Marlene Oppermann skrifaði:
Vielen Dank für die schnelle Antwort - die aber leider meine Frage nicht vollständig beantwortet. Soll der Kragen hinten umgeschlagen werden wie bei einem Schalkragen üblich? Auf den Fotos sieht es nicht so aus, dann rutschen die Schulternähte aber unschön nach hinten/unten.
07.09.2026 - 10:53DROPS Design svaraði:
Liebe Marlene, Sie können den hinteren Teil des Kragens auch nach innen statt nach außen umschlagen. Wenn Ihnen das nicht gefällt oder sich beim Tragen nicht gut anfühlt, können Sie versuchen, den Schalkragen zu glätten, indem Sie die Jacke (bzw. den Kragen) anfeuchten und liegend trocknen lassen, dann sollte er sich nicht mehr einrollen, und Sie können ihn dann hinten nach außen umschlagen.
09.09.2026 - 22:49
Marlene Oppermann skrifaði:
Hallo, die Jacke ist fertig und eigentlich sehr schön. Ich habe aber ein Problem mit dem Kragen. So wie ich einen Schalkragen kenne, wird er im Nacken umgeschlagen. Da sich die Blende aber sehr nach innen rollt, klappt das nicht so ganz. Schlage ich den Kragen nicht um, rutscht hinten alles nach unten und die Schulternähte sitzen nicht mehr auf den Schultern. Leider gibt es kein Foto der Rückansicht - wie soll der Kragen getragen werden?
06.09.2026 - 11:19DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Oppermann, in diesem Video zeigen wir, wie man so einen Schalkragen annäht; sollte es danach immer noch etwas einrollen, dann können Sie die Arbeit einfach blocken. Viel Spaß beim Fertigstellen!
07.09.2026 - 08:41
Sylvie Mailhot skrifaði:
Et au 15 rangs de a3
03.09.2026 - 18:11DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Mailhot, au 15ème rang, vous tricoterez 1 m en moins après la dernière maille du diagramme = terminez par 1 maille endroit car vous n'avez pas suffisamment de mailles pour faire les 2 m ens à l'endroit; Bon tricot!
04.09.2026 - 16:29
Sylvie skrifaði:
Je ne comprends pas cette partie NOTE! Au 5ème rang de A.2, tricoter 1 maille endroit avant de tricoter la première maille dans le diagramme (uniquement au début du rang, la première fois que l'on tricote le diagramme après les mailles de bordure devant du droit et après le fil marqueur des côtés). Au 15ème rang de A.3, tricoter 1 maille en moins après la dernière maille du diagramme (avant le fil marqueur des côtés et avant les mailles de bordure du devant gauche.
02.09.2026 - 11:45DROPS Design svaraði:
Bonjour Sylvie, au 5ème rang de A.2 vous voyez un "trou" = une case vide = tricotez cette maille à l'endroit, puis à la fin de A.2, tricotez la dernière maille avec la 1ère maille du A.2 suivant = le jeté est maintenant la dernière maille du 1er A.2 et la diminution la 1ère maille du A.2 suivant (= le "trou" au début du A.2 suivant), continuez ainsi tout le rang. Bon tricot!
03.09.2026 - 18:05
Unni skrifaði:
Ermer: Etter at hullmønstret er ferdig fortsettes det rundt med glattstrikk. Ved opplegg og videre økning starter antall masker med Størrelse XS og avsluttes med XXL, men når det skal felles får jeg inntrykk av at målene starter med XXL og slutter med XS. Det kan vel ikke stemme at den minste størrelsen skal ha det lengste erme?
28.08.2026 - 13:41DROPS Design svaraði:
Hei Unni, Det er kortere lengde på ermene i større størrelser pga videre skuldervidde og lengre bærestykke. Dette kan selvfølgelig justeres hvis du ønsker lengre/kortere ermer. Hilsen Drops Team.
31.08.2026 - 06:26
Karin skrifaði:
Ik zou enkel de zijboorden van de vest willen gebruiken, niet de ajour in de rest van de trui. Zou je me kunnen zeggen welke schema's ik daarvoor moet gebruiken? Ik kom er zelf niet uit. Alvast hartelijk bedankt!
09.07.2026 - 14:16DROPS Design svaraði:
Dag Karin,
Het is voor ons helaas niet mogelijk om patronen aan te passen naar persoonlijke wensen, dus ik weet niet hoe je dan precies uitkomt met de steken, maar je kunt ongeveer hetzelfde aantal steken opzetten en dan het patroon gebruiken dat je voor de zijkanten ook gebruikt.
14.07.2026 - 21:14
Kristina Lidberg skrifaði:
Oops! Upptäckt att det var jag som räknade/läste fel i mönstret! Mönstret stämmer så frågan från igår kväll kan ignoreras.
09.04.2026 - 08:56
Kristina Lidberg skrifaði:
Stickar storlek S-men något är fel på åtminstone första varvet. Följer jag det som står blir det summa 195 maskor- men storlek S har upplägg 189 m, det är storlek M som har 195 m upplägg. Hur ska första varvet för storlek S stickas?
08.04.2026 - 23:44DROPS Design svaraði:
Hej Kristina. Du stickar såhär i storlek S 1+21+4+24+3+2+72+6+3+2+24+5+21+1= 189 maskor (storlek XS är förklarat i stycket över så det är de första talen du stickar efter här). Mvh DROPS Design
09.04.2026 - 09:21
Jossu skrifaði:
Pitääkö kuvio A.1a ja A.1b tehdä kerroksen lopussa sillein että aloittaa kuvion niin sanotusta väärästä päästä
06.04.2026 - 12:38DROPS Design svaraði:
Hei, lue aina kaikki piirrokset oikean puolen kerroksilla oikealta vasemmalle ja lue piirrokset nurjan puolen kerroksilla vasemmalta oikealle. Eli saman kerroksen kaikki mallikerrat aloitetaan aina samasta reunasta.
10.04.2026 - 17:21
Corry skrifaði:
Hallo, wat is de mooiste kantsteek om te gebruiken voor dit patroon.
09.03.2026 - 15:55DROPS Design svaraði:
Dag Corry,
De kantsteken brei je in ribbelsteken en vallen uiteindelijk weg wanneer het werkstuk in elkaar genaaid wordt.
09.03.2026 - 20:47
Free Flow#freeflowcardigan |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð síð peysa með sjalkraga úr DROPS Bomull-Lin eða DROPS Paris. Stykkið er prjónað með gatamynstri. Stærð XS - XXL.
DROPS 213-18 |
|||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4 (mynsturteikning A.4 á við um ermar). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um ermar): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón upp að handveg. Síðan eru lykkjur felldar af fyrir handveg í hvorri hlið og framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 169-189-195-225-231-251 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 5 með Bomull-Lin eða Paris. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Næsta umferð er prjónuð mismunandi eftir stærðum þannig: Stærð XS, L, XL: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, A.1a yfir næstu 21-28-28 lykkjur (= 3-4-4 mynstureiningar með 7 lykkjum), 4-3-2 lykkjur slétt, A.2 yfir næstu 12-24-24 lykkjur (= 1-2-2 mynstureiningar með 12 lykkjum), A.3 yfir næstu 6-6-6 lykkjur (= 1 mynstureining með 6 lykkjum), 4-3-5 lykkjur slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= í hlið), 3-2-4 lykkjur slétt, A.2 yfir næstu 60-84-84 lykkjur (= 5-7-7 mynstureiningar), A.3 yfir næstu 6-6-6 lykkjur (= 1 mynstureining), 4-3-5 lykkjur slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= í hlið), 3-2-4 lykkjur slétt, A.2 yfir næstu 12-24-24 lykkjur (= 1-2-2 mynstureiningar), A.3 yfir næstu 6-6-6 lykkjur (= 1 mynstureining með 6 lykkjum), 5-4-3 lykkjur slétt, A.1a yfir næstu 21-28-28 lykkjur (= 3-4-4 mynstureiningar), 1 kantlykkja garðaprjón. Stærð S, M, XXL: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, A.1a yfir næstu 21-28-28 lykkjur (= 3-4-4 mynstureiningar með 7 lykkjum), 4-3-2 lykkjur slétt, A.2 yfir næstu 24-24-36 lykkjur (= 2-2-3 mynstureiningar með 12 lykkjum), 3-5-4 lykkjur slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= í hlið), 2-4-3 lykkjur slétt, A.2 yfir næstu 72-72-96 lykkjur (= 6-6-8 mynstureiningar), A.3 yfir næstu 6-6-6 lykkjur (= 1 mynstureining), 3-5-4 lykkjur slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= í hlið), 2-4-3 lykkjur slétt, A.2 yfir næstu 24-24-36 lykkjur (= 2-2-3 mynstureiningar), 5-4-3 lykkjur slétt, A.1a yfir næstu 21-21-28 lykkjur (= 3-3-4 mynstureiningar), 1 kantlykkja garðaprjón. Allar stærðir: Þegar fyrsta umferð hefur verið prjónuð, hefur fækkað um 1 lykkju í hverri einingu A.1a í umferð (= alls 6-6-6-8-8-8 lykkjur færri) = 163-183-189-217-223-243 lykkjur. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu. Prjónið nú A.1b yfir hverja einingu A.1a og prjónið mynstur eins og áður yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð. ATH: Í 5. umferð í A.2 er prjónuð 1 lykkja fleiri með sléttum lykkjum á undan fyrstu lykkju í mynsturteikningu (á við um í fyrsta skipti sem mynsturteikning er prjónuð á eftir kantlykkjum að framan á hægra framstykki og á eftir prjónamerki í hliðum). Í 15. umferð í A.3 er prjónuð 1 lykkja færri með sléttum lykkjum á eftir síðustu lykkju í mynsturteikningu (á við um á undan prjónamerki í hliðum og á undan kantlykkjum að framan á vinstra framstykki). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 43-44-45-46-47-48 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu, fellið af 2 lykkjur í hvorri hlið, þ.e.a.s. 1 lykkja hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið. Prjónið síðan framstykki og bakstykki hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 71-81-85-93-97-107 lykkjur. Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, 2-1-3-1-3-2 lykkjur slétt, prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 66-78-78-90-90-102 lykkjur, 1-0-2-0-2-1 lykkjur slétt, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm, er ekki byrjað á fleiri gatamynstrum á hæðina (svo að úrtakan fyrir hálsmáli komi ekki inn í mitt gatamynstur). Þegar síðasta gatamynstrið hefur verið prjónað til loka er haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm, fellið af miðju 21-21-23-23-25-25 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsi er felld af 1 lykkja = 24-29-30-34-35-41 lykkjur. Þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm, fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 44-49-50-60-61-66 lykkjur. Fyrsta umferðin frá réttu er prjónuð þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, prjónið A.1b yfir næstu 18-18-18-24-24-24 lykkjur, 4-4-3-3-2-2 lykkjur slétt, prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 18-24-24-30-30-36 lykkjur, 2-1-3-1-3-2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu, fellið af fyrstu 24-29-30-34-35-40 lykkjur fyrir öxl, prjónið síðan yfir síðustu 20-20-20-26-26-26 lykkjur eins og áður. Haldið áfram með gatamynstur og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til kantur að framan mælist 7-7-7-7-8-8 cm frá öxl. Í byrjun á næstu 3-3-3-4-4-4 umferðum frá röngu, fellið af fyrstu 5 lykkjur = 5-5-5-6-6-6 lykkjur eftir. Fellið laust af síðustu lykkjurnar í næstu umferð frá röngu. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 44-49-50-60-61-66 lykkjur. Fyrsta umferðin frá réttu er prjónuð þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, 1-0-2-0-2-1 lykkja slétt, mynstur eins og áður yfir næstu 18-24-24-30-30-36 lykkjur, 5-5-4-4-3-3 lykkjur slétt, A.1b yfir næstu 18-18-18-24-24-24 lykkjur, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, fellið af fyrstu 24-29-30-34-35-40 lykkjur fyrir öxl, prjónið síðan yfir síðustu 20-20-20-26-26-26 lykkjur eins og áður. Haldið áfram með gatamynstur og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til kantur að framan mælist 7-7-7-7-8-8 cm frá öxl. Í byrjun á næstu 3-3-3-4-4-4 umferðum frá réttu, fellið af fyrstu 5 lykkjur = 5-5-5-6-6-6 lykkjur eftir. Fellið laust af síðustu lykkjurnar í næstu umferð frá réttu. ERMI: Fitjið upp 35-35-37-39-41-41 lykkjur á sokkaprjón 5 með Bomull-Lin eða Paris. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Skiptið yfir á sokkaprjón 5,5. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Prjónið mynstur þannig: 13-13-14-15-16-16 lykkjur slétt, A.4 (= 9 lykkjur) 13-13-14-15-16-16 lykkjur slétt. Prjónið mynstur í hring svona. Þegar ermin mælist 8-8-8-9-9-9 cm, aukið út 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 4-3½-3-2½-2½-2 cm millibili alls 10-11-12-13-13-15 sinnum = 55-57-61-65-67-71 lykkjur. Þegar ermin mælist 43-41-40-39-39-36 cm, er ekki byrjað á fleiri gatamynstrum á hæðina (þannig að ekki er fellt af á ermi mitt í gatamynstri). Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Þegar ermin mælist 48-46-45-44-44-41 cm, fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju garðaprjón á fram- og bakstykki og innan við affellingarkantinn á ermi. Saumið kragana saman mitt að aftan og saumið kragann hálsmálið. Klippið frá og festið enda. Bomull-Lin verður jafnara og fallegra eftir að það hefur verið þvegið. Þegar stykkið hefur verið prjónað til loka, skolið það, strekkið út í rétt mál – sjá mynsturteikningu og þurrkið flatt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #freeflowcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 14 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 213-18
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.