Audrey skrifaði:
Hi, sizes for ladies jumpers are s, m, l etc. but what are the size measurements in inches. No size guide shown.
08.01.2022 - 18:47DROPS Design svaraði:
Dear Audrey, get the pattern with measurements in inches by clicking on the scroll down menu below the photo and choose "English US/in". The measurements in the chart will be in cm, convert into inches here. Read more about how to choose your size here. Happy knitting!
10.01.2022 - 08:15
Anna VanAmstel skrifaði:
Hoe zet ik nieuwe steken op in de zijkant onder de mouw bij patroon Mistletoe Kisses
16.02.2021 - 14:54
Anna Van Amstel skrifaði:
Hoe meerder ik nieuwe nieuwe steken in de zijkant van de mouw??
16.02.2021 - 12:31DROPS Design svaraði:
Dag Anna,
Helaas begrijp ik niet goed wat je bedoelt. Je breit de mouw van boven naar beneden en je mindert midden onder de mouw zoals aangegeven in het patroon en bij tips voor het minderen. Aan het eind (vlak voor de boord) meerder je verdeeld. Je hoeft dus niet aan de zijkant te meerderen.
16.02.2021 - 13:23
Christina Scheller skrifaði:
Hallo, ich möchte diesen Pullover gerne in Drops Karisma stricken. Wie muss ich das Muster umrechnen? Geht das ohne das es total verzerrt ist und wie mache ich das mit den Zunahmen?
27.10.2020 - 19:03DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Scheller, Karisma ist also Garngruppe B und Air Garngruppe C - wenn Sie Karisma zusammen mit 1 Faden Kid-Silk könnte es passen - hier lesen Sie eine Farbkombination mit Puna und Kid-Silk - am besten stricken Sie zuerst eine Maschenprobe, so wissen Sie ob es Ihnen gefällt - Ihr DROPS Laden wird Ihnen gerne damit helfen, die passenden Farben zu wählen. Viel Spaß beim stricken!
28.10.2020 - 07:44
Mette Gade skrifaði:
Jeg er en meget stor dame, og jeg ville så gerne strikke en trøje med nordisk mønster til mig selv. Er der en metode jeg kan anvende til at lave dette mønster stort nok?
18.09.2020 - 01:39DROPS Design svaraði:
Hei Mette. Om du tar utgangspunkt i den største størrelsen og strikker ovenfra og ned kan du prøve bærestykket underveis. Om du ønsker å øke med noen masker, pass på at du øker med et antall masker slik at mønstret går opp. Øker du maskenatallet på bærestykket, vil ermene også bli kortere. Det fine med å strikke et plagg ovenfra og ned, er at du hele tiden kan prøve og se om den passer og evnt gjøre endringer underveis. God Fornøyelse!
21.09.2020 - 10:43
Annette skrifaði:
Jeg kan ikke vente til opskriften kommer. Hvornår kan man se den?
25.07.2020 - 23:28
Ilona Peltola skrifaði:
Beautiful colorwork!
04.06.2020 - 15:06
Charlotte Markgren skrifaði:
Så sød - elsker de farver
04.06.2020 - 11:34
Mistletoe Kisses#mistletoekissessweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, norrænu mynstri og tvöföldum kraga í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 217-7 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Allar lykkjur í mynstri eru prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. Ef prjónfestan passar ekki á hæðina og prjónað er of fast, þá kemur flíkin til með að verða of stutt og handvegur of lítill – þetta er hægt að jafna til með því að prjóna auka umferð með jöfnu millibili í einlitu einingunum. Ef prjónað er of laust, þá verður flíkin of löng og handvegur of stór, þá er hægt að prjóna færri umferðir með jöfnu millibili í einlitu einingunum. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 80 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 22) = 3,5. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 3. og 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá skiptingunni á milli vinstri ermi og bakstykkis og prjónað er ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar, síðan er fram- og bakstykki prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 80-84-88-94-96-102 lykkjur á hringprjón 4,5 með litnum hveiti. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 9 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 22-24-26-26-30-36 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 102-108-114-120-126-138 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Prjónið nú mynstur A.1 (= 6 lykkjur) alls 17-18-19-20-21-23 sinnum hringinn í umferð – sjá LEIÐBEININGAR. Í umferð merktri með stjörnu er aukið út jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING, þannig: Stjarna-1: Aukið út 24-30-30-30-30-36 lykkjur jafnt yfir = 126-138-144-150-156-174 lykkjur. Stjarna-2: Aukið út 30-30-30-30-30-30 lykkjur jafnt yfir = 156-168-174-180-186-204 lykkjur. Stjarna-3: Aukið út 30-30-30-30-30-30 lykkjur jafnt yfir = 186-198-204-210-216-234 lykkjur. Stjarna-4: Aukið út 30-36-30-30-30-30 lykkjur jafnt yfir = 216-234-234-240-246-264 lykkjur. Stjarna-5: Aukið út 24-30-30-30-30-36 lykkjur jafnt yfir = 240-264-264-270-276-300 lykkjur. Nú er útaukning í stærð S og M lokið. Haldið síðan áfram eins og útskýrt er að neðan. Í stærð L, XL, XXL og XXXL er eftir ein útaukning. Stjarna-6: Aukið út 24-18-36-36 lykkjur jafnt yfir = 288-288-312-336 lykkjur. Allar stærðir: Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 22-24-25-26-28-30 cm frá prjónamerki. Prjónið næstu umferð í mynstri eins og áður þannig: Prjónið fyrstu 72-78-84-84-96-102 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 48-54-60-60-60-66 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-6-12-12-12 nýjar lykkjur (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 72-78-84-84-96-102 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 48-54-60-60-60-66 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-6-12-12-12 nýjar lykkjur (= í hlið undir ermi). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 156-168-180-192-216-228 lykkjur. Prjónið áfram mismunandi eftir stærðum þannig: Haldið áfram hringinn með mynstri þar til A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið með litnum hveiti til loka. Þegar stykkið mælist 26-26-27-28-28-28 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 28-30-32-32-36-38 lykkjur jafnt yfir = 184-198-212-224-252-266 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 48-54-60-60-60-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna/stuttan hringprjón 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-12-12-12 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-60-66-72-72-78 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt undir ermi, mitt í 6-6-6-12-12-12 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi (= 3-3-3-6-6-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Haldið áfram hringinn með mynstri alveg eins og á fram- og bakstykki – mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp mitt undir ermi. Þegar ermin mælist 5-3-3-3-3-3 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 3½-3-2½-2-2-1½ cm millibili alls 9-11-13-15-14-17 sinnum = 36-38-40-42-44-44 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 37-36-35-34-33-31 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-6-6-6-8-8 lykkjur jafnt yfir = 42-44-46-48-52-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfalt uppábrot. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mistletoekissessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 217-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.