Birgitta skrifaði:
Hej Äntligen
05.05.2020 - 09:51
Julie skrifaði:
Endless sunshine
24.04.2020 - 20:54
Julia skrifaði:
Golden hours
24.04.2020 - 20:49
Britt skrifaði:
Hej kommer den till hösten
22.04.2020 - 13:53
Marie skrifaði:
Field of Sunflowers
18.04.2020 - 09:31
Sunflower skrifaði:
Wonderful, a must have!
15.04.2020 - 21:17
Annette skrifaði:
Waar zijn de haakinstructies?
30.03.2020 - 16:21
Valerie skrifaði:
Ou sont les explications?
28.03.2020 - 17:03
C A Flower skrifaði:
Like Marit, I also thought of sunflowers. Would be a good name
14.03.2020 - 14:32
Pia P skrifaði:
Absolutely stunning
09.03.2020 - 22:53
Golden Garden#goldengardenblanket |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklað teppi í ferningum með sólblómum úr DROPS Lima.
DROPS 209-3 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1, A.2, A.3 og A.4. Mynsturteikning A.1 sýnir ferningana og A.2-A.4 sýnir hvernig á að hekla kant í kringum teppið. LITIR Á FERNINGUM: Ferningarnir eru heklaðir með 3 litum í eftirfarandi röð: UMFERÐ 1-3: brúnn UMFERÐ 4: gulur UMFERÐ 5-6: natur LITASKIPTI: Til að litaskiptingin verði falleg er síðasta keðjulykkjan í umferð hekluð með nýja litnum. LEIÐBEININGAR: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull/tvíbruginn stuðull. HEKLLEIÐBEININGAR: Þegar hekla á kantinn í kringum teppið byrjar 1. umferð með því að festa þráðinn með 1 keðjulykkju, síðan eru heklaðar 3 loftlykkjur. Þessar loftlykkjur eru ekki teiknaðar inn í mynsturteikningu og koma sem viðbót við lykkjurnar sem eru teiknaðar inn. Fyrsta umferð endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju. Í 2 næstu umferðum byrjar hver umferð með 3 loftlykkjum (sem koma sem viðbót við lykkjurnar sem eru teiknaðar inn) og hver umferð endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Teppið samanstendur af 40 alveg eins ferningum sem saumaðir eru saman. Að lokum er heklaður kantur í kringum allt teppið. FERNINGUR: Byrjið með Lima og heklunál 4 og lesið LITIR Á FERNINGUM, LITASKIPTI og LEIÐBEININGAR í útskýringu að ofan og heklið MYNSTUR eftir mynsturteikningu A.1. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Heklið alls 40 ferninga. FRÁGANGUR: Leggið út ferningana þannig að þeir liggi með 8 ferninga á lengdina og 5 ferninga á breiddina. Passið uppá að allir ferningarnir liggi með réttuna upp. Notið litinn natur og saumið ferningana saman kant í kant með einu spori í hverja lykkju, saumið einnig saman loftlykkjubogana í hornum. Passið uppá að saumurinn verði flatur og sjáist eins lítið og mögulegt er. Klippið frá og festið enda. KANTUR: Kantur er heklaður í kringum allt teppið, byrjið á að hekla strax eftir fyrsta hornið. Í mynsturteikningu A.2 er síðasta umferð A.1 teiknuð þannig að það sést vel í hvaða lykkjur á að hekla. Notið heklunál 4 og litinn natur. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR í útskýringu að ofan og heklið þannig: * Heklið mynsturteikningu A.2 meðfram hlið á mynsturteikningu A.1. Heklið mynsturteikningu A.3 í skiptinguna á milli ferninga *, heklið frá *-* fram að 1. horni. Heklið mynsturteikningu A.4 um hornið. Heklið frá *-* fram að 2. horni. Heklið A.4 um hornið. Heklið frá *-* fram að 3. horni. Heklið mynsturteikningu A.4 um hornið. Heklið frá *-* fram að 4. horni. Heklið mynsturteikningu A.4 um hornið. Þegar mynsturteikningin hefur verið hekluð 1 sinni á hæðina er kanturinn tilbúinn. Klippið frá og festið enda. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #goldengardenblanket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 15 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 209-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.