DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13640.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Mistletoe Kisses Jacket

Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 217-8
DROPS Design: Mynstur ai-313
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
250-250-300-300-350-350 g litur 02, hveiti
50-50-50-50-50-50 g litur 05, brúnn
50-50-50-50-50-50 g litur 26, beige
50-50-50-50-50-50 g litur 07, rúbínrauður
50-50-50-50-50-50 g litur 28, rauður múrsteinn
50-50-50-50-50-50 g litur 29, bleikvínrauður

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni/norrænu mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón/norrænt mynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4,5: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS TALA, Marble NR 629: 6-6-7-7-7-7 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13640.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 93 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 12 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 24) = 3,4.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftri ca 3. og 4. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2:
Aukið er út jafnt yfir eins og útskýrt er í ÚTAUKNING-1, en í umferð með stjörnu-2 og stjörnu-5, aukið út með því að prjóna 2 lykkjur í eina lykkju í stað þess að slá uppá prjóninn. Þ.e.a.s. í umferð með stjörnu-2 (rétta) er aukið út með því að prjóna 1 lykkju slétt í fremri og aftari lykkjubogann og í umferð með stjörnu-5 (ranga) er aukið út með því að prjóna 1 lykkju brugðið í fremri og aftari lykkjubogann.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð).
1 hnappagat = sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur að framan mælist ca 6-6-4-6-5-4 cm frá neðst á fram- og bakstykki. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 9-9½-8½-8½-9-9½ cm millibili.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Að lokum er kantur að framan prjónaður.

KANTUR AÐ FRAMAN:
Fitjið upp 93-97-101-107-109-115 lykkjur (meðtaldar 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna 4,5 með litnum hveiti. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið nú stroff þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 1 kantlykkju GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkja snúin slétt og endið með 1 kantlykkja garðaprjón.
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, * prjónið 1 lykkja snúin brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, 1 lykkja snúin brugðið, 1 kantlykkja garðaprjón.
Haldið svona áfram með stroff í 9 cm.
Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þannig: Fellið af fyrstu 6 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur þar til 6 lykkjur eru eftir og aukið jafnframt út 24-26-28-28-32-38 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1, prjónið síðustu 6 lykkjur eins og áður, snúið og fellið af fyrstu 6 lykkjur, prjónið brugðnar lykkjur til baka frá röngu yfir allar lykkjur = 105-111-117-123-129-141 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki innan við 1 lykkju í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Prjónið nú mynstur þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir (= 17-18-19-20-21-23 mynstureiningar með 6 lykkjum), prjónið fyrstu lykkju í A.1, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka og aukið jafnframt jafnt yfir í hverri umferð með stjörnu – sjá ÚTAUKNING-2.
Stjarna-1: Aukið út 24-30-30-30-30-36 lykkjur jafnt yfir með uppslætti = 129-141-147-153-159-177 lykkjur.
Stjarna-2: Aukið út 30-30-30-30-30-30 lykkjur jafnt yfir með því að prjóna 2 lykkjur í eina lykkju = 159-171-177-183-189-207 lykkjur.
Stjarna-3: Aukið út 30-30-30-30-30-30 lykkjur jafnt yfir með uppslætti = 189-201-207-213-219-237 lykkjur.
Stjarna-4: Aukið út 30-36-30-30-30-30 lykkjur jafnt yfir með uppslætti = 219-237-237-243-249-267 lykkjur.
Stjarna-5: Aukið út 24-30-30-30-36-36 lykkjur jafnt yfir með því að prjóna 2 lykkjur í eina lykkju = 243-267-267-273-285-303 lykkjur.
Nú er útaukning í stærð S og M lokið. Haldið síðan áfram eins og útskýrt er að neðan. Í stærð L, XL, XXL og XXXL er eftir ein útaukning.
Stjarna-6: Aukið út 24-18-36-36 lykkjur jafnt yfir með því að gera uppslátt = 291-291-315-339 lykkjur.

Allar stærðir:
Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 22-24-25-26-28-30 cm frá prjónamerki. Prjónið næstu umferð frá röngu þannig: Prjónið fyrstu 37-40-43-43-49-52 lykkjur (= hægra framstykki), setjið næstu 48-54-60-60-60-66 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-6-12-12-12 nýjar lykkjur (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 73-79-85-85-97-103 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 48-54-60-60-60-66 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-6-12-12-12 nýjar lykkjur (= í hlið undir ermi), prjónið síðan síðustu 37-40-43-43-49-52 lykkjur (= vinstra framstykki).
Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 159-171-183-195-219-231 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með mynstri eins og áður með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið með hveiti til loka. Þegar stykkið mælist 26-26-27-28-28-28 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 28-30-32-32-36-38 lykkjur jafnt yfir = 187-201-215-227-255-269 lykkjur. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 1 kantlykkju GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 1 lykkju snúið slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúið slétt og endið með 1 kantlykkju garðaprjón.
UMFERÐ 2 (ranga). Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, * prjónið 1 lykkju brugðið snúið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, 1 lykkja snúið brugðið, 1 kantlykkja garðaprjón.
Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING.
Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 48-54-60-60-60-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna/stuttan hringprjón 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-12-12-12 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-60-66-72-72-78 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt undir ermi, mitt í 6-6-6-12-12-12 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi (= 3-3-3-6-6-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Haldið áfram hringinn með mynstri þar til A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina. Prjónið síðan áfram með litnum hveiti til loka. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 3½-3-2-2-1½-1½ cm millibili alls 9-11-13-15-14-17 sinnum = 36-38-40-42-44-44 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 37-36-35-34-33-31 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-6-6-6-8-8 lykkjur jafnt yfir = 42-44-46-48-52-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 5 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfalt uppábrot. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsi verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju framan á kanti að framan með smáu spori.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Byrjið frá réttu neðst á hægra framstykki með hringprjón 4,5 og litnum hveiti og prjónið upp 95-115 lykkjur innan við 1 kantlykkju garðaprjón meðfram fram- og bakstykki og alveg upp að kanti í hálsi (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1 lykkju).
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið nú stroff þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * prjónið 1 lykkju snúið slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúið slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
UMFERÐ 2 (ranga). Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, * prjónið 1 lykkju brugðið snúið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, 1 lykkja snúið brugðið, og endið með 1 kantlykkja garðaprjón.
Endurtakið umferð 1 og 2 þar til kantur að framan mælist 1 ½ cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Fellið nú af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Haldið síðan áfram með stroff þar til kantur að framan mælist alls 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Saumið kant í hálsi við kant að framan innan við 1 kantlykkju garðaprjón á kanti að framan og innan við affellingarkant í kanti í hálsi. Saumið saman hlið á kanti að framan við kant í hálsmáli innan við kantlykkju í garðaprjóni í kanti að framan og innan við affellingarkant í kanti í hálsmáli.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið upp 95-115 lykkjur með hringprjóni 4,5 og litinn hveiti (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1 lykkju) frá réttu innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni, með byrjun frá þar sem lykkjur voru felldar af í kanti í hálsmáli og niður meðfram vinstra framstykki.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið nú stroff þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * prjónið 1 lykkju snúið slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúið slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
UMFERÐ 2 (ranga). Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, * prjónið 1 lykkju brugðið snúið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, 1 lykkja snúið brugðið, og endið með 1 kantlykkja garðaprjón.
Endurtakið umferð 1 og 2 þar til kantur að framan mælist 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Saumið saman hliðar á kanti að framan við kant í hálsmáli innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á kanti að framan og innan við affellingarkant í kanti í hálsmáli. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = hveiti
symbols = beige
symbols = bleikvínrauður
symbols = brúnn
symbols = rauður múrsteinn
symbols = rúbínrauður
symbols = stjarna = útauknings umferð - sjá útskýringu í uppskrift
symbols = stjarna = útauknings umferð - sjá útskýringu í uppskrift
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 217-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (18)

country flag Gun Penhoat wrote:

I read the questions and comments and found the answer that talks about an extra stitch in the main color when starting the purl row. Is this an errata in the pattern as this is the first I see about having to add an extra stitch in the main color. The chart doesn't show this and nowhere in the pattern do I find this mentioned. It isn't practical to have to unravel when you knit in light colors while you try to figure out where you're going wrong.

01.02.2023 - 21:40

DROPS Design answered:

Dear Mrs Penhoat, there is no mistake in the pattern, you should repeat the 6 sts in the diagram reading right towards left and always end with the first stitch in diagram from RS / work the first stitch in diagram + repeat the 6 sts in diagram reading left towards right from WS. Happy knitting!

02.02.2023 - 09:27

country flag Gun Penhoat wrote:

Again, thank you so much for the quick answer! Does that mean that both knit and purl rows are read from right to left? I read the purl row left to right and then the pattern reads 1 edge stitch, 1 Main, 1 contrast, 1 Main, 1 contrast, 2 Main.

01.02.2023 - 17:16

DROPS Design answered:

Dear Mrs Penhoat, diagram is read from right side from the right towards the link and from wrong side from the left towards the right, so when you work the wrong side rows, work the first stitch in A.1 (on the right hand side = the one you end with from RS) then repeat diagram from the left towards the right, on the first row with pattern you will have then 2 sts Main on each side inside the edge stitches. Happy knitting!

02.02.2023 - 09:23

country flag Gun Penhoat wrote:

I thought it would be plain sailing now when I got my question about increases answered, but no ... I'm stuck again. I have 141 stitches and went on to Row 6 and (purl) where the contrast starts. 1 edge stitch, then A1 starts with 1 Main color, and continues with 1 contrast, 1 Main, 1 contrast, 3 Main (the pattern row starts over with 1 Main so this becomes 3 Main), 1 contrast, I Main, 1 contrast etc.., I end up with 3 not 2 Main stitches before the edge stitch . Where am I going wrong?

01.02.2023 - 15:47

DROPS Design answered:

Dear Mrs Penhoat, work your 141 sts as follwos: 1 edge stitch, repeat the 6 sts a total of 23 times (over the next 138 sts), ending with 1 Main, then work the next stitch as the first = 1 Main (so that there are now 2 Main inside the edge stitches on each side) and end with 1 edge stitch in garter stitch. Happy knitting!

01.02.2023 - 17:07

country flag Gun Penhoat wrote:

Thank you so much for clarifying!

31.01.2023 - 23:03

country flag Gun Penhoat wrote:

Thank you so much for the quick reply! I still have a question though ... am I right in thinking that there are 5 ROWS of MAIN COLOR before the different colored A1 chart actually starts?

31.01.2023 - 18:13

DROPS Design answered:

Dear Gun, the 5 starting rows in the main colour are part of A.1. You immediately start working A.1 after the purl and decrease row, but the beginning of A.1 is 5 rows of the main colour. After these five rows, you will start changing colours as explained in the diagram. Happy knitting!

31.01.2023 - 23:00

country flag Gun Penhoat wrote:

I have finished the rib and done the decrease 6 on the right-side row + increased to 111 stitches. Then I purled and decreased 6 on this purl row. When I look at the chart I now see 5 ROWS in MAIN COLOR before the chart itself. The third row of the 5 is an increase row. However, when I read the description it says to start the A1 chart with 18 (I'm knitting the 2nd size) repeats of the 6 stitch pattern, after the purl (with the decreased 6 stitches) row. HELP, PLEASE!

31.01.2023 - 11:58

DROPS Design answered:

Dear Mrs Penhoat, just increase on 3rd row as stated for your size = there are now 141 sts on needle after this increase round, and now work A.1 as before: 1 edge st in garter st, repeat A.1 until 2 sts remain (there are now enough room for 23 repeats of A.1), work the first stitch in A.1 and end with 1 edge stitch in garter stitch. And continue like this, ie everytime you will increase, you will repeat A.1 more times in width but repeat A.1 until the last 2 sts and end with the first st in A.1 + 1 edge st in garter stitch. Happy knitting!

31.01.2023 - 17:33

country flag Jenny Douglas wrote:

I have a further question. Should the garter stitch on each edge be worked in main colour or can you use the same colour as the stitch next to it?

04.12.2022 - 19:44

DROPS Design answered:

Dear Mrs Douglas, you can work the edge stitches with the main colour used on the row. Happy knitting!

06.12.2022 - 10:13

country flag Jenny Douglas wrote:

Regarding the "extra" stitch from A1, prior to the garter stitch. This is first stitch from A1. Row 6 is a purl row and after A1, the final two stitches will be a Wheat purl and a Wheat garter stitch. Following the chart, Starting row 7 I have a garter stitch, then a Wheat knit then a Brown knit, but this does not match the pattern. Should I add the extra stitch from A1 at the beginning of knit rows and the end of purl rows? Should extra stitch be from left hand side of chart?

04.12.2022 - 12:54

DROPS Design answered:

Dear Mrs Douglas, on the 6th row (from WS) work first the 1st stitch in A.1 (= wheat), then repeat A.1 reading from the left towards the right) = there are 2 sts with wheat inside edge sts, then on row 7 (from RS), work A.1 (read from the right towards the left) starting with 1 st with wheat, then end with first st A.1 (= 1 st with wheat), pattern is now symmetrical. Happy knitting!

06.12.2022 - 09:45

country flag Åse Engseth wrote:

I str L er antall masker 291 iflg oppskriften når du deler av til bol og armer når jeg summerer alle delenes masker. Jeg sitter imidlertid med 267 masker, som er riktig iflg mønster etter økning nr 5. Jeg må bare rekke opp det jeg har strikket for det er ikke nok masker når arbeidet måler 25 cm fra merket, og hvordan skal man få resterende mønster til å passe da? Skuffet....

17.04.2022 - 19:45

country flag Irene Mentz wrote:

Hej jeg vil lige høre hvad er bryst mål i de forskellige størrelser. str. S og str M og Str L

02.06.2021 - 15:02

DROPS Design answered:

Hej Irene, du finder måleskitsen, med mål på blusen i de forskellige størrelser, nederst i opskriften. Du tager bredden: 49-53-57-60-68-72 i aktuel størrelse og ganger med 2 :)

02.06.2021 - 15:46