DROPS Bomull-Lin
DROPS Bomull-Lin
53% Bómull, 47% Hör
frá 726.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6534.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Free Flow

Prjónuð síð peysa með sjalkraga úr DROPS Bomull-Lin eða DROPS Paris. Stykkið er prjónað með gatamynstri. Stærð XS - XXL.

DROPS 213-18
DROPS Design: Mynstur l-155
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS BOMULL-LIN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
450-500-550-650-700-750 litur 03, ljós beige

Eða notið:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
550-600-650-700-750-850 g litur 26, beige

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón/mynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: lengd 80 cm fyrir garðaprjón.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Bomull-Lin
DROPS Bomull-Lin
53% Bómull, 47% Hör
frá 726.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6534.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4 (mynsturteikning A.4 á við um ermar). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón upp að handveg. Síðan eru lykkjur felldar af fyrir handveg í hvorri hlið og framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 169-189-195-225-231-251 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 5 með Bomull-Lin eða Paris. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Næsta umferð er prjónuð mismunandi eftir stærðum þannig:

Stærð XS, L, XL:
Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, A.1a yfir næstu 21-28-28 lykkjur (= 3-4-4 mynstureiningar með 7 lykkjum), 4-3-2 lykkjur slétt, A.2 yfir næstu 12-24-24 lykkjur (= 1-2-2 mynstureiningar með 12 lykkjum), A.3 yfir næstu 6-6-6 lykkjur (= 1 mynstureining með 6 lykkjum), 4-3-5 lykkjur slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= í hlið), 3-2-4 lykkjur slétt, A.2 yfir næstu 60-84-84 lykkjur (= 5-7-7 mynstureiningar), A.3 yfir næstu 6-6-6 lykkjur (= 1 mynstureining), 4-3-5 lykkjur slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= í hlið), 3-2-4 lykkjur slétt, A.2 yfir næstu 12-24-24 lykkjur (= 1-2-2 mynstureiningar), A.3 yfir næstu 6-6-6 lykkjur (= 1 mynstureining með 6 lykkjum), 5-4-3 lykkjur slétt, A.1a yfir næstu 21-28-28 lykkjur (= 3-4-4 mynstureiningar), 1 kantlykkja garðaprjón.

Stærð S, M, XXL:
Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, A.1a yfir næstu 21-28-28 lykkjur (= 3-4-4 mynstureiningar með 7 lykkjum), 4-3-2 lykkjur slétt, A.2 yfir næstu 24-24-36 lykkjur (= 2-2-3 mynstureiningar með 12 lykkjum), 3-5-4 lykkjur slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= í hlið), 2-4-3 lykkjur slétt, A.2 yfir næstu 72-72-96 lykkjur (= 6-6-8 mynstureiningar), A.3 yfir næstu 6-6-6 lykkjur (= 1 mynstureining), 3-5-4 lykkjur slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= í hlið), 2-4-3 lykkjur slétt, A.2 yfir næstu 24-24-36 lykkjur (= 2-2-3 mynstureiningar), 5-4-3 lykkjur slétt, A.1a yfir næstu 21-21-28 lykkjur (= 3-3-4 mynstureiningar), 1 kantlykkja garðaprjón.

Allar stærðir:
Þegar fyrsta umferð hefur verið prjónuð, hefur fækkað um 1 lykkju í hverri einingu A.1a í umferð (= alls 6-6-6-8-8-8 lykkjur færri) = 163-183-189-217-223-243 lykkjur. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu. Prjónið nú A.1b yfir hverja einingu A.1a og prjónið mynstur eins og áður yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð.
ATH: Í 5. umferð í A.2 er prjónuð 1 lykkja fleiri með sléttum lykkjum á undan fyrstu lykkju í mynsturteikningu (á við um í fyrsta skipti sem mynsturteikning er prjónuð á eftir kantlykkjum að framan á hægra framstykki og á eftir prjónamerki í hliðum).
Í 15. umferð í A.3 er prjónuð 1 lykkja færri með sléttum lykkjum á eftir síðustu lykkju í mynsturteikningu (á við um á undan prjónamerki í hliðum og á undan kantlykkjum að framan á vinstra framstykki). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 43-44-45-46-47-48 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu, fellið af 2 lykkjur í hvorri hlið, þ.e.a.s. 1 lykkja hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið. Prjónið síðan framstykki og bakstykki hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 71-81-85-93-97-107 lykkjur. Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, 2-1-3-1-3-2 lykkjur slétt, prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 66-78-78-90-90-102 lykkjur, 1-0-2-0-2-1 lykkjur slétt, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka.
Þegar stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm, er ekki byrjað á fleiri gatamynstrum á hæðina (svo að úrtakan fyrir hálsmáli komi ekki inn í mitt gatamynstur). Þegar síðasta gatamynstrið hefur verið prjónað til loka er haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm, fellið af miðju 21-21-23-23-25-25 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsi er felld af 1 lykkja = 24-29-30-34-35-41 lykkjur. Þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm, fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 44-49-50-60-61-66 lykkjur. Fyrsta umferðin frá réttu er prjónuð þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, prjónið A.1b yfir næstu 18-18-18-24-24-24 lykkjur, 4-4-3-3-2-2 lykkjur slétt, prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 18-24-24-30-30-36 lykkjur, 2-1-3-1-3-2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu, fellið af fyrstu 24-29-30-34-35-40 lykkjur fyrir öxl, prjónið síðan yfir síðustu 20-20-20-26-26-26 lykkjur eins og áður. Haldið áfram með gatamynstur og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til kantur að framan mælist 7-7-7-7-8-8 cm frá öxl. Í byrjun á næstu 3-3-3-4-4-4 umferðum frá röngu, fellið af fyrstu 5 lykkjur = 5-5-5-6-6-6 lykkjur eftir. Fellið laust af síðustu lykkjurnar í næstu umferð frá röngu.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 44-49-50-60-61-66 lykkjur. Fyrsta umferðin frá réttu er prjónuð þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, 1-0-2-0-2-1 lykkja slétt, mynstur eins og áður yfir næstu 18-24-24-30-30-36 lykkjur, 5-5-4-4-3-3 lykkjur slétt, A.1b yfir næstu 18-18-18-24-24-24 lykkjur, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, fellið af fyrstu 24-29-30-34-35-40 lykkjur fyrir öxl, prjónið síðan yfir síðustu 20-20-20-26-26-26 lykkjur eins og áður. Haldið áfram með gatamynstur og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til kantur að framan mælist 7-7-7-7-8-8 cm frá öxl. Í byrjun á næstu 3-3-3-4-4-4 umferðum frá réttu, fellið af fyrstu 5 lykkjur = 5-5-5-6-6-6 lykkjur eftir. Fellið laust af síðustu lykkjurnar í næstu umferð frá réttu.

ERMI:
Fitjið upp 35-35-37-39-41-41 lykkjur á sokkaprjón 5 með Bomull-Lin eða Paris. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Skiptið yfir á sokkaprjón 5,5. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Prjónið mynstur þannig: 13-13-14-15-16-16 lykkjur slétt, A.4 (= 9 lykkjur) 13-13-14-15-16-16 lykkjur slétt. Prjónið mynstur í hring svona. Þegar ermin mælist 8-8-8-9-9-9 cm, aukið út 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 4-3½-3-2½-2½-2 cm millibili alls 10-11-12-13-13-15 sinnum = 55-57-61-65-67-71 lykkjur. Þegar ermin mælist 43-41-40-39-39-36 cm, er ekki byrjað á fleiri gatamynstrum á hæðina (þannig að ekki er fellt af á ermi mitt í gatamynstri). Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Þegar ermin mælist 48-46-45-44-44-41 cm, fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með lykkjuspori innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju garðaprjón á fram- og bakstykki og innan við affellingarkantinn á ermi. Saumið kragana saman mitt að aftan og saumið kragann hálsmálið. Klippið frá og festið enda.
Bomull-Lin verður jafnara og fallegra eftir að það hefur verið þvegið. Þegar stykkið hefur verið prjónað til loka, skolið það, strekkið út í rétt mál – sjá mynsturteikningu og þurrkið flatt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 09.09.2022
FRAM- OG BAKSTYKKI: XS,L,XL:..A.1a yfir næstu 21-28-28 lykkjur (= 3-4-4 mynstureiningar), 1 kantlykkja garðaprjón.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður brugðið svo að það myndist gat. Þegar mynstrið er prjónað á ermi, prjónið uppsláttinn slétt í næstu umferð svo að það myndist gat
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 3 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 213-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (64)

country flag Catherine wrote:

Bonjour, je voudrais juste mentionner une petite erreur dans les explications. Dans la rubrique "Taille XS, L, XL", dernière ligne, il est indiqué "... au-dessus des 21-28-28 mailles suivantes (=3-3-4 motifs), 1 maille lisière au point mousse." En réalité, il s'agit de "(3-4-4 motifs)" et non 3-3-4. Bien cordialement, Catherine

16.07.2022 - 07:57

country flag Anna wrote:

Modello Dr ops 213-18 scrivete che alla fine del 1 o ferro sarà diminuita una maglia ogni ripetizione di A.1a ….. cosa sbaglio io ogni diminuzione di A.1a come spiegato dal vostro diagramma ho diminuzione di tre maglie…..

20.03.2022 - 09:20

DROPS Design answered:

Buonasera Anna, il 1° ferro di A.1a prevede 3 diminuzioni e 2 aumenti (gettati), per un totale di 1 diminuzione per ogni ripetizione di A.1a. Buon lavoro!

10.08.2022 - 22:54

country flag Kathrin wrote:

Hallo, ich habe mit der Jacke angefangen und mir ist nicht ganz klar, ob die Zunahme und Abnahme der einen Masche nur EINMAL nötig ist oder in jeder 5. bzw. 15. Reihe des Diagramms: BITTE BEACHTEN: in der 5. Reihe von A.2 1 Masche rechts mehr stricken, bevor die erste Masche des Diagramms gestrickt wird (gilt für das erste Mal, wenn das Diagramm nach den Blenden-Maschen am rechten Vorderteil und nach dem Markierungsfaden an der Seite gestrickt wird).

28.05.2021 - 16:06

DROPS Design answered:

Liebe Kathrin, bei der 5. Reihe fangen Sie mit 1 Masche rechts vor A.2, dann stricken Sie A.2 und enden mit nur 5 M in A.3 (= die erste M in A.3 wurde mit der letzten Maschen vorrigen A.2 gestrickt); und am Ende Reihe 15 in A.3 stricken Sie die letzte Masche in A.3 zusammen mit der nächsten Maschen (1 Masche glatt rechts weniger = wurde mit A.3 zusammengestrickt). Viel Spaß beim stricken!

28.05.2021 - 16:18

country flag Inmaculada Santos Hernandez wrote:

Hola me gustaría hacer este patrón en la talla M,pero al montar los 195 puntos,veo que no coinciden con su patrón,me salen 209,una diferencia de 14 puntos, creo que el error está en los primeros 28,que pide el patrón,pues tendrían que ser 21,si es así,el resto de las indicaciones estarían bien?muchas gracias

10.05.2021 - 12:29

DROPS Design answered:

Hola Inmaculada. Gracias por tu aviso. Exactamente ha sido una errata al publicar. Los puntos para la talla M son 21 para el diagrama A.1a

16.05.2021 - 17:54

country flag Irzyk wrote:

Bonjour le diagramme A1a la jetee doit etre fait combien de fois une fois ou deux et deuxiement A1a on le tricote une seule fois ou A1a et A1b alterne plusieurs fois merci de votre reponse je comprends ne pas pourquoi les diagrammes ne sont pas en entier vous avez des beaux modeles les explications horribles

27.04.2021 - 18:04

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Irzyk, A.1a se tricote sur 7 mailles ainsi (= 1 jeté, glisser 1 maille à l'endroit, 3 mailles ensemble à l'endroit, passer la maille glissée par-dessus les mailles tricotées ensemble, 1 jet, 3 mailles endroit) = il reste 6 mailles. Vous répétez A.1a en largeur (3 ou 4 fois en fonction de la taille), quand A.1a est terminé, vous tricotez A.1b (= 6 m) au-dessus de chaque A.1a. Bon tricot!

28.04.2021 - 07:43

country flag Irzyk wrote:

Bonjour je ne comprends pas vos explications vous pouvez pas faire des diagrammes en entier que des morceaux .Cela fait 5 fois que je recommence et je tombe toujours sur le meme probleme je me retrouve avec des mailles en plus dommage c\'est un tres beau modele

26.04.2021 - 11:16

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Irzyk, n'hésitez pas à nous indiquer pour quel diagramme vous rencontrez des difficultés de lecture, nous pourrons ainsi vous aider.

26.04.2021 - 12:52

country flag Charlotte Ward Kihle wrote:

Hei. En liten kommentar. Jeg har kjøpt garn til jakken free flow som min mor skal strikke. Hun er 86 år og har i alle år strikket og stort sett forstått oppskrifter. Denne gangen sier hun at hun ikke kan starte på den fordi hun ikke klarer å skjønne hva hun skal gjøre. Er det en lettere måte å forklare henne dette mønsteret på? Mvh Charlotte 😊

13.04.2021 - 22:16

country flag Katharina Prüne wrote:

Vielen Dank für die wunderbare Anleitung. Ich habe die empfohlene Bomull Lin verwendet. Die Strickjacke ist wunderschön geworden.

10.04.2021 - 09:23

country flag Lyn wrote:

Not sure how the shawl collar should look. A picture showing the back of the garment would assist.

30.03.2021 - 18:01

DROPS Design answered:

Dear Lyn, shawl coller looks like the chart, ie ends like a tip. You then sew both ends together (right and left collar) and sew the side of the collar -shorter side) along neckline on back piece. Happy knitting!

07.04.2021 - 09:13

country flag Katharina Prüne wrote:

Guten Tag, Ich möchte mit dieser Jacke beginnen. Habe mir die Anleitung durchgelesen. Könnten Sie mir sagen, was ist der Unterschied zwischen Rumpfteil und Rückenteil?

12.03.2021 - 13:49

DROPS Design answered:

Liebe Frau Püne, diese Jacke wird von unten nach oben gestrickt, und mit Rumpfteil begonnen, dh das untere Teil der Jacke wird in einem Stück gestrickt (Hinreihen vom rechten Vorderteil durch Rückenteil und bis linken Vorderteil) bis zum Armlöcher gestrickt, dann wird jedes Teil separat gestrickt vom Armloch bis Schulter. Viel Spaß beim stricken!

12.03.2021 - 15:29