað og það eru sett 4 prjónamerki (prjónamerkin eru sett á milli lykkja), þannig:
Prjónið A.1 (= 4 lykkjur) yfir 16-20-20-20-20-24 lykkjur (= 4-5-5-5-5-6 sinnum á breiddina = ca hálft bakstykki), setjið 1. prjónamerki, prjónið 12-12-12-12-16-16 lykkjur á meðan aukið er út um 4-4-8-8-8-8 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1, setjið 2. prjónamerki (= axlarlykkjur), A.1 yfir næstu 36-40-40-44-44-48 lykkjur (= 9-10-10-11-11-12 sinnum á breiddina = framstykki), setjið 3. prjónamerki, prjónið 12-12-12-12-16-16 lykkjur slétt á meðan aukið er út um 4-4-8-8-8-8 lykkjur jafnt yfir, setjið 4. prjónamerki (= axlarlykkjur) og A.1 yfir síðustu 20-20-20-24-24-24 lykkjur (= 5-5-5-6-6-6 sinnum á breidd = ca hálft bakstykki) = 104-112-120-128-136-144 lykkjur.

ÚTAUKNING Á ÖXLUM:
Prjónið sléttprjón yfir axlarlykkjur og mynstur A.1 yfir lykkjur á framstykki/bakstykki. Í næstu umferð er aukið út yfir öxl þannig:
Aukið út um 1 lykkju á undan 1. og 3. prjónamerki og aukið út um 1 lykkju á eftir 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2 (= alls 4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. fjöldi axlarlykkja verður sá sami.
Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur A.1. Mynstur A.1 er endurtekið á hæðina.
Aukið svona út í hverri umferð alls 20-20-24-24-28-28 sinnum = 184-192-216-224-248-256 lykkjur.
Stykkið mælist ca 8-8-9-9-11-11 cm frá prjónamerki í kanti í hálsmáli.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

ÚTAUKNING Á ERMUM:
Nú er aukið út fyrir ermum þannig:
Aukið út um 1 lykkju á eftir 1. og 3. prjónamerki og aukið út um 1 lykkju á undan 2. og 4. prjónamerki (= alls 4 lykkjur fleiri).
Þ.e.a.s. það er aukið út í axlarlykkjur.
Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 14-11-13-12-12-14 sinnum = 240-236-268-272-296-312 lykkjur.
Stykkið mælist ca 19-16-19-18-20-22 cm frá kanti í hálsmáli.
Prjónið síðan í sléttprjóni og mynstri eins og áður án útaukninga þar til stykkið mælist 19-17-19-19-20-22 cm.
Aukið nú um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki þannig:
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan 1. og 3. prjónamerki, aukið út um 1 lykkju á undan prjónamerki, prjónið 1 lykkju, lyftið prjónamerkinu yfir á hægri prjón og aukið út um 1 lykkju á eftir prjónamerki.
Prjónið að 2. og 4. prjónamerki, aukið út um 1 lykkju á undan prjónamerki, lyftið prjónamerkinu yfir á hægri prjón, prjónið 1 lykkju og aukið út um 1 lykkju á eftir prjónamerki (= alls 8 lykkjur fleiri).
Útauknar lykkjur á framstykki/bakstykki eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur A.1 og útauknar lykkjur á ermi eru prjónaðar í sléttprjóni (þ.e.a.s. lykkjur á milli 1. og 2. prjónamerkis og 3. og 4. prjónamerkis).
Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 8-12-12-16-16-16 sinnum = 304-332-364-400-424-440 lykkjur.
Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar, mælist stykkið ca 25-26-28-30-32-34 cm frá kanti í hálsi.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar í næstu umferð þannig:
Prjónið yfir fyrstu 44-52-56-60-64-68 lykkjur (hálft bakstykki), setjið næstu 60-62-70-76-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-8-8-12 lykkjur undir ermi, prjónið 92-104-112-124-132-136 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 60-62-70-76-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-8-8-12 lykkjur undir ermi og prjónið síðustu 48-52-56-64-68-68 lykkjur (= hálft bakstykki).
Prjónið nú fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 200-224-240-264-280-296 lykkjur.
Haldið áfram með mynstur A.1 eins og áður og sléttprjón yfir 8-8-8-8-8-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Þ.e.a.s. mynstur A.1 er endurtekið 23-26-28-31-33-34 sinnum á breidd bæði á framstykki og bakstykki.
Þegar fram- og bakstykki mælist 22-23-23-23-23-23 cm, skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff þannig:
Prjónið brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og sléttar lykkjur yfir gatamynstur, yfir 8-8-8-8-8-12 sléttar lykkjur undir hvorri ermi er prjónað þannig: Prjónið 1 lykkju brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 1-1-1-1-1-2 sinnum, 2 lykkjur slétt og 1 lykkja brugðið.
Þ.e.a.s. prjónið stroff með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið yfir allar lykkjur.
Þegar stroffið mælist 7 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING!

ERMI:
Setjið 60-62-70-76-80-84 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á sokkaprjóna 4,5.
Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-8-8-8-12 nýjum lykkjum undir ermi = 68-70-78-84-88-96 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja undir ermi. Það á síðar að fækka lykkjum hvoru megin við þetta prjónamerki.
Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkið – munið eftir ÚRTAKA.
Endurtakið úrtöku með 6-5-3-2-2-1½ cm millibili alls 5-5-8-10-11-14 sinnum = 58-60-62-64-66-68 lykkjur.
Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 33-32-31-30-30-28 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 18-16-18-16-18-16 lykkjur jafnt yfir = 76-76-80-80-84-84 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5.
Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður að röngu þannig að það myndist uppábrot. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 08.09.2020
Engin leiðrétting, en texti og mynsturteikning hefur verið uppfært til að auðveldara sé að skilja uppbyggingu á axlarsæti

Mynstur

symbols = slétt
symbols = brugðið
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = prjónstefna
symbols = axlarsætis útaukning
symbols = útaukning á ermi
symbols = útaukning á berustykki
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 215-21

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (43)

country flag Bernet wrote:

Je trouve ce modèle très joli mais du fait que le col est haut et que le devant est pareil que le dos ,quand je mets le pull ça fait une bosse devant juste en dessous du col J’ai démonter le col et en refaire un que j ai recousu sur l’encolure

13.03.2024 - 09:07

country flag Patricia Ribeiro wrote:

Je tricote le modèle 215-21. Je viens de terminer le col : 104 mailles taille M. J’ai un problème pour réaliser l’empiècement. En effet sur le patron, il est indiqué : tricoter A1 = 4 mailles augmentations 1/2 dos ; toujours A1 augmenter 4 mailles épaule gauche ; idem 8 mailles devant ; à nouveau 4 mailles épaules droite et 4 mailles pour le second 1/2 dos soit au total 24 augmentations. 104 mailles du col + 24 augmentations = 128 mailles correspondant à la taille XL.

04.02.2024 - 21:12

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Ribeiro, tricotez ainsi: 20 m de A.1 pour le demi-dos + (12+4) m pour la manche + 40 m de A.1 pour le devant + (12+4) pour la manche + 20 m de A.1 pour le demi-dos soit: 20+16+40+16+20=112 m (vous aviez 104 m et avez augmenté 2 x 4 m, soit 104 + 8 = 112). Bon tricot!

05.02.2024 - 09:37

country flag Lia De Wind wrote:

Een vraag over de stekenverhouding: Van welke naald gaan jullie uit. Dit staat er namelijk niet bij Vriendelijke groet

01.04.2023 - 19:19

DROPS Design answered:

Dag Lia,

Het proeflapje wordt met naald 4,5 gebreid of de dikste naald. Naald 3,5 is alleen voor de boorden.

05.04.2023 - 10:22

country flag Maja wrote:

I’ve really enjoyed knitting this sweater, but I don’t really like that the sleeves end up really wide at the bottom. Could you suggest an interval for further decreases to make the sleeves a bit more tapered, please? Any help would be greatly appreciated. Thank you

21.02.2023 - 22:21

DROPS Design answered:

Dear Maja, we are unfortunately not able to adjust every pattern to every single request, maybe you can calculate your own decreases following your own measurements. Feel free to contact your DROPS store for any individual assistance. Thanks for your comprehension. Happy knitting!

22.02.2023 - 08:40

country flag Ragnhild Brudevik wrote:

Strikker str M Antall under «Bærestykke» er feil. Ved setting av merker har vi 20+12+40+12+20=104(ikke 112) Etter økning +4x20=80 har vi da 104+80=184(ikke 192) Hva er riktig??

04.11.2022 - 13:17

country flag Inge Andersen wrote:

Det ser ud til at diagrammet er faldet ud af opskriften, jeg kan ikke finde det. Er der ikke en tekstforklaring til mønsteret?

17.10.2022 - 22:16

DROPS Design answered:

Hei Inge. Diagram A.1 finner du ved siden av målskissen (under ermet, lite diagram). mbh DROPS Design

24.10.2022 - 14:31

country flag Christy wrote:

It might be helpful if the questions and answers were translated into English (and those in English translated into German or French). That would make them accessible to more of your fans. Thank you for your consideration.

07.03.2022 - 06:44

country flag Cath wrote:

Il semble manquer le diagramme du point fantaisie est-il possible de l’obtenir ?

14.01.2022 - 09:28

DROPS Design answered:

Bonjour Cath, vous trouverez le diagramme du point fantaisie (A.1) à droite du schéma des mesures (sous la manche). Bon tricot!

14.01.2022 - 16:32

country flag Kirsten wrote:

Hej Drops-team. Når man tager ud til for-og bagstykke, så tager man 2 masker ud (1 efter og 1 før mærket). Når jeg kommer rundt til samme sted på næste pind, så har jeg øget maskeantallet med 2, men mønsteret strækker sig over 4 masker. Hvordan skal de sidste to masker strikkes? Hvis jeg starter med mønsteret straks efter den nye udtagning, så "mangler" jeg to masker til sidst (f.eks. der, hvor man skal strikke første maske vrang og derefter to masker ret sammen).

03.12.2021 - 11:52

DROPS Design answered:

Hej Kirsten, du strikker de nye masker ind i mønsteret, men først når du har 2 m glatstrik efter hinanden, kan de strikkes sammen ifølge diagrammet. God fornøjelse!

03.12.2021 - 15:42

country flag Stefania wrote:

Non riesco a capire gli aumenti manica: Il lavoro misura circa 19-16-19-18-20-22 cm dal segnapunti. Continuare a maglia rasata e con il motivo come prima senza ulteriori aumenti fino a quando il lavoro misura 19-17-19-19-20-22 cm. Io sto lavorando la taglia L . Quanto deve misurare la parte senza aumenti (B) ? Io ho capito che deve essere 19 cm dalla fine degli aumenti!

25.10.2021 - 21:53

DROPS Design answered:

Buonasera Stefania, per la taglia L non deve lavorare ulteriormente, ha già la lunghezza corretta. Buon lavoro!

26.10.2021 - 19:49