Yosha skrifaði:
Is het een fout in het patroon dat je in een toer van 39 stokjes naar 30 stokjes zou moeten gaan (door het middelste stokje over te slaan)?
21.03.2021 - 16:05DROPS Design svaraði:
Dag Yosha,
Het patroon is nagekeken en er zaten inderdaad een aantal fouten in. Op verschillende plekken in het patroon zijn nu aanpassingen gedaan in het aantal steken en de afmetingen.
11.04.2021 - 14:01
Yosha skrifaði:
Bij de cup heb je na het meerdere 39 stokjes. Dan haak je 1 toer met een stokje in elk stokje. Dan haak je 1 toer, terwijl je het middelste stokje overslaat = 30 stokjes. Ik begrijp niet hoe ik deze mindering moet toepassen. Als ik één keer het middelste stokje oversla ga ik van 39 naar 38 stokjes. Meerdere toeren 1 stokje overslaan gaat niet omdat je dan een even aantal hebt en geen middelste stokje hebt. Kan iemand me helpen alsjeblieft?
20.03.2021 - 21:13
Yosha skrifaði:
Kan je dit patroon ook maken zonder de bloemetjes?
19.03.2021 - 16:14DROPS Design svaraði:
Dag Yosha,
Jazeker, dat kan. In plaats van een bloem haak je dan een stokje.
21.03.2021 - 11:01
Vanessa Gan skrifaði:
"Continue with 1 double crochet in each double crochet – AT THE SAME TIME as you increase 2 double crochets in the middle of the piece on the next 4-4-5 rows – read INCREASE TIP = 39-45-53 double crochets. Work 1 row with 1 double crochet in each double crochet. Work 1 row where you skip the middle double crochet = 30-36-42 double crochets." Does that means I dec 9 sts in a row from 39 to 30? Or 1 row of dc in each st and 1 row of dec, then repear the 2 rows until I get 30 sts?
11.03.2021 - 16:06DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Gan, sorry for late answer, pattern has been edited. Thanks for your feedback. Happy crocheting!
20.05.2021 - 08:40
Manon skrifaði:
This is so cute ! Love it thank you! Can't wait to try this pattern!
09.06.2020 - 14:49
Find Me at the Beach#findmeatthebeachbikini |
|
![]() |
![]() |
Heklaður bikinítoppur með blómum úr DROPS Safran. Stærð S - L.
DROPS 211-14 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR FYRIR LOFTLYKKJU: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur, þessar loftlykkjur koma í stað fyrsta stuðuls, þ.e.a.s. hoppið yfir 1. stuðul frá fyrri umferð. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út um 2 stuðla með því að hekla 3 stuðla í lykkju með prjónamerki. BLÓM: Heklið 2 stuðla í næstu fastalykkju, það á að hekla utan um þessa 2 stuðla og nú verða þeir kallaðir 1. stuðull (fyrri stuðull sem er heklaður) og 2. stuðull (seinni stuðull sem er heklaður). ATH: Stykkið færist til á meðan það er heklað þannig: * Heklið 2 loftlykkjur, heklið 2 stuðla um 2. stuðul, heklið 2 loftlykkjur og 1 keðjulykkju um 2. stuðul *, heklið frá *-* alls 3 sinnum = 3 blöð sem eru hekluð utan um 2. stuðul. ** Heklið 2 loftlykkjur, 2 stuðlar um 1. stuðul, 2 loftlykkjur og 1 keðjulykkja um 1. stuðul **, heklið frá **-** 2 sinnum og heklið 1 loftlykkju = 2 blað sem er heklað utan um 1. stuðul. Nú hafa verið hekluð alls 5 blöð og blómið er nú tilbúið. Brjóttu uppá blómið að þér þannig að þú getir heklað áfram yfir hinar lykkjurnar í umferðinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BIKINÍTOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Hver brjóstaskál er hekluð hvor fyrir sig, heklað er neðan frá og upp. Stykkin eru síðan hekluð saman jafnframt því sem búin er til snúra með blómum á. BRJÓSTASKÁL: Notið heklunál 2,5 og Safran, heklið 39-49-59 loftlykkjur – sjá HEKLLEIÐBEININGAR FYRIR LOFTLYKKJU í útskýringu að ofan. Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni – sjá HEKLLEIÐBEININGAR í útskýringu að ofan, heklið síðan 1 stuðul í hverja loftlykkju út umferðina = 37-47-57 stuðlar (meðtaldar 3 loftlykkjur sem koma í stað fyrsta stuðul). Setjið 1 prjónamerki í miðju stuðul og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu á meðan það er heklað. Heklið síðan 1 stuðul í hvern stuðul – JAFNFRAMT er aukið út um 2 stuðla mitt í stykkinu í næstu 4-4-5 umferðum – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 45-55-65 stuðlar. Heklið 1 umferð með 1 stuðli í hvern stuðul. Heklið 1 umferð þar sem hoppað er yfir miðju stuðul = 44-54-64 stuðlar. Stykkið mælist ca 4½-4½-5 cm frá uppfitjunarkanti. Fækkið síðan lykkjum í hverri umferð, fækkið lykkjum með því að hoppa yfir 2 miðju stuðlana. Haldið svona áfram með úrtöku þar til einungis 4 stuðlar eru eftir í umferð. Stykkið mælist nú ca 17-20-24 cm frá uppfitjunarkanti. Nú er hekluð snúra yfir þessa 4 stuðla, heklið 1 stuðul í hvern stuðul í hverri umferð þar til snúran mælist ca 40 cm. Klippið frá. Heklið hina brjóstaskálina á sama hátt. HEKLAÐ SAMAN: Notið heklunál 2,5 og Safran. UMFERÐ 1: Heklið 90-100-110 loftlykkjur fyrir snúru í annarri hliðinni, takið fram aðra brjóstaskálina og heklið 1 fastalykkju í neðri hlið á hverjum stuðli frá fyrstu umferð (= 37-47-57 lykkjur). Heklið 1 loftlykkju og takið fram hina brjóstaskálina og heklið 1 fastalykkju í neðri hlið á hverjum stuðli frá fyrstu umferð (= 37-47-57 lykkjur) og heklið 90-100-110 loftlykkjur fyrir snúru í annarri hliðinni. Snúið stykkinu. UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju (kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju), heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju á snúru, heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju í fyrri brjóstaskálinni og heklið 1 fastalykkju í loftlykkju á milli brjóstaskála. Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju frá hinni brjóstaskálinni og 1 fastalykkju í hverja loftlykkju frá snúru. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á brjóstaskálum, setjið þau þannig að það séu alls 65-81-97 lykkjur á milli prjónamerkja, teljið þannig að það séu 32-40-48 lykkjur hvoru megin við lykkju sem er mitt á milli brjóstaskála – blómið kemur til með að vera í miðjulykkjunni. UMFERÐ 3: Heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju fram að prjónamerki, * heklið 1 BLÓM í næstu fastalykkju – sjá útskýringu að ofan, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 7 fastalykkjum *, heklið frá *-* alls 9-11-13 sinnum og heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju út umferðina. Klippið frá og festið enda. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #findmeatthebeachbikini eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 7 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 211-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.